Vísir


Vísir - 24.04.1981, Qupperneq 2

Vísir - 24.04.1981, Qupperneq 2
2 á Akureyri Hvert er stærsta vanda- mál Akureyringa? Þóröur Hinriksson, plpulagninga- meistari: — Égsé engin stórvandamál. Þaö er best aö vera bjartsýnn. Þaö væri þá helst atvinnuleysi I bygg- ingariönaöinum. Þórarinn Jóhannesson, smiöur: — Þaö veit ég ekki. Ég sé engin stórvandamál framundan í bili a.m.k. Inga ólafsdóttir, húsmóöir: — Ætli þaö sé ekki atvinnuleysiö, sem mér sýnist vera i öllum stétt- um meira og minna. Baldur Þórisson, Mývetningur: — Ég þekki þaö ekki vel, þar sem ég ,er ekki Akureyringur, en mér sýnist aö vandamálin gætu veriö fleiri en eitt. Glslunn Loftsdóttir, verkamaöur: — Malbikiö er helvlti slæmt. Föstudagur 24. april 198j „SKÚLINN BRANN ÁÐUR EN ÉG GAT BYRJAO” / - rætt við Vilhjálm Ragnarsson nýráðínn tramkvæmdastjðra Reykingavarnanetndar „Ég sá auglýsinguna þegar ég varaölesa dagblaö i flugvélinni á leiöinni heim frá Noregi nú i febrúar, — sótti um stöðuna og fékk hana”. Þetta sagði Vilhjálmur Ragn- arsson, nýráðinn framkvæmda- stjöri Reykingavarnanefndar, þegar blaöamaöur Visis spurði hann með hvaöa hætti það hefði borið að, að hann var ráðinn til starfans. Vilhjálmur er ekki nema 27 ára gamall — fæddur i Reykjavik 5/9 1953. Hann gekk i „Gaggó Aust” fór siðan i Menntaskólann i Hamrahlið, og loks i Kennarahá- skólann en þaðan lauk hann stúdentsprófi 1977 Veturinn eftir bjó hann svo á Akranesi og kenndi bæöi við grunnskólann og fjöl- brautaskólann. Vilhjálmur haföi um nokkurt' skeið starfaö aö kvikmyndagerð og haföi fengið inni i norskum skóla til þess að nema þau fræði. Meiningin var að hefja námið haustiö 1978, en þá tókst ekki bet- ur til en svo, að þessi ágæti skóli brann til grunna skömmu fyrir setninguna. „Af einhverri rælni hafði ég lát- ið innrita mig i annan skóla skammtfráþeim stað þar sem ég hafði leigt ibiíö, og þar las ég svo uppeldisfræði um veturinn”. Að þessu loknu kenndi Vil- hjálmur svo i hálft ár i Noregi, auk þess sem hann sá um skiða- og siglinganámsskeið á vegum Norsk astma- og allergiförbund. Vilhjálmur mun halda fleiri nám- skeið af þessu tagi, og þarf i þvi skyni að fara tvisvar á ári til Noregs. Helstu áhugamálin fyrir utan starfið sagöi Vilhjálmur vera Uti- vist af ýmsu tagi — skiðaganga, veiðimennska og hjólreiðar. Auk þess sagðist hann hafa verið áhugaljósmyndari um tiu ára skeið. Vilhjálmur var spurður um það helsta sem biði hans i nýju starfi. „Þetta er nu allt saman i nokk- uð föstum skorðum — eftirlit með þvi að lögum um reykingavarnir só framfylgt og þviumlikt. Stærsta verkefnið i sumar verður að ráðast i gerð kvikmyndar um skaðsemi reykinga sem verður svo væntanlega sýnd i skólum og fyrir starfshópa”, sagði Vi 1- hjálmur, og bætti þvi viö aö væntanlega yrði i framtiðinni lögð meiri áhersla á tengsl Reyk- ingavarnanefndar við fjölmiöla. Vilhjálmur er kvæntur Astriði Hannesdóttur hjUkrunarfræðingi. —P.M. Vilhjálmur Ragnarsson (Vfsism. GVA) Háll Dags-höll Eins og viðsögðum frá I Sandkorni fyrir skömmu, þá hafði blaðið Dagur á Akureyri á prjónunum húsakaup. Stóð til að kaupa húseignir Péturs & Valdimars og Þvotta- hússins Mjallar viö Skipagötu. Eru þessi hús sambyggö á einni hæð, auk þess sem þeim fylgir byggingarréttur fyrir 3 hæðum til viöbótar. Þarna var þvl möguleiki á „Dagshöii”. Gunnar nokkur Haraldsson, bila- sali meö meiru, kom I veg fyrir að slikar hugmyndir yrðu að veruleika. Hann yfirbauö Dag og keypti hús Péturs & Valdimars. Afram átti Dagur kost á húsi Mjailar, þvottahúsi KEA. En hálf-Dags-höll var ekki nóg. Var þá horf- ið til þess ráðs að kaupa húseignir smjörllkisgerö- arinnar Akra við Strand- götu, sem hafa staðið yfirgefnar siöan Akra flutti til Reykjavikur. Létu Dagsmenn húseign sina viö Tryggvabraut ganga upp I kaupin. Fátækt Sigga litla kom skopp- andi heim úr ieikskólan- um og sagði mömmu sinni aö fóstran hefði spurt krakkana hvort þau vissu hvernig bornin yrðu til. „Bjössi sagði að þau væru keypt I búöum, Svenni sagði að þau væru keypt á sjúkrahúsum og Stina sagði að þau væru pöntuö. hjá storkinum”, s*agöi Sigga óðamála. „En hvað sagöir þú góöa mln?” spurði mamma hennar. ,,Ég sagði ekki neitt. þvl ég dauðskammaðist min svo fyrir hvaö við er- um fátæk, að þurfa að búa þau til hér heima". Hagyrðingurinn Halldór Áin sem aldrei frýs Halldór Blöndal, al- þingismaður, getur gert góðar visur, ef hann hefur tima” eins og landsmenn fengu smjörþefinn af I Þjóðllfi Sigrúnar Stéfáns- dóttur. Glerá rennur um Akureyri og fyrr á árum gátu bæjarbúar dregið sér I soðiö úr ánni. Slöan reistu Sambandsmenn verksmiöjur slnar við ána, sem menguðu hana og fældu úr henni fiskinn. Þetta var fyrirgefiö þá vegna vinnunnar, sem verksiniðjurnar sköpuðu. Halldór vann um tlma I húsi einu á bökkum Gler- ár. Kvað hann eitt sinn er honum varö litiö út um glugga: Hver er þessi eina á, sem aldrei frýs, gul og rauö og græn og blá og gerð af SIS? Hvað annað Og af þvl aö við erum nú aö minnast á storkinn, þá kom hann einu sinni fljúgandi yfir Reykjavik með stelpu og strák I sama klútnum. Alit I einu spurði strákurinn: „Pantaði Pétur á Urð- arstignum þig llka?” „Já auövitaö”, svaraði stelpan. „Hélstu aö ég væri flugfreyja, eða hvað?" Arððærlr llutningar Nýlega hefur komið fram, að mikill rekstrar- halli hefur veriö bæöi hjá Eimskip og Rikisskip, sem m.a. hefur komið fram i miklum oliuskuld- um þess siöarnefnda. Þrátt fyrir það standa þessi skipafélög i undir- boðum um flutninga inn- anlands, aö sögn kunn- ugra. Bjóða skipafélögin niöur hvort fyrir öðru, en sameinast gegn erkióvin- inum: vöruflutningabll- stjórum. Fullyröa sömu heimild- ir að skipafélögin bjóði jafnvel flutningsgjald, sem sé ekki nema þriðj- ungur af flutningsgjaldi með bllum. Nú eru þungatakmarkanir á veg- um og eiga flutningabll- stjórar þvi I erfiðleikum með aö standa viö um- samda flutninga. Hafa þeir þvi hug á að notfæra sér kostaboö skipafélag- anna, sem yrði ólikt arö- bærara fyrir þá, heldur en að berjast nótt sem nýtan dag á krókóttum og holóttum vegum! Hins vegar er hætt viö að tap skipafélaganna færist I aukana. útrúlega ðágðorlð „Þarna verða menn aö beygja sig til að komast inn um dyr, veggirnir eru metersþykkir og Hegn- ingarhúsið má kalla dýfl- issu, I þess orðs fyllstu merkingu”, segir Hilmar Helgason formaður fangahjálparinnar Verndar i viðtali sem birtist iblaöi Verndar ný- lega. Hiimar hefur lagt sig fram um að kynnast að- búnaöi i islenskum fang- elsum og lýsir þarna Hegningarhúsinu við Skólavöröustlg, þar sem allir byrja sina afplánun. En gefum Hilmari orðiö áfram: „Td. má nefna aö setu- stofa fanga er engin. Sjónvarpiö er staösett á ganginum og ef menn vilja horfa á það, þá verða þeir annað hvort aö standa eða sitja á gólfinu. Þeir forsjálustu taka dýn- urnar úr rúntunum sin- um, leggja þær á ganginn og nota sem sessu þegar horft er á sjónvarp". Þvl má bæta viö, að umrædd- ur gangur er eina hús- rýmið sem fangarnir hafa til afnota fyrir utan klef- ana sjálfa. ...Þarna rlkir andi ör- væntingarinnar. Þarna eru menn að vakna til þeirra staöreynda að þeir Hilmar Helgason eru innilokaöir og komast ekkert, og það l svona umhverfi”, segir Hilmar. Skjálftinn Þráinn var I rannsókn hjá lækninum, sem bað hann að rétta fram hend- urnar. Þaö gerði Þráinn og sá iæknirinn þá að þær skuifu svo, að engu iikara var en að sjúklingurinn væri illa haldinn af Park- inson. „Guð almáttugur hjálpi mér”, æpti læknirinn. „Hvað drekkur þú eigin- lega mikiö?” „Næstum ekkert”, svaraöi Þráinn. „Ég helli þvl eiginlega öllu niö- ur...” Hræflú við flrauga Kalli haföi lengi reynt aö gera hosur slnar græn- ar fyrir Soilu. Einn dag- inn snakaöi hann sér inn á veitingastaðinn, þar sem hún vann, og settist við borð. Nú var að duga eöa drepast, og reyna að hefja samræöur, hvaö sem þaö kostaöi. Þegar Solla birtist loksins, hall- aði Kalli sér ákafur fram á borðið, og spurði: „Ertu hrædd viö drauga?" „Nei, nei”, svaraði Solla stuttaralega „sittu bara kyrr”. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir blaðamaður

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.