Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 35 ✝ Soffía JónfríðurGuðmundsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 3. júní 1916. Hún lést á E- Deild Sjúkrahúss Akraness hinn 25. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bjarni Jónsson skip- stjóri, f. 9. des. 1870, d. 18. ág. 1954, og kona hans Helga Jóna Jónsdóttir, f. 5. nóv. 1882, d. 17. apr- íl 1966. Soffía giftist hinn 23. maí 1935 Ingólfi Sigurðssyni frá Móum á Skagaströnd, f. 23. maí. 1916, d. 28. sept. 1979. Börn þeirra eru: 1) Helgi Guðmundur, f. 22. septem- ber 1935, d. 18. mars 1999, kvænt- ur Jónínu Þóru Helgadóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru. a) Guð- mundur Helgi, f. 1964, kvæntur Vordísi Baldursdóttur. Þeirra börn eru: Jónína Sæunn, f. 1990, Baldur Már, f. 1991, og Helga Guðrún, f. 2003. b) Sigurður Helgi, f. 1966, kvæntur Rakel Haralds- dóttur. Þeirra börn eru: Nína Rún, f. 1995, og Jafet Thor Arnfjörð, f. 1998. Fyrir átti Sigurður soninn Kristófer Dan, f. 1988. c) Harpa, f. 1970, gift Boga Kristinssyni. Þeirra börn eru: Kristinn Helgi, f. 1995, og Lydía Nína, f. 2000. 2) Magnús Davíð, f. 11. janúar 1937, kvæntur Kristínu Guðmundu Hall- dórsdóttur. Börn þeirra eru: a) Halldóra Guðríður Magnúsdóttir, Þorkelsdóttur. Börn þeirra eru: a) Ingibjörg Halldóra, f. 1961, gift Kristjáni Einarssyni. Þeirra börn eru: Guðrún Inga. f. 1986, Krist- jana Oddný, f. 1988, Margrét Sól- ey, f. 1996, og Inga Dóra, f. 1998. b) Guðrún, f. 1965, gift Guðna Eð- varðssyni. Þeirra börn eru: Örn Ingi, f. 1990, og Haukur, f. 1994. c) Soffía Helga, f. 1966, sambýlis- maður Grétar Jóhannesson. Þeirra börn eru: Kristján Arnór, f. 1982, Heiðar, f. 1991, og Sindri Jón, f. 1995. 5)Steinunn Sigríður, f. 29. desember 1944, gift Magnúsi Birgi Jónssyni, f. 1942. Börn þeirra er: Soffía Ósk, f. 1964, var gift Einari Erni Sveinbjörnssyni. Þau skildu. Sambýlismaður Dhruv Dayal; og Jón, f. 1969, kvæntur Eleanor Magnússon. Þeirra börn eru: Anna Christabel, f. 1999, og Tomas Birgir Charles, f. 2002. 6) Sigurður Björn, f. 8. febrúar 1950. 7) Guðbjört Guðjóna, f. 13. ágúst 1953, gift Kristjáni Magnússyni. Börn þeirra: a) Ingólfur Níels Árnason, f. 1971, kvæntur Hildi Hinriksdóttur. Þeirra barn er: Hinrik Leonard, f. 2002. b) Einara Lilja, f. 1974, gift Magnúsi Frið- jóni Ragnarssyni. Þeirra barn er Írena Björt, f. 2001. c) Bergþóra Halla, f. 1980, gift Younes Bou- mihdi. Þeirra barn er: Khadija Björt, f. 2003. d) Soffía, f. 1982, barn hennar er: Einar Berg, f. 2003. e) Magnús Helgi, f. 1971, sambýliskona Berglind Bára Skarphéðinsdóttir, barn hennar er Svala Rún Sigurðardóttir, f. 2002. f) Berglind, f. 1973, gift Jóhanni K. Arnarssyni. Þeirra börn eru: Kristján Arnar, f. 1993, og Lárus Orri, f. 1996. Útför Soffíu verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. f. 1960, gift Lúðvíki Davíð Björnssyni. Þeirra börn eru: Dav- íð Halldór, f. 1979, sambýliskona Elsa Al- exandersdóttir. Barn þeirra Embla Rós, f. 2003. Heiðrún Kristín, f. 1980, sambýlismað- ur Georg Þór Ágústs- son. Barn þeirra: Birta Sif, f. 1997. Heimir Magnús, f. 1987, og Björn Mark- ús, f. 1992. b) Ingólfur Friðjón, f. 1961, kvæntur Sigríði Andr- ésdóttur. Þeirra börn eru: Bjarki Már, f. 1986, Ásta Kristín, f. 1988, og Linda Björk, f. 1990. c) Guð- mundur Halldór, f. 1962, sambýlis- kona Júlía Birgisdóttir; barnsmóð- ir Kristrún Gróa Óskarsdóttir, þeirra barn er Óskar Halldór, f. 1988. d) Soffía Margrét, f. 1967, gift Halldóri Bragasyni. Þeirra börn eru: Kristín Elísabet, f. 1987, Bragi Þór, f. 1994, og Adolf Freyr, f. 1997. e) Magnús Kristinn, f. 1971, kvæntur Þórkötlu Jónsdótt- ur. Þau skildu. Þeirra börn eru: Elísabet Karen, f. 1991, og Steph- en Mitchell, f. 1998. 3) Erla Svan- hildur, f. 4. apríl 1938, gift Ólafi Þór Kristjánssyni. Börn þeirra eru: a) Kristján Geir f. 1963, b) Þórdís f 1966 gift Guðjón Ingv- arssyni. Þeirra börn eru: Erla Björk f, 1986, Aníta Rut f. 1988 og Snædís Sara f. 1994 c) Katrín f. 1972. 4) Kristján Árni, f. 12. des- ember 1941, kvæntur Kristjönu Lokið er kafla í lífsins miklu bók. Við lútum höfði í bæn á kveðjustund, biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók græðandi hendi að milda sorgarstund (Vigdís Runólfsdóttir frá Gröf.) Komið er að kveðjustund. Í dag kveðja hinstu kveðju börn, tengda- börn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir Soffíu Guðmundsdótt- ur frá Suðurvöllum (Akurgerði 17) sem nú hefur lagt upp í sína hinstu för á vit síns algóða Guðs og ástvin- anna mörgu sem á undan eru gengn- ir. Löngu lífi er lokið, lífi sem var um svo margt táknrænt fyrir alþýðufólk þessa lands, kynslóðarinnar sem óx úr grasi með tuttugustu öldinni og lifði að sjá marga af draumum og baráttumálum sínum rætast. Kyn- slóðin sem lagði hvað mest af mörk- um til þess að við í dag lifum í velsæld og öryggi velferðarsamfélags. Hún fæddist hinn 3. júni 1916 á litlu grasbýli í útjaðri Þingeyrar við Dýrafjörð og var sjöunda í aldursröð tíu systkina þeirra Guðmundar Bjarna Jónssonar, skipstjóra og konu hans Helgu Jónu Jónsdóttur. Þar lifði hún sín æsku- og unglingsár í stórum glaðværum systkinahópi og tók svo fljótt sem kraftar leyfðu til hendi og lagði til heimilis. Þó ekki væru veraldleg efni mikil að státa af voru uppvaxtarárin síðar í minningu hennar meiri sæla en sút og ekkert jafnaðist á við Dýrafjörðinn hennar og hið rómaða „innfjarðarlogn“. Heimdraganum hleypti hún ung og fór þá til systur sinnar á Skaga- strönd til vinnu árið 1931. Það varð mikil örlagaferð því þar hitti hún fyrst manninn sem síðar deildi með henni lífshlaupinu um nærri hálfrar aldar skeið, Ingólf Sigurðsson frá Móum á Skagaströnd. Hvað þeim fór á milli þetta sumar veit enginn leng- ur en þau urðu upp frá því lífsföru- nautar. Þau giftu sig 23. maí 1935 og byrj- uðu búskap í Grindavík og fluttu síð- an um stund til Reykjavíkur. Á Akra- nes flytja þau árið 1940 með þrjú elstu börn sín. Um sama leytið eru foreldrar Soffíu að flytja frá Þingeyri til Akraness. Kaupa þau saman Suð- urvellina. og bjuggu þar alla tíð síð- an. Fjölskyldan stækkaði og á Akra- nesi fæddust þeim fjögur börn til viðbótar. Lífsbaráttan var hörð á þessum árum, ekki úr miklu að spila og mikið varð að leggja á sig og sýna hyggindi og útsjónarsemi til þess að endar næðu saman. Ingólfur stundaði margs konar vinnu á þessum árum en smám saman fór sjómennskan að verða hans aðalstarf og var um ára- tuga skeið. Soffía var því löngum í margföldu hlutverki og heimilishald- ið og uppeldi barnanna var í höndum og á ábyrgð hennar. Þó eflaust hafi oft verið erfitt þá sást það aldrei á húsmóðurinni. Þó varð þess ekki vart að það háði henni að marki. Hún hafði létta lund og stórt hjarta og var börnum sínum vinur og félagi og lét þau aldrei finna að þröngt væri í búi eða erfitt um vik. Það hjálpaði til að hún var einstak- lega lagin í höndum og gerði marga glæsiflíkina úr litlum efnum. Þá fylgdist hún grannt með og var órög við að fitja upp á nýbreytni sem auðgaði og gladdi. Þó fjölskyldan væri stór og húsa- kynni af skornum skammti var að þeirra tíma hætti sjálfsagt að stór- fjölskyldan lifði undir sama þaki. Þannig áttu bæði móðir hennar og tengdamóðir heimili og skjól á Suð- urvöllum. Þar kom að Ingólfur hætti sjó- mennsku og hóf að vinna í landi, lengst af sem leigubifreiðarstjóri. Þegar um hægðist og börnin uxu úr grasi fór Soffía einnig að vinna utan heimilis og vann lengi á Hótel Akra- nesi og í prjónastofunni Akraprjón. Alls staðar var hún vinsæl og eftir- sótt til vinnu. Henni var eiginleg vinnusemi. Hispursleysi hennar, trú- mennska og hreinskiptni voru eigin- leikar sem vinnuveitendur hennar mátu. Fyrir henni voru allir jafnir og skyldu njóta sömu virðingar. Þannig vann hún sér vináttu og virðingu ungra sem gamalla, viðskiptavina sem samstarfsfólks. Lundin létt og oft stutt í hlátur og glaðværð, en vei þeim sem gerði á hluta hennar. Þá voru skilaboðin skýr og skilmerkileg, það skyldi engum líðast. Smám saman fóru börnin að stofna fjölskyldur og barnabörnin fæddust. Þá hófst annar kafli í lífshlaupinu. Barnabörnin áttu öruggt skjól í húsi ömmu sinnar og afa. Þangað var ávallt hægt að koma Stundum að fá eithvað gott, sem ekki fékkst í ríkum mæli heima, stundum að fara í bíltúr, stundum að ræða viðkvæm lífsins mál, og þar voru lausnir á öllum vanda. Þannig varð hún vinur og fé- lagi þó kynslóðir skildu. Langri ævi fylgja bæði gleði og sorgir og vissulega barði sorgin að dyrum í lífi hennar. Hún missti tvo bræður sína í sjóinn, báða með mjög sviplegum hætti og elsta son sinn, sem lést árið 1999. Þá var það henni mikið áfall þegar Ingólfur missti heilsuna en hann lést í 28. september árið 1979 eftir mikla vanheilsu. Sjálf fékk hún svo mikið áfall á efri árum og var bundin í hjólastól meir en ára- tug ævi sinnar. Þá varð hún einnig að flytja að heiman og inn á sjúkrahús. Aldrei kvaddi hún þó alveg Suður- vellina og var hugurinn þar meira og minna. Sigurður sonur hennar sem býr á bernskuheimilinu var öll árin hennar á E-deildinni eins og hann megnaði, vakinn og sofinn yfir vel- ferð hennar og mörgum stundum eyddu þau saman í eldhúsinu á Suð- urvöllum. Hann á alúðarþakkir skilið fyrir þá umönnun og hlýju sem hann sýndi henni alla tíð. Tíminn á E-deildinni á Sjúkrahúsi Akraness hefur eflaust oft verið lengi að líða og sárt að vera bundin við hjólastól fyrir hana, sem var svo lífs- glöð og full af atorku og vilja til verka. Soffía sem hafði helgað allt sitt líf þjónustunni við aðra, fékk nú að njóta þess sem best verður gert á opinberri stofnun. Alúð og umhyggja starfsfólksins á E-deildinni var og er slík að unun og aðdáun er að kynnast og er hér þökkuð af alhug. Löngu jarðnesku lífi er lokið og við tekur hið eilífa líf. Það var aldrei efi í huga Soffíu. Handan móðunnar miklu er mikið ljós, ljós hins eilífa lífs. Á kveðjustund þökkum við ást- vinir hennar allir fyrir hið góða sem hún gaf okkur, hið mikla hjartarúm, gleði og styrk sem aldrei brást. Blessuð sé minning hennar. Steinunn, Magnús, Soffía, Jón og fjölskylda. Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund. Það er erfitt að kveðja þig, þig sem gafst mér svo mikið og margt í gegnum lífið. Löngu lífs- hlaupi er lokið, mamma mín. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefur eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinn, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá Guði skín. (Árni Helgason.) Elsku mamma, ég vil að lokum þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég kveð þig með söknuði og trega og geymi allar ljúfu minningarnar innra með mér. Far þú í friði, elsku mamma mín. Þín Guðbjört. Amma okkar var stórbrotin og skemmtileg persóna með sinn ynd- islega hlátur eða hristurnar einsog við kölluðum það. Það var yndislegt að fá að njóta hennar og það var alltaf svo gaman að heimsækja hana. Það var eitthvað svo frábært við ömmu- hús eða Suðurvelli einsog það er kall- að, þar fékk ímyndunaraflið að leika lausum hala við að máta föt, prófa snyrtidót eða halda lítið kaffiboð með silfrinu hennar. Amma eldaði alltaf ofboðslega góðan mat og hafði alltaf tíma til að spjalla. Minnisstæðar eru líka stundirnar við útvarpið, það var hlustað á lög unga fólksins, óskalög sjúklinga og útvarpsleikritin. Amma gerði sér alltaf ferð til okk- ar á haustin í sláturgerð og þá var mikið fjör, þar sem vambir voru saumaðar, mör skorinn og sullað í blóði. Það var alltaf margra daga spenningur á heimilinu þegar von var á ömmu með Nóa Siríus súkku- laði og brjóstsykur í veskinu. Svo kom að því að vistarverur ömmu breyttust og hún varð vist- maður á sjúkrahúsinu á Akranesi en það þýddi ekkert minni hlátur eða yndislegar stundir, það var svo gam- an að koma og hitta hana en þá vor- um það bara við sem komum með glaðning í veskinu handa henni og þá var oft mikið skrafað og hlegið. Elsku amma, mikið eigum við eftir að sakna þín og gleðistundanna með þér en loksins ertu búin að fá þína lang- þráðu hvíld. Megi guð geyma þig þangað til við hittumst næst. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Hinsta kveðja. Ingólfur, Magnús, Berglind, Einara, Bergþóra og Soffía. SOFFÍA JÓNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN FREYR ÁSGEIRSSON, Kambaseli 64, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 25. janúar. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Guðrún Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, VIÐAR ÓSKARSSON, Glæsibæ 14, Reykjavík, lést af slysförum mánudaginn 2. febrúar. Sigríður Friðþjófsdóttir, Þórir Dan Viðarsson, Bryndís Dan Viðarsdóttir. HALLDÓR ARASON bifvélavirkjameistari, Tjarnarlundi 12a, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 1. febrúar sl. Hulda Þórarinsdóttir, Ari Halldórsson, Lütfiye Kaptan-Halldórsson, Gyða Þuríður Halldórsdóttir, Jón Ragnarsson og barnabörn. AÐALBJÖRN GUÐMUNDSSON fyrrv. kaupmaður, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði mið- vikudaginn 28. janúar. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju fimmtu- daginn 5. febrúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Garðarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.