Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HAFRANNSÓKNASKIPINU Dröfn RE verður lagt
um mitt sumar í sparnaðarskyni, eftir tveggja áratuga
þjónustu fyrir Hafrannsóknastofnunina. Verkefnum
verður fjölgað á þeim tveimur skipum sem fyrir eru í
eigu stofnunarinnar.
Dröfn RE var smíðuð á Seyðisfirði árið 1981 en Haf-
rannsóknastofnunin keypti skipið árið 1984. Ný rann-
sóknaráætlun gerir hins vegar ráð fyrir að skipinu verði
lagt í sumar í sparnaðarskyni. Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, segir að þau verk-
efni sem átti að sinna á Dröfn RE verði færð yfir á
Bjarna Sæmundsson eða á leiguskip. Fastráðnir skip-
verjar fái störf á öðrum skipum stofnunarinnar. Hann
segir að Dröfn RE verði ekki sett á söluskrá fyrst um
sinn þó að skipið sé í sjálfu sér falt. „Við munum að
minnsta kosti ekki flýta okkur að selja skipið. Ef rekstr-
arforsendur stofnunarinnar breytast á næsta ári er
möguleiki á að nota skipið aftur.“
Dröfn RE hefur einkum verið nýtt til rækju- og hum-
arrannsókna en á undanförnum árum hefur skipið verið
að hluta skólaskip í tengslum við samstarfsverkefni sem
sjávarútvegsráðuneytið hefur fjármagnað. Þar hefur
ungmennum í efstu bekkjum grunnskóla verið boðið að
fara í stutta sjóferð á fullbúnu veiðiskipi og kynnast þar
margvíslegum störfum um borð. Jóhann segir að fjár-
framlög af fjárlögum til þess verkefnis hafi dregist mjög
saman og því verði að leita annarra leiða til að sinna því.
Í starfsáætlun hafrannsóknaskipanna Árna Friðriks-
sonar RE og Bjarna Sæmundssonar RE er gert ráð fyrir
að Árni verði gerður út 203 daga á árinu en Bjarni í 183
daga. „Við gerum ráð fyrir að á árinu 2005 verði Bjarna
Sæmundssyni haldið út í yfir 200 daga vegna þeirra
verkefna sem færast af Dröfninni. Við vildum gjarnan
sjá meiri rekstur á skipunum en við verðum að sníða
okkur stakk eftir vexti, þetta úthald skipanna helgast
einfaldlega af því ráðstöfunarfé sem við höfum úr að
spila. Þegar ráðist var í smíðina á Árna Friðrikssyni var
ekki gert ráð fyrir meiri fjármunum til rekstrarins en þá
voru. En menn gerðu sér hins vegar vonir um að skipið
myndi ljúka verkefnum hraðar en forverinn og að þannig
næðist fram hagræðing. En það hefur ekki gengið eftir
að fullu, enda er skipið mun dýrara í rekstri en það eldra.
Það er hins vegar mun öflugra og getur leyst fleiri verk-
efni við erfiðari aðstæður sem við gátum ekki sinnt áður.
En það kostar vitanlega peninga. Að okkar mati væri
æskilegt að halda Árna Friðrikssyni á sjó í um 250 daga
á ári,“ segir Jóhann.
Dröfn RE lagt í sumar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hafrannsóknaskipið Dröfn RE.
ÁTTA starfsmönnum Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins hefur verið
sagt upp í kjölfar breytinga á starf-
semi stofnunarinnar. Breytingar
sem gerðar verða á næstu
mánuðum snerta sérstak-
lega starfsemi í útibúum
Rf og er markmið þeirra
að auka vægi rannsókna
og þróunar í starfsemi Rf
og jafnframt að draga úr samkeppn-
isrekstri. Stofnin mun ráða nýtt
starfsfólk til samræmis við breyting-
arnar.
Breytingarnar fela í sér aukna
áherslu á rannsóknir á útibúum Rf í
Vestmannaeyjum, Ísafirði og Akur-
eyri, auk Reykjavíkur. Aftur á móti
verður dregið úr þjónustumælingum
fyrir fiskiðnaðinn, s.s. fitumælingum
og örverumælingum, sem Rf hefur
rekið í samkeppni við einkafyrir-
tæki. Áfram verða reknar þjónustu-
mælingar á Neskaupstað og Reykja-
vík þar sem mælingar eru
nauðsynlegur þáttur í flestum rann-
sóknum og auk þess hefur Rf jafn-
framt verið eini aðilinn hér á landi
sem boðið hefur upp á ýmsar sér-
hæfðar og óarðbærar mælingar fyrir
matvælafyrirtæki, auk algengari
mælinga.
Vegna breytinganna var 8 manns
á þjónustusviði Rf á Ísafirði, Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum sagt upp
störfum 1. febrúar s.l. Reyndar
fækkar stöðugildum ekki
sem þessum fjölda nem-
ur, þar sem nokkrir af
viðkomandi stafsmönnum
voru í hlutastarfi hjá Rf.
Þjónustumælingar munu
verða í gangi hjá Rf í viðkomandi
útibúum fram til 1.maí n.k.
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri
Rf, segir að með aukinni áherslu á
rannsóknir í útibúum Rf í framtíð-
inni verði nýtt starfsfólk ráðið til
samræmis við það. Samráð verði
haft við heimamennn um þær
áherslur í rannsóknum sem Rf mun
hafa á hverjum stað. „Við munum
kappkosta að aðstoða heimamenn á
hverjum stað við að finna farsælustu
lausnina hvað mælingar varðar,
þannig að fyrirtækin geti hér eftir
sem hingað til fengið þá þjónustu
sem þau þarfnast.
Rf mun áfram verða með starf-
semi í öllum útibúum sínum og mun
vinna áfram náið með fyrirtækjum í
sjávarútvegi og öðrum matvælafyr-
irtækjum að því að auka verðmæti í
sjávarútvegi,“ segir Sjöfn.
Rf segir upp 8 manns
ÚR VERINU
CHRIS Jansen, forstjóri Opinna
kerfa Group hf., lætur af störfum af
persónulegum ástæðum 31. mars
nk. Jansen hóf störf hjá félaginu
sem forstjóri 1. mars á síðasta ári
og verður því búinn að starfa hjá fé-
laginu í rúmt ár þegar hann hættir.
Frosti Bergsson, starfandi stjórn-
arformaður félagsins, segir að
starfslok Jansen hafi verið sameig-
inleg ákvörðun tekin í góðri sátt
allra aðila. „Aðalverkefni Chris hef-
ur verið að vinna fyrir okkur fyrst
og fremst í Danmörku og Svíþjóð
og nú sjáum við fyrir endann á
sameiningarverkefninu sem félagið
hefur staðið í,“ sagði Frosti en Opin
kerfi Group hf. keypti sænska
tölvufyrirtækið Virtus AB í fyrra og
sameinaði Datapoint Svenska AB
undir nýju nafni, KERFI AB. Einn-
ig var fyrirtækið Delta/Teamco AS
keypt í Danmörku og sameinað Op-
in kerfi Danmark AS á árinu undir
nafni KERFI AS. „Við höfum farið
í gegnum miklar breytingar með
þessi félög. Ég vonast til að geta
boðið greiningaraðilum og fjár-
festum í heimsókn í vor til að kynna
starfsemi okkar í Svíþjóð og Dan-
mörku.“
Spurður hvort félagið myndi leita
aftur út fyrir landsteinana eftir for-
stjóra sagði Frosti að allt væri opið
í þeim málum. „Það hefur sína kosti
að vera með íslenskan forstjóra.“
Spurður um störf Jansens fyrir
félagið á því ári sem hann hefur
starfað hjá því segir Frosti að hann
hafi komið með mikið af nýjum og
ferskum hugmyndum fyrir stefnu
félagsins og framtíðarsýn. „Hann
kom með ákveðna nýja hluti sem
hafa gagnast okkur vel.“
Frosti segist gera ráð fyrir að
hægt verði að tilkynna næsta for-
stjóra félagsins áður en Chris Jan-
sen lætur af störfum í lok mars.
Sér fyrir endann á sameiningarferli Opinna kerfa Group hf. á Norðurlöndum
Forstjórinn hættir
eftir eins árs starf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Chris Jansen lætur af starfi forstjóra Opinna kerfa Group hf. 31. mars nk.
SÍMINN mun efna til málþings
um skrifstofu framtíðarinnar
fimmtudaginn 5. febrúar.
Framtíðarskrifstofuna munu
einkenna opin rými, mikið er um
gegnsæi og gler og starfsmenn
hafa ekki endilega fastan sama-
stað. Þetta kom fram í könnun sem
Síminn lét framkvæma á síðasta
ári og verður niðurstaða hennar
kynnt á málþinginu.
Í fréttatilkynningu frá Símanum
kemur fram að yfir 40% fyrirtækja
á Norðurlöndunum gerðu breyt-
ingar á skrifstofuhúsnæði sínu á
undanförnum tveimur árum. Þriðji
hver stjórnandi segir að fyrirtæki
hans ætli sér að endurhanna eða
breyta skrifstofuhúsnæði sínu á
næstu tveimur árum. Flest eru
fyrirtækin að fara út í að skil-
greina vinnuaðstöðu sína á nýjan
hátt í átt að opnari rýmum.
Hvatinn að málþinginu er þátt-
taka Símans í norrænu verkefni,
DEKAR, sem snýr að framtíðar-
skrifstofunni. Í verkefninu er verið
að skoða þá þætti sem stuðla að
samvinnu, nýsköpun og yfirfærslu
á þekkingu meðal starfsmanna.
Verkefnið er unnið í samvinnu við
Telnor, KTH (Svíþjóð), HUT
(Finnlandi) og Alexandra Institutt-
et A/S (Danmörku) og IMG á Ís-
landi.
Málþingið verður haldið í höf-
uðstöðvum Símans í Ármúla 25
fimmtudaginn 5. febrúar frá kl.
13.45–17.15.
Málþing um
skrifstofurými
INNLEYSTUR söluhagnaður
Burðaráss ehf. á 25% hlut í Stein-
hólum, eiganda Skeljungs, nam 283
milljónum króna. Burðarás seldi KB
banka hlut sinn og nam söluverðið
922 milljónum króna.
Söluhagnaðurinn verður tekju-
færður á fyrsta ársfjórðungi 2004
hjá Burðarási en áður hafði félagið
innleyst 783 milljóna króna sölu-
hagnað vegna bréfa í Skeljungi og er
því samtals söluhagnaður Burðaráss
í Steinhólum og Skeljungi 1.066
milljónir króna.
Burðarás á engin bréf í Steinhól-
um eftir þessa sölu en félagið er
komið í 100% eigu KB banka.
Innleystur
söluhagnaður
283 milljónir
Sala á hlut í Steinhólum
♦♦♦
MILESTONE Import Export Ltd.,
sem er félag í eigu systkinanna Karls
Wernerssonar, Steingríms Wern-
erssonar og Ingunnar Wernersdótt-
ur, hefur eignast 5,36% eignarhlut í
Íslandsbanka, eða 562,6 milljónir
hluta. Félagið er því meðal þriggja
stærstu hluthafa bankans.
Lokaverð hlutabréfa í Íslands-
banka var 7,35 krónur á hlut í gær og
nemur markaðsverðmæti hlutarins
því rúmlega 4,1 milljarði króna. Í til-
kynningu til Kauphallar Íslands
kemur fram að tæplega 352 milljónir
hluta séu keyptir framvirkt með
gjalddaga 30. apríl nk. og 105 millj-
ónir hluta séu keyptir framvirkt með
gjalddaga 31. maí nk. Atkvæðisrétt-
ur og réttur til arðs vegna fram-
virkra samninga flytjast hins vegar
strax til Milestone Import Export
Ltd.
Karl Wernersson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær ástæðu fjár-
festingarinnar einfaldlega þá að þau
systkinin meti það sem svo að þarna
sé um góðan fjárfestingarkost að
ræða. Systkinin eiga m.a. lyfsölu-
keðjuna Lyf og heilsu og ríflega 5%
eignarhlut í Pharmaco.
Werners-
börn meðal
stærstu í Ís-
landsbanka HAGNAÐUR Össurar á síðasta ári
nam 358 milljónum íslenskra króna,
eða um 4,7 milljónum Bandaríkja-
dala, en félagið gerir reikninga sína
upp í Bandaríkjadölum.
Sala Össurar á árinu nám 94,5
milljónum Bandaríkjadala, eða 7,3
milljörðum íslenskra króna, saman-
borið við 81,3 milljónir á fyrra ári.
Salan jókst um 16% í Bandaríkjadöl-
um, þar af 7% vegna kaupa á fyr-
irtækjum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Rekstur Generation II fyrirtækj-
anna, sem Össur yfirtók miðað við 3.
október 2003, kemur að fullu inn í
rekstur fjórða ársfjórðungs.
„Það sem helst einkennir sölu fyr-
irtækisins á árinu er að hægt hefur á
innri vexti,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að Norður-Ameríku-mark-
aður hafi verið fyrirtækinu erfiður á
árinu en ágætur vöxtur hafi verið á
Evrópumarkaði.
Í tilkynningunni segir einnig að
óvenjulegir gjaldaliðir hafi sett mark
sitt á rekstrarárið. Þannig hafi 2,2
milljónum dala verið varið í mála-
rekstur, 1,5 milljónum dala í kostnað
við endurskipulagningu og í starfs-
lokasamninga. Í heild nema óvenju-
legir kostnaðarliðir á árinu um 4,3
milljónum dala en þar af eru um 2,5
milljónir á fjórða ársfjórðungi.
Þá segir í tilkynningunni að það
sem standi upp úr á árinu sé að mati
stjórnenda kaupin á Generation II
fyrirtækjunum sem jafngilda yfir
25% stækkun fyrirtækisins á árs-
grundvelli, umfangsmikil endur-
skipulagning á starfsemi í Norður-
Ameríku og nýir stjórnendur.
Erfitt ár að baki hjá Össuri
Atli B. Guðmundsson hjá grein-
ingardeild Íslandsbanka segir
þrennt hafa staðið upp úr í rekstri
Össurar á síðasta ári; mikill óreglu-
legur kostnaður, verðsamkeppni í N-
Ameríku og kaupin á Generation II.
„Hagnaður dróst saman um helm-
ing, eða álíka fjárhæð og óreglulegur
kostnaður ársins. Horfurnar á næst-
unni eru hins vegar betri en verið
hefur um langa hríð. Í Evrópu var
góður vöxtur í fyrra en minni á
Norðurlöndum. Styrking Evrópu-
mynta gagnvart dollara kemur sér
vel á þessum mörkuðum.
Össur keypti Generation II síð-
asta haust og steig með því mikilvæg
skref inn á markað fyrir stuðnings-
tæki. Generation II fellur vel að
rekstri Össurar, eykur umsvif fyr-
irtækisins um nærri fjórðung og
eykur vaxtarmöguleika.
Vöruþróun Össurar er öflug enda
er það forsenda fyrir hárri framlegð
í framtíðinni. Í fyrra var þróunar-
kostnaður þó yfir áætlunum, eða um
10% af sölu. Í ár má hins vegar gera
ráð fyrir að kostnaðurinn lækki,
meðal annars vegna hagræðingar og
þess að stórum þróunarverkefnum
er að ljúka. Erfitt ár er að baki hjá
Össuri en mat okkar hjá Greiningu
ÍSB er að horfurnar séu bjartari í
rekstrinum. Mælum við með kaup-
um á hlutabréfum í Össuri og er
verðmatsgengi 55,6. Markaðsgengi
er hins vegar nálægt 45,“ segir Atli.
Össur hagnast um
358 milljónir króna
!
"
##
$ !
%"&!
'
()
#
#
#()
! "
#$ %