Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 03.02.2004, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðisflokks samþykkti í gær að veita Einari Oddi Kristjánssyni, þing- manni flokksins, heimild til að leggja fram frumvarp sem kemur í veg fyrir að KB banki eignist SPRON. Þá samþykkti þingflokkur Samfylkingar að styðja frumvarpið en Fram- sóknarflokkur fékk ekki frumvarpið í hendur fyrr en að loknum þingflokksfundum Samfylk- ingar og Sjálfstæðisflokks og hefur því ekki tek- ið afstöðu til þess. Frumvarpið er unnið að frumkvæði Einars Odds og Lúðvíks Bergvinssonar, þingmanns Samfylkingar. Tilveruréttur sparisjóða tryggður Að sögn Einars Odds Kristjánssonar er til- gangur frumvarpsins að tryggja tilverurétt sparisjóðanna í landinu. Með samþykkt laga um sparisjóði í desember 2002 hafi þingmenn talið sig hafa tryggt tilverurétt sparisjóðanna en síð- ar hafi komið í ljós að svo var ekki. Eru norsk lög um sparisjóði höfð til hliðsjónar við þessa frumvarpsgerð. Að sögn Einars Odds munu gilda um það ákveðnar reglur hvaða viðskiptamönnum skuli boðið að gerast stofnfjáreigendur. Verði SPRON breytt í hlutafélag verður, samkvæmt frumvarpinu, til sjálfseignarstofnun sem mun fara með hlutafjáreign sem sjö manna stjórn ræður. Stjórnin verður skipuð þremur fulltrú- um frá sveitarfélögum, tveimur frá viðskipta- ráðherra, þar af er annar þeirra tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einum frá starfsmönnum og einum frá öðrum stofnfjáreig- endum. Stjórnin mun fara með forræði yfir hlutafjáreign sinni, samkvæmt frumvarpinu, og verða hlutabréf ekki seld næstu þrjú árin nema allir í stjórn samþykki. Frumvarpið verður rætt á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í dag. Sagðist Einar Oddur í samtali við Morgunblaðið trúa því og treysta að það yrði stutt af þingmönnum úr öll- um flokkum. Rætt á ríkisstjórnarfundi í dag Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra vildi ekki tjá sig um frumvarpið þegar eftir því var leitað að öðru leyti en að hún myndi taka málið upp á ríkisstjórnarfundi í dag. Guðmund- ur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, vildi ekki heldur tjá sig um það að svo stöddu. Samþykkt að leggja fram frumvarp sem útilokar að KB banki eignist SPRON Hlutabréf ekki seld nema með einróma samþykki ANATÓLÍ Karpov sagðist í samtali við Morgunblaðið gera sér vonir um góðan ár- angur á skákmótinu Reykjavík Rapid 2004 í mars í vor, en hann mun keppa á mótinu ásamt Garrí Kasparov. Karpov tekur þó fram að fyrirkomulag móts- ins sé algerlega nýtt og það skapi skemmtilega óvissu. „Ég var heims- meistari og Evrópu- meistari í atskák. Það er að vísu nokkuð langt um liðið síðan þetta var en mér gekk mjög vel á atskákmótum í fyrra,“ segir Karpov. Spurður um þátttöku Kasparovs í Reykjavík segist Karpov ekki hafa áhyggj- ur af því að mæta honum en tekur fram að vegna fyrirkomulags mótsins sé ekki endi- lega víst að þeir tefli hvor gegn öðrum. Þeir Kasparov hafi raunar teflt stutt atskákeinvígi í New York fyrir rúmu ári og þá hafi hann unnið Kasparov. Vann síðasta atskákeinvígið við Kasparov HJARTA var grætt í Sigurð Þór- arin Sigurðsson frá Hvammi í Stöðv- arfirði á Ríkisspítalanum í Kaup- mannahöfn um helgina. Fór hann utan á laugardag ásamt foreldrum sínum og yngri bróður eftir að til- kynning barst frá spítalanum um að hjartagjafi hefði fundist. Lauk að- gerðinni klukkan sex að morgni sunnudags, að því er fram kemur á fréttavef sveitarfélagsins Austur- byggðar, sem greindi frá aðgerðinni. Þar segir að aðgerðin hafi gengið vel og læknar telji útlitið vera gott. Sigurður Þórarinn er 21 árs gam- all og hefur um nokkurt skeið beðið eftir nýju hjarta eftir að hafa fengið sýkingu í hjartavöðvann fyrir þrem- mjög máttfarinn, lítið getað borðað og hreyft sig. Frá því fyrir jól varð Sigurður Þórarinn að bíða í Reykja- vík eftir boðun að utan þegar hent- ugur hjartagjafi fyndist og var á þeim tíma í stöðugu eftirliti á Land- spítalanum. „Við erum fegin að þetta skuli vera afstaðið og vonandi gengur þetta bara áfram vel hjá honum,“ sagði Eva María og vildi koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem hefðu stutt fjöl- skylduna í veikindum Sigurðar Þór- arins. Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans, segir það ánægjulegt að tekist hafi að finna hjarta fyrir Sigurð Þórarin, en Gestur hefur annast hann hér heima frá því að veikindanna varð vart fyrir þremur árum. Sjúkdómurinn hafi verið orðinn það mikill að hjartaígræðsla var eina leiðin til bata. Vonast Gestur til þess að eft- irmeðferðin gangi vel hér eftir, hún sé stór og flókin en full ástæða sé til bjartsýni um bata Sigurðar Þór- arins. Gestur segir það ekki algengt að fólk fái sýkingu í hjartavöðva en þess megi geta að hinn sjúkling- urinn, sem bíður hjartaígræðslu, hafi á sínum tíma veikst af sömu völdum. „Ef vírus sækir á hjarta- vöðvana þá eru ekki mörg ráð til bjargar,“ segir Gestur. ur árum. Hann er fyrsti íslenski hjartaþeginn í mörg ár en ann- ar ungur Íslend- ingur, Helgi Einar Harðar- son, er á biðlista hjá Trygginga- stofnun eftir hjartaígræðslu á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu í Gautaborg. Systir Sigurðar Þórarins, Eva María, sagði við Morgunblaðið í gær að aðgerðin hefði heppnast vel. Ekki hefði í raun mátt tæpara standa með bróður sinn, hann hefði verið orðinn Hjarta grætt í 21 árs Stöðfirðing í Kaupmannahöfn Aðgerðin gekk vel en ekki mátti tæpara standa Sigurður Þórarinn Sigurðsson SIGURÐUR Þórarinn Sigurðsson er tíundi íslenski hjartaþeginn frá árinu 1988 þegar Halldór Halldórsson var fyrstur Íslend- inga til að fá grætt í sig nýtt hjarta á Brompton-sjúkrahúsinu í London. Þrír sjúklingar hafa látist eftir slíka aðgerð, en þær hafa einnig farið fram á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu í Gautaborg, auk Brompton fyrstu árin og nú í Kaupmannahöfn. Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjarta- deild LSH, segir það hafa verið hugleitt en ekki talið raunhæft að framkvæma hjartaígræðslur hér á landi. Þó að slíkar aðgerðir geti tæknilega farið fram á Landspítalanum séu tilfellin ekki það mörg og líffæragjafar svo fáir að ekki hafi þótt ráðlegt að flytja aðgerðirnar heim. Tíundi íslenski hjartaþeginn ALLAN ársins hring er líflegt um að litast í fjörum landsins þó að annars staðar virðist líf- ríkið leggjast í dvala yfir köldustu mánuðina. Fuglar þyrpast í fjörurnar í leit að æti og sum- ir taka sér góðan sundsprett ef vel viðrar. En þegar betur er að gáð er lífið í fjörunni alls ekki bundið við gróður og fugla. Undir stein- um og í gróðrinum sjálfum iðar allt af lífi. Þar er að finna ótal smádýr sem fuglarnir eru sólgnir í. Þegar allir eru búnir að éta sig sadda er tilvalið að ræða málin, eins og þessir skarfar hafa kannski verið að gera í fjörunni við Hafnarfjörð í gær. Ekki virðast þeir þó all- ir vera að hlusta á leiðtogann því einn sýnist láta hugann reika og starir dreyminn á haf út. Morgunblaðið/Ómar Skarfar skeggræða í fjörunni HELGI Einar Harðarson, rúmlega þrítugur Grindvíkingur, bíður þess öðru sinni að fá grætt í sig nýtt hjarta en í júní árið 1989 var hann annar Íslendingur- inn á eftir Halldóri Hall- dórssyni sem fór í hjarta- ígræðslu á Brompton- sjúkrahúsinu í London. Að auki bíður Helgi þess að fara í nýrnaaðgerð um leið og nýtt hjarta fæst. Hefur hann verið á biðlista eftir þessum að- gerðum á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu í Gauta- borg síðan í maí á síðasta ári. „Ég hleyp ekki maraþon en er bílfær. Veikindin hafa ágerst, ég hef verið lengi frá vinnu og þurft að liggja nokkrum sinnum inni á sjúkrahúsi. Það er dagamunur á mér en ég ber mig vel og er fullur bjartsýni á að þetta fari allt vel,“ sagði Helgi Einar í gær. Hann hafði þá fengið tíðindin frá Kaup- mannahöfn um Sigurð Þórarin og sam- gladdist honum og hans fjölskyldu. Skömmu eftir að Helgi fagnaði tíu ára „afmæli“ nýja hjartans um mitt ár 1999 fékk hann blóðtappa við heila og frá þeim tíma hefur heilsunni hrakað. Að auki kom fljótlega eftir aðgerðina árið 1989 upp leki í hjartaloku sem hefur gert það að verkum að hjartað hefur stækkað. Helgi sagði að nú væri það orðið kraftlaust og úthald hans því lítið. Eina úrræðið væri að fá nýtt hjarta. Bíður öðru sinni eftir nýju hjarta Helgi Einar Harðarson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.