Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Bene- dikt Sigurðssyni, Guðmundi B. Guðmundssyni, Guðrúnu Halldórs- dóttur og Margréti Heinreksdótt- ur. „Því virðast lítil takmörk sett til hvaða ráða ritstjórar óvandaðs dagblaðs grípa í því skyni að fleyta útgáfu þess yfir dægraskil frá ein- um sólarhring til annars. Ærið dapurlegt dæmi þessa gat að líta í blaðinu DV 28. janúar sl. þar sem ofinn er glórulaus vefur ósanninda og rógs í tilefni af því að hópur fólks fékk leyfi til að koma í kynn- isför í Seðlabanka Íslands tvær klukkustundir 23. janúar sl. til að hlýða þar á erindi um hlutverk og starfsemi bankans og skoða húsa- kynni hans. Með því að við und- irrituð förum fyrir þeim hópi sem þarna hlaut fyrirgreiðslu, en ill- mælgin beinist að heiðri þess sem hana veitti, teljum við okkur skylt að greina hér frá nokkrum stað- reyndum, setja þær í rétt sam- hengi og biðja Morgunblaðið að koma þeim til lesenda. 1. Eins og aðrir árgangar stúdenta frá Menntaskólanum í Reykjavík hefur hópurinn sem útskrifaðist vorið 1955 eflt með sér samheldni og félagslegt framtak með marg- víslegum hætti. Skólinn sjálfur hef- ur auðvitað með uppeldi sínu stuðl- að mest að því, en vonandi notið þess að einhverju marki líka. Eins og verða vill tekur yfirbragð slíkr- ar samheldni nokkrum breytingum með aldri, gleði danssporsins víkur fyrir meiri kyrrð, alvarlegri hugð- arefnum og leit eftir fróðleik og reynslu. Hópurinn sem hér var nefndur sérstaklega hefur m.a. tekið upp á því á síðari árum að sækja leiksýningu nemenda MR á herranótt og notið þar sérstæðrar og skemmtilegrar leikhúsreynslu. Í sömu átt hnígur sá háttur okkar um langt árabil að safnast til kirkju á jólaföstu hjá ágætum skólabræðrum okkar í prestastétt. Eftir slíkar helgistundir höfum við oft og einatt drukkið saman kirkju- kaffi, ýmist gefið eða goldið. Fyrir nokkrum árum kviknaði sú hug- mynd að það gæti verið áhugavert að fá að skyggnast inn fyrir dyr nokkurra fyrirtækja og stofnana þar sem skólafélagar okkar hefðu farið fyrir og sett mark sitt á starf- semina, fá að fræðast af þeim um stefnu og starfshætti eða kynnast aðstæðum á borð við nýjar bygg- ingar ef um slíkt gat verið að ræða. Vissum við enda að ekki væri ótítt að þær tækju á móti ýmsum hóp- um fólks sem fýsti að fræðast um þær. Við viljum ekki trúa öðru en slíkt verði einungis talið til heil- brigðra hátta. Ætíð hefur þetta verið að frumkvæði okkar sjálfra í þeim eðlilega tilgangi sem hér var lýst og aldrei verið vænst sér- stakra veitinga. 2. Fyrir all löngu var það nefnt af okkar hálfu við skólabróður okkar sem hefur um árabil verið í forustu fyrir Seðlabanka Íslands hvort við mættum einhvern tíma er vel stæði á njóta fræðslu hans um hlutverk og starfshætti stofnunarinnar og kynnast um leið innviðum þess at- hyglisverða arkitektúrs sem reis við norðanverðan Arnarhól fyrir tveimur áratugum og vakti þá nokkra umræðu. Þessu var tekið af mikilli ljúfmennsku og kvatt til kynnisferðar föstudaginn 23. jan- úar sl. kl. 17. Þar hlýddi hópurinn, um 70 gestir, fyrst á hálftíma er- indi seðlabankastjóra um íslensk efnahagsmál, hlutverk seðlabanka í nútíma samfélagi og aðferðir hans til að hafa tök á verkefnum sínum. Að því loknu var gengið undir leið- sögn um hluta byggingarinnar, skoðuð húsakynni og bókasafn og dvalist við listaverk í eigu bankans. Þessi þáttur heimsóknarinnar tók um klukkustund til viðbótar. Í lok- in voru þegnar veitingar sem gerð hefur verið ítarleg grein fyrir af hálfu bankans og óþarft er að lýsa hér. Við vitum fyrir víst hver gekk þar út síðastur gesta og hvenær. Það var um kl. 19. 3. Við fáum okkur engan veginn til þess að snerta við einstökum atrið- um eða orðafari í dæmalausum ósannindaspuna DV í téðri umfjöll- un, svo fráleitt sem það er allt frá upphafi til enda. Með sérkennileg- um hætti tók þó steininn úr þegar blaðið bar iðju sína næsta morgun undir fimm óvara borgara og spurði hvað þeim þætti um efni rógsins. Það er að sjálfsögðu jafnljóst okkur og öðrum heiðvirðum skatt- borgurum þessa lands að í við- urgerningi við gesti ber opinberum stofnunum að gæta alls hófs. Við höfum hvorki sóst eftir öðru okkur til handa né heldur þegið það. Við fullyrðum að atlæti við okkur í Seðlabankanum var í engu umfram það sem aðrar stofnanir sýna gest- um sínum iðulega, enda þekkja það allir sem kynnst hafa Birgi Ísleifi Gunnarssyni seðlabankastjóra að þar fer hófsmaður á alla grein. Við hörmum illgirnislega aðför að heiðri þess mæta manns.“ Illmælgi hörmuð NORÐURLANDARÁÐ beinir nú í auknum mæli athygli sinni og áherslum að Vestur-Norðurlanda- svæðinu. Þetta getur haft mikla þýð- ingu fyrir Ísland og nágrannalöndin, að mati Rannveigar Guðmundsóttur alþingismanns, sem fer með málefni Vestur-Norðurlanda og norður- skautssvæðanna í forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Stærsta verkefnið á vettvangi norðurskautssamstarfsins er vænt- anlega skýrsla um niðurstöður um- fangsmikillar rannsóknar á áhrifum loftslagsbreytinga á norðurslóðum. Verður skýrslan væntanlega lögð fram á fundi Norðurskautsráðsins í haust. Rannveig sagði á blaðamanna- fundi í gær að vísindalegar niður- stöður bentu til mikillar hröðunar loftslagsbreytinga á norðurskauts- svæðinu á næstu árum. „Jafnvel íhaldssömustu niðurstöð- urnar benda til mikillar bráðnunar íss og jökla og stórfelldra breytinga á hitastigi sjávar, sem augljóslega hef- ur mikil áhrif á líf á norðurslóðum og á landinu okkar. Þetta samstarf er gífurlega mikilvægt og ég býst við að þetta verkefni um loftslagsbreyting- arnar muni vekja heimsathygli þegar niðurstöðurnar liggja fyrir. Áfanga- skýrslur gefa til kynna að loftslags- breytingar sem gerast annars staðar á 25 árum gerist á tíu árúm á norð- urslóðum,“ sagði Rannveig. Forystumenn í norrænu samstarfi funda í Reykjavík Íslendingar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Forystumenn í norrænu sam- starfi fjalla um fjölmörg samstarfs- verkefni á tveggja daga fundum nefnda Norðurlandaráðs sem hófust í Reykjavík í gær. Meðal umræðuefna er samstarf um verndun auðlinda Atlantshafsins, efling lýðræðis á Norðurlöndum og samstarf um nor- rænt sjónvarpsefni. Gabriel Romanus, forseti Norð- urlandaráðs, fjallaði um þau mál sem efst eru á baugi innan ráðsins í gær og vék m.a. að samstarfi Norður- landanna um afnám landamæra- hindrana. Romanus sagði einnig að stærstu breytingarnar sem orðið hefðu á norræna samstarfinu væru þær að samstarfið væri orðið til muna víðfeðmara en áður, og benti m.a. á Evrópusamstarfið, samstarf Norðurlandanna við Eystrasaltsríkin og ríkjasamstarfið á Norðurskauts- svæðinu því til staðfestingar. Vék Romanus einnig að samstarfi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj- anna í baráttunni gegn fíkniefnum. Í sérstakri yfirlýsingu í gær fagnar forseti Norðurlandaráðs þeim að- gerðum sem danska ríkisstjórnin hefur ákveðið til að stöðva eitur- lyfjasölu í Kristjaníu og hvetur öll Norðurlöndin til að veita Dönum full- an stuðning í baráttunni við þetta erf- iða vandamál. Það sé sérstaklega mikilvægt nú með opnun landamær- anna með inngöngu Eystrasaltsríkj- anna í Evrópusambandið. Jónína Bjartmarz, formaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs, segir að flest bendi til að samhliða stækkun Evrópusambandsins muni samstarf ríkjahópa eins og Norðurlandanna eflast mikið. „Ég tel það mjög já- kvætt vegna þeirrar óvissu sem ríkir um framtíð EES-samningsins og fyr- ir okkur, að staða og hlutverk Norð- urlandanna í Evrópu séu í brenni- depli í norrænu samstarfi,“ segir Jónína. Samræming skattamála Skv. tillögu efnahags- og viðskipta- nefndar Norðurlandaráðs sem lögð var fram á fundi nefndarinnar í gær munu Norðurlandabúar geta gengið frá skattamálum sínum á einum stað þó að málin varði fleiri en eitt nor- rænt land. Þegar skattaútreikningar fara fram í fleiri en einu landi getur það leitt til fjárhagslegs tjóns fyrir viðkomandi. Tillaga nefndarinnar miðar að því að einstaklingar þurfi ekki að eyða tíma í þessi mál. Að áliti nefnd- arinnar þarf einnig að samhæfa sjúkratryggingar og vinnumark- aðstryggingar milli norrænna skatta- yfirvalda. Aukin áhersla á samstarf um norðurskautssvæðið á vettvangi Norðurlandaráðs Vísbendingar um miklar loftslagsbreytingar Morgunblaðið/Þorkell Forystumenn í norrænu samstarfi gerðu í gær grein fyrir þeim málefnum sem til umræðu eru á fundum nefnda Norðurlandaráðs í Reykjavík. F.v. Gabriel Romanus, forseti Norðurlandaráðs, Lars Wegendal, formaður menning- ar- og menntamálanefndar ráðsins, Jónína Bjartmarz, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og Rannveig Guðmundsdóttir, sem fer m.a. með málefni Vestur-Norðurlanda í forsætisnefnd Norðurlandaráðs. ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra segir að meðal þess sem Ís- land leggi áherslu á í formennsku- áætlun sinni í norrænu ráðherranefndinni á árinu séu nýjar leiðir í atvinnuþátttöku fatlaðra og að brotnar verði til mergjar helstu ástæður fyrir viðvarandi launamun kynjanna. Kom þetta fram í ræðu fé- lagsmálaráðherra þegar for- mennskuáætlun Íslands var kynnt á fundi í Reykjavík í gær. Félagsmálaráðherra sagði að Ís- land myndi einnig leggja á það áherslu að málefni aldraðra yrðu tekin til umræðu á fundum norrænu embættismannanefndarinnar um heilbrigðis- og félagsmál. Þá sagði hann þjónustu við fatlaða á margan hátt á tímamótum. Meira væri nú orðið horft til þess að fatlaðir tækju fullan þátt í samfélaginu. „Á for- mennskuárinu mun Ísland leggja til að horft verði til nýrra leiða í at- vinnumálum fatlaðra með því meðal annars að breyta þeirri hugsun að fötlun útiloki atvinnuþátttöku. Áherslan á að vera á lausnir á vinnu- markaði sem henta hverjum og ein- um í stað þess að bæta fötluðum upp tekjutap og hafa þá óvirka,“ sagði ráðherrann. Um jafnréttismál sagði ráð- herrann að leitað yrði leiða til að draga úr óútskýrðum launamun kynjanna og yrði lögð áhersla á sam- starf milli fagsviða jafnréttismála og vinnumarkaðsmála norrænu ráð- herranefndarinnar. Þá kvaðst hann vilja leggja áherslu á úttekt á fæð- ingar- og foreldraorlofi á Norður- löndunum. Sagði hann Ísland leggja áherslu á að leita leiða til að auð- velda konum og körlum að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku. Nýjar leiðir í atvinnu- þátttöku fatlaðra kannaðar ÝMSAR áherslubreytingar eru fyr- irhugaðar á samstarfi Norðurlanda- þjóðanna og Eystrasaltsríkjanna á næstunni og ber helst að nefna samkomulag um fullgilda aðild Eystrasaltsríkj- anna að Norræna fjárfestingar- bankanum, NIB, sem undirritað verður í Helsinki 11. febrúar nk. Að sögn Pers Unckels, framkvæmdastjóra nor- rænu ráðherranefndarinnar, er í at- hugun að styrkja enn frekar samstarf þjóðanna í gegnum fleiri stofnanir. „Þetta samkomulag er mjög hvetj- andi því það þýðir að nú er möguleiki á frekara stofnanasamstarfi milli Norðurlandanna fimm og Eystra- saltsríkjanna.“ Per segir einn möguleikann á frek- ara samstarfi vera á sviði norrænna stúdentaskiptiáætlana, skiptiáætlana fyrir blaðamenn, þingmenn o.s.frv. Þær verði hugsanlega útvíkkaðar þannig að þær nái til Eystrasaltsríkj- anna. „Annar möguleiki væri að nýta reynsluna frá Sovétríkjunum, með tilliti til rannsóknarstofnana í Eystrasaltsríkjunum, sem margar hverjar eru mjög góðar. Þannig væri hugsanlega möguleiki á að koma á fót einhvers konar sameiginlegu rann- sóknarráði,“ segir hann. Hann undir- strikar að um sé að ræða tvo kosti af fjölmörgum þar sem þjóðirnar geti hugsanlega unnið nánar saman. Markmiðið sé að styrkja Eystrasalts- svæðið og gera það samkeppnishæf- ara gagnvart Evrópu. Per leggur áherslu á að víðtækara samstarf Eystarsaltsríkjanna og Norður- landanna muni ekki síður gagnast Norðurlandaþjóðunum, þar með talið Íslandi. Aukið samstarf samhliða aukinni Evrópusamvinnu „Fólk kann að spyrja er fólki á Ís- landi umhugað um hvað gerist í Eystrasaltsríkunum? Þá vil ég minna á að fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna var einmitt Ísland og hin Norðurlöndin fylgdu á eftir.“ Per segir að áhugi sé á Norður- löndunum á að nýta sér norrænt sam- starf í auknum mæli samhliða aukinni Evrópusamvinnu. Það gildi bæði um Norðurlönd í Evrópusambandinu og Ísland og Noreg í EES. „Í Evrópusamvinnu þarf að vera fyrir hendi hópur ríkja sem standa nær hvert öðru og það ber ekki að líta á þetta sem eitthvað sem er í and- stöðu við evrópskt samstarf heldur notfæra sér vináttu okkar til að verða öflugri og hafa meiri áhrif,“ segir Per Unckel. Áherslubreytingar á samstarfi Norð- urlandaþjóða og Eystrasaltsríkjanna Fá fullgilda aðild að NIB Per Unckel

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.