Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 22

Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 22
AUSTURLAND 22 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vopnafjörður | Merki sem vara við hreindýrum eru komin upp á Háreks- staðaleið og ekki vanþörf á. Búið er að keyra á á ann- an tug hreindýra í vetur. Flughálka er á leiðinni milli Egilsstaða og Ak- ureyrar, en svell er yfir öllum veg- inum. Vert er að vara við snjógöng- um sem eru kom- in á nokkrum stöðum á Mývatnsöræfum en veg- urinn er snjólaus nema í göngunum en þar skefur og getur verið þæf- ingur á þessum stuttu köflum. Varað við hreindýrum Ljósmynd/Sig. Aðalsteinsson Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í ár af völdum hreindýra, flest á Háreksstaðaleið og við Kárahnjúkaveg. Bergen breytt | Nótastöð Eskju á Eskifirði, sem kölluð hefur verið Bergen, gengur nú í endurnýjun líf- daganna. Klif ehf. hefur keypt húsið og á að breyta því í íbúða- og þjón- ustuhúsnæði. Munu eiga að vera sex íbúðir í húsinu auk þjónusturýmis. Þá verður umhverfi hússins tekið í yf- irhalningu, m.a. gömul bryggja neðan hússins, sem breyta á í verönd. Fíkniefni | Lögreglan á Egils- stöðum lagði hald á töluvert magn af kannabisefni um helgina. Stöðvaði lögregla bíl í nágrenni bæjarins um fimmleytið á laugardagsmorgun vegna gruns um fíkniefni. Tveir voru í bílnum og játaði annar þeirra, karl- maður um fertugt, að eiga efnið, um 70 g af kannabis og sagði þau ætluð til eigin neyslu. Honum var sleppt að yfirheyrslu lokinni og telst málið upplýst. Shell | Skeljungur ætlar að leigja bensínafgreiðslu og verslunarhús- næði á Seyðisfirði út. Um er að ræða eignir sem fyrirtækið keypti fyrir nokkru af Olíufélaginu, en núverandi Shellstöð við innkomuna í bæinn verður aflögð. Einnig hefur versl- unarhúsnæði Skeljungs á Reyð- arfirði verið auglýst til leigu. Nýr á Þróunarstofu | Þróun- arfélag Austurlands hefur ráðið Stefán Stefánsson rekstrarhagfræð- ing sem framkvæmdastjóra Þróun- arstofu Austurlands. Stefán er rekstrarfræðingur frá Viðskiptahá- skólanum á Birfröst, með próf í al- þjóðastjórnun frá Álaborgarháskóla og lýkur mastersgráðu í alþjóða- rekstrarhagfræði frá Álaborgarhá- skóla í febrúar. Hann starfaði sem lánasérfræðingur hjá Íslandsbanka á Akureyri 1993–2000 og var eftir það við framhaldsnám í Álaborg. Stefán tekur við stöðunni í febrúar og mun einnig gegna starfi fram- kvæmdastjóra Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands. Þær breytingar hafa orðið á innri starfsemi Þróunarstofu að Halldór Eiríksson rekstrarhag- fræðingur tekur yfir stjórnun á við- skiptasviði, sem Gunnar Vignisson hefur sinnt síðustu ár, en Gunnar mun veita byggðasviði forstöðu. Við- skiptasvið veitir þjónustu á sviði at- vinnulífs og byggðasvið þjónustu á sviði sveitarstjórnarmála. Á vef Þró- unarstofunnar greinir jafnframt frá því að frekari skipulagsbreytinga sé að vænta á starfseminni á næstu vik- um. Heitavatnsleit | Á Reyðarfirði hef- ur fundist rúmlega fjörutíu gráða heitt vatn í 290 m djúpri tilraunaholu við bæinn Sléttu, innarlega í firðinum. 15- 20 l/sek komu úr holunni þegar bor hitti æðina í fyrrakvöld, en nú streyma um 5 l/sek úr holunni. Vonir eru bundnar við að vatnið úr holunni geti notast í hitaveitu á Reyðarfirði. Nú er búið að bora yfir áttatíu til- raunaholur í Fjarðabyggð í heita- vatnsleitarverkefni sveitarfélagsins. Menningarmiðstöð | Til stendur að gera húsið Kaupvang á Vopnafirði að menningarmiðstöð. Húsið var byggt árið 1882 og á sér mikla sögu. Verða um tíu milljónir króna veittar til endurbyggingar þess í ár, en búið er að laga jarðhæð og verður næst ráðist í endurbyggingu annarrar hæðar. Hugmyndir eru uppi um að koma á fót safni um bræðurna og Vopnfirðingana Jón Múla og Jónas Árnasyni í húsinu og einnig sögusýn- ingu vesturfara af svæðinu. Upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðafólk var rekin á jarðhæð Kaupvangs sl. sumar. Klassísk söngkeppni | Óperu- stúdíó Austurlands hyggst á árinu standa fyrir söngkeppni klassískra söngvara. Er um nýjung að ræða í starfsemi Óperustúdíósins, sem þekkt er fyrir tónlistarhátíðina Bjart- ar nætur í júní og óperuflutning á Eiðum. Ákveðið var í vetur að setja ekki upp óperu í vor eins og und- anfarin ár og mun ástæðan vera þörf til að endurskipuleggja starfsemina og hvíla þann mannskap sem hefur lagt gjörva hönd að verki í sjálboða- vinnu kringum uppfærslur. Söngvarakeppnin á að höfða til ungra, klassískra söngvara og eiga rétt á þátttöku þeir sem eru að ljúka söngnámi hérlendis eða í námi á er- lendri grund. Áskilið er að þátttak- endur séu ekki eldri en þrítugir. Keppnin verður kynnt nánar síðar, en Óperustúdíóið hyggst halda sínu striki með Björtum nóttum í júní í vor, sem einkanlega mun skarta fjöl- breyttum tónleikum. Í stjórn Óperustúdíós Austurlands sitja nú Ragnhildur Rós Indriða- dóttir formaður, Sigurður Jónsson, Halla Eiríksdóttir, Anna María Pitt og Karen Erla Erlingsdóttir. Fram- kvæmdastjóri er Ásta Schram Reed og listrænn stjórnandi og stofnandi Óperustúdíósins er Keith Reed. Fjarðabyggð | Í könnun sem Bæj- arins besta lét gera á dögunum kemur í ljós að Fjarðabyggð býður upp á lægstu leikskólagjöldin í níu sveitarfélaga úrtaki, hvort sem um er að ræða gjald fyrir eitt barn eða systkini. Í úrtakinu voru Reykjanesbær, Akranes, Vesturbyggð, Ísafjarð- arbær, Bolungarvík, Skagafjörður, Akureyri, Fjarðabyggð og Vest- mannaeyjar. Samkvæmt könnuninni eru leik- skólagjöld hæst á Ísafirði og litlu lægri á Akureyri. Munur á hæstu og lægstu gjöldum er um 40%. Í Fjarðabyggð stendur til að fara í ýmsar framkvæmdir við leikskóla. Verið er að hanna ríflega helmings- stækkun leikskólans á Reyðarfirði. Þá er nefnd að athuga leiðir til úr- bóta vegna stækkunar leikskólans í Neskaupstað, Sólvalla og eru 12,5 milljón króna ætlaðar skólanum í ár í fjárhagsáætlun sveitarfélagins, en alls 50 milljónir á næstu fjórum ár- um. Sólvellir voru byggðir árið 1970 og eru nú um 535 fm að stærð. 28 börn eru á biðlista eftir leik- skólaplássi og þrátt fyrir tiltölulega nýja viðbyggingu þykir sýnt að leysa þarf húsnæðisskort hratt. Börn eru tekin í leikskólann árs- gömul, en nú eru 93 börn á Sól- völlum og um 30 manns vinna við skólann í 19 stöðugildum alls. Húsnæðisskortur brýnt úrlausnarefni Halla Höskuldsdóttir, leik- skólastjóri í Neskaupstað, segist fagna því að Fjarðabyggð bjóði upp á sanngjörn leikskólagjöld. Hún hefur þó áhyggjur af vaxandi bið- lista við leikskólann. „Húsnæðisskortur vegna biðlista hefur verið viðvarandi vandamál“ segir Halla. „Fyrir nokkru síðan var að tillögu vinnunefndar byggt hér viðbótarhúsnæði eða séreining við leikskólann til að mæta löngum bið- lista. Hún var tekin í notkun 1. apríl sl. og var strax fyrirsjáanlegt að hún gerði ekkert meira en að losa þann biðlista sem þá var. Nú er þessi nefnd tekin til starfa aftur og henni var falið að koma með lausnir. Í framhaldi af því á svo að halda áfram og taka ákvörðun um end- anlega lausn. Það er að segja hvort byggja á við það húsnæði sem fyrir er og laga það, eða fara út í að byggja nýjan leikskóla.“ Fölnandi rós í hnappagati sveitarfélagsins Halla segir fjárframlög af heldur skornum skammti miðað við hvað gera þurfi í málefnum Sólvalla. „Það er auðvitað verið að skoða málið, til dæmis hvort nýta má eitthvert hús- næði í eigu sveitarfélagsins í þau tvö til þrjú ár sem fjárveitingar verða af skornum skammti. Nú þarf að láta teikna upp það húsnæði og svæði sem við höfum hér á Sól- völlum og koma með endanlegar kostnaðartölur svo við sjáum hvort uppbygging hér sé eitthvað sem borgar sig að fara í, þannig að úr verði viðunandi leikskóli þegar upp er staðið. Það er varasamt að prjóna alltaf við það sem gamalt er og hugsanlega henda milljónum í eitthvað sem stendur ekki undir hlutverki sínu.“ Halla segir Sólvelli á sínum tíma hafa verið mjög glæsilegan leik- skóla og rós í hnappagat Neskaup- staðar. „Það var litið til þeirrar framsýni sem fólst í byggingu hans og metnaðar í ráðningu fagfólks. Nú eru breyttir tímar og við erum að súpa seyðið af því að hafa fram- kvæmt hér breytingar sem ekki eru nægilega góðar í dag. Samt eru ekki nema fimm til sjö ár síðan þær voru gerðar. Það ber líka að taka það fram að völlurinn við skólann er erf- iður og þarfnast verulegra úrbóta. Kannski stendur það í ráðamönnum að þeim þykir stuttur tími liðinn frá þessum framkvæmdum. En í svona hröðum breytingum er hálfur ára- tugur langur tími.“ Öngþveiti í morgunsárið Aðgengi við leikskólann þykir stórvarasamt og hafa foreldrar lengi beiðst úrbóta en talað fyrir daufum eyrum. „Aðgengið er mjög bagalegt,“ segir Halla. „Það er erf- itt allan ársins hring og ekki batnar það að vetrarlagi. Leikskólinn stendur þannig að umferðargötur eru upp við girðingu allt í kring og ekki gert ráð fyrir nema þremur bílastæðum. Á bilinu 80 til 90 börn og annað eins af foreldrum og bílum koma hér að húsinu milli kl. átta og níu á morgnana og örtröðin og að- staðan þvílík að veldur stór- vandræðum. Húsið stendur þar að auki í brekku og menn koma núna skautandi skáhallt yfir glæruna í brattri götunni. Aðkoman er satt að segja rosaleg og þarf meiri háttar breytingu á þessu ef skólinn á að vera hér áfram.“ Halla fer ekki dult með að hún og starfsfólk Sólvalla telji farsælast að byggja nýtt skólahúsnæði í stað þess að bæta nýjum útúrdúrum við hið gamla. „Við erum samt opin fyr- ir öllum góðum tillögum og sjáum hverju fram vindur.“ Leikskólinn í Neskaupstað annar ekki eftirspurn þrátt fyrir nýlega viðbyggingu Fólksfjölgun og hröð uppbygg- ing kallar á skjót viðbrögð Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Vantar viðbyggingu, nýjan leikvöll og bætt aðgengi: Þeir eru kátir fyrir því, þessir þrír guttar á Sólvöllum; Óðinn Smári Albertsson, Viktor Máni Roman og Eysteinn Ágústsson. Loðnan | Miklar annir hafa verið í loðnufrystingu hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði síðustu dagana. Búið er að frysta á annað þúsund tonn síðustu tíu dagana og til að hafa við loðnunni voru skipverjar á Ljósafellinu teknir í hópinn sem vinnur í frystingunni. Mestur fiskur á haus Á vef Loðnuvinnslunnar kemur fram að Fáskrúðsfjarðarhöfn var sjötta afla- hæsta höfn landsins á liðnu ári. Sé íbúafjölda byggðarlags hafnarinnar deilt í aflatölur og fundinn út afli á íbúa er Fáskrúðsfjörður með hæstu aflatöl- una á hvern íbúa, eða 200 tonn á haus. Á eftir kemur Seyðisfjörður með 198 tonn á íbúa, Neskaupstaður er í þriðja sæti með 183 tonn og Eskifjörður í fjórða sæti með 171 tonn á íbúa. Höfnin í Neskaupstað var aflahæsta höfn síð- asta árs og Eskifjarðar- og Seyðisfjarð- arhafnir vermdu þriðja og fjórða sætið á listanum. Upplýsingarnar eru fengn- ar úr síðasta tbl. Fiskifrétta. Morgunblaðið/Kristinn               

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.