Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ DÚXAR OG GEÐVEIKI Þeim sem skara fram úr í stærð- fræði er hættara við geðveiki en þeim sem eru sterkari á sviði mann- vísinda. Þetta kemur fram í nið- urstöðum rannsókna íslensks læknis á tengslum gáfnafars og geðveiki hjá stúdentum frá MR á árunum 1871– 1960 og frá MA eftir 1930. Nið- urstöðurnar leiða í ljós að dúxum og ættingjum þeirra er hættara við geðveiki en öðrum. Kísilgúrverksmiðju lokað Framleiðslu kísilgúrs við Mývatn verður að líkindum hætt um næstu áramót. Fimmtíu manns starfa í verksmiðjunni og aðrir fimmtíu starfa hjá verktökum og þjónustuað- ilum kísilgúrverksmiðjunnar. Ekki hefur tekist að ljúka fjármögnun kís- ilduftverksmiðju sem til stendur að komi í stað kísilgúrverksmiðjunnar. Stærsti urriðinn á stöng Stærsti urriði sem veiðst hefur á stöng hérlendis veiddist í Þingvalla- vatni á föstudaginn langa. Risaurr- iðinn vó 28 pund en veiðistaðurinn er leyndarmál. Doktorsnemum fjölgar Alls luku 35 Íslendingar dokt- orsgráðu í fyrra, eða 13 færri en árið á undan. Íslendingum í doktorsnámi fjölgaði hins vegar úr 80 í 114 milli áranna 2002 og 2003. Fleiri konur eru í doktorsnámi en karlar. Flestir íslenskir doktorsnemar leggja stund á heilbrigðis- og félagsvísindi. 11 Rússum rænt Ellefu starfsmönnum rússnesks orkufyrirtækis hefur verið rænt í Írak, en sjö Kínverjum, sem rænt var þar um helgina, hefur verið sleppt. Ekkert hefur frést af þrem Japönum er rænt var á skírdag. Til- kynnt hefur verið um að minnsta kosti 16 aðra erlenda ríkisborgara sem hefur verið rænt eða er saknað í Írak. Ormar gegn iðrasjúkdómum Rannsóknir benda til, að svipu- ormar, sem þrífast í svínum, hafi læknandi áhrif á ýmsa iðrasjúkdóma í mönnum, t.d. ristilbólgu og Crohns-sjúkdóm. Telur bandarískur vísindamaður að meltingarvegur manna nú á dögum líði fyrir of mik- inn þrifnað. Miklar selveiðar Umfangsmestu selveiðar í hálfa öld hófust í Kanada í gær, en stjórn- völd þar hafa leyft veiðar á 300 þús- und kópum, og alls milljón selum á næstu þrem árum. Umhverfisvernd- arsinnar mótmæla veiðunum. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Hestar 31 Vesturland 11 Bréf 34 Erlent 12 Dagbók 36/37 Daglegt líf 14/15 Íþróttir 38/41 Listir 16/19 Fólk 42/45 Umræðan 20/23 Bíó 42/45 Forystugrein 3024 Ljósvakar 46 Minningar 26/30 Veður 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Ba rcelo na Netver› á mann 49.730 kr. Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Amrey Diagonal 11 nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði, flugvallarskattar og ísl fararstjórn. Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is ÞEIR eru margir sem bregða sér á bak fákum sínum um bænadaga og páska, ekki hvað síst ef veður er gott. Hrunamenn hafa til fjölda ára farið sinn árlega reiðtúr um bæna- dagana, góðan hring um syðri hluta sveitarinnar og notið gæðinga sinna. Að sjálfsögðu tilheyrir ferð- inni viðkoma á bæjum og góð skemmtun. Taldi hópurinn á sjötta tug þegar flest var og höfðu menn flestir tvo til reiðar þar sem leiðin er drjúg. Víða er búið að gera ágæta reiðvegi meðfram vegum svo að reiðfærið er að mörgu leyti ágætt. Þó er enn margt ógert í þeim efnum víðsvegar um landið til að greiða fyrir slysalausri umferð hestamanna. Tryggur hundurinn lætur þó ekkert á sig fá þótt leiðin sé löng, enda þarf hann engan að bera nema sjálfan sig. Á fákum fráum Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. JAXLINN, fjölnota flutningaskip, fór í fyrstu áætlunarferð sína á föstudag en skipið siglir tvisvar í viku á milli höfuðborgarsvæðisins og Vestfjarða. Skipið er í eigu Sæ- skipa ehf. sem eru í eigu Ragnars Traustasonar. Jaxlinn getur flutt lausavöru, gáma, bíla og þunga- farm og fleira, enda smíðaður til að þjóna strandbyggðum Noregs, að sögn Sigmars Páls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Sæskipa. Fyrsta ferðin til Vestfjarða gekk vonum framar að sögn Sigmars Páls. „Vestfirðingar eru að tala um þjóðhátíð hérna,“ sagði Sigmar sem staddur var fyrir vestan til að taka á móti skipinu. Hann segir skipið opna Vestfirðingum mögu- leika á sjóflutningum á ferskum fiski til útflutnings en að sá mögu- leiki hafi ekki verið áður til staðar. Einnig séu öflug iðn- og þjónustu- fyrirtæki á Vestfjörðum sem ef- laust sjái nú opnast nýja mögu- leika fyrir starfsemi sína. Sigmar Páll segir að skipinu hafi verið tekið frábærlega í fyrstu ferðinni, sem var nokkurs konar kynnisferð. „Við fengum sérlega góðar mót- tökur, það voru kaffiveitingar, blómaskreytingar og hvaðeina. Fólk flykktist um borð að skoða skipið og allir lýstu ánægju sinni með þetta framtak. Við vissum að það væri almenn ánægja með þetta hérna á Vestfjörðum en gerðum okkur kannski ekki grein fyrir að það væri svona feikileg gleði,“ segir Sigmar Páll. Frá Hafnarfirði á sunnudög- um og miðvikudögum Áætlað er að Jaxlinn fari að jafnaði frá Hafnarfirði á sunnu- dagskvöldum og sé kominn til baka aftur á þriðjudagskvöldum. Seinni ferð vikunnar verður á mið- vikudagskvöldum frá Hafnarfirði og til baka aftur á föstudagskvöld- um. Sigmar Páll segir stefnt að því að skipið komi við í öllum helstu höfnum Vestfjarða a.m.k. einu sinni í viku. Í fyrstu ferðinni var komið við á Bíldudal, í Bolung- arvík, á Flateyri, á Þingeyri og á Ísafirði, en ætlunin er að sigla einnig til Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Morgunblaðið/Golli Flutningaskipið Jaxlinn við bryggju í Hafnarfirði en þaðan siglir skipið til sjö hafna á Vestfjörðum tvisvar í viku með lausavöru, gáma, bíla og fleira. Jaxlinn siglir tvisvar í viku til Vestfjarða Nýtt fjölnota flutningaskip hefur siglingar milli landshluta FJÖGUR leikverk sem auglýst voru við upphaf yfirstandandi leikárs Þjóðleikhússins verða að bíða sýningar fram á næsta leikár. Að sögn Stefáns Bald- urssonar þjóðleikhússtjóra eru tilfærslur verka milli leikára ekki óalgengar. Stefnan sé sú að auglýsa frekar fleiri en færri verk í upphafi leikárs. „Það gerist oft, aðallega á litla svið- inu og Smíðaverkstæðinu, að ef sýningar ganga vel þá ýta þær á undan sér næsta verkefni. Við viljum frekar kynna fleiri verk en færri þannig að fólk viti hvað er í aðsigi. Þá höfum við fylgt þeirri reglu að sýna leikrit jafn lengi og fólk hefur áhuga á að sjá þau,“ segir Stefán. Leikverkin fjögur sem bíða sýningar fram á næsta leikár eru Böndin á milli okkar eftir Kristján Þórð Hrafnsson, Svört mjólk eftir Vasílij Sígarjov og Nítjánhundruð eftir Aless- andro Baricco og Rambó 7 eftir Jón Atla Jónasson sem unnið verður innan Leiksmiðju Þjóð- leikhússins. Til marks um gott gengi Stefán segir það í aðra rönd- ina ánægjulegt að leikverk þurfi að bíða, því það bendi til þess að þau verk sem eru í sýn- ingu gangi vel. Spurður hvort tilfærslur á auglýstum leikrit- um milli leikára komi sér ekki illa fyrir þá sem kaupa áskrift- arkort að hausti segir Stefán svo ekki vera. Almenn kort gildi aðeins á sýningar á stóra sviðinu og því hafi tilfærslur verka á litlu sviðunum engin áhrif á þá sem kaupa slík kort. Þeir sem hins vegar hafi fest kaup á svokölluðum opnum kortum, sem gilda einnig á litlu sviðin, geti geymt sér að fara á þær sýningar sem færast til þangað til á næsta leikári. Tvær frumsýningar eru eftir á þessu leikári hjá Þjóðleikhús- inu. Nýr íslenskur söngleikur um Edith Piaf eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Hilmars Jónssonar verður frumsýndur á stóra sviðinu 6. maí nk. Þá verður Leiksmiðjuverkefnið Á floti eftir Völu Þórsdóttur tekið til sýningar í maí. Fjögur verk bíða næsta leikárs SEX menn á þrítugsaldri voru hand- teknir við Borgargerði í Reykjavík í gær vegna líkamsárásar og eigna- spjalla. Sá sem fyrir líkamsárásinni varð fór úr axlarlið og var fluttur á slysa- deild með sjúkrabifreið. Hinir hand- teknu höfðu komið akandi að Borg- argerði og tóku að berja bíl, sem þar stóð, með golfkylfu. Þegar mann bar að garði var hann laminn með fyrr- greindum afleiðingum. Árásarmenn- irnir voru færðir í fangageymslu og eru tildrög málsins í rannsókn hjá lögreglunni. Sex teknir vegna lík- amsárásar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.