Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 16
LISTIR
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERFÐABREYTTAR AFURÐIR www.heilsuvernd.is
RITHÖFUNDURINN og myndlist-
armaðurinn Benedikt S. Lafleur
hefur frá því árið 2002 staðið fyrir
bókaútgáfu undir eigin nafni og
gefið út tvær bóka Gunnars Dal,
Þríhendur og Frelsarinn, hinn lif-
andi Jesú Kristur, auk ljóðabóka
Geirlaugs Magnússonar, Gunnars
Randverssonar og tvær af eigin
bókum. Eftir Benedikt hafa áður
komið út Ný útópía? 1992, Sex-
olution hjá Minerva Press í London
árið 1996 og Le cactus aux étoiles
sl. vor hjá La société des écrivains í
París. Þá eru myndlistarsýniningar
Benedikts orðnar rúmlega þrjátíu
talsins.
„Lafleur-útgáfan hefur að mark-
miði að gefa út vandaðar kiljubæk-
ur á hóflegu verði þar sem um-
búðaskrum víkur fyrir
metnaðarfullu innihaldi,“ segir
Benedikt og segir upphaf útgáfu-
starfsins mega rekja 10 ár aftur í
tímann er hann ásamt Bjarna
Bjarnasyni rithöfundi og Gunnari
Þorra stóð fyrir Andblæ. „Þetta
var bókmenntafyrirbæri þar sem
ýmsir mætir rithöfundar tóku þátt
í upplestrarkvöldum að Hverf-
isgötu 49. Upp úr þessari blómlegu
bókmenningu spratt svo tímaritið
Andblær.“
Benedikt flutti síðan til Parísar
og stundaði listsköpun sína þar en
hefur undanfarin þrjú ár ýmist
dvalið á Íslandi eða í Frakklandi.
Hann hefur unnið að ritsmíðum á
þremur tungumálum, íslensku,
frönsk og ensku, þó mest á ís-
lensku. Tvær bóka hans komu út í
haust á vegum Lafleur-útgáfunnar,
Í hugsunarleysi tímannna og Í blóð-
sporum skálds. Í vetur frá áramót-
um hefur Benedikt staðið fyrir svo-
nefndum Skáldaspírukvöldum á
veitingahúsinu Jóni forseta í Að-
alstræti. Þar hafa stigið á stokk
ung og upprennandi ljóðskáld
ásamt eldri og þekktari skáldum og
lesið úr verkum sínum.
„Þessi kvöld hafa verið vel sótt
og ég hef fundið fyrir miklum
áhuga rithöfunda á að taka þátt í
þeim,“ segir Benedikt.
Ekki réttlæting
heldur skilningur
Benedikt er hugleikin umræða
um Krist og hlutverk hans í hinum
kristna boðskap. „Fyrirgefningin
er kjarni boðskaps Krists og kenn-
ingin um óskilyrta ást. Þetta gerir
miklar kröfur til okkar en fyr-
irgefningin er fyrsta skrefið að ein-
lægri iðrun og endurfæðingu.“
Leita aldrei efasemdir á hugann?
„Efasemdirnar beinast frekar að
hræsninni í siðferðisboðskap þeirra
sem eiga að vera leiðandi í sam-
félaginu. Þetta á við okkur öll, því
þeir sem stjórna, endurspegla okk-
ar viðhorf.“
Er samtíminn svona falskur og
hræsnisfullur?
„Nei, ég held að þetta sé að
breytast. Viðhorfin eru að breytast
þó að við séum hrædd við að ganga
fram og ögra. Eins og Kristur
gerði með því að ögra ríkjandi gild-
um. Hann skerpti siðferðisþroska
mannsins með því að ögra. Það eru
engin ný sannindi að heimurinn er í
okkur sjálfum. Við erum heim-
urinn. Ef okkur finnst eitthvað
vera í ólagi í umhverfinu ber okkur
skylda til að bæta úr því eftir
fremsta megni.
En það ervitaskuld líka viss tog-
streita milli þess að vilja sífellt
gagnrýna og breyta og að sætta
okkur við okkur sjálf eins og við er-
um. Því aðeins hrein ást og djúp-
stæður skilningur á umhverfinu og
sjálfum sér kunna að hrinda af stað
varanlegum breytingum. Ekki rétt-
læting heldur skilningur. Það má
segja að Lafleur-útgáfan sé minni
háttar viðleitni til að breyta ákveð-
inni hefð varðandi bókaútgáfu á Ís-
landi, að bækur sé einungis hægt
að gefa út fyrir jólin. Ég gef út allt
árið um kring. Skáldaspírukvöldin
eru einnig hluti af þessu. Þörfin er
fyrir hendi og kom mér á óvart
þegar ég var að vekja athygli á
þessu.“
Benedikt segir að markmið út-
gáfunnar sé ekki að hagnast á
henni heldur að gera bækurnar
þannig úr garði að útgáfan sé
smekkleg og standi undir kostnaði.
„Með því að taka að mér jafnvirtan
höfund og Gunnar Dal hefur útgáf-
an ákveðinn grunn til að standa á.
Það er einnig mikill heiður að hafa
gefið út ljóðabók Geirlaugs Magn-
ússonar.“
Hvað veldur því að þú ferð út í
bókaútgáfu í stað þess að leita
sjálfur eftir útgefanda að þínum
verkum?
„Þörfin var svo knýjandi að ég
varð að hlýða rödd samviskunnar
og lát slag standaí stað þess að bíða
eftir því að breytingarnar kæmu af
sjálfu sér. En eins og kemur fram í
nokkrum verkum mínum er sam-
viskan eini sanni mælikvarðinn á
tímann. Því sá tími sem verður
aldrei frá okkur tekinn en sem við
getum heldur aldrei leikið eftir er
hvergi að finna nema í sjálfu
Núinu.“
Morgunblaðið/Golli
Benedikt S. Lafleur með skúlptúra sem hann sýndi í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Við erum
heimurinn
ÓLAFUR Kjartan Sigurðar-
son barítonsöngvari og Snorri
Sigfús Birgisson píanóleikari
halda tón-
leika í Nor-
ræna húsinu
á miðviku-
dag kl.
12.30. Flutt
verða þrjú
tónverk eft-
ir Snorra
Sigfús: Árs-
tíðirnar
(1984),
Portrett nr.
1 (1997) og
Vier Rüb-
nerlieder
(2002/2003).
Fyrri verk-
in tvö eru
fyrir píanó
en hið síð-
astnefnda
er fyrir
baríton-
söngvara og píanó og samið
við fjögur ljóð eftir Tuvia Rüb-
ner.
Rübner fæddist í Bratislava
árið 1924 og yrkir ljóð sín á
hebresku og þýsku. Hann er
búsettur í Ísrael og hefur gef-
ið út fjölda ljóðabóka. Fyrsta
lagið af fjórum í Vier Rübner-
lieder var frumflutt í desem-
ber sl. í Freiburg en hin þrjú
hafa hvergi heyrst opinberlega
fyrr en nú.
Söngur í
Norræna
húsinu
Snorri Sigfús
Birgisson
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
MEÐ sterkri vísun í íslenskan
sagna- og tónlistararf og forn-grískan
leiklistararf hefur hið gróna Leik-
félag Dalvíkur skapað frumlega og
skemmtilega leiksýningu til þess að
sýna gestum og gangandi á vordög-
um. Allt nema leikstjórnin er skapað
af heimafólki í Svarfaðardal: Syst-
kinin Hjörleifur og Ingibjörg, sem
bæði hafa þó nokkra reynslu sem leik-
skáld, sækja efni þessa skemmtilega
leikrits til hins dramatíska hluta
Svarfdæla sögu sem segir frá ævi og
ástum Klaufa nokkurs. Sá vann sér
helst til frægðar að vera ljótur og
ólánlegur og svo æstur í skapi að
hann drap húskarla þegar þeir urðu á
vegi hans. Klaufi þessi var veginn og
gekk svo aftur, eða réttara sagt höfuð
hans. Höfundar segja frá því í fróð-
legri leikskránni að eftir að æfingar
hófust tók verkið miklum breyting-
um, ekki síst í samvinnu við leikstjór-
ann.
Ágústa Skúladóttir hefur nokkra
sérstöðu meðal leikstjóra sem vinna
með áhugafélögum. Hún hefur vakið
athygli fyrir einstaklega lifandi og
áhrifamiklar uppfærslur þar sem
leiksýningin er unnin í spunavinnu
með hópnum út frá svo kallaðri
,,storytelling“ aðferð eða að segja
sögu. Aðferðin hentar Svarfdæla sögu
mjög vel og það er í rauninni með ólík-
indum hversu vel hún tekst með hópi
misreyndra leikaranna. Fram kemur
í leikskrá að illa gekk að manna sýn-
inguna í byrjun og voru ýmsir dregnir
á svið sem aldrei höfðu látið sér til
hugar koma að leika. Frumsýningin
bar þess merki að of stuttur tími hefði
gefist til æfinga en með nokkrum sýn-
ingum er áreiðanlega hægt að slípa
vel. Það er ekki síst látbragðs- og
grímuleikurinn sem krefst mikilla æf-
inga og ögunar í leik en satt að segja
heppnaðist það einstaklega vel. Með
hjálp áhrifamikillar lýsingar og hljóð-
myndar urðu til nokkur augnablik
sem létu áhorfendur gleyma stað og
stund. Það er einstaklega góð hug-
mynd að nota grímur í þessari sýn-
ingu og þjónar vel þeim tilgangi að
fjarlægja persónurnar í tíma. Leik-
félagið býr að því að hafa fengið í dal-
inn hinn þekkta Bernd Ogrodnik sem
leiðbeindi leikurum við grímugerðina.
Búningar hins reynda hönnuðar Ír-
isar Ólafar Sigurjónsdóttur eru alveg
sérstaklega fallegir og hæfa tíma
leiksins vel og sviðsmyndin mátulega
einföld í sniðum. Það er þó ekki síst
hin áhrifamikla tónlist Guðmundar
Óla Gunnarssonar sem gerir Svarf-
dæla sögu svo áhrifamikla sem raun
ber vitni. Hann samdi tónlistina að
beiðni höfundanna sem skrifuðu verk-
ið frá byrjun með það í huga að karla-
kór Guðmundar Óla myndi flytja
hana, ekki aðeins af bandi heldur vera
á sviðinu sem hluti af leikurum. Fyrir
utan það hvað tónlistin er falleg og
hvað hún var vel flutt var áhrifamikið
að sjá þennan stóra kór á sviðinu en
hann lagði út af atburðum í líkingu við
kórana í grísku harmleikjunum.
Þrátt fyrir það sem áður var sagt
um of stuttan æfingatíma og nokkurn
stirðleika á frumsýningu var leikara-
hópurinn samstilltur. Sigurvin Jóns-
son var í hlutverki Klaufa. Hann hef-
ur reynslu sem uppistandari en lék
hér í fyrsta sinn og gerði það mjög
vel, með gott vald á rödd þessa van-
þroska ólánsmanns. Búningahönnuð-
urinn Íris Ólöf sem einnig var í fyrsta
sinn á sviði hvíldi ungmeyjarlega í
hlutverki Ingveldar fagurkinnar og
Elín Björg Pétursdóttir var öguð og
yfirveguð í hlutverkum Þórörnu og
Sigríðar. Í hlutverki Karls rauða var
einn nýliðinn enn sem vakti athygli en
það var Ari Baldursson sem eins og
alvanur leikari tók til sín þá athygli
sem honum bar og beitti röddinni
mjúklega. Það var þó hinn reyndi Sig-
urbjörn Hjörleifsson sem fór léttast
með hlutverk sitt en hann lék hinn
fjöruga og sjálfhverfa Grís gleðil af
öryggi. Enn eru þó ónefndir hinir
ungu og skemmtilegu leikarar Eyþór
Gunnlaugsson og Guðmundur Ingi
Halldórsson sem léku húskarla, kind-
ur og fleira á þann hátt að sviðið lifn-
aði í hvert sinn sem þeir stigu á það
fæti.
Leikfélag Dalvíkur sýnir vel með
uppfærslu sinni á Svarfdæla sögu
þann metnað og menningarlega vit-
und sem lengi hefur einkennt starf-
semina. Reyndir listamenn koma
hvarvetna við sögu í sköpun sýningar
sem lifir lengi í hugum áhorfenda sök-
um frumleika síns
Menningarleg vitund
í frumlegri sýningu
LEIKLIST
Leikfélag Dalvíkur
Höfundar: Hjörleifur Hjartarson og Ingi-
björg Hjartardóttir. Leikstjóri: Ágústa
Skúladóttir. Höfundur og stjórnandi tón-
listar: Guðmundur Óli Gunnarsson. Tón-
listarflutningur: Karlakór Dalvíkur. Hönn-
un leikmyndar: Ágústa Skúladóttir og
smíðahópur. Hönnun búninga: Íris Ólöf
Sigurjónsdóttir. Ljósahönnun: Pétur
Skarphéðinsson. Hljóðhönnun: Hörður
Valsson og Sigrún Aradóttir. Málun á
grímur: Sólrún Engilbertsdóttir.
Frumsýning í Ungó, 25. mars, 2004.
SVARFDÆLA SAGA
Hrund Ólafsdóttir
SÁLUMESSA Mozarts var á dag-
skránni í Langholtskirkju um
helgina og var þar á ferðinni kór
kirkjunnar ásamt
kammersveit og ein-
söngvurum, en stjórn-
andi var Jón Stefáns-
son. Reyndar er
villandi að tala um ein-
söngvara; segja má að
kórinn sé aðalein-
söngvarinn; þáttur ein-
söngvaranna er fremur
veigalítill, ef frá er tal-
inn sópraninn, sem var
Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir.
Allir einsöngvararn-
ir stóðu sig ágætlega,
þ.e. þeir kunnu greini-
lega hlutverk sín, en
víbratóið í söng Ólafar
var þó fullmikið til að
tónlistin nyti sín al-
mennilega. Söngur
Nönnu Maríu Cortes
var stöðugri, en
kannski fullpassífur, og
persónulega hefði ég
viljað heyra aðeins
dekkri rödd en þá sem
Bergþór Pálsson hefur;
það hefði myndað betra
mótvægi við tæra ten-
órrödd Gunnars Guð-
björnssonar. Söngur
Gunnars var verulega
fínn í sjálfu sér, hann
er með réttu röddina fyrir Mozart,
en söngur Bergþórs hefði mátt vera
einfaldari og agaðri.
Kórinn söng yfirleitt fallega; það
var helst að kvenraddirnar voru
stundum óþægilega hvellar, sérstak-
lega er á leið. Tenórarnir voru líka af
og til dálítið flatir, sérstaklega í
Confutatis-þættinum. Í það heila var
kórsöngurinn samt skýr og vandað-
ur; t.d. var Kyrie eleison-atriðið
glæsilegt og margt annað var einnig
prýðilega sungið.
Hljómsveitin, sem mér sýndist að-
allega (ef ekki algerlega) saman-
standa af hljóðfæraleikurum úr Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, stóð sig í
heild vel, en í Record-
are-kaflanum voru
strengirnir dálítið
óhreinir og var útkom-
an fremur ómarkviss.
Auk þess hefði byrjun-
in mátt vera spiluð af
meiri þokka; hljóð-
færaleikurinn var
fremur þunglamaleg-
ur, jafnvel forseraður,
og sú hástemmda ann-
arsheimslega fegurð
sem einkennir tónlist-
ina þar skilaði sér ekki í
flutningnum.
Styrkleikajafnvægið
á milli kórs, hljómsveit-
ar og einsöngvara var
gott og þegar á heildina
er litið var þetta sann-
færandi túlkun á Sálu-
messu Mozarts, þótt
hún væri ekki fullkom-
in. Jón stjórnaði reynd-
ar eins og hann væri að
fást við verk frá bar-
okktímabilinu, en per-
sónulega fannst mér
það ekki koma illa út,
sennilega vegna þess
hve túlkunin var ein-
læg, kraftmikil og heil-
steypt. Má segja að
þetta hafi verið áhrifa-
miklir tónleikar; rétta stemningin
var alltént til staðar og þá er ekki
hægt að láta sér leiðast.
Veit þeim
eilífa hvíld
TÓNLIST
Langholtskirkja
Mozart: Requiem KV 626. Kór og Kamm-
ersveit Langholtskirkju; einsöngvarar:
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Nanna María
Cortes, Gunnar Guðbjörnsson og Bergþór
Pálsson. Stjórnandi: Jón Stefánsson.
Föstudagurinn langi, 9. apríl.
KÓRTÓNLEIKAR
Jónas Sen
Jón Stefánsson
W.A. Mozart
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930