Vísir - 04.04.1981, Blaðsíða 14
14
VtSÉR
Laugardagur
4. april, 1981
Með golfpokann á bakinu
til Skotlands og írlands
íslenskar ferdaskrifstofur bjóda upp á þrjár sérstakar golfferdir i vor
Ný þjónusta:
Flugfar — bilfar
RáBamenn þjóðarinnar hafa
verið einstaklega duglegir að
skattleggja þá sem leyfa sér að
eiga bil. Sérstaklega eru þeir
hrifnir af þeirri aðferð að skatt-
leggja bensinið með þeim
árangri, að islenskir fjármála-
ráðherrar eru i raun miklu gir-
ugri en oliufurstar Austurlanda.
Bensinokrið hefur án efa
dregið úr áhuga manna á að
ferðast innanlands á eigin bil-
um. Þetta hafa forráðamenn
Flugleiöa orðið varir við og i bi-
gerð er að farþegar félagsins
eigi kost á bilaleigubilum sem
viðast. Má þá fljúga milli staða
og hvarvetna biður bilaleigubill
sem nota má til ferða um ná-
grennið.
Þá standa Flugleiðir i
samningum við BSl um farseðla
sem gilda með flugi aðra leiðina
milli staða en bil hina. Mun
væntanlega verða gengið frá
þessum málum á næstunni.
— SG
Air Florida skákar Laker:
Farþegar sóttir
f Rolls Royce
falið i þvi er flug, gisting, hálft
fæöi (morgunverður og kvöld-
verður) í ferðinni um Irland svo
og allar rútuferðir til og frá
golfvöllum og i ferðalaginu um
landið. t.lok ferðarinnar verður
svo haldið golfmót fyrir alla
þátttakendurna. Siðustu forvöð
að tilkynna þátttöku i þessa ferð
eru mánudaginn 6. april.
Á ókunnar slóðir i Skot-
landi
Að undanförnu hafa þrjár is-
lenskar ferðaskrifstofur auglýst
sérstakar utanlandsferðir fyrir
golfleikara og „golfekkjur” eins
og þær konur eru kallaðar sem
eiga áhugasama eiginmenn i
röðum kylfinga. Tvær af þess-
um ferðum eru fyrirhugaðar i
mai, og eru báðar til Skotlands,
en sú þriðja er til trlands og
verður i siðari hluta april.
Golfferðir til útlanda, eru likt
og skiðaferðir til Austurrikis og
annarra landa, að njóta aukinna
vinsælda, enda leggja ferða-
skrifstofurnar sig orðiö fram
um að hafa slikar ferðir á boö-
stólum. Ér það vel þvi kylfing-
ar eru ferðaglaðir mjög.
Feröaskrifstofan Otsýn býöur
svo upp á 14 daga ferð til Skot-
lands þann 8. mai. Gist verður á
Pond hótelinu rétt við Glasgow
en þar i nágrenni eru margir
góðir golfvellir eins og t.d. Hil-
ton Park, Windyhill, Douglas
Park og fleiri. Þarna hafa is-
lenskir kylfingar ekki verið áð-
ur i hópferð, en staðurinn er
löngu þekktur fyrir góða að-
stöðu til allskonar útiveru og
iþróttaiðkunar. Heitir svæðið
Bearsden Milngave.
Veröið i þessa ferð er frá 6.100
krónum á mann. Innifalið i þvi
er flug, gisting og hálft fæði.
Einnig rútuferðir til og frá flug-
velli og til og frá golfvöllum.
Til North Bervick i 14.
sinn
Þriöja og siðasta ferðin I vor
er hin árlega ferð til North Ber-
wick i Skotlandi, en þangað hafa
islenskir kylfingar farið ár
hvert undanfarin 14 ár. Þaö er
ferðaskrifstofan Úrval sem
stendur fyrir þeirri ferö, sem er
10 daga ferð. Brottför er þann
22. mai og að vanda veröur
dvalið á Marin hótelinu i North
Berwick, sem er skammt frá
Edinborg.
A þvi svæði eru fjölmargir
golfvellir, enda það oft verið
kallað „The Holy Land of Golf”.
Þar má m.a. finna elsta golf-
klúbb i heimi „The Honourable
Company of Edinburgh Golf-
ers” — sem stofnaður var 1744,
Gullane-vellirnir sem eru þrir,
West Links og East Links sem
eru rétt við hótelið og marga
fleiri.
Verðið i þessa ferð er kr. 5.950
og þar innifalið flug, gisting,
hálft fæði, allar ferðir með rút-
um.
Eins og af þessu sést er úr
ýmsu að velja fyrir islenska
kylfinga i vor, og án efa verða
þeir margir sem I ferðirnar
fara. Almennt er búist við því að
islenskir golfvellir verði nú
seinir að taka við sér eftir harð-
an og langan vetur og þá er ekki
amalegt að koma sér i góða ferð
og á góða velli i útlöndum...
— klp —
en Freddy Laker fái þar skæðan
keppinaut. Sérstaklega er það
fyrsta farrými Air Florida sem
skýtur Laker ref fyrir rass. Air
Florida auglýsir það sem „Upp-
er Class” og farþegum á þvi
farrými býöst önnur og betri
þjónusta en almennt gerist.
Sem dæmi má nefna, að Air
Florida býöur fyrsta farrýmis-
farþegum sinum að verða sóttir
i Rolls Royce með einkabil-
stjóra, innan borgarmarka
Lundúna, og aka þeim á flug-
völlinn i Gatwick. Þegar far-
þegar koma til baka frá Miami
er þeim ekið heim á sama hátt.
Fyrir þessa þjónustu, dýr-
indis mat og drykk á leiöinni og
auðvitað flugfariö sjálft, greiða
menn 320 sterlingspund. Þeir
sem kjósa fábreyttari feröa-
máta geta feröast á almennu
farrými fyrir 99 pund og er mál-
tið innifalin.
— SG
A síðustu 3-4 árum hafa um
400 nýir kylfingar bæst i hópinn
sem fyrir var i golfi hér á landi.
Innan tveggja til þriggja ára
hefur þetta fólk náö góðum tök-
um á iþróttinni, og þá nægir þvi
ekki lengur að leika golf á ís-
landi. Það/ ásamt hinum, sem
lengur hafa verið I leiknum, vill
þá komast til útlanda og sjá þar
nýja staði og leika nýja velli.
Skoðunarferð og golf-
ferð i sama pakka
Fyrsta golfferðin sem auglýst
er I vor, er 14 daga ferð til ír-
lands á vegum Samvinnuferða
— Landsýnar. Verður lagt i
hana á fóstudaginn langa og
komiðheim 1. mai. Þarna koma
inn I margir almennir fridagar
og missa menn þvi ekki úr nema
7 vinnudaga.
Það er þekkt golf-ferðaskrif-
stofa I Dublin sem tekur við
hópnum þegar út kemur og
skipuleggur skoðunarferðir og
golfferðir á velli i Dublin á
meðan dvalið er þar. Siðan er
skipulögð 8 daga ferö um Suður-
Irland og þá m.a. leiknir frægir
vellir eins og Waterville,
Killarney og Lahinch svo ein-
hverjir séu nefndir.
Verðið er 6.100 krónur og inni-
Ókeypis bílaleigubill
fyrir Bretlandsfara
Þeir eru viða fallegir golfvellirnir á Irlandi og Skotlandi, sem feröaskrifstofurnar bjóða islenskum
kylfingum upp á i vor...
Ekkert lát er á grimmilegri
samkeppni flugfélaganna og á
flugleiðinni yfir Norður-
Atlantshafi harönar hún stöð-
ugt. öllum ráðum er beitt til að
ná I fleiri farþega og veröur
fróðlegt að fylgjast með strlöi
Air Florida og Laker, svo dæmi
sé nefnt.
1 dag byrjar Air Florida, en
það hefur DC-10 þotu Flugleiöa
á leigu, ferðir milli London og
Miami og er ekki annað að sjá
Þeir sem vilja aka sjálfir um
Bretland eða meginlandið I
sumarleyfisferð eiga nú kost á
að aka nýjum bil fimm þúsund
kilómetra án þess að borga ann-
að en bensíniö sem blllinn eyðir.
Fyrir hverja 1600 kllómetra,
sem ekiö er umfram þessa
fimm þúsund, á að greiöa 170
krónur.
Þaö er Feröaskrifstofa Kjart-
ans Helgasonar og Ford umboð-
iðSveinn Egilsson, sem samein-
ast um að bjóða feröalöngum
þessi kjör. Farmiðar eru þá
keyptir hjá Kjartani og billinn
pantaður. Þegar komið er til
London biður nýr bill, Escort
eða Cortina og ekkert eftir
nema aka á staö. Ef menn vilja
frekar fá bilinn siöar um daginn
er það jafn auövelt.
Siðan má aka i hálfan mánuð
um Bretland eöa meginlandið
án þess að borga nokkuð annað
en bensin fyrstu fimm þúsund
kilómetrana. Trygging er inni-
falin og er ekki annað að sjá en
hér sé um kostaboð að ræða og
óvenjulega auglýsingaaðferð
hjá Ford.
— SG