Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 66

Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 66
66 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndir.com Tilnefning til óskarsverðlauna1 TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA M.A. SEM BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI Sannkölluð kvikmyndaperla í nda Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Svakalegasti spennu- tryllir ársins frá leik- stjóra Face/Off og Mission Impossible 2. Sýnd kl. 6. Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning. Yfir 85.000 gestir 4 GOLDEN GLOBEverðlaun Tilnefningar til óskarsverðlauna M.a. besta mynd og besti leikstjóri 11 Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 3.45, 8 og 10.20. HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50 og 8. Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.  Kvikmyndir.com Tilnefning til óskarsverðlauna1 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12. kl. 2, 6 og 10. „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 85.000 gestir 4 GOLDEN GLOBEverðlaun TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA M.A. SEM BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI Tilnefningar til óskarsverðlauna M.a. besta mynd og besti leikstjóri 11 Sýnd kl. 2. Með ísl. tali. Sannkölluð kvikmyndaperla í anda Forrest Gump. Í leikstjórn Tim Burtons. Kvikmyndir.com Sýnd kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40. Sýnd kl. 10.15. B.i. 10 ára. Fado-tónlist kalla sumir portú-galskan blús, enda er þaðtónlist sem uppfull er aftrega og söknuði, tilfinn- ingum sem erfitt er að tjá nema með söng, saudade kalla menn það á portúgölsku og þekkja bæði í Portúgal og Brasilíu. Blómaskeið fado-söngva var þriðji og fjórði ára- tugur síðustu aldar en formið lifir. Ekki er svo langt síðan söngkonan mikla Amália Rodrigues lést í hárri elli, en hún var með fremstu söng- konum Evrópu þegar hún var upp á sitt besta eins og heyra má á göml- um upptökum. Nú er fundinn arf- taki hennar, Mariza. Mariza, sem verður þrítug á árinu, er fædd í Mósambík en ólst upp í Lissabon þar sem foreldrar hennar ráku veitingahús helgað fado-söng. Fyrir henni var fado því ekki þjóðlegt tónlist eða gömul, hún drakk hana einfaldlega í sig með móðurmjólkinni og hefur alltaf sagt að þó að hún þekki til annarrar tón- listar sé fado meira en bara tónlist fyrir henni. Hún lærði að syngja hjá for- eldrum sínum og fimm ára gömul var hún farin að syngja fado, en fað- ir hennar teiknaði myndir til að hjálpa henni að læra textana. Sem táningur fór hún að syngja blús, djass og fönktónlist, en um tví- tugt kviknaði aftur hjá henni fado-áhuginn. Lífið er ekki bein lína Ég hitti Marizu í Cannes fyrir stuttu og spjallaði við hana um fado. Hún er ekki bara fræg fyrir röddina, heldur einnig fyrir glæsilega sviðs- framkomu, klæðaburð og hárið sem klippt er snöggt, litað nánast hvítt og greitt í öldur með mikilli nákvæmni. Í viðkynningu er hún öllu óöruggari, ekki beint kvíðin en virðist ekki kunna við umstangið sem er í kringum hana og biður til að mynda um að lækkað sé í tón- listinni sem leikin er í bakgrunni, ekki vegna hávaða heldur vegna þess að það er verið að spila plötu með henni, „æ, mér finnst ekkert gaman að hlusta á mig“, segir hún afsakandi. Á fyrstu plötu Marizu, Fado Em Mim, sem kom út 2001, var tónlistin nokkuð hefðbundinn fado-söngur, þar á meðal fimm lög sem Amália Rodrigues gerði fræg, en á nýrri plötu henar, Fado Curvo, sem kom út á síðasta ári, er tónlistin fjöl- breyttari og fjörugri og bara eitt Amáliu Rodrigues-lag í nýstárlegri útsetningu, en heiti plötunnar vísar einmitt til þess að ekki sé verið að fara troðna slóð. Curvo þýðir bogið eða hlykkjótt og hún skýrir nafnið svo: „Fyrir mér er lífið ekki bein lína og ekki heldur ástríðan eða tón- listin.“ Sorgarsöngvar og gleði „Fado er sorgarsöngvar,“ segir Mariza, „en líka söngvar gleði og það var talsvert um að fado væri sungið fyrir dansi,“ segir hún spurð um tregann sem gegnsýrir fado- sönginn. Hún er ekki alveg sátt við greiningu mína á uppruna fado- söngs, segir menn gleyma því að fado var verkamannatónlist þó að það hafi verið miðstéttar- og menntamenn sem hljóðrituðu mest. „Ég er að skifa bók um sögu fado og hef verið að því í nokkurn tíma, klára hana þegar ég fæ frið frá því að syngja fado,“ segir hún og kímir. Líkt og vill verða hvarf fado- söngur nánast þegar einræð- isstjórninni var steypt 1974, unga fólkið vildi ekki vera portúgalskt, að vildi vera evrópskt og innbyrti evr- ópskt popp sem mest það mátti. Mariza segir að á síðustu árum hafi fado aukist fylgi að nýju, ekki síst fyrir atbeina Marizu segi ég en hún gerir lítið úr því. Hún getur þó ekki neitað því að fyrsta skífa hennar var fyrsta fado-platan sem komst inn á portúgalska vinsældalista í áratugi og náði tvölfaldri platínusölu í Portúgal, er reyndar á listanum enn með nýju plötunni. Mariza vakti fyrst at- hygli í Portúgal þegar hún söng í sjónvarps- þætti helguðum Amáliu Rodrigues 1999. Margir hafa og orðið til að líkja henni við Amáliu og kalla hana arftaka söng- konnuar miklu en hún brosir bara þegar það er nefnt. „Ég ætla ekki að syngja úr gröf Amáliu, ég er bara að syngja mína tónlist,“ segir hún en bætir svo við af meiri alvöru: „Líkt og önnur tónlistarform þarf fado að breytast, að þróast, ef það á að halda velli. Ég vil ekki syngja tón- listarform sem er dautt, ekki syngja á safni, heldur vil ég að tónlistin fái að þróast án þess þó að missa sjónar á upp- runa sínum.“ Síðar um kvöldið hef- ur Mariza síðan tónleika á Midem-tónlistar- kaupstefnunni. Á undan henni hafa þrjár söng- konur slakar sungið, afrískan bræð- ing, svefnpilludjass og tilbrigði við rokkað soul. Mariza er síðust og áheyrendur þreyttir, búnir að standa í á fjórða tíma og þegar hjómsveit hennar byrjar að spila eins konar inngang að tónleikum hennar taka gestir ekki við sér, skvaldur í salnum og fólk á rölti. Þegar hún byrjar að syngja aftur á móti þagna allir og staðnæmast, heillaðir og dolfallnir, og fyrir aftan mig segir maður stundarhátt við fé- laga sinn: „my goodness …“ Svo er það alla tónleikana, Mar- iza heillar áheyrendur gersamlega og stjórnar þeim og hljómsveitinni eins og drottning á sviðinu, ákveðin en hlý, segir sögur, útskýrir tónlist- ina, kennir fólki fado. Röddin er þó það sem dáleiðir, sterk og tilfinn- ingarík, ótrúlega tilfinningarík og þarf ekki að skilja textana til að nema tilfinninguna. Tvímælalaust ein af mestu söngkonum Evrópu nú um stundir. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Drottning fado-söngvanna Portúgalska söngkonan Mariza er ekki bara drottning fado-söngvanna, hún er ein af mestu söngkonum Evrópu nú um stundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.