Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 51
„Hvar erum við?“ Lloyd og Harry velta fyrir sér hinstu rökum tilverunnar.
bíllinn (Blue Car). Myndin er fyrsta
leikstjórnarverkefni leikkonunnar
Karen Moncrieff og segir af baráttu
ungrar stúlku við að halda geðheils-
HÆST ber í myndbandaútgáfu
þessarar viku að heimskasta par
kvikmyndasögunnar snýr aftur í
myndinni Heimskur heimskarari
(Dumb and Dumberer). Hér er að
sjálfsögðu verið að meina þá pöru-
pilta Lloyd Christmas og Harry
Dunne sem gerðu allt vitlaust fyrir
tíu árum í frumgerðinni, Heimskur
heimskari. Hér er hins vegar spólað
aðeins aftur á bak og áhorfendur fá
innsýn í það er þeir fóstbræður hitt-
ust fyrsta sinni.
Fjórar myndir aðrar hoppa svo
upp í hillurnar í febrúarbyrjun.
Christopher Lambert, gamla kemp-
an sem gerði það gott með Hálend-
ingnum hér í eina tíð, leikur aðal-
hlutverkið í spennumyndinni
Absolon og tvær grínmyndir koma á
markaðinn einnig, Alger ljóska (Tot-
ally Blonde) og Hvernig á að stokka
eða How to Deal þar sem söng- og
leikkonan Mandy Moore er í aðal-
hlutverki. Þá kemur einnig út einkar
athyglisverð mynd er kallast Blái
unni við erfiðar aðstæður. „Lítil“
mynd sem vakið hefur athygli á ýms-
um kvikmyndahátíðum, t.a.m í
Montreal og í Woodstock.
Myndbandaútgáfa vikunnar
Harry og Lloyd snúa aftur
!" #
$
!" $
$
!"
!" $
!"
!"
!" $
#
$
$
!"
!" $
!" %
&
%
%
&
%
&
%
%
&
'
&
'
&
&
%
&
%
&
%
!
"#
$
%&"
'(
(
" #
)*
+" , $ --
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 51
ÓHEFT hugmyndaflug og gálga-
húmor eru vörumerki leikstjórans
Tims Burtons, nýja myndin hans,
Sá stóri (Big Fish), engin undan-
tekning. Hins vegar er gamanið
ekki jafn kaldhæðið og oftast áður
og myndin geðugri og manneskju-
legri en hans fyrri verk. Kjarni
hennar er spurningin hvort skálda-
leyfi sé ekki réttlætanlegt til að
gera „sannleikann“ skemmtilegri og
tilkomumeiri.
Sannleikurinn er sagna bestur
segir máltækið en það er nú svo að
þegar fram í sækir segja engir tveir
nákvæmlega eins frá sama atburð-
inum – og standa fast á sínu.
Sá stóri er byggð á skáldsögu
Daniels Wallace um Edward Bloom,
óforbetranlegan lygalaup í Ala-
bama, sem gekk fram af syni sínum
á uppvaxtarárunum með margítrek-
uðum sögum af lífshlaupi, sem eins
og segir í auglýsingunni er stærra
en lífið sjálft. Eða er karlinn að
segja satt? Það skiptir ekki mestu
máli, heldur að Burton hefur fengið
ákjósanlegt efni til að láta hug-
myndaflugið fara á rás og skapar
bráðskemmtilega og frumlega æv-
intýrasögu í anda Munchausen.
Will (Billy Crudup), einkasonur
Edwards Blooms (leikinn af Albert
Finney á eldri árum, Ewan
McGregor á þeim yngri), hefur
fengið sig fullsaddan á þeim fárán-
lega lygaþvættingi sem faðir hans
segir fortíð sína. Þegar hann var
ungur og sprækur var hann sölu-
maður sem flæktist vítt og breitt á
endalausum ferðalögum um Suður-
ríkin þar sem hann dvaldi á stöðum
sem Will telur helberan uppspuna.
Enda koma við sögu þeirra m.a.
forspáar nornir, risar og furðudýr.
Inn í atburðarásina fléttast háróm-
antísk lýsing á því er faðir hans
verður ástfanginn við fyrstu sýn af
Söndru móður hans (Jessica Lang
og Alison Lohman, sem leikur
Söndru á yngri árum). Ekki tekur
betra við er Edward ungi leggur
heiminn að fótum sér og kemur til
baka með jafnvel enn hrikalegri
ólíkindasögur og tvær austurlensk-
ar systur og söngfugla sem deila
fótleggjunum.
Í myndarbyrjun er Will búsettur í
París en fellst að beiðni móður sinn-
ar á að koma og heimsækja föður
sinn því gamli sölumaðurinn liggur
banaleguna. Will gerir lokatilraun
til að komast til botns í sannleik-
anum og karlinn rekur enn og aftur
sögu sína með meiri tilþrifum og
sannfæringarkrafti en nokkru sinni.
Burton er sjálfur ótrúlegur af-
burðasögumaður (að undanskilinni
Apaplánetunni) og gengur vel að fá
okkur til að trúa litríku lífshlaupi
sölumannsins, a.m.k. fleyta áhorf-
endum ljúft með straumnum. Flest-
ar eru minningar karlsins svo lifandi
og heillandi, fullar af forvitnilegum
og mystískum persónum að myndin
er ósvikin rússíbanaferð inn í æv-
intýraveröld sem aðeins getur skap-
ast í kvikmyndum einstakra kvik-
myndagerðarmanna á borð við
Burton og Zemeckis. Ef hægt er að
bera Þann stóra saman við ein-
hverja eina nýlega kvikmynd þá er
það hið ámóta fjarstæðukennda en
hrífandi líf Forrests Gumps. Áhorf-
andinn á að gefa sig allan á vald
fantasíunni og bruna með inn á
þessar dásamlegu lendur þar sem
Finney er leiðsögumaður ásamt
McGregor. Finney vinnur enn einn
leiksigurinn og kemur fæstum á
óvart, hins vegar hefur sjaldan gust-
að jafn mikið af McGregor sem í
hlutverki Eds, sölu- og ævintýra-
mannsins unga. Hann minnir óneit-
anlega á landa sinn Sean Connery,
þegar hann var loks búinn að brjót-
ast undan oki 007, tók dýfur og
spratt síðan fullskapaður fram á
sjónarsviðið sem einn af konungum
hvíta tjaldsins. Þá er ánægjulegt að
sjá stórleikkonuna Jessicu Lange í
hlutverki við hennar hæfi og virð-
ingu. Hér fá fleiri gæðaleikarar
tækifæri sem þeir nýta gjörsamlega
óaðfinnanlega; Helena Bonham
Carter, Steve Buscemi, Danny De
Vito og Billy Crudrup, sem öll verða
mögnuð verkfæri í höndum galdra-
mannsins Burtons. Að venju hefur
hann fengið til liðs við sig afburða-
listamenn í öllum greinum eins og
tónskáldið Danny Elfman, kvik-
myndatökustjórann Philippe Rouss-
elot og ekki síst hinn lipra penna
John August. Í sameiningu færa
þeir okkur á vit ósvikins ævintýra-
heims þar sem sannleikur, ýkjur og
lygi eru alsæl í einni sæng.
Ewan McGregor, einn af betri leik-
urum sinnar kynslóðar, fer með að-
alhlutverkið í Þeim stóra.
Sölumaður deyr
KVIKMYNDIR
Regnboginn, Smárabíó,
Borgarbíó Akureyri.
Leikstjórn: Tim Burton. Handrit: John
August, byggt á sögu Daniels Wallace.
Kvikmyndatökustjóri: Philippe Rousse-
lot. Tónlist: Danny Elfman. Aðalleik-
endur: Ewan McGregor, Albert Finney,
Billy Crudup, Jessica Lange, Helena Bon-
ham Carter, Alison Lohman, Robert Guil-
laume, Steve Buscemi, Danny DeVito,
Marion Cotillard. 110 mínútur. Columbia
Pictures. Bandaríkin 2003.
SÁ STÓRI / BIG FISH ½
Sæbjörn Valdimarsson
MÍR -Vatnsstíg 10a
Opið Bíó á veg-
um Bíó Reykja-
vík. Meðal mynda
sem sýndar verða
er frumsýning á
nýrri mynd eftir
Biogen sem ber
titilinn Svart/
Hvítt-Eissaru.
Húsið opnar kl.
19.30 og er frítt
inn. Nánari upp-
lýsingar á www.bioreykjavik.com
Bæjarbíó, Hafnarfirði
Kvikmyndasafn Íslands sýnir í
vikunni hinn sígilda vestra El Dor-
ado með John Wayne og Robert
Mitchum í aðalhlutverki. Sýnt í
kvöld kl. 20.00 og á laugardaginn kl.
16.00.
Í DAG
Biogen.
SMS
tónar og tákn
www.laugarasbio.is
Yfir 90.000 gestir
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14.
Svakalegasti
spennutryllir ársins
frá leikstjóra Face/Off
og Mission Impossible 2.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna11
Sýnd kl. 5 og 9.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta leikkona í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
2
HJ Mbl.
21
GRAMM
ÓHT Rás2
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta leikkona í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
21
GRAMM
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
2
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
HJ Mbl.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Tilnefning til
óskarsverðlauna1
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA
M.A. SEM BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.com
„Glæsilegt ævintýri.
Hreinn unaður frá
upphafi til enda.“
Fréttablaðið
loftkastalinn@simnet.is
Lau. 7. feb. kl. 20 örfá sæti laus
Fös. 13. feb. kl. 20 nokkur sæti
Lau. 21. feb. kl. 20 nokkur sæti
Fös. 27. feb. kl. 20 laus sæti
„Frábært-drepfyndin-átakanlegt“
Opið virka daga kl. 13-18