Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 20

Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 20
UMRÆÐAN 20 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ AÐALFUNDUR Þróunarfélags miðborgarinnar var haldinn í Iðnó nýlega. Meðal þess sem bar hæst í starfi félagsins á liðnu starfsári má nefna „Magnaða mið- borg“, sem hefur fest sig í sessi svo um munar, Miðborg- arblaðið sem fór af stað í fyrravor, breytingu til batn- aðar í bílastæða- málum og jólamark- aðinn á Lækjartorgi. Mögnuð miðborg Átaksverkefni Þróun- arfélags miðborg- arinnar undir heitinu „Mögnuð miðborg“ var framkvæmt með glæsibrag sl. sumar. Fjölbreytt dagskrá var í boði í miðborg- inni fjóra laugardaga í júlí og ágúst. Helstu styrktaraðilar Magnaðrar mið- borgar voru Morgunblaðið, Bún- aðarbankinn, félagsmálaráðu- neytið og Reykjavíkurborg. Áfram verður haldið með Magnaða mið- borg í sumar og reynt að gera enn betur en í fyrra. Miðborgarblað Þróunarfélagið hóf sl. vor útgáfu sérstaks miðborgarblaðs. Það nefnist Miðborgin og komu út fjögur tölublöð á liðnu ári. Blaðið var unnið í samvinnu við Morg- unblaðið og dreift með því um land allt. Það mæltist vel fyrir og vakti jákvæða athygli á miðborg- inni með ýmsum hætti. Nýlega var gengið frá nýjum samningi um miðborgarblaðið og er gert ráð fyrir fimm tölublöðum á þessu ári. Fyrsta blaðið kom út 2. apríl. Blaðið var 20 síður og fjölbreytt að efni. Næsta miðborg- arblað kemur út í byrjun júní. Áfangar í bílastæðamálum Í fyrrasumar gerði Gallup könnun á viðhorfum íbúa höfuðborg- arsvæðisins til ýmissa þátta bíla- stæðamála í miðborginni. Könn- unin var gerð að frumkvæði Þróunarfélags miðborgarinnar. Í kjölfar þessarar könnunar var skipaður starfshópur til að móta tillögur til samgöngunefndar borg- arinnar um breytingar á bíla- stæðagjöldum í miðborginni. Starfshópinn skipuðu tveir fulltrú- ar Þróunarfélags og markaðs- nefndar miðborgarinnar og tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar. Samkomulag náðist um eftirfar- andi atriði: 550 kr. afsláttur er veittur á stöðvunarbrotagjöldum sé greitt innan þriggja daga. Tímatakmarkanir á stöðumæl- um, sem voru ein til tvær klukku- stundir eftir svæðum, eru felldar niður og tekinn upp ótakmarkaður tími á stöðumælastæðum. Hraðað verði undirbúningi gsm- kerfis, sem gerir kleift að greiða í stöðumæli með farsíma. Gsm- kerfið gæti komist í gagnið á þessu ári. Samfara gildistöku þessara breytinga mun Bílastæðasjóður hefja víðtæka kynn- ingu á bílastæða- málum, gjaldskyldu, afgreiðslutíma bíla- stæðahúsa o.fl. Viðurkenningar Á hverju ári veitir Þróunarfélagið við- urkenningu fyrir þró- un og uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur. Verðlaunin voru veitt í nóvember sl. og við- urkenninguna hlaut að þessu sinni 101 Hótel við Hverfisgötu. Ingi- björg Pálmadóttir, hönnuður og eigandi hótelsins, tók við verð- laununum við hátíð- lega athöfn í Iðnó. Í desember hlaut Gull í grjóti við Skóla- vörðustíg viðurkenn- ingu Þróunarfélags miðborgarinnar fyrir fallegustu jólagluggaútstillinguna árið 2003. Þessum verðlaunum er ætlað að vera hvatning til kaupmanna um að huga vel að andliti verslana sinna, gluggunum, og færa um leið hátíðarblæ jóla og áramóta yfir miðborgina. Ásýnd verslana og húsa er einn veigamesti þáttur í útliti miðborgarinnar í heild. Fjöldi verslana Á hverju hausti er gefin út skýrsla á vegum félagsins um fjölda og flokkun verslana í miðborg Reykjavíkur. Í skýrslunni frá liðnu hausti kemur fram, að versl- unum heldur áfram að fækka og voru verslanir í miðborg Reykja- víkur 300 talsins í september 2003, hafði fækkað um þrjár frá árinu áður. Verslunum hefur fækkað mest í Kvosinni, en Skóla- vörðustígur og hliðargötur hafa haldið sínu undanfarin átta ár, frá því að þessi talning hófst. 50 verslanir voru við Skólavörðustíg í haust, en 48 árið 1996. Við hlið- argötur voru 38 verslanir í haust, en 36 árið 1996. Vonandi er botninum nú náð í fækkun verslana í miðborginni og reyndar eru ýmis teikn á lofti um að verslunum taki nú aftur að fjölga. Jólamarkaður á Lækjartorgi Jólamarkaður var nú annað árið í röð á Lækjartorgi í desember. Að þessu sinni var mun meira lagt í markaðinn en árið áður, þegar hann var í stóru tjaldi. Leigð voru ellefu smáhýsi og þeim komið fyr- ir á Lækjartorgi. Húsin voru svo endurleigð þeim sem stunduðu þar sölustarfsemi. Megináhersla var lögð á handverk af ýmsu tagi og jólavarning. Húsin voru skreytt og lýst og ýmislegt til skemmtunar á markaðinum. Efling miðborgarinnar Stjórn Þróunarfélags miðborg- arinnar sendi frá sér ályktun þar sem fagnað er þeim stórhuga verkefnum sem fyrirhugað er að hrinda í framkvæmd í miðborg Reykjavíkur. Þau munu án efa stuðla að eflingu miðborgarinnar sem íbúðar-, afþreyingar- og verslunarsvæðis. Mikilvægt er að vanda mjög til þeirra verka sem framundan eru í miðborginni. Þar verður að hafa að leiðarljósi að miðborgin á að vera um langa framtíð stolt og prýði höfuðborgarbúa og allra landsmanna. Öflug miðborg er allra hagur. Öflug miðborg er allra hagur Einar Örn Stefánsson skrifar um miðborgarmál Einar Örn Stefánsson ’Mikilvægt erað vanda mjög til þeirra verka sem framundan eru í miðborg- inni.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Þróunarfélags miðborgarinnar. VIÐ erum skrýtin þjóð sem er til- tölulega nýskriðin út úr moldarkof- unum. Við erum samt fyrst allra þjóða til að tileinka okkur tækni- nýjungar. Því miður gilda nýjungar ekki við skipulag höfuðborg- arinnar. Þá hverfum við aftur í moldarkof- ana og grípum til rúm- lega 30 ára gamals skipulags sem á eftir að setja mark sitt á alla framtíðarupp- byggingu höfuðborgar allra landsmanna. Er nokkur þörf á að flytja Hringbrautina? Framtíð- arstaðsetning LHS við Hringbraut óljós. Á opnum borgarafundi sem hald- inn var í Tjarnarsal Ráðhússins 30. mars á vegum átakshóps gegn færslu Hringbrautar komu fram mörg atriði sem sýna, að ekki er hugsað til enda. Gleggsta dæmið er, að framtíðarstaðsetning Landspít- ala – háskólasjúkrahúss við Hring- braut hefur ekki endanlega verið ákveðin. Lækna- og hjúkrunarráð Landspítala hafa óskað eftir að áform um framtíðaruppbyggingu LSH verði endurskoðuð vegna fag- legra og rekstrarlegra forsendna m.a. að bráðastarfsemi verði komið fyrir á einum stað annaðhvort í Fossvogi eða norðan Hringbrautar. Þetta undirstrikuðu þeir læknar sem voru með framsögu á fundinum og aðrir sem tóku til máls. Það kom einnig fram í máli Friðbjörns Sig- urðssonar, formanns læknaráðs LSH, að hann gæti hugsað sér margt annað sem gera mætti við peningana innan sjúkrahússins sjálfs sem myndi nýtast betur en þessi vegaframkvæmd. Einu rök Vegagerðar Á vef Vegagerðar rík- isins má sjá að einu rökin fyrir færslu Hringbrautar ofan jarðar sé uppbygging Landspítalans við Hringbraut. Hvað ligg- ur á með að mynda svona gjá í Reykjavík framtíðarinnar þegar meginforsendan liggur ekki fyrir? Er það skynsemi – eða ann- arleg hagsmunapólitík? Þekking borgarstjóra á um- ferðarmannvirkjum Borgarstjóri var einn mættur á fundinn en kjörnir fulltrúar okkar til borgarstjórnar voru fjarverandi, flestir í Berlínarheimsókn. Því mið- ur ekki til að skoða stokka. Þeir sem ekki voru í Berlín létu ekki sjá sig á fundinum. Fjölmargar spurningar beindust því til borgarstjórans. Við einni spurningunni varðandi stokkinn svaraði hann, að borgir legðu stofn- brautir ekki í stokka. Slíkt væri hvergi gert í borgum! Hann bætti því við að ekki væri hægt að leggja götu í stokk og síðan hafa aðrar göt- ur ofaná. Þarna virðist gæta mikils misskilnings hjá borgarstjóra og e.t.v. meirihluta borgarstjórnar. Hvar hefur borgarstjóri verið? Þetta svar borgarstjóra er ástæða skrifa minna. Hvar hefur borg- arstjóri verið? Hefur hann ekki komið til eftirtalinna borga? 1. Ósló, sem ætti ekki sitt vinsæla, mannvæna svæði við Aker Brygge ef stofnbrautir hefðu ekki verið lagðar undir miðbæinn og Ráðhúsið? 2. Stokkhólmur er meira og minna á tveim hæðum. Þegar stofnbraut er valkostur í þeirri borg er ekki einu sinni umræða um málið. Brautin fer í jörðina! 3. Boston sem áður var með stofn- brautir á járnbrúm er búin að setja þær niður í jörðina. Fram- kvæmdin heitir „The Big Dig“. Þar er í gangi hugmynda- samkeppni meðal borgaranna um hvað eigi að gera við allt það opna svæði sem skapast þegar gegn- umumferð fer niður í jörðina. Sama myndi eflaust gerast hér ef Hringbrautin verður sett í stokk. Þá verða til dýrmætar byggingarlóðir ofan á stokknum. Götur sem verða þar ofaná yrðu venjulegar íbúðar- húsagötur. Eftirfarandi borgir sem leggja stofnbrautir niður og undir byggð eru t.d.: París, London, Bergen, New York, Brussel, Singapore, Hong Kong, og áfram má telja. Sparnaður, hagkvæmni fyrir borgarbúa og aðra? Í vetur kom tilboð um Hringbraut- arstokk frá bresku verktakafyr- Hvaða borgir hefur borgarstjóri heimsótt? Dóra Pálsdóttir skrifar um skipulagsmál ’Nýta borgarfulltrúarsér ferðir til erlendra borga og kynna sér um- ferðarskipulag?‘ Dóra Pálsdóttir MAÐURINN hefur frá örófi alda verið að leita að aðferðum til að auðvelda sér fæðuöflun og bæta lífsskilyrði sín. Með aukinni tækniþekkingu hefur honum veist það sí- fellt auðveldara. Það er nánast óum- deilt að veldisvöxtur hefur verið í nýtingu náttúruauðlinda frá tæknibyltingunni og fram til dagsins í dag og hefur það vissu- lega bætt lífskjör í tæknivæddum sam- félögum. Það fer hins vegar ekki hjá því að með vaxandi auð- lindanýtingu hafa margs konar áhrif farið að koma fram í umhverfinu og næsta ljóst að mörg þeirra eiga beinlínis ræt- ur sínar að rekja til athafna mannsins. Sum þessara áhrifa geta ógnað heilsu mannsins beint og eru til að mynda umhverfis- tengdar matarsýkingar dæmi um slíkt meðan önnur áhrif eru af- stæðari og á tíðum umdeildari eins og takmarkað aðgengi fólks að ósnortinni náttúru. Nútíma- samfélagið hefur brugðist við þessu aukna álagi sem stafar af aukinni tækniþróun og verkþekk- ingu t.d. með því að setja sér þá stefnu að takmarka eða banna ýmsa starfsemi, takmarka eða banna aðgengi að sumum svæðum og setja mörk á losun tiltekinna efna út í umhverfið eða banna slíkt alveg. Í sinni einföldustu mynd er verið að takmarka frelsi einstaklinganna til að ná fram markmiðum er miða að auknu ör- yggi matvæla og aukinni umhverf- is- og neytendavernd. Við slíkar takmarkanir er oft horft til lengri tíma á grundvelli sjálfbærrar þró- unar. Þeir sem eru ábyrgir fyrir slíkum aðgerðum standa iðulega frammi fyrir spurningum eins og hvort „verið sé að vinna verkin rétt“? Í því felst mat á því t.d. hvort heimilt sé að takmarka frelsi einstaklinga til nýtingar, hvort sanngirni sé gætt varðandi setn- ingu reglna og eitt sé látið yfir alla ganga. Önnur kjarnaspurn- ing sem á tíðum hefur legið í láginni en er nú að verða áberandi í umræðunni er sú hvort „verið sé að vinna rétt verk“? Með þessu er átt við hvort stjórnvöld hafi metið hvort þær takmark- anir og bönn sem hafa verið sett skili þeim árangri sem að er stefnt. Til að svara spurningu sem þessari er reynt að vakta tiltekna þætti í um- hverfinu og meta hvernig þeir eru að þróast í tímans rás. Vandinn er hins vegar sá að áhrifin sem er verið að mæla eru að koma fram í síbreytilegu um- hverfi og mjög oft erfitt að greina manngerð áhrif fá náttúrulegum breytileika, þannig að matið á ár- angri aðgerða er oft óljóst. Af ofangreindu leiðir að þegar verið er að meta áhrif af athöfnum mannsins og hvernig staða mála er almennt er ekki unnt að setja neinn algildan mælikvarða heldur er reynt að safna saman marg- háttuðum mælikvörðum sem hver um sig lýsir hluta af veru- leikanum. Þetta eru eins konar vísbendingar, oft kallaðir vísar, sem má ekki túlka einangrað frá öðrum upplýsingum. Það er mikil umræða í alþjóðasamfélaginu um það hvaða vísar eru best lýsandi fyrir ástand umhverfisins. Eins og víða þar sem verið er að fjalla um huglægt mat eru verulega deildar meiningar um hverjir þeirra lýsa ástandinu best. Hins vegar er næsta ljóst að aðlaga þarf slíka vísa að einhverju leyti að hverjum stað eigi þeir að ná tilgangi sínum. Með aukinni þekkingu er það von manna að þessir vísar kunni að auðvelda manninum að skilja hvert stefnir og hvar skórinn kreppir. Umhverfisstofnun hefur haft frumkvæði að því að draga saman gögn um flesta þá vísa sem hugs- anlega kunna að hjálpa okkur Ís- lendingum við að meta hver stað- an er og hvert stefnir. Stofnunin leitaði til fjölmargra aðila með beiðni um upplýsingar. Stór hluti gagnasafnsins lá hins vegar hjá stofnuninni sjálfri og hafa viðkom- andi sérfræðingar í því tilfelli veitt upplýsingar. Þessu verki er lokið með ritinu „Umhverfisvísum“ sem kom út 26. mars sl. Umhverf- isstofnun kann öllum þeim aðilum sem veittu upplýsingar og lásu texta yfir bestu þakkir. Umhverf- isvísarnir eru aðgengilegir á pdf- formi á vefsíðu stofnunarinnar, http://www.ust.is, og eins er unnt að fá eintök hjá stofnuninni meðan upplag endist. Við hjá Umhverf- isstofnun lítum á þetta verk sem fyrsta skref í löngu ferli. Það er ætlun okkar að þróa umhverfisvís- ana áfram á næstu árum þannig að þeir geti hjálpað okkur til að meta betur hvert stefnir varðandi einstaka þætti er snúa að mat- vælaöryggi og umhverfismálum. Umhverfisvísar Davíð Egilson skrifar um umhverfisvísa ’Umhverfisvísarnir eruaðgengilegir á pdf-formi á vefsíðu Umhverf- isstofnunarinnar.‘ Davíð Egilson Höfundur er forstjóri Umhverfisstofnunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.