Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 17
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
N‡r áfangasta›ur
Co
st
a
de
l S
ol
54.942kr.ámann
1. júní - verð frá
í 14 nætur í íbúð á Santa Clara miðað við 2 fullorðna
og 2 börn, 2ja-11 ára.
Ef 2 ferðast saman: 67.830 kr. á mann í stúdíói.
Innifalið er: Flug, flugvallarskattar, gisting, 10.000 kr. bókunarafsláttur,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Plúsfer›um er mikil ánægja a› kynna einn
eftirsóttasta fer›amannasta› Spánar.
Beint leiguflug me› íslensku flugfélagi,
Frábærir gistista›ir, strandlíf
og stemming sem ekki ver›ur líkt eftir
- og ver›i› kemur á óvart.
10.000 kr. kynningarafsláttur
fyrir 200 fyrstu sætin.
Verð miðast við að bókað sé á Netinu, ef bókað er í síma eða
á skrifstofu bætast við 2.000 kr. þjónustugjöld á hverja bókun.
Loft lei›ir- Icelandair, í sólina.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti skýrði frá því í gær að hann
hefði ákveðið að láta hefja víðtæka
og óháða rannsókn á þeim gögnum
sem bandarískar leyniþjónustu-
stofnanir lögðu fram fyrir innrás
Bandaríkjamanna í Írak. Þetta er
gert í ljósi þess að gereyðingarvopn
hafa ekki fundist í Írak en ógnin
sem af þeim var sögð stafa var
helsta réttlætingin fyrir því að
ákveðið var að fara með hernaði
gegn stjórn Saddams Husseins
Íraksforseta.
Bush var áður mótfallinn því að
málið yrði rannsakað nánar.
Repúblikanar og demókratar á
Bandaríkjaþingi hafa lagt hart að
honum að hefja rannsókn á gögnum
bandarískra leyniþjónustustofnana
og bárust vísbendingar um það á
sunnudag að hann hefði látið undan
þrýstingnum.
Krafan um opinbera rannsókn
magnaðist um allan helming þegar
David Kay, yfirmaður vopnaleitar
Bandaríkjamanna í Írak, sagði af
sér og lýsti yfir því að hann teldi að
Írakar hefðu ekki ráðið yfir efna-,
sýkla- eða kjarnorkuvopnum. Kay
hélt því fram að leyniþjónustustofn-
anir Bandaríkjamanna hefðu al-
gjörlega brugðist þegar þær héldu
því fram að Írakar réðu yfir gjör-
eyðingarvopnum og hefðu þannig
brotið gegn ályktunum Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Líkist rannsókn
Warren-nefndarinnar
Samkvæmt upplýsingum frá
Hvíta húsinu mun óháð nefnd ann-
ast rannsóknina. Hún verður byggð
upp á svipaðan hátt og gert var
þegar Warren-nefndin svokallaða
rannsakaði morðið á John F. Kenn-
edy, fyrrum
Bandaríkja-
forseta, á sjö-
unda áratugn-
um. Gert er ráð
fyrir að fulltrúar
beggja stóru
flokkanna í
Bandaríkjunum
sitji í nefndinni.
Bandaríska dagblaðið The Wash-
ington Post greindi í gær frá því að
ekki væri búist við að rannsókninni
yrði lokið fyrr en eftir forsetakosn-
ingarnar í nóvember. Sagði í frétt
blaðsins að með þessu hygðist Bush
forseti reyna að slá á gagnrýn-
israddir og draga úr umræðunni
um málið fyrir kosningarnar. Gert
væri ráð fyrir að forsetinn skipaði
níu menn í nefndina.
Demókratar
herða árásirnar
Fréttaskýrendur kváðust í gær
búast við því að bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, og yfirmaður henn-
ar, George Tenet, ættu tæpast von
á góðu. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti skipaði Tenet yfirmann CIA
á sínum tíma og háværar raddir
voru um að honum bæri að víkja
eftir árás hryðjuverkamanna á
Bandaríkin 11. september 2001. Þá
atlögu stóð Tenet af sér þrátt fyrir
að rannsókn leiddi í ljós að CIA
hefði ekki brugðist við upplýsingum
um að hryðjuverkamenn kynnu að
ráðgera umfangsmikla árás í
Bandaríkjunum.
Pólitískir andstæðingar Bush
hafa hert mjög
árásir sínar á
forsetann eftir
að David Kay lét
þau orð falla að
hann teldi að
engin gereyðing-
arvopn væri að
finna í Írak.
Þátttakendur í
forkosningum Demókrataflokksins
vegna forsetakosninganna í haust
hafa vænt forsetann um að hafa
logið að þjóðinni og ýkt hættuna í
því skyni að réttlæta innrásina í
Írak. „Við þurfum að fá fram hið
sanna í málinu. Hvaða upplýsingum
bjó forsetinn yfir? Hvaða upplýs-
ingar fékk forsetinn frá leyniþjón-
ustustofnunum? Voru upplýsing-
arnar gallaðar? Ýktu forsetinn og
varaforsetinn fyrirliggjandi gögn?“
spurði öldungadeildarþingmaðurinn
John Edwards í sjónvarpsviðtali á
sunnudagskvöld en hann er einn
þeirra sem sækjast eftir útnefningu
sem forsetaframbjóðandi Demó-
krataflokksins.
Keppinautur hans, Howard
Dean, sagði ekki vitað hvort forset-
inn hefði fengið gallaðar upplýs-
ingar eða hvort Bush og helstu að-
stoðarmenn hans hefðu haft áhrif á
niðurstöður sérfræðinganna. Dean
kvaðst hlynntur rannsókninni en
hann er sá af frambjóðendum
Demókrataflokksins sem ákafast
hefur gagnrýnt innrásina í Írak.
Lott hlynntur
rannsókn
Nokkrir áhrifamiklir flokks-
bræður Bush hafa og lýst yfir því
að þeir vilji að rannsókn fari fram.
„Ég er almennt og yfirleitt ekki
mikill aðdáandi rannsókn-
arnefnda … En í þessu tilfelli leik-
ur enginn vafi á að leyniþjónustan
brást með einum eða öðrum hætti,“
sagði Trent Lott, sem á sæti í
leyniþjónustunefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings í viðtali á sunnu-
dagskvöldið.
Bush hefur á síðustu dögum leitt
spurningar varðandi gereyðing-
arvopn Saddams Husseins hjá sér.
Á föstudag sagði Bush að hann vildi
fá „að vita staðreyndirnar“ um
meinta vopnaeign Íraka fyrir inn-
rásina.
Nefnd rannsakar
upplýsingar um
vopnaeign Íraka
Bush hyggst skipa óháða nefnd til að rannsaka fram-
göngu leyniþjónustustofnana fyrir innrásina í Írak
Washington. AFP.
’ En í þessu tilfellileikur enginn vafi á
að leyniþjónustan
brást með einum eða
öðrum hætti. ‘
AP
Bush Bandaríkjaforseti á fundi í Hvíta húsinu í gær ásamt Colin Powell
utanríkisráðherra (t.v.) og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra.