Morgunblaðið - 04.03.2004, Síða 41
Byrjið á að brúna kjötið við frekar mikinn hita á pönnu. Kryddið vel með sjávarsalti og svörtum, grófmöluðum
pipar og pakkið kjötinu inn í álfilmu. Setjið kjötið í ísskáp eftir að mesti hitinn hefur rokið úr því. Kjötið geymist í
2 daga í kæli.
Sjóðið kartöflurnar og skerið þær í sneiðar. Leggið salatblöð á fat.
Skerið kjötið í sneiðar og raðið því yfir ásamt kartöflusneiðum, tómatsneiðum og lauksneiðum. Dreifið rifinni
piparrót og kapers yfir og berið salatið fram með sinnepssósunni.
Matarmikið salat með hunangssinnepssósu
Fyrir 10
800 g nautalund eða filé
400 g klettasalat eða spínatblöð
1 kg kartöflur
12-15 tómatar, skornir í sneiðar
2 rauðlaukar, skornir í sneiðar
4-5 msk fersk, rifin piparrót
4-5 msk kapers
Sjóðið vatnið (2 bolla) og setjið kornmjölið smátt og
smátt út í ásamt saltinu og kalda vatninu. Hrærið var-
lega og lækkið hitann þegar blandan nær suðumarki.
Látið krauma við frekar lágan hita í 10-15 mínútur og
hrærið stöðugt í á meðan. Bætið ostinum út í og
hrærið á meðan hann bráðnar. Hellið polentumaukinu
í ferkantað form og látið mesta hitann rjúka úr því.
Kælið síðan í 30 mínútur. Takið formið úr kæli og
bakið polentuna í 20 mínútur við 200°C eða þar til
yfirborðið er ljósbrúnt að lit.
Útbúið sósuna. Hitið olíuna á pönnu og látið sveppina,
laukinn og hvítlaukinn krauma í henni í 10 mínútur.
Setjið niðursoðnu tómatana í matvinnsluvél og hrærið
þar til blandan verður að sléttu mauki. Bætið sykri,
sólþurrkuðum tómötum, basil og salti út í og bragð-
bætið með svörtum pipar. Bætið sveppa/laukblönd-
unni út í og hitið sósuna vel. Skerið polentuna í u.þ.b.
20 ferkantaða bita og leggið smá sósu yfir hvern bita.
Skreytið með basillaufum.
Polenta með tómatmauki
Fyrir 10
2 bollar vatn
¾ bolli maísmjöl
½ bolli kalt vatn
½ tsk salt
60 g eða ½ bolli ferskur,
rifinn Parmigiano ostur
1 msk olía
2 bollar sveppir, skornir í sneiðar
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksrif, pressað
1 ds niðursoðnir tómatar
1 tsk sykur
4-5 sólþurrkaðir tómatar
skornir í bita
3 msk söxuð, fersk basillauf
½ tsk sjávarsalt
svartur pipar eftir smekk
Hunangssinnepssósa
7 msk fljótandi hunang
4 msk Dijon sinnep
2 msk sinnepsduft
6 msk hvítvínsedik
3-4 dl grænmetisolía
Þeytið allt vel saman og
látið standa í minnst 30-
40 mínútur fyrir fram-
reiðslu. Þessa sósu er til-
valið að gera 1-2 dögum
fyrir notkun og geyma í
kæli.
Polentan og sósan geymast í 3 daga í kæli.
Geymslutími: Kjötið má steikja með 1-2 sólarhringa fyrirvara
og geyma í álfilmu í kæli. Salatið er best að setja saman sam-
dægurs. Sósan geymist í 2-3 daga í kæli.
Uppskriftir og matreiðsla