Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 1
Svíar
sigursælir
Sænsku kvikmyndirnar sópuðu til
sín verðlaunum | Fólkið
Sungið í
Salnum
Hanna Dóra og Steinunn Birna
flytja ljúf og litrík lög | Listir
STOFNAÐ 1913 33. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Heiner Brand þjálfari fórnaði hinu
fræga skeggi sínu | Íþróttir
Skeggið fauk
í sigurvímu
UMHVERFISSTOFNUN ráðleggur
barnshafandi konum og konum sem
hafa börn á brjósti að sneiða hjá
neyslu á hvalrengi, eða súrsuðum
hval, sem er eitt af því sem er á boð-
stólum á þorranum. Segir á heima-
síðu stofnunarinnar að þótt magn
þrávirku efnanna PCB og díoxíns í
því hvalrengi sem er á íslenskum
markaði í dag sé undir þeim há-
marksgildum sem leyfileg eru hafi
verið ákveðið að vara konur sem
gangi með barn eða hafi barn á
brjósti við því að neyta hvalrengis.
„Þetta er fyrst og fremst vegna
þess að fóstrið er svo viðkvæmt
meðan það er í móðurkviði. Þótt
það væri bara ein máltíð sem inni-
heldur mikið af þessum efnum gæti
það haft skaðleg áhrif,“ segir Jó-
hanna Eyrún Torfadóttir, næring-
arfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Segir hún að þessi efni gætu valdið
vanskapnaði hjá fóstri og jafnvel
haft áhrif á heila og þar með hegð-
un barnsins síðar meir.
Aðrir geta neytt hvalrengis
á þorranum óhræddir
Jóhanna segir að aðrir geti neytt
hvalrengis óhræddir á þorrablót-
um, sem eigi sér stað einu sinni á
ári, þótt langvarandi neysla á mat
sem inniheldur þrávirk efni geti ýtt
undir krabbameinsvöxt. Þetta er í
fyrsta skipti sem Umhverfisstofnun
varar við neyslu hvalrengis.
Hvalir eru stórar og langlífar
skepnur og safnast þrávirk efni í
fituvef þeirra. Sýni sem tekin hafa
verið af hvalrengi hér á landi hafa
verið úr stórum törfum, en það kjöt
ætti að innihalda mest magn þess-
ara þrávirku efna. Reyndust sýnin
vera undir viðmiðunarmörkum.
Barnshafandi
konur varaðar
við neyslu
hvalrengis
BJÖRGUNARMENN leita að fólki á lífi í rústum tíu
hæða íbúðablokkar sem hrundi til grunna í borginni
Konya í Tyrklandi í gærkvöldi. Að minnsta kosti einn
lét lífið, tveggja ára barn, og 16 slösuðust en óttast var
að um 50 manns gætu verið grafnir undir rústum húss-
ins. Tyrkneska CNN-sjónvarpsstöðin sagði að sú tala
gæti verið mun hærri.
Í byggingunni voru um 40 íbúðir og íbúar skráðir
138. Ekki er vitað hvers vegna byggingin, sem er
fimm ára gömul, hrundi. Í sumum heimildum kom
fram að sprenging hefði orðið í hitaveitukerfi hússins
en yfirvöld vildu ekki staðfesta það. Annars staðar
var haft eftir embættismönnum að líklegasta skýring
væri mistök við byggingu hússins en oft hefur verið
gagnrýnt hversu hús eru stundum illa byggð í land-
inu.
AP
Leita að fólki á lífi
Konya. AP. AFP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti
skýrði í gær frá því að hann hygðist skipa
óháða nefnd sem ætti að rannsaka gögn
sem bandarískar leyni-
þjónustustofnanir
lögðu fram um meinta
gereyðingarvopnaeign
Íraka fyrir innrásina í
Írak.
„Ég vil vita allar
staðreyndirnar,“ sagði
Bush. Hann bætti við
að rannsóknin ætti ekki
aðeins að beinast að því
hvort leyniþjónustu-
stofnanirnar hefðu brugðist í Íraksmálinu,
heldur einnig að því hvort þær hefðu staðið
sig sem skyldi á öðrum sviðum, svo sem
málefnum Írans og Norður-Kóreu, og í
baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.
„Við viljum líta á baráttu okkar gegn út-
breiðslu gereyðingarvopna í víðara sam-
hengi,“ sagði Bush. „Þess vegna skipa ég
óháða nefnd sem á að kanna hvernig við
stöndum okkur og hvað við getum bætt í
baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.“
Fulltrúar stóru flokkanna í Bandaríkj-
unum eiga að sitja í nefndinni. Bush sagði
ekkert um hvenær nefndin ætti að ljúka
rannsókninni og vildi ekki svara spurningu
fréttamanns um hvort bandaríska þjóðin
ætti heimtingu á því að fá að vita niður-
stöðurnar fyrir forsetakosningarnar í nóv-
ember.
Talsmaður Tonys Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði að breska stjórnin
myndi skýra frá því bráðlega hvort hún
hygðist fara að dæmi Bush og verða við
kröfum um samskonar rannsókn.
„Ég vil vita
allar stað-
reyndirnar“
Bush lætur rannsaka gögn
um gereyðingarvopn
George W. Bush
Washington. AP.
Nefnd rannsakar/17
ÍSRAELSKIR landtökumenn á Gaza-
svæðinu hóta að gera allt sem þeir geta til
að koma stjórn Ariels Sharons forsætis-
ráðherra frá völdum
reyni hann að hrinda
þeim áætlunum sínum í
framkvæmd að láta
rýma 17 landtöku-
byggðir á Gaza. Kom
þetta fram í yfirlýsingu
frá fulltrúum landtöku-
manna í gær.
Sharon sagði í viðtali
við dagblaðið Haaretz í
gær að hann hefði fyr-
irskipað að landtökubyggðirnar 17 á Gaza
skyldu rýmdar. Kveðst hann gera ráð fyrir
að í framtíðinni verði engar byggðir gyð-
inga að finna á svæðinu.
„Við förum þess á leit við Sharon að
hann taki samstundis upp fyrri skynsam-
lega afstöðu og leiði ekki nýjar hörmungar
yfir ísraelsku þjóðina með því að reka gyð-
inga frá heimilum sínum,“ sagði í yfirlýs-
ingu landtökumannanna.
Hóta að koma
Sharon frá
Ariel Sharon
Jerúsalem. AFP.
Byggðir landtökumanna/16
♦♦♦
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, segist líta það alvarleg-
um augum að hvorki hann né emb-
ætti forseta Íslands hafi verið látið
vita af ríkisráðsfundi sem haldinn
var á sunnudag, á 100 ára afmæli
heimastjórnar. Halldór Blöndal,
forseti Alþingis, sem sat í forsæti
fundarins í fjarveru Ólafs Ragnars,
segir viðbrögð forsetans koma sér
mjög á óvart. Hann segir forsetann
hafa getað sagt sér það sjálfur að
haldinn yrði hátíðarfundur í ríkis-
ráði á þessum tímamótum. Hann
telur fundarboðið hafa verið eðli-
legt og fyrirvarann sömuleiðis.
„Ég hafði ekki hugmynd um að
það stæði til að halda fund í rík-
isráði og það hafði aldrei verið á
það minnst, hvorki við mig né við
skrifstofu for-
setaembættisins,
og ég vissi ekki af
honum fyrr en
hann hafði verið
haldinn,“ sagði
Ólafur Ragnar,
sem staddur er í
Bandaríkjunum,
við Morgunblað-
ið í gær. Ólafur
segir það enga
afsökun að hann hafi ekki fengið
vitneskju um fundinn þar sem hann
hafi verið erlendis, eins og ríkis-
ráðsritari sagði í Morgunblaðinu í
gær. Hann seg-
ir það eina af
æðstu embætt-
isskyldum for-
seta að stjórna
fundum ríkis-
ráðs og að þá
skyldu taki
hann mjög al-
varlega.
„Ef mér hefði
verið tilkynnt
[um fundinn] hefði ég að sjálfsögðu
komið til landsins og stýrt fundin-
um.“
Ólafur Ragnar segist hafa átt
fund með Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra í síðustu viku þar sem
rætt var um viðburði í tengslum við
afmæli heimastjórnar en „í því
samtali var ekki minnst einu orði á
það að hugmyndir væru um að
halda fund í ríkisráði“.
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, segir viðbrögð Ólafs Ragnars
koma sér mjög á óvart.
„Það gerðist ekki nokkur skap-
aður hlutur 1. febrúar sem hann
átti ekki að geta séð fyrir af reynslu
sinni og þekkingu, bæði af stjórn-
arháttum og líka getur honum ekki
komið á óvart að þess sé minnst í
ríkisráði að 100 ár eru síðan þing-
ræði var staðfest.“
Ólafi Ragnari Grímssyni var ekki tilkynnt um ríkisráðsfund
Engin afsökun/4
Halldór
Blöndal
Ólafur Ragnar
Grímsson
Forsetinn lítur málið
alvarlegum augum
Viðbrögð forsetans koma mjög á
óvart, segir Halldór Blöndal