Morgunblaðið - 03.02.2004, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 25
„ÞETTA er mjög fallegt og róm-
antískt prógramm,“ segir Hanna
Dóra Sturludóttir sópransöngkona
um lögin sem hún syngur á tón-
leikum með Steinunni Birnu Ragn-
arsdóttur píanóleikara í Salnum í
kvöld kl. 20. Hluti af sönglögunum
kom út á geisladiski þeirra fyrir
tveimur árum, en önnur hafa þær
ekki flutt saman áður. „Við bættum
við Mignon ljóðum eftir Hugo Wolf,
sönglögum eftir Richard Strauss og
Grieg, og Jórunni Viðar, en verðum
auk þess með fleiri íslensk lög:
Draumalandið, Í fjarlægð og fleira
fallegt. Þetta er allt ljúft en mjög lit-
ríkt.“
Hanna Dóra segir ljóðin um Mig-
non svolítið alvarlegri enn annað á
efnisskránni og gífurlega falleg.
Það er auðheyrt að henni þykir sér-
staklega vænt um þessi lög, enda
lærði hún þau á sínum tíma undir
handleiðslu ekki ómerkari ljóða-
túlkanda en Dietrich Fischer-
Dieskau. „Mig hefur alltaf langað til
að syngja þau, en þau hafa bara
aldrei passað í prógramm hjá mér
fyrr en núna.“
Ljóðin um Mignon eru eftir Göthe
og mörg þekkt tónskáld hafa samið
tónlist við þau, þar á meðal Schu-
bert, Schumann, Tsjaíkvoskíj, Dup-
arc, Beethoven og Liszt. En hvernir
skyldi Hugo Wolf túlka ljóðin um
stúlkuna Mignon í þeim samanburði.
„Ég þekki ekki öll verkin sem byggð
eru á ljóðunum, en af þeim sem ég
hef heyrt finnst mér Hugo Wolf
leggja mesta áherslu á einfaldleik-
ann. En svo á hann það til að skipta
allt í einu um hljóm, og nær manni
alveg innundir skinn. Á fyrstu æf-
ingunni okkar Steinunnar Birnu
fengum við hreinlega gæsahúð á
þessum augnablikum, og þorðum
varla að anda, hann nær slíkum tök-
um á manni.“ „Það var alveg eins og
við værum ekki lengur einar í her-
berginu,“ bætir Steinunn Birna við.
„Wolf setur ljóðin í þann búning að
allar þær kenndir og tilfinningar
sem takast á í ljóðunum ná helj-
artökum á manni,“ segir Hanna
Dóra. „Mér finnst þau alveg mögn-
uð.“
Steinunn Birna segir það skipta
miklu máli hve Hugo Wolf gefi pían-
istanum mikið að spila úr, hann sé
bæði krefjandi við píanóleikarann,
en líka mjög gefandi. Steinunn
Birna líkir þeim augnablikum sem
Hanna Dóra nefndi, við uppákomu
sem hún sjálf lenti í á 17. júní árið
2000, þegar hún var að spila verk
eftir Jórunni Viðar, og jarðskjálfti
reið af í miðjum klíðum. „Það sem
fór í gegnum kollinn á mér var: „Ég
verð að læra að hemja mig þegar ég
er að spila!“ píanóið var farið að
hörfa undan mér!“ Hanna Dóra seg-
ir það skemmtilega tilviljun að
Steinunn Birna skuli einmitt nefna
þetta, því í einu af ljóðum Mignon,
Kennst du das Land, sé einmitt vísað
í kraft fjallanna. „Það er verið að
syngja um Ítalíu í ljóðinu, - þar sem
ávextirnir vaxa á trjánum. En í síð-
asta erindinu er spurt: Kennst du
den Berg? Þekkirðu fjallið? og þá er
ég alltaf með Ísland í huga. Fischer-
Dieskau sagði: „Það er nú varla erf-
itt fyrir þig að sjá fyrir þér voldug
fjöll,“ og það var rétt, - ég sá fyrir
mér allt Ísland - allan sjóndeild-
arhringinn, þótt ég vissi vel að það
væri verið að syngja um Ítalíu. Nátt-
úran er bara svo ólgandi og sterk í
ljóðunum og í túlkun Wolfs, að hug-
urinn leitaði strax hingað í norðrið.“
Lög Jórunnar mjög söngvæn
Steinunn Birna tekur undir það
að sönglög Jórunnar Viðar séu stór
biti fyrir píanóleikara. „Hún gerir
nú samt ekki mikið píanistanum til
þæginda. Það er gaman að því hvað
Jórunn á það sammerkt með
Beethoven, að það er ekki píanistinn
sem skiptir máli, heldur tónlistin
sjálf. Það er ekki mikið verið að ein-
falda líf flytjandans.“
Lögin eftir Jórunni sem þær
Hanna Dóra flytja, eru Úngling-
urinn í skóginum, Vorljóð á Ýli, Kall
sat undir kletti og Vort líf. Jórunn
Viðar kom á æfingu hjá þeim um
daginn til að heyra lögin sín í þeirra
túlkun. „Það var mjög gaman að fá
Jórunni í heimsókn. Hún sagðist
hafa verið búin að gleyma því hvað
lögin væru skemmtileg,“ segir
Hanna Dóra. Steinunn Birna segir
að lög Jórunnar séu allt of sjaldan
flutt, þótt þau séu hvert öðru betra.
„Það er mjög gaman að syngja þessi
lög, því þau eru svo söngvæn,“ segir
Hanna Dóra.
Þær Hanna Dóra og Steinunn
Birna halda tónleika við óperuna í
Kassel í Þýskalandi 20. apríl, ásamt
Viðari Gunnarssyni bassasöngvara,
en Hanna Dóra hefur sungið þar
sem gestasöngvari að undanförnu.
Þá verða bara íslensk lög á dagskrá.
Tónleikarnir eru í röð ljóðatónleika
sem óperuhúsið stendur fyrir og
býður söngvurum sínum að taka
þátt í.
Sungið um kraft fjallanna
Morgunblaðið/Jim Smart
Steinunn Birna og Hanna Dóra við flygil Salarins.
ÓLAFUR Kvaran, safnstjóri
Listasafns Íslands, og Róbert
Wessman, forstjóri Pharmaco,
undirrituðu í gær samning um
áframhaldandi styrk Pharmaco til
Listasafnsins og verður Pharma-
co aðalstyrktaraðili Listasafns Ís-
lands árin 2004 og 2005.
Á þessu tímabili mun framlag
Pharmaco til safnsins nema 12
milljónum króna.
Í fréttatilkynningu frá Lista-
safni Íslands segir að safnið fagni
samstarfssamningnum, enda sé
hann mikilvægur þáttur í því að
styrkja starf þess í þeim krefjandi
verkefnum sem fram undan eru.
Samningurinn er framhald af
samstarfi Listasafns Íslands og
Pharmaco síðustu tvö ár, sem
gerði Listasafninu kleift að eiga
sýningarskipti við Tretjakov-
safnið í Moskvu. Viðamikil sýning
á íslenskri myndlist fór til Moskvu
árið 2002 og hingað kom sýning á
rússneskri myndlist frá aldamót-
unum 1900.
Á þessu ári kemur hingað stór
sýning á bandarískri samtímalist
frá Astrup Fearnley listasafninu í
Ósló og verður sýningin framlag
Listasafns Íslands til Listahátíð-
ar. Sýningin nefnist Í nærmynd
og á að vekja áhorfandann ræki-
lega til umhugsunar um samfélag-
ið á kaldhæðinn og beinskeyttan
hátt. Á sýningunni eiga verk lista-
menn á borð við Jeff Koons, Andy
Warhol, Sherrie Levine og Rich-
ard Prince.
Ólafur Kvaran segir gildi samn-
ingsins ekki síst mikilvægt vegna
þess að með honum hafi skapast
möguleiki á að fá þessa sýningu til
landsins. „Þessi ánægjulegi samn-
ingur við Pharmaco gerir okkur í
raun kleift að standa að svo kostn-
aðarsamri sýningu sem þessari, á
sama hátt og samstarfið gerði
okkur mögulegt að eiga sýninga-
samskipti við Tretjakov-safnið í
Moskvu. Samningurinn opnar
okkur nýja sýningarmöguleika og
samskipti við erlend söfn á mik-
ilvægum sýningum. Þar skiptir
hann sköpum.“
Listasafn Íslands og Pharmaco
undirrita samstarfssamning
Skiptir sköpum
fyrir samskipti
við erlend söfn
Morgunblaðið/Jim Smart
Ólafur Kvaran og Róbert Wessman að undirritun lokinni.
MYRKIR músíkdagar leggja Lang-
holtskirkju undir sig í kvöld, en þar
verða tónleikar Blásarasveitar
Reykjavíkur, sem Kjartan Óskarsson
stjórnar. Tveir einleikarar koma fram
með Blásarasveitinni, Steingrímur
Þórhallsson orgelleikari, sem leikur
einleik í nýju verki, Lofti, eftir Jónas
Tómasson, og Víkingur Heiðar Ólafs-
son píanóleikari sem fer með einleiks-
hlutverkið í Konsert fyrir píanó og
blásara eftir Igor Stravinskíj. Á tón-
leikunum leikur Blásarasveitin einnig
Sónötu eftir Tryggva M. Baldvinsson,
fyrir tvo málmblásarakóra, og í tón-
leikalok verður orgelverk Jónasar
Tómassonar endurflutt.
Steingrímur Þórhallsson kom heim
úr námi á Ítalíu fyrir rúmum tveimur
árum og er nú organisti við Nes-
kirkju. Víkingur Heiðar Ólafsson
stundar framhaldsnám við Juilliard-
skólann í New York.
Steingrímur segir að verk Jónasar
sé mjög athyglisvert, þar sé tónskáld-
ið að lita „loftið“ með tónum, – en org-
elið er jú blásturshljóðfæri, rétt eins
og hljóðfæri Blásarasveitarinnar.
„Hann byggir verkið í kringum
melódíur sem eru brotnar upp á ýms-
an hátt, og spilar inn á effekta milli
orgels og hljómsveitar. Svo er það
bara hlustandans að reyna að greina
hvar hún er hverju sinni.“ Steingrím-
ur segir það jafnan ánægjulegt þegar
tónskáld semji fyrir orgel og blásara-
sveit eða aðrar hljómsveitir. „Orgelið
kemur mjög vel út í samspili við
hljómsveitir, þegar vel er gert, og
þess vegna vona ég að þetta virki
hvetjandi á önnur tónskáld að semja
slík verk og á hljómsveitir að fá org-
anista til liðs við sig.“
Gerir grín að lúðrasveitum
Víkingur Heiðar Ólafsson segir að
konsert Stravinskíjs sé saminn í ný-
klassískum stíl á árunum 1923–24.
„Verkið er byggt á mjög sterku formi
og hefðum barokksins og klassíska
tímans. En samt eru áhrifin frá sam-
tíma hans sjálfs líka sterk, eins og
djass og ragtime, sem gerir verkið
gífurlega áhugavert. Hann samdi
verkið fyrir píanó og blásarasveit, og
maður finnur að hann er líka svolítið
að gera grín að lúðrasveitastílnum, og
oft með eitthvað sem jaðrar við að
vera lúðrasveitarmarsar eða eitthvað
svoleiðis. En þrátt fyrir öll þessi áhrif
ólíkra stílbrigða nær hann samt að
gera þetta á áhrifamikinn hátt að
sannkölluðu meistaraverki. Hann
nær fram miklum andstæðum í köfl-
unum þremur; fyrsti og þriðji kaflinn
eru röff og beittir – gífurleg spenna
og taumlaus gleði, meðan annar þátt-
urinn byggist á trúarlegum pæling-
um, og er hálfgerð bæn til almætt-
isins. Það má því segja að verkið
spanni allt litrófið. Hljómurinn í pí-
anóinu og blásarasveit með slagverki
og kontrabössum líka jaðrar við að
vera hrár, en er það samt ekki. Það
vantar auðvitað fiðlurnar sem píanóið
er vant að hafa með í hljómsveitum.
En þessi hljóðfærasamsetning hentar
vel bæði fyrir skýrleika barokksins og
fjörið í djassinum.“
Orgel og píanó í blásaraboði
Morgunblaðið/Þorkell
Víkingur Heiðar Ólafsson og Steingrímur Þórhallsson.
DANSHÖFUNDURINN
Helena Jónsdóttir hlaut á
dögunum Þýsku dans-
myndbandsverðlaunin en
þau eru nú veitt í fjórða
sinn.
Alls sendu 108 umsækj-
endur inn handrit í keppn-
ina, m.a. dansarar, danshöf-
undar og
myndbandslistamenn. Al-
þjóðleg dómnefnd sérfræð-
inga veitti sl. haust sex
þessara umsækjenda tæki-
færi til að vinna prufu-
dansmyndband út frá hand-
riti sínu og var verk Helenu,
Zimmer eða Herbergi, að
endingu verðlaunað. Verð-
launin fela í sér styrk til
fullvinnslu verksins, auk
þess sem séð verður um
dreifingu þess á sjónvarps-
stöðvar og á kvikmyndahá-
tíðir.
Að mati dómnefnd-
arinnar birtist hugmynd
Helenu sem vænleg sýn á
snertiflöt milli hennar eigin
og upprunalegrar tilurðar
líkamlegrar tjáningar, sem
og menningarástands og meðvit-
undar á þessum samskiptatímum.
Segir auk þess í fréttatilkynningu
dómnefndar að Helena líti m.a. á
líkamann sem landslag, auk þess
sem hún haldi áfram að þróa
reynslu sína sem dansari, sjálf-
stæða formmyndun líkama síns og
heillandi tjáningarhæfilega lík-
amans.
Helena Jónsdóttir, dansahöfundur og leik-
stjóri, en með henni er sonur hennar, Dagur
Benedikt Reynisson.
Hlýtur þýsk verðlaun
fyrir dansmyndband
Morgunblaðið/Kristinn