Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 49
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 49
EIÐISTORG, 6. HÆÐ Í LYFTUHÚSI - EINSTAKT ÚTSÝNI
Opin og björt 147 fm íbúð með tvennum
svölum og stæði í bílageymslu. Íbúðin skipt-
ist í hol, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu,
sjónvarpsherbergi (sem hægt er að breyta í
svefnherbergi), eldhús og baðh. Einstakt út-
sýni er úr íbúðinni yfir Faxaflóasvæðið og
suður yfir allt frá Bessastöðum til Garð-
skaga. Hús er nýlega viðgert og málað og sameign hefur verið endurnýjuð, skipt um teppi
og málað. V. 24,8 m. 3871
KVISTHAGI - MEÐ BÍLSKÚR
Vorum að fá í sölu glæsilega 100 fm neðri
hæð í 4-býlishúsi. 31 fm bílskúr fylgir. Íbúðin
hefur öll verið standsett. Parket og flísar á
gólfum. 3880
EFSTALEITI - BREIÐABLIK
Glæsileg íbúð á 2. hæð í þessu vinsæla fjöl-
býlishúsi. Íbúðin, sem er 4ra herb., er um
145 fm auk bílastæðis í bílageymslu. Glæsi-
leg stofa, borðstofa, bókastofa og sólstofa.
Vandaðar innréttingar. Sérþvottahús er í
íbúðinni. Glæsilegt útsýni. Mikil sameign
m.a. sundlaug og heitir pottar. V. 29 m.
3809
HRAUNTEIGUR- GLÆSILEG ÍBÚÐ
Mjög falleg og mikið endurnýjuð ca 70 fm
íbúð á 2. hæð í 6-býli á rólegum og góðum
stað. Íbúðin skiptist í hol, stofu, eldhús, svefn-
herbergi og baðherbergi. Í kjallara er sér-
geymsla með hillum og sameiginlegt þvotta-
hús. Íbúðin hefur verið endurnýjuð nánast frá
grunni, m.a. gluggar og gler, gólfefni, innrétt-
ingar, rafmagn, lagnir og baðherbergi. Veggja-
klæðningar, skápar, listar, gereft o.fl. er sér-
smíðað og sérsniðið að þessari íbúð, á mjög
vandaðan og glæsilegan hátt. Suðvestursvalir. V. 12,9 m. 3872
URRIÐAKVÍSL - GLÆSILEGT
Stórglæsilegt um 294 fm einbýlishús í fallegri
lokaðri götu. Húsið stendur á hornlóð sem er
gróin og mjög falleg m. stórum pöllum og
skjólveggjum. Frábært útsýni. Á neðri hæð-
inni eru m.a. stórar stofur m. arni, eldhús,
herb., þvh., snyrting o.fl. Á efri hæðinni er
stórt alrými, 3 mjög stór herb. og bað. Í kj. er
um 40 fm tómstundaherb. V. 35 m. 3712
VESTURGATA - GLÆSILEGT EINBÝLI
Eitt elsta steinhús í Reykjavík sem hefur ver-
ið endurnýjað frá grunni. Eignin skiptist m.a.
í hol, stofu, eldhús, sjónvarpsherbergi, her-
bergi, snyrtingu, baðherbergi, þvottahús,
fataherbergi og vinnuaðstöðu. Nýtt gler, nýtt
rafmagn, lagnir, skólp, einangrun o.fl. en
segja má að húsið sé nánast nýtt. Timbur-
pallur í garði. Tvö upphituð bílastæði á lóð.
Byggingarréttur fyrir öðru, u.þ.b. 240 fm
húsi á lóð. Eign í sérflokki fyrir þá sem vilja
eiga lítið einbýli í vesturbænum. V. 21 m.
3868
BARMAHLÍÐ - STANDSETT
2ja herb. mikið endurnýjuð íbúð í lítið niður-
gröfnum kjallara. Nýtt bað, eldhús, gólfefni,
skápar, gluggar og gler o.fl. Mjög góð íbúð.
3801
FLÉTTURIMI
Falleg u.þ.b. 95 fm 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð sem skiptist í hol, stofu, 2 svefnherb.,
geymslu/þvottah. í íb., eldhús og bað.
Stæði í bílageymslu fylgir en innang. er í
bílag. úr sameign. Sérgeymsla í kjallara.
Mjög falleg og vel skipulögð íbúð. 3875
MELÁS - ALLT SÉR
Góð 111 fm neðri sérhæð (jarðhæð) með
innbyggðum bílskúr og fallegu útsýni. Allt
sér. Íbúðin skiptist í stofu, 3 svefnherbergi
(eitt lítið), eldhús, baðherbergi og bílskúr
sem er notaður sem þvottahús og geymsla
(getur verið svefnherbergi). Opið er út á
stóra suðurverönd úr stofu. V. 15,2 m. 3873
GVENDARGEISLI
Falleg, ný 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með
sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi ásamt stæði í
bílageymslu. Eignin skiptist m.a. í stofu, þrjú
herbergi og baðherbergi. Geymsla og
þvottahús í íbúð. Innréttingar eru mahóní.
Íbúðin er án gólfefna. V. 18,5 m. 3865
HRAUNBÆR - STANDSETT
Vorum að fá í sölu mjög góða 95 fm 4ra
herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi sem hefur
nýlega verið standsett. Íbúðin skiptist m.a. í
stóra stofu og þrjú herbergi. Parket og flísar
á gólfum. Endurnýjað eldhús. V. 13,4 m.
3857
SÁ grunur hefur læðst að mér
að forsætisráðherrann og vinir
hans séu komnir í harða sam-
keppni við Spaugstofuna. Grínið
miði að því að kanna þanþol þjóð-
arinnar og hversu langt megi leiða
sauðtrygga fylgismenn með að
segja eitt en gera svo bara allt
annað:
– Þjóðin tók undir með forsætis-
ráðherranum þegar
hann brást við kaup-
réttarsamningum for-
stjóra Kaupþings sem
hefði fært þeim
hundruð milljóna
króna kaupauka. Fólk
horfði síðan dolfallið á
Alþingi samþykkja
hundruð milljóna
króna kaupauka fyrir
hann sjálfan strax á
eftir með stjórnarand-
stöðuna sem viðhlæj-
endur þó að sumir
væru í þykjustunni á
móti. Formenn stjórnarand-
stöðuflokkanna fengu 50% launa-
hækkun í þóknun fyrir að sam-
þykkja sérsniðinn
kaupaukasamning forsætisráð-
herrans og hlógu dátt en gættu
þess að skella ekki upp úr framan í
þá sem skildu ekki gamanið í sjálf-
töku þeirra og mannsins úr vasa
þjóðarinnar. Það væri mikið grín
öllu hugsandi fólki ef þjóðin lætur
alþingismennina komast upp með
þetta.
– Spaugið verður þó ennþá
skemmtilegra ef hugsað er til lang-
stærsta kaupréttarsamnings Ís-
landssögunnar, sem ekki virðist
hafa truflað forsætisráðherrann.
Þarna er átt við kaupréttarsamn-
ing Kára Stefánssonar, forstjóra
Íslenskrar erfðagreiningar, sem
fékk að kaupa 2 milljóna stofnhluti
í deCODE fyrir 2000 $ eða sem
svarar 140.000 krónum á núverandi
gengi. Sniðugt fyrir Kára að borga
aðeins 7 aura (0.001$) fyrir hvert
bréf og snjallt þegar ríkisbank-
arnir greiddu sautjánfalt nafnverð
(17 $) fyrir bréfin út á loftkennda
og glannalega viðskiptahugmynd.
Þetta var 17 þúsundfalt verðið sem
Kári borgaði. Skopskyn ríkisbank-
anna dugði til að kaupa bréf í de-
CODE fyrir 7 milljarða króna.
Hver er skýringin á því að Bún-
aðarbankinn, Landsbankinn og
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
urðu svona kaupglaðir í þessu fyr-
irtæki sem hafði ekki einu sinni
verið skráð á markaðinn? Tóku
þeir þetta upp hjá sjálfum sér?
– Og skemmtilegt var þegar
landsfaðirinn lék hlutverk í Perl-
unni á deCODE-sýningu, sem virt-
ist gerð til að fá almenning til þess
að trúa því að mesta fjármála-
ævintýri allra alda væri að renna
upp með starfsemi deCODE og
bréfin fóru í 65 $ (4.550 kr.), sem
er 65 þúsundfalt hærra verð en
Kári greiddi. Ef Kári hefði selt all-
an þennan hlut sinn á milliverði
t.d. 40 $ hefði hann fengið sem
samsvarar 5.600.000.000 krónur
fyrir 140.000 króna kaup-
réttasamninginn, fjórar milljónir
króna fyrir hvern 100 kall, – fjöru-
tíu milljónir króna fyrir þúsund
kallinn!.
– Kári hefur viðurkennt að hafa
selt nokkur hundruð þúsund bréf á
þessum tíma en seldi síðast fyrir
stuttu 100 þúsund bréf. Hann á
engu að síður núna á fjórðu milljón
bréfa í deCODE (hann hefur gert
fleiri kaupréttarsamninga) og hef-
ur hagnast um milljarða króna,
sennilega mikið af sparifé lands-
manna og af ógæfu fjölda Íslend-
inga sem sumir misstu allt sitt.
Forsætisráðherrann sá til þess að
Kári og allir áhættufjárfestarnir í
deCODE skemmtu sér vel. Þeir
gengu af vettvangi með feiknaleg-
an gróða þrátt fyrir stórkostlegan
taprekstur fyrirtæksins alla tíð og
er drepfyndið ef maður hefur svo-
leiðis húmor. Þarna átti málshátt-
urinn eins dauði er annars brauð
kannski svo sjúklega skemmtilega
við. Hlutur forsætisráðherrans í
deCODE ævintýrinu er svo ótrú-
lega fyndinn að þjóðin öll fær að
skellihlæja þegar brandarinn verð-
ur allur sagður. Hjá Kaupþingi var
ekki svona gaman enda bara verið
að skipta húmorslausum ofsagróða.
– Rosalega var hann líka fyndinn
fundur forsætisráðherrans í Lond-
on með formanni einkavæðing-
arnefndar. Formaðurinn, sem hafði
setið í heilan áratug, sagðist ekki
hafa boðið forsætis-
ráðherranum 300
milljóna króna mútur
fyrir hönd Baugs.
Hann sagðist hafa
sagt forsætisráðherra
að altalað væri að
hann hefði þegið mút-
ur hjá deCODE; það
væri fyrirmyndin, sem
Baugsfeðgar áttu að
hafa. Forsætisráð-
herrann sagðist hins-
vegar hafa fengið boð
um mútur frá Baugi.
Hvorki forysta Fram-
sóknarflokkssins né Sjálfstæð-
isflokksins hafa hins vegar svarað
spurningum um greiðslur frá de-
CODE nema því að þeir hafi ekki
fengið greiðslur í kosningasjóði
flokkanna. Hvað með aðra sjóði
flokkanna eða aðila tengda þeim?
– Fyndni forsætisráðherrans er
lyginni líkust. Hann kallar þá götu-
stráka sem honum finnast leið-
inlegir og kastar drullukökum í þá
og fyrirtæki þeirra að hætti götu-
stráks. Hann segir ekki unnt að
vitna í tveggja manna tal en gerir
það svo sjálfur vegna þess að þó að
þeir hafi verið tveir hafi þeir samt
verið þrír en sá þriðji hafi bara
ekki verið til staðar þegar mút-
urnar voru boðnar. Eða þannig!
– Hann og vinur hans gerðu
handrit að kvikmynd þar sem var-
að er við eftirlitsáráttu hins op-
inbera á sama tíma og hann boðar
að nú eigi einmitt að herða þetta
sama eftirlit hjá sumum. Athuga
þanþolið!
– Í sama kvikmyndahandriti
grínaranna kemur við sögu ólög-
legur gagnagrunnur sem kerf-
isófreskjan hefur komið sér upp
um hagi fólks. Forsætisráðherrann
sjálfur fékk léttlynda alþingismenn
til að samþykkja einmitt sams kon-
ar gagnagrunn (á heilbrigðissviði) í
andstöðu við m.a. stjórnarskrána,
sjúkralög, mannréttindasáttmála
og Helsinki sáttmálann, alþjóða-
samþykkt lækna um grundvallar-
siðgæði í rannsóknarstarfi.
– Hann fordæmir meinta mis-
notkun andstæðinga á fjölmiðlum á
sama tíma og þjóðin horfir upp á
vini hans hreiðra um sig í sjón-
varpi allra landsmanna með enda-
lausa athygli og ausa að auki tug-
um milljónum króna úr sjóðunum
þar, m.a. fyrir afar slaka sjón-
varpskvikmynd og hlálegan kynn-
ingarþátt (auglýsingu) um al-
ræmda bók. Kvikmyndasjóður var
látinn styrkja kynningarþáttinn
(auglýsinguna) sem heimildarmynd
og sjónvarpið borgaði svo fyrir að
birta auglýsinguna í stað þess að
fá auglýsinguna greidda. Allir gátu
hlegið að því.
– Þegar forstöðumaður kvik-
myndasjóðs neitaði vini hans um
styrk úr kvikmyndasjóði til þess að
gera mynd eftir sögu hans höfðu
menn í flimtingu að nú yrði for-
stöðumaðurinn látinn fjúka eins og
þjóðhagstofustjórinn á undan hon-
um fyrir óþekktina. Áður hafði
hann hótað fyrrum útvarpsstjóra
með frægu bréfi fyrir að vera ekki
skemmtilegur við einkavininn. Og
forstöðumaður kvikmyndasjóðs
fauk eins og útvarpsstjórinn áður.
Nema hvað?
– Auðvitað fékkst svo ekki að-
eins styrkur úr kvikmyndasjóði
heldur var hann hærri en veittur
hefur verið fyrir sjónvarpsmynd, –
22 milljónir króna. Sjónvarp allra
landsmanna greiddi svo 10 millj-
ónir króna fyrir að sýna þessa
grínaktugu mynd sem fagmenn
segja að kosti mest 10–15 milljónir
króna að gera (venjulega eru
greiddar 2–3 milljónir fyrir að sýna
íslenskar myndir) og nánast engin
nema klíkan nennti að sjá í bíó.
Auk þess fékk styrkjahöfðinginn
(einkavinurinn) tugi milljóna króna
til viðbótar til myndarinnar – bara
svona til gamans. Athygli vakti
þegar hann fékk nýlega 10 milljóna
króna styrk frá umhverfisráðu-
neytinu og þótti sérkennilegur
rausnaskapur ráðherrans.
– Forsætisráðherrann talar
fjálglega um gildi frelsis fyrir alla
en ekki fáa útvalda. Þegar hæsti-
réttur kvað upp þann dóm að fisk-
veiðistjórnunin stríddi gegn jafn-
ræðis- og atvinnufrelsisákvæðum
stjórnarskrárinnar skildi hann
strax grínið og lét málaliða sína
snúa út úr dómnum og gerðist þar
með gerandi og verjandi mesta
óréttlætis, eignatilfærslu og frels-
isskerðingar a.m.k. í nútímasögu
Íslands ef ekki frá upphafi – allt til
að skemmta nokkrum vinum. Við
gátum öll skellihlegið þegar hann
sagði dóminn hefði verið aðeins um
5. grein laganna af því að dóm-
ararnir hefðu aðeins verið 5. Ef
dómararnir hefðu verið 7 hefði
dómurinn einnig tekið til 7. greinar
laganna sem fjallar um útdeilingu
kvótans. Margir virtir lögmenn og
um 70% allra prófessora Háskóla
Íslands töldu ástæðu til að lýsa op-
inberlega yfir sérstakri aðdáun
sinni á skrýtlu mannsins auk fjölda
annarra mætra manna! Vinur hans
í hinum brandaraflokknum sagði
líka góðar skrýtlur um stjórn-
arskrána og mannréttindi við þetta
tækifæri.
– Skopskyn forsætisráðherrans
fær hvergi að njóta sín jafn vel og
í umræðunni um lénsgreifaveldið í
sjávarútvegi (og raunar landbúnaði
einnig) þar sem frjálsri samkeppni
hefur verið úthýst um leið og
flokkur hans segist einmitt hafa
frjálsa samkeppni að leiðarljósi.
Hann segir lénsgreifaveldið vera
gert fyrir landbyggðina vegna þess
að það hefur valdið hruni hennar.
Hann segir kvótakerfið byggja upp
fiskstofnana vegna þess að þeir
hafa hrunið eftir að kerfið var inn-
leitt. Hann segir kerfið svo hag-
kvæmt vegna að það hefur valdið
stórkostlegri skuldasöfnun hjá út-
gerðinni og olíueyðslan á hverja
aflaeiningu hefur meira en tvöfald-
ast og nú þarf fleiri hestöfl í fleiri
brúttólestir til að ná í minni botn-
fiskafla! Fiskarnir hafa fögur hljóð!
– Svo hlægilegur finnst honum
eignarrétturinn að þegar erfingjar
skáldsins á Gljúfrasteini stöðvuðu
notkun annars einkavinar á bréfa-
safni skáldsins vegna efasemda um
fræðimennsku og heiðarleika
einkavinarins lét hann samstundis
afþakka þjónustu dóttur skáldsins
við að gæta Gljúfrasteins. Í hennar
stað var ráðinn eiginkona annars
einkavinar á grundvelli notaleg- og
skemmtilegheita.
– Svo heitt elskar hann mál-
frelsið að hann lét reka ritara
Kristnihátíðarnefndar vegna rit-
starfa í frítíma, sem féllu í kramið
hjá lesendum Lesbókar Mbl. enda
þeir með skrýtinn húmor.
– Til þess að undirstrika spaugið
í yfirlýsingunum um nauðsyn
einkavæðingar hefur hann látið
ráðast í langstærstu ríkisfram-
kvæmd allra tíma austur við Kára-
hnjúka. Það verður sko enginn
fimmaura brandari fyrir þjóðina þá
yfir lýkur.
Maðurinn hefur lengi staðið
vaktina með félögum sínum að
skemmta okkur – þjóðin búið við
mikið grín og mikið gaman. Spaug-
ið og þjóðin eru þó farin að þreyt-
ast. Er ekki ráð að losa spaug-
arann og fylgistrúða hans senn af
vaktinni?
Mikið grín – mikið gaman
Eftir Valdimar Jóhannesson ’Er ekki ráð að losaspaugarann og fylgis-
trúða hans senn af vakt-
inni?‘
Valdimar Jóhannesson
Höfundur er leigusali og seljandi fast-
eigna.