Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 13

Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 13 Borð • Stólar • Hillur • Ljós Mörkinni 3, sími 588 0640 • www.casa.is Útsalan hefst í dag 15-60% afsláttur VEGNA aukins „erlends áhorfs“ á innlenda netmiðla undanfarnar vikur vill Modernus koma eftirfar- andi á framfæri: Hugi.is vermir nú efsta sæti lista Samræmdrar vefmælingar® með 180.082 gesti. Í viku númer 50 mældust gestir huga.is hvorki fleiri né færri en 233.446. Fjöldi sem þessi getur með engu móti endurspeglað innlent áhorf í þjóð- félagi sem telur aðeins um 290.000 manns. Innlent áhorf á huga.is nemur um 50% af heildargesta- fjöldanum, en samsvarandi hlutfall hjá mbl.is er um 86%, um 95% hjá leit.is og aðeins um 3% á leikja- vefnum eve-online.com svo dæmi sé tekið. Markmið Modernus með birting- um á samræmdum upplýsingum um áhorf á netmiðlana er að sýna með sanngjörnum hætti áhorfið (gestafjöldann og innlitin) og notk- unina (fjölda síðuflettinga) á inn- lendum netmiðlum. Samræmd vef- mæling® var upphaflega sett á fót til þess að kaupendur netauglýs- inga gætu með aðveldum hætti séð hvaða innlenda netmiðla almenn- ingur nýtir sér helst og í hve mikl- um mæli. Þegar erlend notkun netmiðla á lista Samræmdrar vefmælingar (eins og í tilfelli huga.is) er að mestu tilkomin vegna niðurhals er- lendra notenda á vistuðu efni frá þriðja aðila eykst gestafjöldinn mun meira en fjöldi innlita og flettinga. Í sjálfu sér er gleðiefni að innlendir netmiðlar skuli í vax- andi mæli fá erlenda athygli. Hins vegar er Modernus nokkur vandi á höndum ef listi Samræmdrar vef- mælingar® á fyrst og fremst að endurspegla netnotkun almenn- ings á Íslandi. Við þessu er tækni- lega hægt að bregðast t.d. með því að birta einnig upplýsingar um hversu stór hluti gestanna er frá Íslandi og hversu stór hluti þeirra kemur annars staðar frá. Svonefndur samráðshópur um Samræmda vefmælingu, sem Verslunarráð Íslands heldur utan um, hyggst koma saman innan tíð- ar og ræða hvort og þá hvernig beri að tilgreina innlent og erlent áhorf. Markmiðið er það sama og hing- að til: að tölurnar á lista Sam- ræmdrar vefmælingar® sýni með hlutlægum hætti hvernig og hvar áhorfið á netmiðlana liggur. Listi Samræmdrar vefmælingar hefur verið birtur vikulega óslitið frá 1. maí 2001. Netbirtinguna er að finna á slóðinni www.moder- nus.is/sv. Listi 25 efstu vefjanna er birtur vikulega í Morgunblaðinu og listi 70 efstu vefjanna er birtur á síðu 631 í Textavarpi RÚV. Verslunar- ráð Íslands er formlegur eftirlits- aðili með framkvæmdinni sam- kvæmt samningi. Samræmd vefmæling Fáðu úrslitin send í símann þinn FASTEIGNIR mbl.is ELLEFU starfsmönnum Reykjagarðs hf. hefur verið sagt upp störfum og taka uppsagn- irnar gildi á næstu tveimur mánuðum. Sjö þessara starfs- manna vinna í kjúklingaslátur- húsinu á Hellu, þrír á kjúklinga- búinu Ásmundarstöðum og einn á söluskrifstofunni í Reykjavík. Matthías H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjagarðs, segir við Morgunblaðið að þetta hafi verið gert vegna skipulags- breytinga á rekstri fyrirtækis- ins. Ekki sé verið að fækka starfsmönnum um ellefu, heldur fari fram samhæfing á rekstri kjúklingasláturhúss og eldis- stöðvanna fyrir austan fjall og vestan, eins og hann orðar það, og á þar við kjúklingabúin á Ás- mundarstöðum, í Mosfellsbæ, Hvalfirði og Borgarfirði. Nú starfa um 45 manns hjá Reykja- garði á Hellu en í heild vinna um 70 manns hjá fyrirtækinu, að sögn Matthíasar. Hann segir mikla hagræðingu hafa farið fram hjá fyrirtækinu undanfarin tvö ár, en ekki standi til að segja fleiri starfs- mönnum upp. Ellefu starfsmönnum Reykjagarðs sagt upp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.