Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.02.2004, Qupperneq 20
Fjöldi óhappa í umferðinni | Alls voru skráð fimmtán umferðaróhöpp á Akureyri um helgina og var fólk flutt á slysadeild úr þremur þeirra en enginn mun þó hafa hlotið alvar- lega áverka. Af þessum fimmtán urðu níu á föstudaginn og er það með meira móti á einum degi. Háir ruðningar og hálka er víða í bænum og akstursaðstæður því verri en venjulega. Þess vegna verða öku- menn að sýna ýtrustu varkárni að því er fram kemur í umfjöllun um helstu verkefni lögreglu.    Valt í Víkurskarði | Síðdegis á laugardag valt bifreið í Víkurskarði er ökumaður missti vald á henni vegna hálku. Fór bifreiðin út af veg- inum efst í skarðinu og valt tvær veltur. Fjórir voru í bifreiðinni og voru þeir fluttir á sjúkrahús til skoð- unar. Fjarlægja þurfti bifreiðina með kranabíl.    Morgunblaðið/Kristján AKUREYRI 20 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skákþing | Skákþing Akureyrar 2004 hófst sl. sunnudag og voru 16 keppendur mættir til leiks og tefla í einum flokki. Í fyrstu umferð bar mest á óvæntum en verðskulduðum sigri Skúla Torfasonar á Birni Ívari Karlssyni auk þess sem Halldór B. Halldórsson vann snarp- an sóknarsigur á Sigurði Eiríkssyni. Þá lagði Þór Valtýsson Stefán Bergsson örugglega í toppslag umferðarinnar. Önnur umferð verður í kvöld, þriðjudags- kvöldið 3. febrúar og hefst kl. 19.30. ALLS komu tæplega 317.000 gestir í Sund- laug Akureyrar á síðasta ári, eða rúmlega 25.000 færri en árið áður. Gísli Kristinn Lórenzson forstöðumaður sagði að um- fangsmiklar breytingar hefðu staðið yfir í sundlauginni sl. sumar, sem hefði haft áhrif á aðsókn. Einnig snjóleysi, þar sem skíðafólk sé jafnan fyrirferðarmikið í sundi í mars og apríl ár hvert. „Hins vegar erum við farin að merkja jákvæðar breytingar eftir að þessum framkvæmdum lauk og horfum björtum augum til framtíðar.“ Gísli Kristinn sagði að það hefði einnig haft áhrif á aðsókn að ekki var hægt að hafa fjölskyldugarðinn opinn sl. sumar og lítið sumarið 2002, vegna framkvæmda. „Nú verður garðurinn tilbúinn strax 1. júní í sumar og með eitthvað af nýjum tækjum. Það hefur verið tekin ákvörðun um að setja nokkrar milljónir króna í garðinn, þannig að við verðum mun betur í stakk búin til að taka á móti fólki en undanfarin ár.“ Gríðarlega umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Sundlaug Akureyrar á árinu 1994 og nánast öllu verið kollvarpað nema gömlu innilauginni. Gísli Kristinn sagði að frá því að framkvæmdum lauk í haust hefði aðsóknin aukist jafnt og þétt á ný og aðsóknin nú í janúar var með allra besta móti. „Þegar allt er hér í fullum gangi, eigum við að geta fengið um 500.000 gesti á ári, í sundlaugina, fjölskyldugarðinn og Íþrótta- húsið í Laugagötu.“ Heldur færri gestir komu í Sundlaug Akureyrar í fyrra en árið áður Framkvæmdum lokið og aðsókn eykst á ný Morgunblaðið/Kristján Félagarnir Magnús Már og Þórður Mar kunna vel við sig í nýju barnapottunum. AKUREYRSKIR karlmenn hafa greinilega áhuga á heilsu sinni en húsfyllir var í Ketilhúsinu sl. laugardag á ráðstefnu um karla- heilsu. Konur hafa ekki síður áhuga á heilsu karla, því það voru konur í Lionsklúbbnum Ösp sem stóðu fyrir ráðstefnunni, sem var þó aðeins ætluð körlum. Ingvar Þóroddsson, endurhæf- ingarlæknir FSA á Kristnesi, var á meðal fyrirlesara en erindi hans bar yfirskriftina; „Eru karl- ar þyngdar sinnar virði?“ Ingvar sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði verið jákvætt hversu margir mættu á ráðstefn- una, eða um 170 manns. Þá hefðu menn yfirleitt verið ánægðir með það sem fram var borið. Aðspurður hvort honum hefði tekist að svara spurningunni í fyrirlestri sínum sagði Ingvar. „Niðurstaðan er eiginlega sú að því verði hver og einn að svara fyrir sig. Hins vegar er þeim allt- af að fjölga hlutfallslega sem eru of feitir. Því fylgja sjúkdómar eins og sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómar, kæfisvefn og fleira. Þannig að svarið við spurningunni er í raun það að menn séu þyngdar sinnar virði ef þeir eru ekki of þungir. Og held- ur ekki sverari um mittið en mjaðmirnar því sú fita sem safn- ast á mann miðjan hefur óheppi- legri samsetningu en þessi fita sem er dreifð. Í henni er meira af óhollri fitu og því eiga menn að hafa það sem markmið að vera mjórri um mittið en mjaðmirn- ar,“ sagði Ingvar. Hann sagði því mikilvægt að passa upp á mataræðið en jafn- framt að hver og einn fyndi sér hreyfingu sem honum hentaði og félli best inn í hans daglega amstur. „Það má ekki gera þetta allt of flókið.“ Auk Ingvars fluttu fyrirlestra þeir Jón Þór Sverrisson, hjarta- sjúkdómafræðingur FSA, Pétur Pétursson, heilsugæslulæknir og yfirlæknir Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri, og Valur Þór Marteinsson, þvag- færasjúkdómasérfræðingur FSA. Fundarstjóri var Jón Bjarni Þorsteinsson, heilsu- gæslulæknir á Sólvangi í Hafn- arfirði. „Eru karlar þyngdar sinnar virði?“ Aðeins ef þeir eru ekki of þungir Morgunblaðið/Kristján Ingvar Þóroddsson, endurhæfingarlæknir FSA, flutti fyrirlestur á ráðstefnunni sem bar yfirskriftina Eru karlar þyngdar sinnar virði? Morgunblaðið/Kristján Húsfyllir var á ráðstefnu Lionsklúbbsins Aspar um heilsu karla í Ketilhúsinu. Foreldrasamstarf | Fræðslufundur á vegum skólaþróunarsviðs kennaradeildar Háskólans á Akureyri verður haldinn í dag, þriðjudaginn 3. febrúar. Að þessu sinni flytur Bryndís Sím- onardóttir, fjölskylduráðgjafi í Hlíðarskóla, er- indi sem hún nefnir: Foreldrasamstarf í Hlíðarskóla Eitt af séreinkennum Hlíðarskóla er að þátttaka foreldra í skólastarfinu og þátttaka starfsmanna skólans í uppeldinu er til muna meira en gengur og gerist í öðrum skólum. Í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir for- eldrasamstarfi í Hlíðarskóla og megininntaki í meðferðarstarfi í skólanum. Fræðslufundurinn hefst kl. 16.15 í stofu 16 í Þingvallastræti 23.    Um fordæmi og valdamörk dómstóla | Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarétt- arlögmaður flytur fyrirlestur á Lög- fræðitorgi í dag, þriðjudaginn 3. febrúar kl. 16.30 í Þingvallastræti 23, stofu 24. Hann nefn- ist: Um fordæmi og vald- mörk dómstóla Á undanförnum árum hefur borið á ágreiningi milli íslenskra lögfræð- inga um valdmörk dóm- stóla. Í erindi sínu mun Jón Steinar fjalla um ólík sjónarmið varðandi for- dæmi og valdmörk dóm- stóla. „Deiluaðilar skiptast í tvö horn. Ann- ars vegar hafa þeir talað, sem telja að dómstólar hafi þýðingarmiklu hlutverki að gegna við að setja lagareglur, þegar þeir leysa úr deilumálum. Hins vegar eru þeir sem telja að dómstólar hafi ekki slíku hlut- verki að gegna. Þeirra verkefni sé að finna réttarregluna sem í gildi var þegar sá atburður varð, sem ágreiningi veldur, en ekki að setja nýja reglu. Jón Steinar til- heyrir þessum síðari flokki lögfræðinga. Hann gaf út á síðasta ári bókina „Um for- dæmi og valdmörk dómstóla“, þar sem meðal annars er gerð grein fyrir sjón- armiðum sem þetta varða,“ segir í frétt um fyrirlesturinn.    Jón Steinar Gunnlaugsson Jafnréttissjónarmið | Á síðasta fundi jafnréttis- og fjölskyldunefndar lagði Þor- lákur Axel Jónsson, fulltrúi Samfylking- arinnar, fram fyrirspurn um hvaða sjón- armið hafi verið lögð til grundvallar við ráðningu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs í ljósi jafnréttisstefnu Akureyrar. Á fundinum var lögð fram greinargerð með tillögu bæj- arstjóra um ráðningu í starfið. Þorlákur Axel og Tryggvi Þór Gunnarsson óskuðu bókað: „Í greinargerð með tillögu bæj- arstjóra um ráðningu sviðsstjóra stjórn- sýslusviðs kemur ekki fram með hvaða hætti jafnréttissjónarmið voru höfð til hlið- sjónar við mat á hæfni umsækjenda.“    Trésmíði | Námskeið í trésmíði verður haldið í Verkmenntaskól- anum á Akureyri og hefst það 18. febrúar næstkomandi og verður samtals í 6 skipti, 18 kennslu- stundir. Kennsla fer fram á full- búnu verkstæði skólans, en m.a. verður fjallað um efnisval, vinnu- brögð og verkfæri. Þá munu þátt- takendur búa til lítinn nytjahlut úr tré sem unninn verður í vélum og höndum. Lokun hafnarsvæðis | Á fundi umhverfisnefndar var lagt fram til kynningar bréf frá hverfisnefnd Oddeyrar. Þar kemur fram að nefnd- in telur óviðunandi að loka hafn- arsvæðinu á Oddeyrartanga var- anlega fyrir almenningi. Útivistargildi þessara mannvirkja er óumdeilanlegt og gönguleiðin með- fram Strandgötunni og þetta hafn- arsvæði hafa skapað eftirsóknarvert og samfellt útivistarsvæði fyrir bæj- arbúa. Aðgengi að sjónum hefur tæp- lega verið betra nokkurs staðar á Ak- ureyri. Nefndin beinir því til embættismanna og kjörinna fulltrúa að taka á þessu máli af skynsemi og með hagsmuni íbúanna í huga í stað sértækari hagsmuna og telur að leysa megi öryggismál hafnarinnar á annan hátt með hagsmuni almenn- ings að leiðarljósi. Umhverfisráð samþykkti að fela skipulags- og byggingafulltrúa að gera hverf- isnefndinni grein fyrir stöðu málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.