Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 24

Morgunblaðið - 03.02.2004, Side 24
DAGLEGT LÍF 24 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ KÍL&LÓ? FÆRRI ER KOMINN TÍMI Á Í góðum málum N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 1 1 2 1 9 / sia Á hátískusýningu sem haldin var í Róm á tískuvikunni þar í borg í síðustu viku kynntu hönnuðir vor- og sumartísk- una. Það er óhætt að segja að margt nýstárlegt, óvenjulegt og skrítið hafi verið meðal þess sem þar var kynnt til sögunnar. Myndirnar tala sínu máli.  TÍSKA Dýraríkið: Susanna Liso kynnti línu sína fyrir vorið og sumarið sem hún kallar Skjaldbökurnar. Öðruvísi: Sýnishorn af vor- og sumar- línu Ítalska hönnuðarins Roberto Musso. Hattarnir á sýningunni í Róm vöktu talsverða athygli þar sem þeir eru stórir og áberandi. Yfirstærð: Pípuhattur með stæl hannaður af Roberto Musso og tveir hattar sem minna mest á álfa og ævin- týri. Nýstárlegt: Ítalski hönnuðurinn Bianca Maria Gervasio kynnti vor- og sumarlínu sína á tískuvikunni í Róm á dögunum. Með- al annars kynnti hann til sögunnar þessa flík sem minnir kannski dálítið á hreiður. Frumleiki á ítalskri tískuviku R eu te rs NÆRINGARFRÆÐINGAR hafa nú komist að því að meiri svefn geti verið lykill að lausn þeirra, sem þurfa að heyja ei- lífa baráttu við aukakílóin. Klukkutíma aukasvefn á hverri nóttu geti þannig leitt til þyngdartaps, fari menn einfaldlega fyrr í háttinn en endranær í stað þess að drolla fram eftir öllu, sem aftur leiðir til meira narts og minni hreyfingar. Of lítill svefn hafi þannig áhrif á efnaskipti mannslíkam- ans, sem ekki nær að melta matinn á eins virkan hátt og til er ætlast, að því er segir í nýlegri frétt í breska blaðinu Evening Standard, þar sem vísað er til rannsóknar í þessu efni. „Þegar við erum þreytt, leitum við gjarnan í mat, en svo virðist sem líffræðilegt samhengi sé þarna á milli sem við áð- ur höfum ekki gert okkur grein fyrir,“ segir Karen Collins frá bandarísku krabbameinsrannsóknastöðinni, en hún er á því að hormónabreytingar megi m.a. rekja til svefnskorts. Kenning hennar er sótt í rannsókn, sem gerð var við To- yama-háskólann í Japan, en þar settu vísindamenn svefn- skort barna í samhengi við hvernig líkami þeirra melti sykur. Rannsóknin náði til sex og sjö ára gamalla barna. Börn, sem sváfu í átta til níu tíma á nóttu, voru tvisvar sinnum líklegri til að vera of þung en börn, sem fengu níu til tíu tíma svefn á nóttu. Afleiðing streitu Kenningar Collins hafa ekki verið hafnar yfir gagnrýni og hafa sérfræðingar bent á að svefnskortur sé fyrst og fremst afleiðing streitu, sem aftur sé undirliggjandi ástæða efna- skiptatruflana. Hægt væri að segja að nútímalífið, vinnuálag- ið og fjölskylduvandamálin geti í senn verið streituvaldandi þættir, sem leitt gætu til óreglulegs blóðsykurs. „Til að fást við það, borðum við, sem aftur getur leitt til óreglulegs svefns þar sem blóðsykurmagnið sveiflast til alla nóttina. Ef fólk býr við streitu, er það því líklegra til að vakna upp um miðja nótt,“ segir breski næringarfræðingurinn Natalie Sav- ona og Jim Horne, yfirmaður svefnrannsókna við Lough- borough háskólann, tekur í sama streng og klykkir út með því að segja: „Svefnmagnið er ekki svo mikilvægt, heldur eru það svefngæðin sem skipta höfuðmáli.“  MEGRUN Efnaskiptin virkari í svefni AP Svefnlengd: Börn sem sváfu í átta til níu tíma á nóttu voru tvisvar sinnum líklegri til að vera of þung en börn sem fengu níu til tíu tíma svefn á nóttu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.