Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ LOFTMYND af rútum og búðum pílagríma í Arafat, norðaustan við Mekka. Tvær milljónir múslíma eru nú í pílagrímsför í Mekka og al- gengt er því að umferðaröngþveiti verði í borg- inni og nágrenni hennar. Um 250 pílagrímar tróðust undir eða köfnuðu í miklum troðningi í Mekka á sunnudag. Atburðurinn varð til þess að konungur Sádi-Arabíu fyrirskipaði að samin yrði áætlun um að færa borgina í nútímahorf og bæta skipulag hennar vegna pílagrímanna, t.a.m. með því að fjölga bílastæðum, stækka svæði fyrir gangandi vegfarendur og bæta vegakerfið. AP Mekka verði færð í nútímahorf Í FRUMVARPI George W. Bush Bandaríkjaforseta til fjárlaga næsta fjárhagsárs er gert ráð fyrir því að út- gjöldin til varnarmálaráðuneytisins verði aukin um 7%, til heimavarna- ráðuneytisins um 10% og til banda- rísku alríkislögreglunnar, FBI, um 11% vegna baráttunnar gegn hryðju- verkastarfsemi. Bush gerir ennfremur ráð fyrir því að skattalækkanir, sem þegar hafa verið samþykktar, verði gerðar var- anlegar og áætlað er að þær nemi um 1,2 billjónum dollara. Í fjárlagafrum- varpinu, sem lagt var fram í gær, er spáð metfjárlagahalla, að andvirði 521 milljarði dollara, á fjárhagsárinu sem lýkur 30. september nk. Gert er ráð fyrir því að hallinn minnki í 363 millj- arða dollara á næsta fjárhagsári. Demókratar vonast til þess að fjár- lagahallinn veiki stöðu Bush fyrir for- setakosningarnar í nóvember. „Hann lofar billjón dollara skattalækkunum og ferð til Mars. Og fjárlagahalli hans nemur hálfri billjón dollara. Hvaðan halda þessir menn í Washington að peningarnir komi?“ spurði Howard Dean, fyrrverandi ríkisstjóri Ver- mont og einn frambjóðendanna í for- kosningum demókrata vegna forseta- kosninganna í nóvember. Bush vill auka útgjöld til varnarmála Washington. AP.ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað, að hafinn skuli undirbúningur að því að rýma 17 byggðir landtökumanna á Gaza- svæðinu. Sharon kveðst gera ráð fyrir að í framtíðinni verði engar byggðir gyðinga að finna á Gaza. Þetta kom fram í viðtali við Sharon sem birtist í dagblaðinu Haaretz í gær. Sharon sagði að það væri ætl- un sín að láta flytja byggðir land- tökumanna sem vandræðum valda og tryggja að Ísraelar fari frá svæðum sem ekki sé ætlunin að gera tilkall til, líkt og svæðin á Gaza. „Við erum að tala um 7.500 manns (í landnemabyggðunum á Gaza). Þetta er ekki einfalt mál. Þetta eru þúsundir ferkílómetra af gróðurhúsum, verksmiðjum og pökkunarstöðv- um. Fólk þarna hefur búið þar í þrjár kynslóðir. Við verðum að ná samkomulagi við þetta fólk. Það tekur langan tíma að flytja gróðurhús, skóla og þúsundir öku- tækja, sérstaklega ef gera þarf það á sama tíma og árásir eiga sér stað. Ég geri ráð fyrir því, að í framtíð- inni verði engir gyðingar á Gaza,“ sagði Sharon. Ísraelski forsætisráðherrann hefur áður gefið til kynna að hann hyggist láta leggja af byggðir land- tökumanna á Gaza. Engu að síður komu yfirlýsingar ráðherrans flokksmönnum hans og fulltrúum landtökumanna mjög á óvart. Shar- on hefur ekki áður rætt opinberlega um heildstæða áætlun í þessa veru. Í máli hans kom ekki fram tíma- setning þessa brottflutnings og hann lagði áherslu á að hann vildi fyrst ná samkomulagi við fulltrúa landtökumanna. Byggðirnar 17 taka um fjórðung landrýmis á Gaza-svæðinu. Hóta að fella stjórnina Áætlun Sharons féll í grýttan svörð á meðal margra landtöku- manna sem telja að helgur réttur tryggi þeim tilkall til þessa land- svæðis. Hótaði talsmaður landtöku- manna í gær að fella stjórn for- sætisráðherrans hyrfi hann ekki frá áformum þessum. „Vegvísirinn“ svonefndi, friðaráætlun sem Banda- ríkjamenn, Rússar, Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið standa að, gerir ráð fyrir að Ísraelar leysi upp þær byggðir landtökumanna á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum sem komið hefur verið upp í valda- tíð Sharons. Ísraelski forsætisráð- herann hefur áður lýst yfir því að hann vilji framkvæma þennan lið áætlunarinnar. Hann lagði og áherslu á það í viðtalinu að hann reiddi sig áfram á milligöngu og stuðning Bandaríkjastjórnar. „Við verðum að gera þetta með sam- þykki og stuðningi Bandaríkja- manna. Við þurfum á stuðningi þeirra að halda,“ sagði ísraelski for- sætisráðherrann. Byggðir landtökumanna rýmdar á Gaza-svæðinu Jerúsalem. AFP. Ariel Sharon JAN Petersen, utanríkisráðherra Noregs, lýsti því yfir á fréttamanna- fundi í gærmorgun að hann ætlaði að hætta sem for- maður Hægri- flokksins. Petersen hefur verið formaður flokksins frá 1994. Hann segir að það fari illa saman að vera bæði formaður flokksins og utan- ríkisráðherra. Hann sé mikið erlend- is og það komi niður á flokksstarfinu. Petersen er 57 ára gamall. Nýr formaður verður valinn á flokksþingi í maí. Ekki er ljóst hver kemur til með að taka við for- mennskunni í flokknum og búist er við hörðum slag um embættið. Erna Solberg, varaformaður flokksins, er talin líkleg en þeir Per-Kristian Foss fjármálaráðherra og Börge Brende umhverfisráðherra eru einnig taldir hafa áhuga á formannsembættinu. Petersen segir af sér formennsku Ósló. AFP. Jan Petersen FAÐIR pakistönsku kjarnorku- sprengjunnar, Abdul Qadeer Khan, hefur viðurkennt að hafa komið ýms- um kjarnorkuleyndarmálum til Ír- ans, Norður-Kóreu og Líbýu. Er það haft eftir pakistönskum embættis- manni, sem unnið hefur að rannsókn málsins í tvo mánuði. Játning Khans kemur fram í skrif- legri yfirlýsingu frá honum en þar segir, að hann og fjórir menn aðrir hafi komið upplýsingunum á fram- færi við hópa í fyrrnefndum löndum frá 1986 og fram til 1997. Segir embættismaðurinn, að ástæðan hafi fyrst og fremst verið fé- græðgi. Khan hefur nú verið sagt upp sem vísindalegum ráðgjafa Pakistans- stjórnar en ekki hefur verið ákveðið hvort hann verði sóttur til saka eða refsað með öðrum hætti. Telja frétta- skýrendur, að erfitt geti reynst að lögsækja Khan, meðal annars vegna þess, að hann er þjóðhetja í Pakistan, og vegna þess, að í réttarhöldum væri hætt við, að ýmis kjarnorkuleyndar- mál bæri á góma. Rannsóknin á málinu hófst vegna upplýsinga, sem Alþjóðakjarnorku- málastofnunin, IAEA, fékk frá Íran og síðan kom í ljós, að Khan og félagar hans höfðu einnig selt upplýsingar til Líbýu og N-Kór- eu. Er Khan sagð- ur halda því fram, að hann hafi viljað deila upplýsing- unum með öðrum múslímskum ríkj- um en pakistönsk stjórnvöld vísa þeirri viðbáru á bug og benda á, að N- Kórea sé ekki múslímskt ríki. Ekkert annað en fégræðgi hafi ráðið ferðinni. Musharraf með ávarp Embættismenn leggja áherslu á, að þessi viðskipti hafi ekki átt sér stað eftir að Pervez Musharraf hershöfð- ingi og núverandi forseti tók völdin í sínar hendur 1999 en saka fyrrver- andi stjórnvöld um að hafa horft framhjá grunsamlegri auðsöfnun Khans. Musharraf ætlar að flytja ávarp til þjóðarinnar um þetta mál að lokinni hinni íslömsku Eid-hátíð en henni lýkur á fimmtudag. Seldi upplýsingar til Írans, Líbýu og Norður-Kóreu Faðir pakistönsku kjarnorkusprengjunnar hefur nú játað sök Islamabad. AP, AFP. Abdul Qadeer Khan TVEIMUR flugferðum frá Frakk- landi til Bandaríkjanna var frestað í gær og á sunnudag vegna áhyggna af yfirvofandi tilraun til hryðju- verka. Á laugardag var sex ferðum frá Englandi, Skotlandi og Frakk- landi frestað af sömu sökum. Gilles de Robien, samgönguráð- herra Frakklands, sagði í gær, að franska leyniþjónustan hefði ekki haft neinar eigin upplýsingar um yf- irvofandi hryðjuverkahættu, heldur aðeins farið eftir viðvörunum banda- rísku leyniþjónustunnar. Telur hún sig hafa vitneskju um, að al-Qaeda, hryðjuverkasamtök Osama bin Lad- ens, hafi áhuga á að ræna áætlunar- flugvél á leið til Bandaríkjanna. Í Bandaríkjunum hefur viðbúnað- ur í flughöfnum verið aukinn vegna hryðjuverkahættunnar. Mörgum flug- ferðum frestað París, Washington. AP, AFP. Hryðjuverkaótti ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.