Vísir - 04.04.1981, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. aprll, 1981
sérfræðingur i skáldunum Rim-
baud og Lautreamont. I stjórn-
málum segist hann vera vinstra
megin við miðju.
Fyrir fjórtán árum siðan fór
hann hins vegar að dunda við það
i fristundum að rannsaka söguna
um fjöldamorð nasista. Lög-
fræðingur hans, Eric Delcroix,
segir: „Faurisson er mjög
nákvæmur fræðimaður sem
krefst þess að fullkomnar sann-
anir liggi fyrir um gasklefana.
Hann fann engar sannanir. Ekket
nema likur.’’
Faurisson birti niðurstöður
sinar i grein sem birtist i franska
blaðinu Le Monde fyrir tveimur
árum. Venjulega hefðu staðhæf-
ingar hans varla vakið mikla at-
hygli en svo fór nú samt, þær birt-
ust nefninlega aöeins tæpum
mánuði eftir að vikuritið
L’Express birti viðtal við Louis
Darquier de Pellepoix, sem hafði
verið ráðherra gyðingamálefna i
Vichystjórninni. Hann var
ábyrgur • fyrir að flytja 75 þúsund
gyðinga úr landi og til Þýska-
lands þar sem þeir voru drepnir.
„Drápu ekkert nema
lýsnar...”
Darquier de Pellepoix sem nú
býr i útlegð á Spáni virtist ekki
iðrast neins. Hann kenndi
gyðingum um siðari heimsstyrj-
öldina. Er hann var spurður um
gasklefana I Auschwitz svaraði
hann: „Gyðingarnir eru bara að
reyna að láta bera á sér. Þjóð-
verjar drápu ekkert með gasi
nema lýsnar utan á þeim.”
Ahrifin af viðtalinu og siðan
grein Faurissons urðu óskapleg.
Faurisson var rekinn úr stöðu
sinni i Lyons og eintök á bókinni
sem hann skrifaði voru fjarlægð
úr bókabúðum i Paris. Einnig
var ráðist á Faurisson á götum
úti. Frönsku Alþjóðasamtökin
gegn kynþáttastefnu og
anti-semitiska tilkynntu að þau
myndu stefna Faurisson fyrir að
„falsa söguna” sem heyrir undir
grein 1382 i frönskum lögum.
Fimmtán lögfræðingar hafa
veriö tvö ár að undirbúa þessi
réttarhöld. Þeir hafa yfirheyrt
mörg hundruð manns sem
komust lifs af úr útrýmingarbúð-
unum og hafa farið nákvæmlega
yfir allar skýrslur um málið bæði
i Póílandi og ísrael. Til að sýna
fram á að fullyrðingin Faurisson
um að Þjóðverjar hefðu ekki not-
að gás — hann segir það hefði
drepið fangaverðina lika — hafa
þeir grafið upp skyrslur iækna i
Auschwitz og viðar þar sem m.a.
er lýst ytri áhrifum þess á
mannslikama.
Nú upp á siðkastið hafa tveir
aðilar til viðbótar höfðað mál
gegn Faurisson fyrir meinyrði og
verði hann dæmdur sekur siðar á
þessu ári á hann yfir höfði sér
langa fangavist. Siðastliðið
haust gaf hann út varnarrit sitt,
275blaðsiðna bók sem aðallega er
um vörn hans gegn frægum og
virtum frönskum sagnfræðingi
Leon Poliakov.
Koma verður i veg fyrir
að þetta endurtaki sig
Poliakov hefur sjálfur gefið út
bæði fullyrðingar Gersteins, sem
hann endurtók siðar, eftir að hafa
rætt við von Otter i hraðlestinni,
og svo dagbækur SS læknisins i
Auschwitz, Johann Paul Kremer
sem varð vitni að gyðingadrápun-
um. Faurisson hélt þvi fram að
Polikov hefði rangt eftir bæði
Gerstein og Kremer og kallaði
hann „svikahrapp”.
Poliakov tilkynnti þegar i stað
aðhann myndi höfða mál. Nú ný-
lega var málið dómtekið og þá
drógu lögfræðingar hans tromp
sitt fram úr erminni, það er
að segja Goran von Otter sjálfan
sem allir héldu að væri löngu lát-
Faurisson málið heldur áfram
að vekja gifurlega athygli i
Frakklandi og telja margir að
það snúist ekki sist um rétt
manns til að tjá skoðanir sinar.
Eric Delacroix, lögfræðingur
Faurissons, segir: „Þetta eru
réttarhöldin yfir Galileo enn einu
sinni. Þegar Galileo sagði að
heimurinn væri hnöttóttur hafði
engin áhuga og skoðanir hans
voru hugmyndafræðilega óþol-
andi fyrir valdamennina. Hann
var dæmdur. Það er sama með
Faurisson.”
Einn af ^ækjendunum er á allt
öðru máli Bernard Jounann-
eau segir: „Að minu áliti er
Faurisson einfaldlega
snarvitlaus. Það er Le Monde
sem hefur gert skoðanir hans
umtalaðar. Lygar hans eru nú
notaðar af gyðingahöturum og
það er bráðnauösynlegt að
leiðrétta delluna úr honum áður
enhún veldur enn meiri skaða en
oröið er. Heimurinn verður að
vita nákvæmlega hvað nasistar
gerðu við gyðinga. Það er eina
leiðin til að koma i veg fyrir að
það endurtaki sig”.
I
J
mallorka^
ATLANTIK býður viku, tveggja vikna og þriggja vikna ferðir til
Mallorka og er fyrsta ferð um páska.
Boðið er uppá gistingu í nýju og glcesilegu íbúðarhóteli, ROYAL
PLAYA DE PALMA, sem var tekið í notkun í maí 1980.
Royal Playa stendur við hina hreinu ogfallegu strönd, Playa de Palma,
um 8 kílómetra austan við höfuðborgina Palma. Tvímœlalaust er
Royal Playa eitt glcesilegasta og best búna íbúðarhótel, sem íslendingum
stendur til boða í sumar.
FERÐAKYNNING á morgun kl. 14-16
á skrifstofu okkar aö Hallveigarstfg 1.
Sýnt verður myndsegulband (Video) af ROYAL PLAYA DE PALMA-fbúðarhótel-
inu og veittar upplýsingar um feröir ATLANTIK sumarið 1981.
Sjón er sögu ríkari Verið velkomin!
BROTTFARAR- Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept.
DAGAR 15 2.26. 5.16.23.7.14.28. 4.18.25. 8.15.29.
ALMENN FERÐAÞJÓNUSTA
VÖRUSÝNINGAR -
SÉRHÓPAR -
EINSTAKLINGSFERÐIR.
mtHVTIK
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinú Hallveigprstíg 1. Simar 28388 og 28580.