Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 21
irtæki Bachy – Soletance, fyrirtæk-
inu sem lagði göngin undir
Ermarsund. Tilboðið sem DV birti í
frétt hljóðaði upp á 1,5 milljarða,
sömu upphæð og malbikunar-
slaufuskrímsli borgaryfirvalda á að
kosta. Þeirra tilboð og lausn miðast
við að hægt sé að byggja ofan á
stokknum. Jónas Snæbjörnsson,
umdæmisstjóri Vegagerðarinnar,
segir að tilboð fyrirtækisins miðist
eingöngu við stokkinn en ekki
kostnað við gatnamót. Hann getur
þess ekki að viðbótarkostnaður væri
500.000 við hvorn enda. Endanlegur
kostnaður við breytingu Hring-
brautar í umferðarstokk yrði því 2,5
milljarðar!
Hver er skýring á að ekki hefur
verið viðurkennt, að á móti kostnaði
við gerð stokks kemur ágóði af sölu
lóða ( 5–6 milljarðar) auk samfélags-
kostnaðar sem sparast fyrir borg-
arbúa? Ennfremur, að lagning
stokks og samfelld byggð á svæðinu
er í samræmi við óskir 60% borg-
arbúa, sem vilja búa í Vatnsmýrinni
eða nálægt gamla miðbænum, skv.
könnun Bjarna Reynissonar skipu-
lagsfræðings – og þannig ekki tekið
tillit til þessara 60%. Hver er réttur
borgarbúa í svo mikilvægu máli?
Hver er skýring á að hvorki hefur
verið sýnt fram á sparnað né hag-
kvæmni við slíka gjörð áður en fulln-
aðarákvörðun um staðsetningu og
stækkun á gömlu Landspítalalóðinni
hefur verið tekin? Eða, að annar val-
kostur, stækkun spítalans í Foss-
vogi hefur heldur ekki hlotið ná-
kvæma skoðun. Hvað liggur á?
Hindrum mistökin með
atkvæðagreiðslu í júní!
Kæru landsmenn og íbúar höf-
uðborgarsvæðis. Hindrum þetta
umhverfisslys, sem borgar- og sam-
gönguyfirvöld eru að kalla yfir okk-
ur.
Verum jafnframsýn í skipulags-
málum sem í flestum öðrum málum.
Vafasamir hagsmunir mega ekki
eyðileggja fyrir framtíðinni. Tökum
ekki undir pólitíska hagsmuni þeirra
sem styðja fyrirhugaða breytingu án
stokks, og án íbúðarbyggðar. Meiri-
hluti borgarstjórnar er löngu búinn
að ákveða sig og vill ekki hlusta á
önnur rök. Meirihlutinn virðist ekki
hafa hag af öðrum og framsæknari
hugmyndum – hvað þá manndóm til
að skipta um skoðun.
Á opna borgarafundinum 30.
mars sl. var samþykkt ályktun um,
að svo umdeilt og afdrifaríkt mál
ætti og skyldi fara í atkvæða-
greiðslu, helst í tengslum við vænt-
anlegar forsetakosningar 26. júní.
Ætla stjórnvöld ekki að bregðast við
ályktun borgarafundarins – eða á að
hunsa vilja fjölmargra Reykvíkinga?
Höfundur er kennari.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 21
Velkomin í Stykkishólm!
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Eyjar og lífríki Breiðafjarðar - Snæfellsnesið magnað og söguríkt
Fáðu úrslitin
send í símann þinn