Vísir - 16.05.1981, Blaðsíða 6

Vísir - 16.05.1981, Blaðsíða 6
v*y VtSIR Laugardagur 16. maí 1981 B. A. Robertson frábærlega tekið á Akureyri og Reykjavík: Gífurlegur mannfjöldi beiö eftir aö fá poppstjörnuna til aö árita plötur slnar fyrir utan Karnabæ I Austurstræti I gær. „Þó þetta sé ekkert „Flight 19” er þetta hin besta flugferö”. BAR var viö stjórnvölinn á Cessnu Leiguflugs Sverris Þóroddsonar eitt andartak og fannst sjálfum aö vel hefði veriö flogiö. ,,AÖ hugsa sér aö fljúga I klukkutíma yfir snæviþaktar auönir Islands og lenda i bæ, sem heitir nafni sem ég get eng- an veginn boriö fram. Og þarna finn ég fullt af fólki sem hefur heyrt min getiö og vill láta mig árita plötur minar”. Þetta sagði Brian Alexander Robertson viö blaöamann Visis á flugvellinum á Akureyri i gær- dag. Fyrirhugað haföi veriö aö fara meö Robertson til Vest- mannaeyja, en þangað var ekki flugfært vegna óhagstæörar vindáttar. 1 Vestmannaeyjum haföi veriö undirbúið matarboö til heiðurs BAR og hann átti aö árita plötur, fara i frystihús og ýmislegt fleira. En þvi miöur gat ekki oröiö af þvi og uröu margir aödáendur poppstjörn- unnar i Eyjum fyrir miklum vonbrigöum. Þess i staö var ákveöið aö fara til Akureyrar, en fyrirvar- inn var ekki mikill — naumast meira en klukkutimi. Auglýst var i hádegisútvarpinu, aö B.A.Robertson myndi árita plötur I versluninni Cesar og einnig var gengiö um götur bæjarins meö gjallarhorn og koma popparans tilkynnt. Þetta bar þann árangur, aö hundruð ungmenna þyrptust aö versluninni og fögnuöu BAR. Þann hálftima sem Robertson dvaldist i Cesar seldust 80 ein- tök af plötunni „Bully for you” og heföu mun fleiri selst heföi timinn veriö rýmri. Robertson var spuröur þá aö þvi hvort hann væri ekki kominn með skrifkrampa? „Nei, þessu hef ég virkilega BAR bregöur á leik meö fiskinn I Smiöjunni á Akureyri. Viö boröiö sitja Herbert ólafsson, Steinar Berg, Guölaugur Bergmann og David Wernham (snýr baki aö Ijósmyndaranum). gaman af. Ég segi þaö satt. Ég nýt dvalarinnar hér á íslandi svo sannarlega. Þaö er lika svo margt sem ég hef fengiö aö gera i dag, sem ég hef aldrei gert áður. Ég hef aldrei flogið meö svona lítilli vél. Svo fékk ég aö taka i vélina, en ég hef aldrei flogiö sjálfur áöur. Ég hef aldrei borðaö svona góöan fisk og aldrei drukkiö eins gott vatn”. Brian hló hjartanlega og kastaöi höfðinu aftur á hnakka og dró svo djúpt að sér andann. „Ekki má gleyma þvi aö ég hef aldrei andaö aö mérfeiskara lofti. Þessi dagur veröur mér ábyggilega minnistæöur — þetta er einhver stórkostlegasti dagurinn i lifi minu!” Brian Robertson er ólikur þeirri mynd, sem flestir gera sér af poppstjörnum. Hann reykir ekki og vill ekkert af eiturlyfjum vita. Vin drekkur hann i hófi og aldrei — án undantekninga — meöan hann er að vinna. Hann geislar af lifsfjöri og krafti og er ótrúlega forvitinn. Þaö má þvi segja, aö ef æskan þarf að eiga sér eitthvert átrúnaöargoö, þá sé Brian hreint ekki slæmur kostur. Feröin til Akureyrar dróst nokkuö á langinn, þannig aö lent var á Reykjavikurflugvelli klukkutima síöar • en áætlaö haföi veriö. Þá var stór hópur manna búinn aö bíöa Robert- sons drjúga stund viö Karnabæ i Austurstræti til aö láta hann árita plötur slnar. Geysilegur fögnuöur braust út þegar BAR birtist og haföi hann engan veginn undan aö árita plötur allra þeirra, er um þaö báöu. „Erum viö áreiöanlega meö nógu margar plötur?” Brian áritar „BuIIy for you” I Cesar á Akureyri. 1 gærkvöldi kynnti B.A.Robertson svo plötu sina i Hollywood og var fullt út að dyr- um. Robertson fór svo utan snemma I morgun. Hann var hér i boöi Karnabæjar eins og áður hefur veriö greint frá og skipulagði Karnabær Akur- eyrarferö hans I gær. Þess má aö lokum geta, að Robertson og umboösmanni hans leist svo vel á allar aö- stæöur hér til hljómleikahalds, aö þaö mun nú fastmælum bundiö að hann komi aftur seinna i sumar, þá meö hljóm- sveit og haldi hljómleika i Laugardalshöllinni. Texti Axel Ammendrup Myndir Þráinn Lárusson ,,Einhver stórkostlegasti , dagurinn í lífi mínu!” — sagði popparinn um dvöl sína hér á landi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.