Morgunblaðið - 03.02.2004, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 49
LÍKLEGT er að Litháinn Dalius
Rasikevicius yfirgefi Íslandsmeist-
ara Hauka á næstu dögum en
landi hans Robertas Pauzuolis
verður um kyrrt hjá Hafnarfjarð-
arliðinu, alla vega fram á sumar.
Eins og Morgunblaðið greindi
frá í gær vill Partizan Belgrad fá
Rasikevicius til sín á nýjan leik og
spænska 1. deildarliðið Altea hef-
ur borið víurnar í Pauzuolis.
Rasikevicius hefur ekki fundið
sig í herbúðum Hauka og vill fara
til Partizan Belgrad en seint í
gærkvöldi höfðu forráðamenn fé-
laganna ekki komist að sam-
komulagi um skiptin en þar sem
Rasikevcius er samningsbundinn
Haukum vilja þeir fá greiðslu fyr-
ir hann. Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, sagði við Morgunblaðið í
gærkvöld að málin myndu skýrast
endanlega í dag en hann reiknaði
ekki með að Rasikevicius yrði
meira með Haukum það sem eftir
væri leiktíðar.
Viggó sagði hins vegar að Ro-
bertas Pauzuolis færi ekki frá fé-
laginu fyrr en fyrsta lagi í sumar.
Pauzuolis á við meiðsli að stríða í
baki og öxl og hefur verið í með-
ferð hjá Elís Þór Rafnssyni,
sjúkraþjálfara Hauka og landsliðs-
ins.
Viggó telur afar ólíklegt að
litháíska stórskyttan verði með í
leiknum við HK í 1. umferð úr-
valsdeildarinnar á föstudag.
Pauzuolis um kyrrt
en Dalius á förum
FÓLK
ÓLAFUR Örn Bjarnason, lands-
liðsmiðvörður í knattspyrnu, fór vel
af stað í fyrsta æfingaleiknum með
sínu nýja félagi, Brann í Noregi,
gegn Haugesund um helgina. Hann
þótti stjórna varnarleik liðsins mjög
vel, leikmenn Haugesund fengu fá
marktækifæri, en sóknarmenn
Brann voru heldur ekki upp á marga
fiska og leikurinn endaði 0:0.
JAKOB Sigurðarson skoraði 16
stig og var stigahæstur í liði Birm-
ingham Southern sem lagði Coastal
Carolina, 76:68, í framlengdum leik
á útivelli. Staðan var jöfn 63:63 að
loknum venjulegum leiktíma en
Birmingham Southern er í efsta
sæti Big South-1. deildarinnar í há-
skólakeppni körfuknattleiksliða í
Bandaríkjunum.
ÞÝSKA knattspyrnuliðið Dort-
mund hefur samið við Brasilíumann-
inn Anderson Thiago de Souza, 19
ára framherja. Leikmaðurinn æfði
með Dortmund í vetrarfríinu en
hann er vinur Flavio Conceicao sem
er á mála hjá Dortmund og vildu for-
ráðamenn Dortmund að Souza færi
ekki til Uniao Sao Joao Esporte í
heimalandi sínu á ný.
LEBRON James, nýliði Cleveland
Cavaliers í NBA-deildinni, skoraði
38 stig í sigurleik liðsins gegn Wash-
ington Wizards, 104:100, á sunnu-
daginn og hefur hann aldrei áður
skorað svo mörg stig í vetur. James
er talinn vera eitt mesta efni sem
komið hefur fram undanfarin ár í
deildinni enda aðeins 18 ára gamall
og fór beint úr miðskóla og í atvinnu-
mennskuna. Áður hafði hann skorað
37 stig gegn Boston hinn 13. desem-
ber sl.
LEEDS, botnlið ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu, fékk í
gær skoska varnarmanninn Stephen
Caldwell lánaðan frá Newcastle út
tímabilið. Caldwell hefur leikið einn
landsleik fyrir Skotland en ekki náð
að vinna sér fast sæti í liði New-
castle.
MAGNUS Wislander, einn fremsti
handknattleiksmaður sögunnar, seg-
ist vera klár í slaginn með sænska
landsliðinu í handknattleik þegar
það mætir Pólverjum í vor í tveimur
leikjum um sæti á HM í Túnis á
næsta ári. Wislander segist ekki
ætla að skorast undan ábyrgð verði
leitað til hans þegar landsliðið verði
valið fyir leikina, en ljóst sé að komi
til þess verði það hans allra síðustu
landsleikir fyrir Svíþjóð. Wislander
verður fertugur síðar í þessum mán-
uði.
STAFFAN Olsson, félagi Wisland-
ers í sænska landsliðinu til margra
ára, hefur ekki viljað gefa neitt út
um það ennþá hvort hann gefi kost á
sér í leikina við Pólverja, segist ætla
að taka afstöðu til þess þegar kemur
fram á vorið. Olsson er jafngamall og
Wislander og hefur verið í landslið-
inu í 18 ár.
IGOR Bjarni Lúkas, 20 ára
markvörður sem var vara-
markvörður hjá úrvalsdeild-
arliði ÍBV á síðustu leiktíð,
hefur gert eins árs samning
við færeyska fyrstudeild-
arliðið Skála. Félagið rétt
slapp við fall á síðustu leik-
tíð en Skála varð í 8. sæti af
tíu liðum og hlaut 13 stig.
Igor Bjarni, sem er sonur
Lúkasar Kostic, fyrrverandi
þjálfara KR og Grindavíkur
og núverandi þjálfara U-17
ára landsliðsins, hélt til Fær-
eyja í gær, en hann á að
leysa af hólmi pólskan mark-
vörð, sem kominn er til ára
sinna.
Igor Bjarni lék tvo leiki
með Víkingi í 1. deildinni
fyrir tveimur árum en hann
hóf ferilinn hér á landi með
KR-ingum.
Igor
Bjarni til
Skála í
Færeyjum
Ríkharður er kominn á heimaslóðir
því hann hóf að leika með meistara-
flokki Fram 17 ára gamall, árið 1989,
og spilaði með Safamýrarliðinu í sjö
ár. Hann varð bikarmeistari með því
árið 1989 og Íslandsmeistari ári síðar,
en það eru síðustu stóru titlarnir sem
Fram hefur fagnað. Ríkharður lék
101 leik með Fram í efstu deild og
skoraði 30 mörk.
Hann gekk til liðs við KR-inga árið
1996 og lék með þeim í tvö ár en þar
gerði hann 21 mark í 34 deildaleikj-
um. Ríkharður varð markakóngur
efstu deildar 1996 með 14 mörk í 18
leikjum og skoraði einu meira en
Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson.
Snemma árs 1997 lék Ríkharður fyrst
erlendis, spilaði þá 10 leiki með Kala-
mata í efstu deild í Grikklandi og
skoraði eitt mark.
Ríkharður hélt alfarinn af landi
brott í árslok 1997 og gekk til liðs við
Viking frá Stavanger í Noregi. Þar
lék hann í þrjú ár og var í fremstu röð
meðal markaskorara í norsku úrvals-
deildinni, gerði 48 mörk í 68 deilda-
leikjum fyrir Viking.
Þegar samningur Ríkharðs við Vik-
ing rann út í nóvember 2000 fór hann
til enska Íslendingaliðsins Stoke City
og spilaði þar í tæp tvö ár en þar lék
hann 39 leiki og skoraði 10 mörk í 2.
deild. Hann fór til Lilleström í Noregi
síðsumars 2002 og skoraði þá 4 mörk í
7 deildaleikjum. Á síðasta ári fékk
Ríkharður lítið að spila með Lille-
ström, þar sem félagið hefði þurft að
greiða Stoke meira fyrir hann eftir
ákveðinn leikjafjölda. Í haust fékk
hann sig því leystan undan samningn-
um þar og spilaði síðustu níu umferð-
irnar í norsku 1. deildinni með Fred-
rikstad. Hann skoraði 5 mörk og átti
drjúgan þátt í að koma liðinu upp í úr-
valsdeildina.
Ríkharður hefur leikið 44 A-lands-
leiki fyrir Íslands hönd og er í 2.–3.
sæti yfir markahæstu menn landsliðs-
ins frá upphafi með 14 mörk, ásamt
Arnóri Guðjohnsen. Aðeins afi hans,
Ríkharður Jónsson, hefur skoraði
fleiri mörk fyrir landsliðið, 17 talsins.
Ríkharður verður fimmti leikmað-
urinn sem gengur til liðs við Fram
fyrir tímabilið en áður hafa Framarar
gert samning við færeysku landsliðs-
mennina Fróða Benjaminsen og
Hans Fróða Hansen, Þorvald Makan
Sigbjörnsson frá KA og Andra Stein
Birgisson frá Aftureldingu.
Ríkharður á
ný til liðs við
Framara
RÍKHARÐUR Daðason leikur með Fram í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu en samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins
komst hann að samkomulagi við Framara seint í gærkvöldi og skrif-
ar hann undir 2ja ára samning við Safamýrarliðið í dag. Ríkharður
var með tilboð frá KR og Fram, félögum sem hann hefur áður leikið
með, en ákvað eftir ítarlega umhugsun að taka tilboði Fram.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ríkharður Daðason sést hér
fagna í landsleik. Hann hef-
ur leikið 44 landsleiki og
skorað 14 mörk.
Það var ekki fyrr en í síðasta
leiknum á EM – gegn Tékkum,
þegar allt var komið í óefni, að
leikmönnum sem höfðu setið leik
eftir leik á bekknum, var teflt
fram. Þá voru þeir óundirbúnir og
sjálfstraustið í molum.
Það er ekki nóg að skipta leik-
mönnum inn á í leikjum. Menn
verða að vera tilbúnir í slaginn og
klárir á því hvað þeir eiga að
gera. Það hefði átt að nýta æf-
ingaleiki fyrir EM til að keyra á
öllum landsliðsmönnum Íslands –
byggja upp stemningu og létt-
leika, sem hefur svo oft einkennt
landslið Íslands.
Handknattleikurinn er orðinn
svo hraður að það er ekki hægt að
leika leik eftir leik á sömu sjö
leikmönnunum. Danir og aðrar
þjóðir á EM voru stöðugt að
skipta skipta leikmönnum inn á,
þannig að menn fengu hvíld og
gátu kastað mæðinni áður en þeir
fóru aftur inn á á fulla ferð.
Það þarf að verða hugafars-
breyting í sambandi við íslenska
landsliðið. Það er ekki hægt að
bjóða fullfrískum atvinnumönnum
að sitja leik eftir leik á bekknum
og horfa á.
Þá er voðinn vís þegar hópur
leikmanna í landsliði er farinn að
taka völdin. Það á að vera hlut-
verk þjálfara að ráða ferðinni.
Sigmundur Ó. Steinarsson