Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í BRÉFI til Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra frá því á laugardag afþakkar forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, Kári Stefánsson,
með formlegum hætti ríkisábyrgð skuldabréfa
sem Alþingi samþykkti að veita fyrirtækinu
fyrir um tveimur árum. Kári þakkar forsætis-
ráðherra velvilja og skilning á markmiðum
fyrirtækisins í bréfinu en segir jafnframt að
hafi ríkisstjórnin ætlað sér að styrkja Ís-
lenska erfðagreiningu með því að veita
ábyrgðina þá sé hún fallin á tíma. Bréfið fer
hér á eftir:
„Ágæti forsætisráðherra.
Ég vil byrja þennan bréfstúf á því að þakka
þér hlýhug sem ríkisstjórn þín hefur sýnt Ís-
lenskri erfðagreiningu frá því hún var stofnuð.
Það má muna um minna. Ég vil líka þakka þér
þann persónulega skilning á markmiðum fyr-
irtækisins og velvilja í þess garð sem ég hef
ætíð sótt á fundi með þér.
Það var myndarleg hugsun og góður vilji að
baki því þegar ríkisstjórn þín lagði fyrir Al-
þingi frumvarp til laga sem heimiluðu henni
að ábyrgjast breytanleg skuldabréf fyrir Ís-
lenska erfðagreiningu. Hugmyndin var sú að
með ríkisábyrgðinni væri unnt að tryggja það
að fyrirtækið byggði upp lyfjaþróun sína á Ís-
landi. Það er ljóst að þótt frumvarpið yrði að
lögum og það væri enginn vafi á stuðningi þín-
um við hugmyndina hefur af alls konar ástæð-
um gengið illa að hrinda henni í framkvæmd.
Ein af ástæðunum er að öllum líkindum sú að
andstaða við ríkisábyrgðina í herbúðum rík-
isstjórnarinnar, sem var að hluta til byggð á
ærlegum röksemdum, var meiri en svo að það
væri auðvelt að framkvæma hana. Önnur er
sú að Evrópuskrímslið virðist ekki vilja að Ís-
lendingar afli salts í grautinn með öðru en því
að draga fisk úr sjó og bræða málmgrýti. Nú
má vera að ég hafi rangt fyrir mér í vanga-
veltum mínum um það hvers vegna ríkis-
ábyrgðin missi af lestinni en staðreyndin er sú
að ef ríkisstjórnin ætlaði sér að sér að styðja
við Íslenska erfðagreiningu á þennan hátt þá
er hún fallin á tíma. Fyrirtækið er búið að afla
þess fjár sem það þarf til þess að byggja upp
lyfjaþróunina með því að selja breytanleg
hlutabréf án ríkisábyrgðar. Því frábiður Ís-
lensk erfðagreining sér ríkisábyrgð og fer
þess á leit við ríkisstjórnina að hún dragi mál-
ið til baka úr höndum ESA. Þetta eru farsæl
leikslok fyrir fyrirtækið og vonandi finnur það
alls konar ástæður til þess að byggja upp
þessa þróun á Íslandi þrátt fyrir að ríkis-
stjórninni hafi ekki tekist að negla það með
því að nýta sér heimild Alþingis. Hver veit?
Með vinsemd og virðingu
Kári Stefánsson.“
Bréf Kára Stefánssonar til Davíðs Oddssonar um ríkisábyrgð til Íslenskrar erfðagreiningar
Ríkisstjórnin
féll á tíma
AUSTANLANDS hafa menn tekið
hlýindum og vorkomu fagnandi og
urðu nokkuð súrir þegar hið ár-
vissa páskahret brast á. Föl var á
jörð yfir hátíðardagana en á páska-
dag gekk í sunnanátt og fór heldur
hlýnandi. Ungviðið í bænum lét þó
ekki ná sér úr vorskapinu, fremur
en farfuglarnir sem syngja á hverri
þúfu og stakk sér út á peysunum til
leikja.
Búast má við að vorkoma haldi
áfram þar sem frá var horfið, því
veðurspá gerir ráð fyrir bjartviðri
og hitatölum vel yfir frostmarki á
Austurlandi.
Snjóbolti í
páskahret-
inu eystra
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd.
Þessir spræku krakkar voru í snjóbolta á páskadag og hlupu úr sér páskaeggin: Bergur Dagbjartsson, Björk Guðlaugsdóttir og Hrafn Guðlaugsson.
Egilsstöðum. Morgunblaðið
BERLÍN er tískuborg og er iðandi
af lífi allan sólarhringinn. Þar er
verðlag mjög hagstætt og gisting
mun ódýrari en í helstu stórborgum
Evrópu og afar mikið um að vera á
lista- og menningarsviðinu.
Þetta segir Hanns P. Nerger, yf-
irmaður ferðamálaráðs Berlínar, en
hann og Knut Haenschke, yfimaður
Ferðamálaskrifstofu Þýskalands á
Norðurlöndunum, komu hingað til
lands á dögunum og kynntu Berlín
sem áfangastað en Icelandair mun
nú bjóða beint flug þangað tvisvar í
viku í sumar.
Íslendingar komi í skemmti- og
verslunarferðir til Berlínar
Nerger segist einkum gera sér
væntingar um að fá Íslendinga í
styttri verslunar- og skemmtiferðir
til Berlínar.
„Við gerum okkur einkum vænt-
ingar um að fá Íslendinga í styttri
skemmti- og verslunarferðir til Berl-
ínar enda er verðlag þar mun lægra
en Íslendingar eiga að venjast. Þetta
gildir t.d. um matvöru, fatnað, skó
o.s.frv. Þess vegna er ég nokkuð
bjartsýnn um að beint flug til Berl-
ínar muni uppfylla þær vonir sem
Icelandair gerir til þess,“ segir Ner-
ger.
Hann segir að gistinætur Íslend-
inga í Berlín hafi verið um 3.300 í
fyrra en telur að hægt verði að bæta
verulega við það. „Ég held að Berlín
hljóti að teljast mjög áhugaverður
áfangastaður í styttri ferðum fyrir
Íslendinga því þangað er ekki nema
um þriggja stunda flug. Berlín er
vinsælasti áfangastaður ferðmanna í
Þýskalandi og það hefur átt sér stað
mikil breyting frá falli Berlínar-
múrsins. Borgin sjálf hefur breyst
mjög mikið og framboð á hótelgist-
ingu hefur meira en tvöfaldast og nú
eru meira en 70 þúsund gistirými.
Og vegna mikillar samkeppni á
markaðinum er Berlín afar sam-
keppnisfær í verði í samanburði við
aðrar stórborgir í Evrópu. Verð á
gistingu er t.d. miklum mun lægra í
Berlín en t.d. í London, París eða
Róm,“ segir Nerger.
Berlín er tískuborg
„Það má segja að Berlín sé í tísku
og að hluta til vegna lífsstíls unga
fólksins sem þar er. Þetta er borg
þar sem er iðandi líf allan sólar-
hringinn og engir fastir lokunar-
tímar. Í Berlín býr fólk af 186 þjóð-
ernum og menn þurfa að fara til
New York til þess að finna slíkan
suðupott. Þetta fólki lifir í besta
samlyndi og mismunandi menning
er því eitt af því sem einkennir borg-
ina,“ segir Nerger.
Hann segir að vegna sögulegrar
sérstöðu Berlínar hafi aldrei verið
reglur um afgreiðslutíma kráa og
skemmtistaða eins og annars staðar
í Þýskalandi. „En við fall múrsins
urðum við að laga okkur að reglum
ESB. Þannig að nú verða skemmti-
staðir og krár að loka í eina klukku-
stund, opinberlega er það milli 5 og 6
á nóttunni. En það er enginn sem
hefur eftirlit með því! Þannig að það
má segja að borgin sofi aldrei og
þetta veitir Berlín ákveðna sér-
stöðu.“
Nerger bendir einnig á að í flest-
um öðrum borgum Þýskalands tæm-
ist miðbæirnir að mestu þegar skrif-
stofunum þar hefur verið lokað. „Í
Berlín er þessu öðruvísi farið. Þar
hafa verið í gildi lög sem kveða á um
að þegar menn reisa skrifstofuhá-
hýsi verða 20% af flatarmálinu að
vera undir íbúðir þannig að það eru
engin hverfi þar sem það eru bara
skrifstofur og fyrirtæki. Þetta þýðir
að alls staðar geta þrifist neytenda-
verslanir, veitingastaðir og mannlíf.
Þá skiptir það máli að það er margt
ungt fólk í Berlín, þar eru þrír há-
skólar og fimm tækniháskólar og
Berlín hefur sterkt aðdráttarafl fyr-
ir ungt fólk. Borgarstjórinn er mjög
ungur og hann hefur sett fram spak-
mælið: „Berlín er fátæk, borgarsjóð-
ur er gjaldþrota en Berlín er samt
sexí,“ segir Nerger.
Hátt í tvö þúsund
sýningar á dag
Nerger segir af nógu að taka þeg-
ar komi að list og menningu. „Ég get
nefnt sem dæmi að það eru að með-
altali um 1.500 sýningar og viðburðir
á hverjum degi í Berlín og nær tvö
þúsund á sumrin og hún hefur al-
gera yfirburði hvað þetta varðar
miðað við aðrar borgir í Þýskalandi.
Berlín er eina borgin í heiminum þar
sem eru þrjú óperuhús, þar er fjöldi
leikhúsa og um170 söfn og 300 gall-
erí. Ég get nefnt sem dæmi að nú er
verið að sýna um eitt hundrað lista-
verk frá Museum of Modern Art í
New York vegna endurnýjunar
safnsins þar. Sýningin hefur staðið í
sex vikur og á þeim tíma hafa um
600 þúsund manns komið að skoða
hana en sýningin mun standa til loka
september. Listir og menning er
ákaflega mikilvæg fyrir Berlín sem
ferðamannaborg og í raun er enda-
laust hægt að telja upp í þeim efn-
um. Það má heldur ekki gleyma að
Potzdam er ekki nema í 20 mínútna
fjarlægð með sporvagni og þar eru
fallegar hallir og garðar sem
skemmtilegt er að skoða,“ segir
Nerger.
Fulltrúar ferðamála Berlínar segja borgina vinsæla meðal ferðamanna og samkeppnisfæra
Gistirými hefur tvö-
faldast á fáum árum
Morgunblaðið/Golli
Hanns P. Nerger, yfirmaður ferðamálaráðs Berlínar, og Knut Haenschke,
yfimaður Ferðamálaskrifstofu Þýskalands á Norðurlöndunum.
AÐ SÖGN Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, verður
mikið markaðsstarf unnið vegna Berlínarferðanna. „Við höfum verið með
heilmikið af auglýsingum í gangi upp á síðkastið og við ætlum að sjá til
þess að það fari ekki fram hjá Íslendingum að Berlín er vænlegur áfanga-
staður þegar kemur að sumarleyfinu,“ segir Guðjón, en Icelandair mun
fljúga tvisvar í viku beint til Schönenfeld flugvallar í Berlín.
Guðjón segir einnig mikla áherslu lagða á markaðssetningu Íslands sem
áfangastaðar fyrir Þjóðverja. „Við beinum ekki síður sjónum okkar að því
markmiði þegar kemur að Berlínarfluginu,“ segir Guðjón.
Undanfarin ár hefur Icelandair flogið í beinu áætlunarflugi milli Íslands
og Frankfurt, en í sumar bætir flugfélagið við þremur þýskum borgum;
Berlín, Hamborg og München.
Mikið markaðsstarf
framundan á næstunni
Fulltrúar ferðamála í
Berlín segja Berlín í
Þýskalandi bjóða margt
áhugavert fyrir ferða-
menn. Hún verður með-
al áfangastaða Ice-
landair í sumar.