Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 29
og föndrið sem þú hélst uppá í öll
þessi ár, en ekki varstu neitt að troða
okkur um tær og keyrðir frekar
fram hjá en að koma í kaffi (gerði
það svo sem sjálf líka er ég fór suður-
eftir) því kannski væri verið að ónáða
þar sem allir hefðu mikið að gera. Ég
skammaði þig fyrir þetta svo þú
bankaðir uppá seinna kominn í kaffi
til mín en nei, nei, bara börnin mín
heima þannig að þú baðst fyrir
kveðju til mín, mikið þykir mér vænt
um þetta en líka miður að hafa ekki
verið heima.
Símtölin sem við áttum þegar
mamma og pabbi voru erlendis og
þig farið að lengja eftir að heyra í,
enda fimmtudagskvöld fastur punkt-
ur hjá ykkur í mörg ár, eru mér dýr-
mæt í dag, við töluðum um allt og
ekkert en einu sinni sagðir þú mér
hvað þú elskaðir Gógó ömmu mikið
og saknaðir og þrátt fyrir að vera
trúaður þá værir þú ósáttur við að
Guð hefði tekið hana frá þér en núna,
afi minn, ertu kominn til ömmu sátt-
ur og brosir örugglega breitt og spil-
ar kannski líka golf en það þótti þér
mjög skemmtilegt og gerðir mikið af
á síðustu árum.
Bros, ást, virðing, væntumþykja,
bílar, postulínsdúkkur, blóm og bara
mjög góður kall er það sem Leifur,
Linda Sif, Smári Leó og Svanhildur
Lísa eru sammála mér að minnast
helst með hlýhug, kveðju og bæn,
Ó, Jesú bróðir besti
og barna vinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(Páll Jónsson)
Jæja, afi minn, þangað til næst.
Guð geymi þig.
Þín
Guðrún Ósk.
Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur
og kominn í faðm Gógó ömmu, þar
hefurðu ekki verið í 23 ár eða frá því
1981 þegar hún dó. Margar æsku-
minningar hafa komið upp í hugann
síðan þú féllst frá og ákvað ég því að
setja eitthvað á blað.
Minnisstæðastir eru sunnudags-
bíltúrarnir suður í Keflavík og síðar
Njarðvík. Þangað var gott að koma
og var manni alltaf sýnd ást og um-
hyggja. Mikið þótti mér gott að
stinga hendinni í lófann þinn og
gerði það enn þótt ég væri orðinn
fullorðin. Fjölskyldumyndir prýddu
veggi heimilis ykkar og þótti mér
alltaf gaman að skoða þær. Gjafirnar
sem þið gáfuð mér í jóla- og afmæl-
isgjafir eru varðveittar enn þann dag
í dag. Þar má nefna gylltan engil og
heklað rautt hjarta sem amma gerði.
Þetta hengi ég alltaf á jólatréð, og
síðast en ekki síst litli rauði stóllinn
sem þú smíðaðir handa mér og gafst
í tveggja ára afmælisgjöf. Sá stóll
prýðir nú herbergi dóttur minnar og
er alltaf jafn vinsæll.
Alltaf hélt ég að nógur tími væri til
að heimsækja þig, og það hefði ég
mátt gera oftar. Í augum dóttur
minnar varst þú mikill maður, þó svo
að þið sæjust ekki oft varst þú eini
langafi hennar sem hún þekkti og
var hún nýbúin að spyrja mig hve-
nær við færum heim til langafa og
svaraði ég þá hugsunarlaust bráð-
um, en nú er það of seint. Því er ekki
annað hægt en að kveðja þig með
góðum minningum og þúsund koss-
um.
Þitt barnabarn
Ingibjörg Ásta Þórisdóttir.
Á ferðalögum mínum síðastliðin ár
varð mér alltaf hugsað til afa á leið-
inni út á völl og þegar tími gafst til
leit ég í heimsókn, þar var alltaf tek-
ið á móti manni með brosi á vör. Afi
sýndi störfum mínum mikinn áhuga
og röbbuðum við oft á tíðum saman
um flugvélar og ferðalög. Það kom
oft á óvart hve vel hann fylgdist með
öllu flugi, enda kannski ekki nema
von með flugumferðina rétt fyrir of-
an sig. Afa þótti gaman að segja frá
ferðalögum sínum og oft rifjaði hann
upp ferðalög þeirra ömmu. Að þessu
sinni er áfangastaðurinn æðri okkar
tilveru og sú tilhugsun er ánægjuleg
að amma tekur á móti afa í þessari
ferð.
Birgitta.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 29
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR KRISTINSSON
frá Hafranesi,
Eyjabakka 2,
Reykjavík
sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund mánudaginn 5. apríl, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. apríl kl. 13.30.
Anna B. Stefánsdóttir,
Víðir Sigurðsson, Hlín Baldursdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Jónas Vignir Grétarsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVAVA HALLDÓRSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánu-
daginn 5. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
16. apríl kl. 15.00.
Halldór M. Gunnarsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Stella Gunnarsdóttir, Georg Ragnarsson,
Davíð Örn Halldórsson, Egill Már Halldórsson,
Gunnar Georgsson, Fjóla Georgsdóttir,
Daníel Máni Brandsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
GUÐRÚNAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Sporðagrunni 19,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heimahjúkrunar
og Félagsþjónustu fyrir góða umönnun og um-
hyggju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Bogi Stefánsson,
Ragna Hafdís Stefánsdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, dóttir, systir, mágkona og
tengdadóttir,
STEINUNN HELGADÓTTIR
félagsráðgjafi,
Grenimel 28,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 4. apríl
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 15. apríl kl. 13.30.
Þórður Óskarsson,
Eygló Ósk Þórðardóttir, Þorvarður R. Hálfdanarson,
Sara Elísa Þórðardóttir, Sigurður E. Guðmundsson,
Þórður Harry Kerr,
Helgi Kr. Halldórsson, Elísabet Gunnlaugsdóttir,
Lára V. Helgadóttir, Eric Johnson,
Margrét H. Helgadóttir, Siegfried Hügemann,
Gunnlaugur Helgason, Kristín Ágústa Valsdóttir,
Þuríður Eygló Þórðardóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
ÓLAFUR BJARNASON
fyrrverandi prófessor,
áður til heimilis
á Sléttuvegi 15,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2,
mánudaginn 5. apríl, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 15. apríl kl. 15.00.
Margrét Jóhannesdóttir,
Elín Ólafsdóttir, Leó Kristjánsson,
Kristrún Auður Ólafsdóttir, Skúli Pálsson,
Birna Þ. Ólafsdóttir Ros, Fredrik Ros.
Hann kunni að segja
sögur og alltaf var stutt
í gleðina og grínið. Þessi
orð eiga við tengdaföð-
ur minn hann Bjarna
Pálmarsson sem lést á
líknardeild Landakotsspítala mið-
vikudaginn 24. mars sl. Þeir sem
þekktu Bjarna geta eflaust tekið und-
ir orð mín. Hann lærði hljóðfærasmíði
hjá pabba sínum Pálmari Ísólfssyni
og í Bretlandi. En það átti ekki alveg
nógu vel við hann að grúska bara í
hljóðfærum svo hann gerðist bílstjóri
og ók strætisvögnum, rútum og leigu-
bílum alla tíð, ásamt því að sinna still-
ingum hljóðfæra og viðgerðum. Fyrir
vikið vissi Bjarni alltaf allt sem var að
gerast í borginni og sló hjarta hans í
takt við það. Ekki þýddi neitt að ætla
að segja honum fréttir, hann vissi allt
á undan okkur hinum. Bjarni dæmdi
fótboltaleiki á sínum yngri árum og
hann fylgdist alla tíð með fótbolta og
hafði gaman af. Eitt af því sem ein-
kenndi Bjarna voru fínu bílarnir hans.
Hann átti alltaf fallega bíla og hugsaði
vel um þá. Það voru ekki bílar ef þeir
voru ekki amerískir. Ég kom ung inn í
líf hans þegar ég kynntist Badda.
Hann þurfti auðvitað að vita allt um
þessa stúlku með krullurnar. En það
fyrsta sem ég man var að hann spurði
mig hvort þær væru ekta.
Alltaf var Bjarni tilbúinn að skutla
okkur til og frá ef svo bar við. Hann
var góður afi barnanna minna, sér-
staklega varð þeim vel til vina Hjör-
leifi mínum og honum og sagði Hjör-
leifur að nú yrði tómlegt þegar enginn
afi hringdi á kvöldin. Bjarna var mikið
í mun að krakkarnir menntuðu sig og
fylgdist alltaf með þeim og skóla-
göngu þeirra.
Oft hringdi ég í Bjarna þegar datt í
mig að steikja kleinur og bjóða hon-
um í kaffi, því honum þótti þær góðar.
Þá varð oft það sem átti að verða smá
innlit að tveggja tíma sögustund og
mikið hlegið og skrafað. Fyrir þessar
stundir og allar hinar vil ég þakka.
Bjarni var alla tíð heilsuhraustur,
hann kenndi sér meins í haust sl. en
ekkert benti til að meinið væri eins
slæmt og raunin varð. Hann háði erf-
iða baráttu síðustu fimm vikur. Ég vil
þakka honum samfylgdina og bið Guð
að blessa hann og tengdamömmu
mína sem nú á um sárt að binda. Ég
kveð kæran tengdaföður og þakka
honum samfylgdina.
Sigurbjörg Hjörleifsdóttir.
Við leiðarlok er þökkuð góð sam-
fylgd. Bjarna Pálmarssyni kynntist
ég fyrir allmörgum árum þegar ég
starfaði í menntamálaráðuneytinu og
BJARNI
PÁLMARSSON
✝ Bjarni Pálmars-son fæddist í
Reykjavík 11. febr-
úar 1930. Hann lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala 24. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 2.
apríl.
þurfti vegna starfs míns
að sækja fundi erlendis
allmörgum sinnum.
Þessar utanferðir voru
sjaldnast tilhlökkunar-
efni af ýmsum ástæðum
og var keppikefli að
vera sem stystan tíma í
burtu. Á þeim tíma er
ég kynntist Bjarna sá
hann um að aka ferða-
löngum til Keflavíkur á
vegum Flugleiða. Það
fyrirkomulag átti eftir
að breytast en ég hélt
áfram viðskiptum við
Bjarna Það var sama á
hvaða tíma leið lá til eða frá Keflavík,
alltaf létti hann manni lundina og
gerði þessar ferðir skemmtilegri en
þær hefðu verið ella. Hann leysti úr
hverjum vanda og var örlátur á tíma
sinn og góð ráð. Líklega hafa fáir skil-
ið jafnvel og Bjarni það álag sem tíðar
utanferðir hafa í för með sér. Hann
var einn af öryggispunktum í á tíðum
erlisamri tilveru og fyrir það, hlýhug
hans og stuðning alla tíð þakka ég.
Blessuð sé minning Bjarna Pálmars-
sonar.
Ég sendi Guðbjörgu og fjölskyldu
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Þórunn J. Hafstein.
Kveðja frá félögum í
Bifreiðastjórafélaginu Átaki
Við félagsmenn í Átaki viljum
þakka Bjarna fyrir þær góðu stundir
sem við áttum með honum á lífsleið-
inni en það var stórt skarð höggvið í
raðir okkar leigubílstjóra þegar
Bjarni Pálmarsson lést eftir erfið
veikindi. Bjarni var athafnamaður og
baráttumaður af lífi og sál. Það sést
best á því að það var leitað til Bjarna
með ýmis mál sem hann leysti fyrir
menn, þó svo að hann hafi ekki alltaf
fengið þakklæti fyrir eða borið skarð-
an hlut frá borði í þeim viðskiptum.
Bjarni var einn þeirra sem stofnaði
Bifreiðastjórafélagið Átak og var
hann formaður þess félags um tíma.
Það var Bjarna kappsmál að geta
hjálpað félögunum, en það eru margir
menn komir í leigubílaaksturinn fyrir
tilstilli Bjarna.
Bjarni bar þessi ekki merki að
hann væri veikur og hann bar það
ekki á borð fyrir aðra, en hafði það
fyrir sig. Hann var léttur í lund að eðl-
isfari og stutt í glensið og brosið ef svo
bar undir. Bjarni var góður sögumað-
ur og gaf sögum sínum líf eða þær
fengu aðra merkingu eftir því hver
átti í hlut. Bjarni var vinnuþjarkur og
var ekki sáttur nema vera í tveim til
þremur störfum eins og aðrir Íslend-
ingar. Fjölskyldan var Bjarna mikil-
væg og talaði hann með stolti um
konu og börn sín.
Við viljum kveðja Bjarna með virð-
ingu og votta Guðbjörgu konu hans
og börnum samúð okkar. Guð veri
með þeim á þessum erfiðu tímum.
Far í friði.
Fyrir hönd félagsmanna
Bifreiðstjórafélagsins Átaks,
Jón Stefánsson.
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma).
Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morg-
unblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins
Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum grein-
um.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar
og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og
klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi,
mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu-
degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma.
Birting afmælis- og
minningargreina