Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Bjarnason, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, sagði á Alþingi í gær, að Landsbanki Íslands hefði á stuttum tíma sótt þrjá milljarða út úr þeim fyrirtækjum sem mynduðu Brim og voru seld nýlega. „Herra forseti, að sækja þrjá millj- arða króna á örfáum dögum. Þetta er ekki að fá eðlilegan arð af eignum sín- um. Þetta er rán.“ Sagði Jón að sölu- ferill Brims hefði sýnt flesta galla þess fiskveiðistjórnunarkerfis, sem Íslendingar byggju við. Þessi ummæli Jóns féllu í umræðu utan dagskrár um breytingar á eign- arhaldi í sjávarútvegi. Jón var máls- hefjandi umræðunnar. „Sala Lands- bankans á útgerðarrisanum Brimi hf., sem samanstóð af Útgerðarfélagi Ak- ureyringa, Skagstrendingi og Haraldi Böðvarssyni á Akranesi vakti miklar umræður og gríðarleg óvissa ríkti um lyktir málsins, einkum á þeim stöðum sem hlut áttu að máli,“ sagði Jón. „Fyrir um rúmu ári keypti Eimskip Útgerðarfélag Akureyringa, Harald Böðvarsson og Skagstrending og stofnaði Útgerðarfélagið Brim. Stjórnendur Eimskips lýstu því yfir að þessi kaup væru ekki gerð með stundargróða í huga heldur væri þetta liður í langtíma áformum fyr- irtækisins. Þessi ákvörðun stóð ekki lengi. Einkavæddur Landsbanki, seldur á spottprís, gleypti á einni nóttu Eimskip. Og hinir nýju eigendur vissu hvar var fjármagn að finna í sjávarútvegs- fyrirtækjum Eimskips. Landsbank- inn var með flest þessara sjávarút- vegsfyrirtækja í viðskiptum og vissi nákvæmlega hver eignastaða og rekstrarstaða þeirra var. Þar á bæ vissu menn líka að þeir hefðu visst kverkatak á atvinnuveginum og við- komandi sjávarbyggðum og gátu nán- ast skammtað sér það söluverð sem þeim sýndist því þeir réðu líka láns- kjörum kaupendanna. Og árangurinn lét ekki á sér standa. Með sölu Skags- trendings, Útgerðarfélags Akureyr- inga og Haralds Böðvarssonar drógu eigendur Landsbankans í hreinan gróða eftir skatta eftir nokkurra vikna eign af þessum fyrirtækjum um 3 milljarða króna,“ sagði Jón. Hann sagði ennfremur að í stað þess að koma með nýtt fjármagn inn í sjávarútveginn hefðu eigendur Landsbankans blóðmjólkað sjávarút- veginn á örfáum dögum. Þeir pening- ar hefðu verið fluttir úr landi „og virð- ast svo hafa dúkkað upp í kaupum á búlgarska símanum,“ sagði Jón. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra svaraði ekki þessum fullyrð- ingum Jóns. Ráðherra sagði hins veg- ar í upphafi ræðu sinnar að miklar breytingar hefðu orðið á íslensku at- vinnulífi á undanförnum mánuðum og misserum. Sagði hann þær meiri en við hefðum upplifað í mörg ár og jafn- vel í áratugi. „Angi þessara breytinga var salan á sjávarútvegsfyrirtækjum Brims sem fór fram fyrir ekki svo löngu síðan,“ sagði hann. „Það er rétt,“ bætti hann við „menn höfðu áhyggjur af atvinnuöryggi og rekstr- aröryggi þessara fyrirtækja meðan á því ferli stóð.“ Ráðherra sagði niður- stöðuna þess eðlis að ekki væri ástæða til að hafa áhyggjur. „Staðan er reyndar sú, að því er best verður séð, að atvinnuöryggi þeirra sem að þessum fyrirtækjum starfa hefur á engan hátt raskast. Og þeir sem þar hafa fjárfest virðast horfa til langtíma sjónarmiða í sínum fjárfestingum.“ Jón Bjarnason í umræðum um breytingar á eignarhaldi í sjávarútvegi Söluferli Brims sýndi galla fiskveiðikerfisins Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi söluna á Brimi á Alþingi í gær. Morgunblaðið/Ásdís STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstri hreyfingarinnar –græns framboðs, gagnrýndi á Al- þingi í gær að Landssími Íslands skyldi hafa keypt hlut í búlgarska rík- issímafyrirtækinu fyrir 300 milljónir króna og jafnframt farið út í svo- nefnda endurmörkun vörumerkis síns sem einnig hefði verið kostnaðar- söm. „Og þetta er fyrirtæki sem ekki hefur getað séð af 35 milljónum króna, mörg ár í röð, til að lagfæra fjarskiptamál í Norður-Þingeyjar- sýslu.“ Spurði hann hvort þessi fjár- festingarstefna Símans færi fram með samþykkt ríkisstjórnarinnar. Geir H. Haarde fjármálaráðherra svaraði því m.a. til að fjárfesting Sím- ans á erlendum vettvangi væri að sjálfsögðu ákvörðun sem tekin væri af stjórnendum Símans. „Landssíminn er framsækið fyrirtæki sem er í hönd- um nútímalega þenkjandi stjórnenda. Ég geri engar athugasemdir við það þótt þeir færi sér í nyt nýjar aðferðir við að efla fyrirtækið eins og til dæmis það að fara út í svokallaða endur- mörkun. Ég hef reyndar ekkert vit á því og hef ekki kynnt mér það út í hörgul en ég treysti stjórnendunum til að taka ekki annað en skynsam- legar ákvarðanir í því sambandi. Varðandi fjárfestingu fyrirtækisins erlendis þá er það að sjálfsögðu ákvörðun sem tekin er af stjórnend- um þar og alveg áreiðanlega í umboði stjórnar félagsins,“ sagði hann. Hvar verður borið niður næst? Steingrímur kom aftur í pontu og sagði að fjármálaráðherra og ríkis- stjórnin gætu, ef vilji færi fyrir hendi, gefið Símanum almenna leiðsögn um það hvar áherslur fyrirtækisins ættu að liggja. „En þær áherslur liggja greinilega ekki lengur á Íslandi og eru ekki fólgnar í skyldum við við- skiptavinina hér [...] heldur einhvers staðar í útlöndum. Og hvar verður borið niður næst, hæstvirtur fjár- málaráðherra? Eru kannski einhverj- ar hugmyndir um að fara til Afríku eða Kína?“ Ráðherra vísaði málflutningi Stein- gríms á bug. Hann sagði að fjárfest- ingar Símans í útlöndum hefði það ekki óhjákvæmilega í för með sér að þjónusta hér á landi versnaði. Stein- grímur sagði á hinn bóginn að Síminn hefði neitað því ár eftir ár að „ráðast í smávægilegar fjárfestingar til að koma til dæmis fjarskiptamálum á norðausturhorni landsins í lag,“ sagði hann. „Síminn neitar byggðarlögum sem eru með færri en fimm hundruð íbúa að tengjast ADSL-kerfinu. Þetta eru dæmi um ákvarðanir sem Síminn hefur tekið og ég tel að stjórnvöld ættu að segja honum fyrir verkum.“ Fjárfestingarstefna Símans gagnrýnd GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagn- rýndi á Alþingi í gær skipun nefndar viðskiptaráðherra um íslenskt við- skiptaumhverfi. Sagði hann að í nefndinni sætu þrír menn frá há- skólasamfélaginu og síðan skiptu stjórnarflokkarnir hinum fjórum sæt- unum með sér. Spurði hann hvers vegna fulltrúar verkalýðshreyfingar- innar og atvinnulífsins hefðu ekki fengið sæti í nefndinni. Jafnframt kvaðst hann telja að stjórnarandstað- an hefði átt að koma að þessu verki. Bætti hann því við að þessi nefndar- skipan væri með gamla laginu, hún vekti tortryggni og væri ekki til þess fallin að skapa sátt um niðurstöðu hennar. Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra sagði vandasamt að skipa nefnd þannig að allir væru sáttir. Hún sagði hins vegar að sér fyndist að vel hefði tekist til með þessa nefnd. Hún væri alls ekki skipuð með gamla lag- inu vegna þess að í henni sætu ein- staklingar sem hefðu getið sér gott orð í viðskiptalífinu og Háskóla Ís- lands. Hún sagði að þeir sem sætu í nefndinni hefðu verið valdir vegna þeirra kosta sem þeir byggju yfir. „Ég vænti mikils af þessu nefndar- starfi og tel að þó svo stjórnarand- staðan eigi ekki fulltrúa í nefndinni sé ekkert ólíklegt að það geti náðst sam- staða um einhvers konar niðurstöðu þegar þar að kemur,“ sagði hún. Í nefndinni eiga sæti: Gylfi Magn- ússon, dósent við Háskóla Íslands, formaður, Guðrún Helga Brynleifs- dóttir hdl., Illugi Gunnarsson, aðstoð- armaður forsætisráðherra, Orri Hauksson framkvæmdastjóri, Páll Magnússon, aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Stefán Svav- arsson dósent og Þórdís Sigurðar- dóttir lektor. Gagnrýnir skipan nefndar viðskiptaráðherra HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, færði ríkisstjórninni og stjórnarráði Íslands árnaðaróskir Alþingis í upp- hafi þingfundar á Alþingi í gær, þar sem 100 ár eru liðin frá því að fyrsti íslenski ráðherrann, Hannes Haf- stein, tók til starfa. „Þau tímamót marka upphaf Stjórnarráðs Íslands og framfarasóknar á öllum sviðum þjóðlífsins síðustu 100 árin,“ sagði Halldór. „Þessi tímamót eru einnig mark- verð í sögu Alþingis því 1. febrúar 1904 var þingræðisreglan innleidd í stjórnskipan okkar, þ.e. sú regla að ráðherrar og ríkisstjórn sitji ekki í trássi við vilja meirihluta Alþingis. Á hana reyndi þegar 1909 og þá reglu teljum við til grundvallarreglna þó að ekki sé hún skýrlega skrifuð í stjórnarskrána,“ sagði hann. Minntist afmælis heimastjórn- arinnar ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Þar verður m.a. rætt um nátt- úruverndaráætlun umhverf- isráðherra. Síðan verður mælt fyrir einstökum þingmálum. LÍKLEGRA er til árangurs að markaðssetja íslensk þorrablót en eyða milljónatugum í að reyna fyr- ir sér á erlendum mörkuðum með sölu á lambakjöti, að mati Val- gerðar Sverrisdóttur viðskiptaráð- herra að því er fram kemur í ný- legum pistli hennar á vefsíðunni: valgerdur.is. „Skyndibitagerð úr lambakjöti hefur ekki náð að þróast nægilega vel og sala á lambakjöti á erlenda markaði hefur ekki náð árangri sem nokkru nemur. Enda hefðum við ekkert kjöt til þess að mæta slíkum mörkuðum ef það mundi slá í gegn erlendis,“ segir hún og bætir við: „Ég velti því fyrir mér hvort það er ekki líklegra til árangurs að markaðssetja íslensk þorrablót en að eyða milljónatugum í að reyna fyrir sér á erlendum mörkuðum með sölu á lambakjöti.“ Einn möguleikinn væri innganga í ESB Í pistlinum segir Valgerður að 30 ár séu frá því að hún og eig- inmaður hennar hófu sauðfjárbú- skap og að öll árin hafi sú von ver- ið alin í brjósti að hægt væri að selja lambakjöt til útlanda. „Vissu- lega hefur mikið verið selt en á lágu verði. Miðað við svipaða fram- leiðslu og innanlandsneyslu mun- um við ekki eiga annan kost en að selja lambakjöt áfram úr landi þar sem útflutningsskyldan er nú kom- in hátt í 40%. Það er svo sann- arlega verkefni til úrlausnar hvernig skynsamlegast er að halda á þessum málum þannig að sauð- fjárbændur hafi þokkalegt lifi- brauð og þeir opinberu fjármunir sem varið er til greinarinnar nýtist bændum. Einn möguleikinn gæti verið að ganga í Evrópusamband- ið.“ „Líklegra til árangurs að markaðs- setja íslensk þorrablót“ Viðskiptaráðherra segir lítinn árangur af lambakjöts- útflutningi NEFND sem menntamálaráð- herra skipaði fyrir jól til að kanna hvort tilefni væri til að setja lög um eignarhald á fjöl- miðlum hóf nýverið störf. Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, skipaði nefndina. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, sem er formaður nefndarinnar, tjáði Morgun- blaðinu að nefndin hefði þegar komið saman og nefndarmenn skipt með sér verkum. Stefnt væri að öðrum fundi fljótlega. Samkvæmt skipunarbréfi nefndarinnar er gert ráð fyrir að hún ljúki störfum 1. mars og sagði Davíð Þór allar líkur á að það stæðist. Í nefndinni eiga sæti auk Davíðs Þórs Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður, Guð- mundur Frímannsson, deildar- forseti kennaradeildar HA og Pétur Gunnarsson, skrifstofu- stjóri þingflokks Framsóknar- flokksins. Nefnd um eignarhald fjölmiðla hefur störf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.