Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 13
hann var byrjaður bættist einn og einn
úr hljómsveitinni í hópinn og síðan stóðu
þarna allir strákarnir í Svörtum fötum
ásamt Margréti Eir, Regínu Ósk og fleir-
um og tóku undir með honum ... og ég
bara táraðist!
Það var líka gaman að fylgjast með
krökkunum, Baldur sem er 1½ árs tók
athöfnina ekki mjög alvarlega og veltist
um á tröppunum við altarið, Margrét,
stóra systir hans sem er 3 ára, var pen
og prúð með rauðan rósavönd. Þetta var
mjög falleg og jafnframt skemmtileg at-
höfn sem við gleymum aldrei.“
Var þetta stórt brúðkaup?
„Það má kannski segja það, en við
buðum samt aðeins nánustu ættingjum
og vinum þar sem við komum bæði frá
stórum fjölskydum, endaði fjöldinn í 200
manns.
Við vildum hafa matinn heimilislegan
og góðan og buðum upp á humarsúpu í
forrétt og svínakjöt með tilheyrandi í að-
alrétt. Veitingarnar komu frá Veislunni á
Seltjarnarnesi og veislan var svo haldin í
félagsheimili Seltjarnarness. Brúðartert-
una gerði Hafliði hjá Mosfellsbakaríi og
vínið var frá Sölku. Tertan var skreytt
með rauðum rósum og skreytingarnar í
salnum voru rauðar og hvítar. Við sett-
um upp borðin og skreyttum kvöldið áð-
ur, fjölskyldur okkar hjálpuðu okkur með
það.“
Dagurinn hefur staðið undir vænting-
um?
„Já, svo sannarlega, hann var stórkost-
legur í alla staði og allt heppnaðist vel
þrátt fyrir stuttan fyrirvara. Ég held að
margir eyði allt of miklum tíma í að velta
hlutunum fyrir sér, það borgar sig ekki
alltaf. Ég er vön að vinna undir pressu
og það voru nú einhverjar konur sem
tóku andköf þegar ég hljóp út í kuldann
með greiðsluna til að skreyta bílinn sjálf
rétt áður en við lögðum af stað, en allt
fór þetta eins og best var á kosið. Brúð-
kaupsnóttinni eyddum við síðan á Hótel
Sögu á meðan tengdamamma og
tengdapabbi voru heima hjá börnunum.“
Margrét með rauðan
rósavönd eins og mamma.
Gréta ljósmyndari tók myndir af fjölskyldunni.
Orðin hjón og veislan hafin.
l í t t u á w w w. t k . i s
góð tilfinning
Brúðhjónahjartað
frá Swarovski
94 demantsslípaðir
fletir.
stærð 4,5 x 3,5 cm
Með ártalinu 2004
Einstakur minjagripur.
Flugmiði fyrir 2 til LONDON
Al l i r sem heimsækja okkur á
Brúðkaupssýningunni Já lenda í
sængurfata lukkupott i
K r i n g l u n n i S : 5 6 8 9 9 5 5 - F a x a f e n i S : 5 6 8 4 0 2 0
Öll brúðhjón sem skrá sína brúðhjónalista hjá okkur fá fallega gjöf,
einnig verður dregið 8 sinnum úr öllum brúðhjónalistumTékk-Kristals
sem borist hafa á árinu 2004 samtals 8 vinningar:Vinningarnir eru 12
manna hnífaparatöskur vönduð hnífapör 18/10 stál ásamt fylgihlutum.
Fallegir ítalskir speglar. Síðast en ekki síst verður dreginn út
aðalvinningur ársins sem er flugmiði fyrir tvo til LONDON.