Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 11
Borgarnes | Loftorka Borgarnesi
og eignarhaldsfélagið Jeratún ehf.
skrifuðu nýlega undir samning um
byggingu á húsnæði Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Samningurinn hljóðar
upp á rúmar 380 milljónir og sér
Loftorka um að ráða undirverktaka.
Jeratún ehf. er félag í eigu sveit-
arfélaganna á Snæfellsnesi sem að-
ild eiga að skólanum, en þau eru
Stykkishólmsbær, Helgafellssveit,
Grundarfjarðarbær og Snæfellsbær.
Skólinn verður í Grundarfirði. VA
arkitektar sáu um hönnun en tekið
var tillit til óska og hugmynda til-
vonandi nemenda og foreldra þeirra
sem sátu þemafundi um hönnun
skólans. Erlendur ráðgjafi á vegum
menntamálaráðuneytisins var feng-
inn til aðstoðar. Skólabyggingin,
sem verður alls 1980 fm, er hönnuð
án þess að gert sé ráð fyrir hefð-
bundnum kennslurýmum. Þeirra í
stað eiga að vera opin rými og leitast
verður við að nýta nýjustu tækni á
öllum sviðum. Í samningum er gert
ráð fyrir að 1. áfanga verði lokið 29.
ágúst nk. en þá hefst kennsla við
skólann. Seinni áfanga á að vera lok-
ið 1. desember.
Hægt er að fylgjast með bygging-
arframkvæmdum á Netinu á slóð-
inni www.tsc.is og á slóðinni http://
www.menntagatt.is/default.aspx?pa-
geid=303 er hægt að sjá teikningar
af skólanum.
Skrifað undir samning um byggingu
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Morgunblaðið/Golli
Hinn nýi Fjölbrautaskóli Snæfellinga verður með aðsetur í Grundarfirði og á kennsla að hefjast þar 29. ágúst.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Frá undirritun samnings, frá vinstri: Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri Stykkishólmi, Ásgeir Valdimarsson,
bæjarfulltrúi Grundarfjarðarbæ, Konráð Andrésson, forstjóri Loftorku, og Andrés Konráðsson, framkvæmdastjóri Loftorku.
Borgarnes | Hestavöruverslun var
nýlega opnuð í Borgarnesi í hús-
næði sem áður hýsti verslunina Fínt
fólk. Nýja verslunin hefur hlotið
nafnið ,,Knapinn“ og eru eigendur
þau hjónin Erlendur Sigurðsson og
Gunnfríður Harðardóttir.
Erlendur hefur unnið við söðla-
smíði og viðgerðir í verkstæði sem
hann innréttaði í bílskúrnum í Galt-
arholti þar sem þau búa. Þar rak
hann einnig litla hestavörubúð en
er núna að færa út kvíarnar. ,,Ég
verð áfram uppfrá við vinnu í verk-
stæðinu enda hef ég nóg að gera,“
segir Erlendur og bætir við að við-
skiptavinir séu alls staðar af land-
inu „til dæmis kom maður frá
Kópaskeri til okkar í morgun“. Það
kemur í hlut Gunnfríðar að sinna
versluninni en hún sagði upp starfi
sínu hjá Borgarnes kjötvörum til
þess. ,,Ég er rosalega bjartsýn,“
segir Gunnfríður. ,,Fólk er svo já-
kvætt gagnvart þessu.“ Erlendur
segist hafa gengið með hugmynd-
ina í maganum í mörg ár að opna
alvöru hestavörubúð en fyrst þegar
hann sá að þetta húsnæði við Borg-
arbrautina í Borgarnesi losnaði lét
hann drauminn rætast. ,,Hér er
meiri umferð og margir vestan að
Snæfellsnesi sem koma hingað. Það
er engin önnur hestavörubúð á
Vesturlandi og hér verðum við með
fjölbreytt vöruúrval, allt frá hóf-
fjöðrum og skeifum til fatnaðar fyr-
ir hestamenn. Og auðvitað líka
hestasnyrtivörur.“
Opið verður alla virka daga frá
10 til 18 en til 16 á laugardögum.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Erlendur Sigurðsson og Gunn-
fríður Harðardóttir eru eigendur
nýju hestavöruverslunarinnar.
Knapinn kemur í
Borgarnes
Stykkishólmur | Olís hefur tekið við
öllum rekstri bensínstöðvarinnar í
Stykkishólmi. Um mánaðamótin tók
Olís við rekstri Gissurar Tryggva-
sonar, en hann hefur rekið verslun á
bensínstöðinni í 14 ár ásamt því að
vera umboðsmaður olíufélaganna.
Í áratugi hefur verið rekin ein
bensínstöð í Stykkishólmi, sem öll
þrjú olíufélögin hafa staðið að. Slíkt
fyrirkomulag er í andstöðu við sam-
keppnislög. Á síðustu árum hefur
reksturinn verið að þróast í þá átt að
Olís hefur tekið hann í sínar hendur
og er hann alfarið á þeirra vegum
hér eftir.
Gissur Tryggvason mun hafa um-
sjón með starfseminni í Stykkis-
hólmi. Hann segir að engar breyt-
ingar verði til að byrja með. Ætlunin
er að eingöngu verði sjálfsafgreiðsla
á bensíni og að þjónustutankarnir
sem nú eru verði lagður niður. Frá
og með 1. apríl verður gefinn aukinn
afsláttur á bensíni, 4 krónur í stað 2
króna.
Starfslið verður óbreytt eftir
breytingar og eru þar 5,5 stöðugildi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Gissur Tryggvason hefur hætt verslunarrekstri á bensínstöðinni og Olís
tekið við. Hann er hér á milli starfsmanna sinna, Gunnlaugs Smárasonar
og Guðmundar Þórssonar fyrir framan besínstöð Olís.
Olís tekur við rekstri
bensínstöðvarinnar
Borgarnes | Samkomulag var
undirritað nýlega um byggingu á
nýju húsi fyrir starfsemi Spari-
sjóðs Mýrasýslu við Brúartorg í
Borgarnesi. Eignarhaldsfélagið
Fasteign í Reykjavík mun byggja
húsið en Sparisjóðurinn tekur það
á leigu til 30 ára.
Eignarhaldsfélagið Fasteign
sérhæfir sig í útleigu á húsnæði
fyrir sveitarfélög og opinbera að-
ila.
Húsið verður 1200 fermetrar á
þremur hæðum og er áætlað að
það verði tilbúið til afhendingar í
lok maí á næsta ári. Gísli Kjart-
ansson sparisjóðsstjóri sagði við
þetta tilefni að ætlunin væri að
byggja vandað hús án þess að því
fylgdi eitthvert bruðl.
„Byggingin verður falleg og til
sóma fyrir byggðarlagið enda er
þetta á þannig stað, þarna við
brúarsporðinn, að það er ekki
hægt annað en að byggja veglegt
hús,“ sagði Gísli. Að sögn Ragn-
ars Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra Eignarhaldsfélags-
ins Fasteignar, verður bygging
hússins boðin út innan tíðar.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Frá undirskrift samnings milli SPM og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar. F.v. Jónas Þór Jónsson og Ragnar Guð-
mundsson frá Fasteign, Sigurður Már Einarsson, stjórnarformaður SPM, og Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri.
Byggt fyrir Sparisjóð Mýrasýslu