Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 39
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 39 Streita - forvarnir og viðbrögð Morgunverðarfundur á Grand Hóteli 3. febrúar kl. 8:30-10:30 Dagskrá:  Heilsuvernd og heilsuefling á vinnustað: Svava Jónsdóttir og Ása G. Ásgeirsdóttir, sérfræðingar hjá Vinnueftirlitinu.  Hámörkun árangurs og vellíðunar á vinnustað: Stefnumiðuð nálgun við streitustjórnun. Dr. Valerie J. Sutherland, ráðgjafi hjá Sutherland Bradley Associates í Bretlandi.  Panelumræður með þátttöku fulltrúa Vinnueftirlitsins, Sjúkrasjóðs Eflingar, geðlækna, Tryggingastofnunar og Marel. Fundarstjóri er Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar. Aðgangseyrir er kr. 2.500 (morgunverður innifalinn). Skráning á netfangingu: asa@ver.is eða í síma 550 4653 Fundurinn er haldinn á vegum Vinnueftirlitsins - Landsnets um heilsueflingu á vinnustöðum, Landlæknisembættisins og Starfsleikni.is Snyrtifræði er 12 mánaða nám ásamt 10 mánaða starfsþjálfun á snyrtistofu. Nám við Snyrtiskólann er lánshæft hjá LÍN. Nánari upplýsingar og skráning í síma 553 7900. www.snyrtiskolinn.is HJALLABREKKU 1, KÓPAVOGI Vorönn hefst í mars Vetrarönn hefst í ágúst SÍÐUSTU þrjú sumur hefur Ár- mann Örn Ármannsson haft veg og vanda af íslensk-franskri tónlist- arhátíð í þorpinu Esparron de Verd- on í Provence-héraði. Forsagan er sú að fyrir fimm árum keyptu Ár- mann og kona hans heitin sér hús rétt utan við þorpið til að hafa þar vetursetu. „Fljótlega uppgötvuðum við að þó þessi staður væri paradís á jörð, þá var þetta alveg músíklaus paradís. Við höfðum verið svo rík á Íslandi að margir góðir vinir okkar eru meðal fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar og þess vegna kom eig- inlega af sjálfu sér að við reyndum að fá þá til að koma út og að spila fyrir franska samsveitunga okkar sem margir hverjir höfðu aldrei far- ið á tónleika áður,“ segir Ármann og bendir á að vissulega sé Frakkland ekkert einsdæmi hvað þetta varði, því í öllum löndum megi finna fólk sem aldrei hefur heyrt lifandi flutn- ing hvorki á rokktónlist né klass- ískri. „Í Frakklandi er það því miður svo að margir líta á lifandi tónlist- arflutning sem hástéttarneysluvöru. Venjulegum bóndakarli eða almenn- ingi dettur hreinlega ekki í hug að fara á tónleika.“ Að sögn Ármanns hafa þorpsbúar hins vegar tekið tón- listarhátíðinni mjög vel og eru nú farnir að ganga að henni sem vísri á hverju sumri. „Margir samsveitunga minna hafa tjáð mér að þeim þyki af- skaplega vænt um þetta framtak og vildu endilega að þessu yrði fram haldið og auðvitað þykir mér mjög vænt um þessar góðu viðtökur.“ Flytja aðeins tónlist í háum gæðaflokki Tónlistarhátíðin, sem ber yfir- skriftina Provence – Islande, er haldin í upphafi ferðamannatíma- bilsins, þ.e. um mánaðamótin júní/ júlí. „Á þeirri viku sem hátíðin stendur bjóðum við að jafnaði upp á 5 til 7 tónleika. Allt frá upphafi höf- um við haft það að leiðarljósi að flytja aðeins tónlist í háum gæða- flokki, auk þess sem við höfum haft það að markmiði að blanda saman þessum ólíku, en um leið líku menn- ingarheimum sem heita Efra-Prov- ence og Ísland, enda hefur dagskrá- in tekið mið af því. Við höfum því verið jafnt með íslenska og franska tónlistarmenn, auk þess sem við höf- um lagt áherslu á að bjóða íslensk- um tónlistarmönnum sem búa og starfa í Frakklandi að koma hér fram. Venjulega höfum við verið með eina til tvær litlar hljóðfæragrúppur, t.d. strengjatríó eða kvartett, og oft höfum við boðið upp á annaðhvort salon- eða tangósveit. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að fá íslenskan söngvara til að koma fram á hátíð- inni, því við eigum svo óskaplega mikið af góðum söngvurum. Auk þess sem ég hef alltaf haft hlut pí- anósins mikinn,“ segir Ármann sem sjálfur er píanóleikari í frístundum. Meðal tónlistarmanna sem komið hafa fram á hátíðinni má nefna pí- anóleikarana Vovka Stefán Ashken- azy og Eddu Erlendsdóttur, sem búa og starfa í Frakklandi, Kristin Sigmundsson bassasöngvara, Berg- þór Pálsson barítonsöngvara, Jónas Ingimundarson píanóleikara, Víking Heiðar Ólafsson píanóleikara, Eyjólf Eyjólfsson tenórsöngvara og Dalton Baldwin píanóleikara, auk Tríós Reykjavíkur sem skipað er Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, Gunn- ari Kvaran sellóleikarar og Peter Máté píanóleikara. Tónlistarhátíðir verða ekki haldnar án styrkja Að sögn Ármanns hefur tekið tals- verðan tíma að byggja upp Provence – Islande-hátíðina, enda tekur tíma fyrir tónlistarhátíð á borð við þessa að festa sig í sessi. „Við höfum notið styrkja frá ýmsum fyrirtækjum at- vinnulífsins og hinu opinbera, bæði menntamálaráðuneytinu heima á Ís- landi og frönskum yfirvöldum, enda ekki hægt að halda svona hátíð án styrkja þar sem stilla verður miða- verðinu í hóf. Af einstökum fyrir- tækjum verð ég að minnast á Flug- leiðir, sem styrkt hafa okkur á rausnarlegan hátt með því að flytja íslensku listamennina fyrir lág- marksfargjöld á háannatíma, Ís- landsbanka og Sjóvá, auk þess sem ég má til með að þakka Ríkisútvarp- ið fyrir þann styrk sem það veitti í fyrra til tónsköpunar þegar frum- flutt var verk eftir Þórð Magnússon tónskáld.“ Greinilegt er að fransk-íslenska tónlistarhátíðin hefur verið að spyrj- ast út í héraðinu á síðustu árum og þannig hafa yfirvöld í nágranna- þorpum óskað eftir einhvers konar samstarfi við skipuleggjendur Prov- ence – Islande. „Á síðasta ári var gerð tilraun með að fara með tón- leikaprógramm í tvö nærliggjandi þorp, annars vegar var spilað í dóm- kirkjunni í Riez og hins vegar í kirkju frá elleftu öld í þorpinu Mous- tiers Sainte-Marie. Væntanlega verður hátíðin í sumar þó fyrst og fremst í okkar þorpi. Hins vegar hafa yfirvöld í nágrannaþorpinu Val- ensole sýnt hátíðinni mikinn áhuga og óskað eftir því að njóta krafta ís- lenska tónlistarfólksins, þannig að það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því,“ segir Ármann að lokum. Tónlistin ómar í sveitum Provence Morgunblaðið/Ásdís „Fjöldi samsveitunga minna hefur tjáð mér að þeim þyki afskaplega vænt um þetta framtak og vildu endilega að þessu yrði fram haldið og auðvitað þykir mér mjög vænt um þessar góðu viðtökur,“ segir Ármann Örn Ármanns- son sem haft hefur veg og vanda af fransk-íslenskri tónlistarhátíð í Provence-héraði. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930 SMS tónar og tákn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.