Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 30
MINNINGAR
30 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bæna-
stund. Allir velkomnir. Tólf spora fundur kl.
19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara
starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist
mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl.
13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13.
Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma
511 5405.
Langholtskirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.
Fjölbreytt starf fyrir 7–9 ára börn. Umsjón
hafa Ólafur Jóhann og Þóra Guðbjörg.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla Laug-
arneskirkju kl. 20. Sr. Bjarni tekur upp
þráðinn og kennir hvert þriðjudagskvöld
fram á vor. Efni kvöldsins: Er upprisa Jesú
goðsögn eða bókstaflegur veruleiki? At-
hugið þriðjudagur með Þorvaldi verður
næsta þriðjudag, 20. apríl.
Neskirkja: Litli kórinn – kór eldri borgara
kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman.
Allir velkomnir. Foreldramorgunn miðviku-
dag kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16. Starf fyrir
10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30. TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf
ára börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15 í
kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Kl. 12 létt-
ur hádegismatur, helgistund og samvera.
Kaffi. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–
19. KFUM&KFUK fyrir 10–12 ára börn kl.
17–18.15, húsið opnað kl. 16.30. (sjá
nánar:www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12
ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30–15.30. Helgistund,
söngur, spil og spjall. Kaffi og alltaf eitt-
hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–18.30.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10.
bekk í Grafarvogskirkju kl. 20.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl.
9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs-
sonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Sam-
verustund kl. 14.30–16. Fræðandi inn-
legg í hverri samveru. Lagið tekið undir
stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og
stutt helgistund. Allir hjartanlega vel-
komnir. Starf með 8–9 ára börnum í Borg-
um kl. 17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og
Bóasar. Starf með 10–12 ára börnum á
sama stað kl. 18–19 í umsjón Dóru Guð-
rúnar og Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í
Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA, yngri deild, kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–
12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmti-
legar stundir fyrir hressa krakka. Æsku-
lýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan fund
kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi
þessara hópa hafa Anna Hulda Einars-
dóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22
er opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og
konur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, ör-
yrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spil-
að, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni
lýkur með helgistund kl. 16. Umsjónar-
maður Nanna Guðrún djákni. Þorlákur
sækir þá sem vilja og ekur þeim heim.
Sími 869-1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
Kirkjuprakkarar Landakirkju, 6–8 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar,
kóræfing yngri hóps. Kl. 17.10 Litlir læri-
sveinar, kóræfing eldri hóps. Stjórnandi
Joanna Wlaszczyk og Kristín Halldórsdótt-
ir.
Keflavíkurkirkja. Alfa-hópur kemur sam-
an í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur máls-
verður, samfélag og fræðsla um kristna
trú. Einnig verður komið inn á stöðu at-
vinnulausra. Umsjón María Hauksdóttir.
Styrktaraðilar eru Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur og nágrennis,
Verslunarmannafélagið og Iðnsveina-
félagið ásamt Keflavíkurkirkju. Allir vel-
komnir.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp-
lýsingar á www.kefas.is
AD KFUK, Holtavegi 28. Enginn fundur í
kvöld.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf
ÚRSLIT Íslandsmótsins í brids
hafa sjaldan verið jafn spennandi og
nú um páskana en þegar eitt spil var
eftir af mótinu gátu þrjár sveitir
unnið og raunar var ljóst að grípa
yrði til útreikninga á innbyrðisleikj-
um til að fá fram úrslit.
Á endanum stóð sveit Eyktar uppi
sem sigurvegari. Sveitin fékk 245
stig, jafnmörg og sveit Orkuveitu
Reykjavíkur en úrslit innbyrðis-
leikja voru Eykt í vil. Sveit Þriggja
frakka varð í 3. sæti með 243 stig og
sveit Ferðaskrifstofu Vesturlands
fékk 237 en þessar fjórar sveitir
spiluðu til úrslita um Íslandsmeist-
aratitilinn á laugardag.
Tólf sveitir spiluðu fyrst einfalda
umferð og hafði sveit Eyktar oftast
forustuna í mótinu. Fjórar efstu
sveitirnar spiluðu síðan til úrslita og
fyrir síðustu umferð stóð sveit Eykt-
ar best að vígi. Í þessum leik mætti
Eykt sveit Þriggja frakka, sem kom
inn í úrslitin sem varasveit, og virtist
um tíma ætla að vinna auðveldan sig-
ur. En þegar leikurinn var hálfnaður
snéru „Frakkarnir“ vörn í sókn og
fengu hverja sveifluna á fætur ann-
arri í sinn dálk. Fyrir síðasta spilið
stóð leikurinn í 19:11, Þremur frökk-
um í vil, og sömuleiðis leikur Orku-
veitunnar og FV, fyrrnefndu sveit-
inni í vil.
Staðan í mótinu, fyrir síðasta spil-
ið var sú, að Þrír frakkar og Orku-
veitan höfðu 245 stig, Eykt 243 stig
og FV 237. Ef staðan breyttist ekk-
ert í síðasta spilinu sáu menn í hendi
sér að sveit Þriggja frakka yrði Ís-
landsmeistari því sveitin hafði betur
í innbyrðisviðureignum við sveit
Orkuveitunnar.
Síðasta spilið virtist sakleysislegt:
Vestur gefur, AV á hættu.
Norður
♠K
♥97
♦K974
♣ÁD9732
Vestur Austur
♠D965 ♠Á72
♥ÁKG3 ♥D6
♦DG108 ♦632
♣G ♣K10864
Suður
♠G10843
♥108542
♦Á5
♣5
Það yrði sennilega torsótt að
hnekkja þremur gröndum í AV en
samanlagðir punktar eru aðeins 23
og því erfitt að komast í geimið. Spil-
ið féll í leik Orkuveitunnar og FV,
báðar sveitir fengu 100 í AV.
Í sveit Þriggja frakka og Eyktar,
sem sýndur var á tjaldi, gengu sagn-
ir í opna salnum þannig þar sem Jón
Baldursson og Þorlákur Jónsson,
liðsmenn Eyktar,sátu NS og Jón
Sigurbjörnsson og Kristján Blöndal í
Þremur frökkum AV:
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 2 lauf pass pass
dobl pass pass redobl
pass 2 tíglar pass 2 hjörtu
pass pass pass
Redobl suðurs var svonefnt flótta-
redobl og upphaf leitar að betri
tromplit en laufi. Kristján í vestur
ákvað að fara varlega og dobla ekki 2
hjörtu þótt hann ætti gott hjarta.
Þorlákur fékk því að spila 2 hjörtu
ódobluð og þegar vörnin missteig sig
slapp sagnhafi einn niður, 50 til AV.
Það dróst nokkuð að úrslit bærust
úr lokaða salnum og menn veltu fyrir
sér möguleikunum. Þrír frakkar
höfðu 18 imp-stiga forskot í leiknum
og máttu tapa þremur stigum á
spilinu án þess að úrslit leiksins
breyttust. Ef AV næðu að dobla NS í
2 laufum eða 2 hjörtum við hitt borð-
ið og fengju 300 myndi Eykt græða 6
stig, leikurinn enda 18:12 fyrir Þrjá
frakka. Færi svo yrði sveit Orkuveit-
unnar Íslandsmeistari.
Í raun gengu sagnir þannig í lok-
aða salnum þar sem Rúnar Magn-
ússon og Sigurður Vilhjálmsson sátu
NS fyrir Þrjá frakka og Aðalsteinn
Jörgensen og Sverrir Ármannsson
AV
fyrir Eykt.5
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 2 lauf pass pass
dobl pass pass redobl
pass 2 tíglar pass 2 hjörtu
dobl pass pass pass.
Sagnirnar byrjuðu eins og í opna
salnum en nú doblaði Sverrir 2
hjörtu og vörnin gerði engin mistök.
Út kom tíguldrottning sem sagnhafi
drap heima og spilaði spaða á kóng
og ás Aðalsteins. Hann tók hjarta-
drottningu og spilaði meira hjarta og
Sverrir tók alla hjartaslagina og
skipti í lauf. Eftir þessa byrjun gat
sagnhafi aðeins fengið 5 slagi og fór
3 niður, 500 til Eyktar og 10 stig.
Leikurinn endaði því 17:13 fyrir Þrjá
frakka en sigurinn var Eyktar-
manna.
Ásamt þeim Aðalsteini, Jóni,
Sverri og Þorláki spiluðu Sigurður
Sverrisson og Ragnar Hermannsson
í sigursveitinni. Í sveit Orkuveitunn-
ar spiluðu Anton Haraldsson, Sigur-
björn Haraldsson, Bjarni Einarsson,
Þröstur Ingimarsson, Sævar Þor-
björnsson og Páll Valdimarsson. Og í
sveit Þriggja frakka spiluðu auk
Kristjáns, Jóns, Rúnars og Sigurðar
þeir Steinar Jónsson og Valur Sig-
urðsson.
Þrjár sveitir gátu unnið
þegar eitt spil var eftir
BRIDS
Hótel Loftleiðir
Íslandsmótið í sveitakeppni
Íslandsmótið í brids var haldið dagana 7.
til 10. apríl. 12 sveitir tóku þátt. Hægt er
að skoða spil og úrslit á heimasíðu
Bridgesambands Íslands: www.bridge.is
Morgunblaðið/Golli
Sveit Eyktar. Frá vinstri eru Þorlákur Jónsson, Sigurður Sverrisson, Jón
Baldursson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson og Ragnar Her-
mannsson.
Guðm. Sv. Hermannsson
✝ Kristín Jensdótt-ir fæddist á Ak-
ureyri 29. júní 1921.
Hún lést 4. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Jens Evertsson, f. 22.
september 1867, d.
15. maí 1935 á Ak-
ureyri, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 20.
október 1878, d. 23.
júlí 1942. Systkini
Kristínar voru Sig-
urður. f. 13. des.
1903, d. 3. nóv. 1960,
Anna Guðný, f. 21.
maí 1905, d. 24. sept. 1980, Unn-
ur, f. 1. sept. 1908, d. 26. maí
1984, María, f. 5. apríl 1911, d.
14. maí 1970, Dagmar, f. 9. júlí
1912, d. 17. des. 1995, Jóhanna, f.
6. jan. 1913, d. 13. mars 1995,
Hilmar, f. 15. apríl 1914, d. 27.
júlí 1977.
Kristín giftist eft-
irlifandi eiginmanni
sínum Kristjáni
Stefánssyni, f. 2.
ágúst 1920 á Akur-
eyri. Börn þeirra
eru: 1) Guðrún Gísl-
ína, f. 10. maí 1944,
búsett í Barcelona,
gift Antonio Orp-
inell, f. 8. jan. 1938
og eiga þau þrjú
börn og fjögur
barnabörn. 2) Krist-
ján, f. 11. júlí 1963,
búsettur í Frakk-
landi, kvæntur Sig-
rúnu Guðmundsdóttur, f. 28. nóv.
1970, og eiga þau tvö börn, en
fyrir á Kristján einn son og er
barnsmóðir hans Hanna Dröfn
Gunnarsdóttir, f. 5. apríl 1964.
Útför Kristínar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Látin er á Akureyri elskuleg
ömmusystir mín Kristín Jensdótt-
ir. Stína frænka, eins og ég kallaði
hana alltaf, var afar hlý og hjarta-
hrein kona. Ég var svo lánsöm að
kynnast henni og njóta góðvildar
hennar og væntumþykju.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund og ég lít til baka eru margar
ljúfar minningar sem að koma upp
í huga minn. Allar skemmtilegu
ferðirnar með afa Gísla og ömmu
Dæju inn á Akureyri til að heim-
sækja Stínu og Kidda. Góðu dag-
ana sem við áttum líka saman á
Siglufirði þegar þau komu í heim-
sókn með Kristján með sér og ég
fékk að vera hjá afa og ömmu og
leika við Kristján.
Aldrei var farið til Akureyrar án
þess að koma við á notalegu og fal-
legu heimili þeirra hjóna, í Hrís-
eyjargötu 10 og þar var ávallt tek-
ið á móti okkur af einstakri hlýju
og gestrisni. Oft var líka erfitt að
standa upp og kveðja og halda
ferðinni áfram.
Börnin þeirra Stínu og Kidda,
Gullý búsett á Spáni til margra
ára og Kristján búsettur í Frakk-
landi, og fjölskyldur þeirra voru
og eru þeim afar kær og oft á tíð-
um örugglega erfitt að hafa þau
ekki nær. En fyrst myndir, snæld-
ur og síðar vídeóspólur með upp-
tökum af börnum, tengdabörnum,
barnabörnum og nú síðustu ár
barnabarnabörnum, með kveðjum
við leik og störf styttu þeim stund-
irnar og biðina eftir næstu sam-
fundum.
Eftir að ég stofnaði mína fjöl-
skyldu hefur hún bundist Stínu og
Kidda góðum böndum og vìð átt
saman góðar stundir bæði í
Reykjavík, þegar þau hafa komið
og gist hjá foreldrum mínum,
Stínu og Badda. Einnig þegar við
höfum átt leið um Akureyri, enn í
dag fer ég helst ekki norður án
þess að líta inn hjá Stínu og
Kidda, nú síðast í notalegri íbúð
þeirra í Víðilundi, sem þau keyptu
nýverið og komu sér vel fyrir eins
og þeim er lagið.
Síðustu árin var Stína frænka
ekki heil heilsu og það var aðdáun-
arvert að fylgjast með hversu
elskulegur, natinn og þolinmóður
Kiddi var við hana og sá til þess að
hún gæti tekið þátt í öllu því sem
fyrir bar af sömu reisn og áður.
Fyrir tveimur árum hittust í
fyrsta sinnið afkomendur Jens
Evertssonar og Guðrúnar Jóns-
dóttur, foreldra Stínu, og var það
ættarmót afar vel sótt og margir
að hittast í fyrsta skipti. Það var
okkur ættingjunum mikil ánægja
að Stína og Kiddi skyldu sjá sér
fært að koma að norðan og vera
með okkur þessa daga. Stína,
yngst barna þeirra hjóna og sú
eina sem var eftirlifandi af barna-
hópnum þeirra. Mikið óskaplega
var ég stolt og ánægð með nær-
veru þeirra, að eiga þau að og vera
með þeim.
Þarna hitti Stína nokkra eftirlif-
andi maka systkina sinna, börn
þeirra og fjölskyldur. Margt var
rifjað upp, fréttir fluttar og stiginn
dans.
Elsku Kiddi minn, hugur okkar
Heiðars er hjá þér, Gullý, Krist-
jáni og fjölskyldum. Það tekur
okkur afar sárt að geta ekki verið
á Akureyri í dag og fylgt Stínu
frænku. Við sendum ykkur öllum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Stínu frænku þakka ég fyrir allt
og bið góðan Guð að blessa og
varðveita minningu hennar.
Dagmar Jensdóttir.
KRISTÍN
JENSDÓTTIR
Elsku Stebbi.
Ég man þegar við
kynntumst í Byrginu
2001. Þú varst svo
skemmtilegur og góð-
ur strákur og með
hlýleg augu. Mér
þótti strax vænt um þig. Mér
fannst þú æðislegur og ég lét þig
alveg vita af því. Ég held meira að
segja að „u know who“ hafi verið
soldið abbó. Og meira að segja
þegar við vorum að rugla saman
hafðirðu góða nærveru. Það er
töluvert síðan við hittumst síðast
STEFÁN HEIÐAR
BRYNJÓLFSSON
✝ Stefán HeiðarBrynjólfsson
fæddist í Reykjavík
5. nóvember 1978.
Hann andaðist í
Reykjavík 9. mars
síðastliðinn. Útför
hans hefur farið
fram.
og mér hefur oft orðið
hugsað til þín á þess-
um tíma. Ég bað alltaf
fyrir kveðju til þín
þegar ég gat og þótti
alltaf vænt um að fá
kveðju frá þér til
baka. Þegar við Al-
mar kynntumst töluð-
um við mikið um þig
og mig var farið að
langa svo að hitta þig
aftur. En ég veit að
barátta þín var löng
og ströng elsku
Stebbi. Og ég vona og
óska að þú hafir loks-
ins fundið frið frá þessu helvíti.
Við munum hittast síðar.
Mér þykir ofsalega vænt um þig
og bið Guð að geyma þig alltaf.
Ég votta líka öllum aðstandend-
um samúð mína og bið Guð um
styrk og vernd þeim til handa.
Sigurrós Yrja.