Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 51
flokk, fyrsta flokk allt upp í meist- araflokk. Piltarnir sem Hallsteinn hóf nýsköpunarstefnuna á urðu sigurveg- arar og Íslandsmeistarar. Má þar til færa það einstæða afrek að eitt sinn höfðu piltarnir leikið 60 leiki í röð og engum tapað, gert fá jafntefli. Og nú þegar við höldum þessa hátíð hefur meistaraflokkur fé- lagsins háð yfir 100 leiki, þar af eru fáein jafntefli og enn færri töp. Hvernig má það vera að lítið félag frá litlum bæ í litlu landi, norður við heimskaut í svalköldum sævi getur á erlendri grundu, þar sem handknatt- leikur hefur verið iðkaður lengur en í nokkrum öðrum löndum, Danmörku og Þýskalandi, nær svo langt að fara þrjár sigurferðir til þessara landa? Það er varla af öðru en því, að við eig- um mann þar sem er Hallsteinn Hin- riksson, framúrskarandi kennari, sem þrátt fyrir að vera kominn yfir miðjan aldur er fær um að tileinka sér nýjungar og veita þeim út meðal nemenda sinna. Annað hlýtur það að vera, hér meðal okkar eru þau íþróttamannsefni að þau geta komist í fremstu röð afreksmanna og í þriðja lagi, að sýkillinn, íþróttasýkillinn hef- ur gripið svo um sig meðal þessara ungu manna, að ekkert hindrar þá í því að leggja sig alla fram. Og að launum fá þeir þau ummæli sem vert er að taka eftir og þau eru þessi að dómi þýskra blaða eftir síð- ustu ferð meistaraflokksins þangað: Þessir ungu menn kunna handknatt- leik innanhúss í æðsta veldi. Í Þýskalandi átti formaður FH Valgarður Thoroddsen tal við einn af forystumönnum íþróttamanna þar. Er hann hafði heyrt frá FH og þætti Hallsteins við stofnun þess og fram- gang, þá sagði þessi maður: Saga FH og Hallsteins Hinrikssonar verður ekki aðskilin“. Svo mörg voru þau orð Gísla Sig- urðssonar á 30 ára afmæli FH fyrir 45 árum. Eins og áður er getið kemur út nú í haust saga FH og þar verður Hall- steins minnst enn fremur en nú. Þó verður að geta þess hér að Hallsteinn var að sjálfsögðu landsliðsþjálfari Ís- lands í Heimsmeistarakeppnunum 1958 og 1961, þar sem frammistaða Íslands vakti athygli um alla Evrópu og í landsliðinu í báðum þessum mót- um voru hvorki fleiri né færri en 7 FH-ingar. Þá var Hallsteinn varaformaður í fyrstu stjórn Handknattleiks- sambands Íslands, en FH-ingar áttu stóran þátt í stofnun sambandsins. En Hallsteinn stóð ekki einn að uppbyggingu FH og unga fólksins í Hafnarfirði – við hlið hans stóð eig- inkona hans, Ingibjörg Árnadóttir. Ingibjörg var glæsileg og hugprúð kona sem lagði sitt af mörkum til að FH yrði félagslega öflugt og bæri glæsilegt yfirbragð. Heimili þeirra hjóna að Tjarnarbraut 11 stóð FH- ingum alltaf opið og þar ríkti alltaf sannur FH-andi. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, elstur var Ingvar, landsliðs- maður í frjálsum íþróttum, síðan koma Örn, Sylvía og Geir. Þau áttu öll eftir að verða landsliðsfólk í hand- knattleik, félagi sínu og landi til hins mesta sóma. Í dag eru svo barnabörn þeirra hjóna búin að taka upp þráð- inn og klæðast FH- og landsliðsbún- ingi. Hér hefur verið stiklað á stóru í ævi Hallsteins og enn er bent á af- mælisrit FH sem út kemur í haust, þar sem saga félagsins og Hallsteins er samofin. FH-ingar minnast frumherjans með því að standa sig á sviði íþróttanna og á félagslega sviðinu. FH-ingar leggja allt í sölurnar til þess að viðhalda þeim anda sem byggður var upp í félaginu á fyrstu árunum undir forystu Hallsteins. FH-ingar eiga að standa saman að enn frekari uppbyggingu íþrótta- miðstöðvarinnar í Kaplakrika til að halda minningu frumherjanna sem hæst á lofti. FH-ingar eiga að hlúa að æsku Hafnarfjarðar og rækta með henni hugsjónina sem grundvölluð var á upphafsárunum. Ef FH-ingar standa undir þessum merkjum er hafnfirskri æsku borgið. Hallsteinn lést 10. október 1974. Blessuð sé minning hans. Höfundur er formaður FH. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 51 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Glæsilegt og einstaklega vel hannað einbýlishús, staðett á 954 fm sjávarlóð. Eignin er 264 fm að stærð á tveimur hæðum með 58 fm innb. bílskúr og er innrétt. á afar vand. og smekklegan hátt. Á efri hæð er forst., gestasalerni, samliggj. stofur með arni og mikilli lofthæð og eld- hús með vandaðri ALNO-innrétt. Útg. úr stofu og eldhúskrók á hellu- lagða verönd og svalir. Á neðri hæð er stórt alrými, 3 svefnherb. auk fataherb., þvottaherb., geymsla og glæsil. flísal. baðherb. bæði með nuddbaðkari og sturtuklefa. Innbyggð halogen-lýsing í flestum loftum. Parket og granít á gólfum. Húsið klætt að utan með áli og timbri og gluggar og hurðir úr harðviði. Hellulögð verönd og innkeyrsla. Laust fljótlega. Verð 52,0 millj. Kársnesbraut 64 - Kópavogi Glæsilegt einbýlishús á sjávarlóð Opið hús í dag frá kl. 14-16 EIGN Í SÉRFLOKKI. Eignin er til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Opið hús Stórholt 19, 1. hæð Smáralind - 1. hæð Opið 14-17 lau. og sun. Sími 565 8000 Til sýnis og sölu í dag íbúð á 1. hæð og hluti af kjallara, ásamt bílskúr, í þessu virðulega húsi í Holtunum. Eignin verður til sýnis og sölu í dag á milli kl. 14,00 og 17.00. Verð 13,9 millj. Gunnar tekur á móti gestum. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala MELÁS - 4RA HERB. - GARÐABÆ Nýkomin í sölu á þessum eftirsótta stað 111,9 fermetra 4ra herbergja neðri hæð í tvíbýli vel staðsett í Ásahverfi í Garða- bæ. Hæðin skiptist í forstofu, hol, stofu, 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Fallegur ræktað- ur garður, útsýni. Verð 15,3 millj. VESTURBERG - 2JA - RVÍK Nýkomin í einkasölu sérlega falleg ca 65 fm íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi, suðursvalir, nýleg gólfefni, nýmáluð íbúð. Húsvörður, frábært útsýni, hús að mestu nýmálað og viðgert. Hagst. lán. Verð 8,7 millj. ARNARSMÁRI - 4RA HERB. - KÓPAV. M. BÍLSK. Nýkomin í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað mjög falleg 110,8 fermetra 4ra herbergja íbúð á annarri hæð ásamt 28 fermetra bílskúr, samtals um 138,8 fermetrar. Eignin er með sérinngang og skiptist í forstofu, hol, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu ásamt geymslu í kjallara. Innréttingar og gólf- efni eru öll hin glæsilegustu. Ákveðin sala .Getur verið laus fljótlega. Verð 18,9 millj. SUÐURTÚN - RAÐH. - BESSASTAÐAH. Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað mjög vel skipulagt fullbúið raðhús með innbyggðum bílskúr, samtals um 130,2 fermetrar, vel staðsett innarlega í botnlanga við Suðurtún í Bessastaða- hreppi. Eignin skiptist í forstofu, for- stofuherbergi, hol, eldhús, sjónvarpsher- bergi, baðherbergi, hjónaherbergi, stofu ásamt þvottahúsi og bílskúr. Allar innréttingar og gólfefni eru öll hin glæsilegustu. Fallegur bakgarður með verönd og tilheyrandi. Frá- bær staðsetning. Verð 20,5 millj. ÞRASTARÁS - 4RA HERB. - HF. Nýkomin í sölu á þessu frábæra stað í námunda við skóla og leikskóla 110,3 fermetra 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í góðu litlu fjölbýli í Áslandshverfi í Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu, hol, 3 svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og geymslu í kjall- ara. Fallegar innréttingar, frábært út- sýni. Laus strax. Verð 15,3 millj. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að út- vega 250-400 fm einbýlishús á Seltjarnar- nesi. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. Sverrir Kristinsson. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.