Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 31
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 31 Íþróttamót Fáks, KFC og Góu Fjórgangur áhugamanna 1. Sara Sigurbjörnsdóttir á Hergli frá Oddhóli, 6,32 2. Edda H. Hin- riksdóttir á Ísak frá Ytri-Bægisá II, 6,29 3. Arna Ý. Guðnadóttir á Dagfara frá Hvammi II, 6,17 4. Ólöf Guðmundsdóttir á Hrafni frá Berustöðum, 6,15 5. Valdimar Bergstað á Hauki frá Akurgerði, 6,13 6. Óskar Sæberg á Gandi frá Auðsholtshjáleigu, 5,68 Fimmgangur áhugamanna 1. Hannes Sigurjónsson á Stormi frá Strönd, 5,88 2. Anna K. Krist- insdóttir á Golu frá Iðu, 5,69 3. Íris H. Grettisdóttir á Nubbi frá Hól- um, 5,52 4. Susi H. Petersen á Drífu frá Miðhjáleigu, 5,46 5. Arna Ý. Guðnadóttir á Neista frá Efri- Rauðalæk,. 5,11 Fjórgangur opinn flokkur 1. Sigurður V.Matthíasson á Töfra frá Selfossi, 6,56 2. Hinrik Braga- son á Stefni frá Breið, 6,49 3. Hulda Gústafsdóttir á Benna frá Teigi, 6,42 4. Róbert Petersen á Hvönn frá Reykholti, 6,13 5. Snorri J. Valsson á Kosti frá Köldukinn, 6,01 Fimmgangur opinn flokkur 1. Hinrik Bragason á Óskahrafni frá Brún, 6,38 2. Hulda Gúst- afsdóttir á Sögu frá Lynghaga, 6,34 3. Sigurður V. Matthíasson á Stokki frá Stokkseyri, 6,34 4. Edda Rún Ragnarsdóttir á Örnu frá Varmadal, 5,84 5. Jón Ó. Guð- mundsson á Hvata frá Saltvík, 5,49 Þriðja vetrarmót Gusts Pollar 1. Valdís B. Guðmundsdóttir og Litli-Rauður frá Svignaskarði 14v 2. Eyþór Ö. Hafliðason og Hrafn frá Erpsstöðum 7v 3. Halldór L. Sigurðarson og Harri frá Erpsstöðum 6v 4. Auður Á. Waagfjörð og Bleikur frá Nefsholti 12v 5. Kristín Hermannsdóttir og Mímir frá Skeiðháholti 17v Börn 1. Berta M. Waagfjörð og Friðsemd frá Kjarnholtum 6v 2. Ástríður Magnúsdóttir og Pjakkur frá Garðabæ 7v 3. Guðný B. Guðmundsdóttir og Sjöstjarna frá Svignaskarði 12v 4. Freyja R. Magnúsdóttir og Dísa frá Hrepphólum 10v 5. Guðlaug R. Þórsdóttir og Nótt frá Valstrýtu 6v Unglingar 1. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson og Vængur frá Köldukinn 9v 2. Freyja Þorvaldardóttir og Salka frá Vatnsleysu 9v 3. Sigrún Ý. Sigurðardóttir og Sörli frá Kálfhóli 12v 4. Erna Björnsdóttir og Svalur frá Blesastöðum 9v 5. Petrína Friðbjörnsdóttir og Djákni frá Varmalæk 11v Ungmenni 1. Sigvaldi L. Guðmundsson og Stjarni 9v 2. Tryggvi Þ. Tryggvason og Skrekkur frá Stóra-Sandfelli 13v 3. Ólafur A. Guðmundsson og Leiftur frá Búðardal 6v 4. Sveinn Yngvi og Gerpir frá Múlakoti 8v 5. Sigurjón B. Geirsson og Seyðir frá Hjalla 6v Konur II 1. Þórunn E. Clausen og Orka frá Múlakoti 11v 2. Svandís Sigvaldadóttir og Bifröst frá Skógskoti 11v 3. Auður Jónsdóttir og Stelkur frá Árgerði 7v 4. Guðríður Arnardóttir og Hrafn frá Erpsstöðum 7v 5. Helga Þóra og Núpur frá Hörgshóli 13v Karlar II 1. Bjarni Bragason og Mjölnir frá Hofi I 8v 2. Friðbjörn Kristjánsson og Dís frá Enni 9v 3. Sigurður Ólafsson og Nelson frá Akureyri 7v 4. Hörður Gunnarsson og Prestur frá Forsæti 5. Logi Guðmundsson og Ljúfur frá Núpi 10v Heldri menn og konur 1. Magnús Matthíasson og Dynur frá Hafsteinsstöðum 8v 2. Viktor Ágústsson og Hríma frá Birtingarholti 8v 3. Ásgeir Heiðar og Þorri frá Forsæti 8v 4. Ásgeir Guðmundsson og Blossi frá Eyjarhólum 8v Konur I 1. María Rassmussen og Glaður frá Skipanesi 7v 2. Hulda G. Geirsdóttir og Dimma frá Skagaströnd 14v 3. Berglind Rósa Guðmundsdóttir og Gerpla frá Svignaskarði 6v 4. Ásta D. Bjarnadóttir og Eldur frá Hóli 14v 5. Helga R. Júlíusdóttir og Fengur frá Kópavogi 17v Karlar I 1. Bjarni Sigurðsson og Hrannar frá Skeiðháholti 14v 2. Þorvaldur Gíslason og Kjarni frá Kálfholti 8v 3. Davíð Viðarsson og Pjakkur frá Garðabæ 7v 4. Jakob Guðmundsson og Piltur frá Litlu-Sandvík 5. Guðmundur Jóhannesson og Þrá frá Skorholti 11v Úrslit hjá Fáki og Gusti Ámóti landsliðsnefndar varboðið upp á tvenns konarkeppni og byrjað á keppnistóðhesta þar sem sýnt var hægt tölt, brokk og svo fegurð- artölt sem almennt er dulnefni á yf- irferðinni þegar keppt er á ís. Dóm- ari í stóðhestakeppninni var Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunaut- ur og honum til fulltingis var bróðir hans Guðjón Sigurðsson en þeir bræður reka sem kunnugt er hrossaræktarbúið í Kirkjubæ. Spurður um hvaða dómskala þeir notuðu svaraði Ágúst á þá leið að hann hefði verið hannaður á miðri Hellisheiði og fer því vel á að kalla hann Hellisheiðarskalann. Til leiks voru skráðir mjög áhugaverðir hestar þótt heimtur á þeim hestum sem í skránni voru hafi verið frekar slæmar. Af nokkr- um góðum bar af í þessum hópi Rökkvi frá Hárlaugsstöðum sem er greinilega að styrkjast og má reikna með honum sem firna sterk- um keppnishesti á sumri komandi verði honum att fram á þeim vett- vangi. Knapi var Haukur Tryggva- son og fór greinilega vel á með þeim. Verður fróðlegt að fylgjast með framgangi Rökkva á sviði kyn- bótanna á næstu árum en hann er undan Otri frá Sauðárkróki og Sneglu frá Hala sem er undan Þokka frá Garði. Ættarsamsetning Rökkva er því mjög svipuð Orra frá Þúfu sem vissulega er spennandi þótt tæplega sé hægt að tala um að hann beri nýtt og ferskt blóð í ís- lenska hrossrækt. Sveinn Hervar frá Þúfu kom næstur en hann sat Lena Zielensky og var gaman að bera þessa tvo hesta saman á brokki, sá fyrrnefndi skrefa- og svifmikill en sá síð- arnefndi tíðari en kraftmikill svo af bar. Í þriðja sæti kom svo Sæli frá Holtsmúla sem tengdasonur Ís- lands, Karly Zingsheim, sat af sinni alkunnu snilld. Bæði Sveinn Hervar og Sæli eru undan Orra frá Þúfu og því ljóst að Otur frá Sauðárkróki kom sterkur út úr þessari keppni, faðir þess efsta og föðurfaðir tveggja næstu. Þá átti Þokki frá Garði líka sinn skerf af úrslitahest- unum því auk þess að að vera móð- urfaðir Rökkva þá er sá fjórði, Þjarkur frá Kjarri sem Einar Öder Magnússon sýndi, undan Þokka. Í fimmta sætinu varð svo Þjótandi frá Svignaskarði sem Daníel Ingi Smárason sýndi. Spennandi töltkeppni Töltkeppni kvöldsins var ekki síður spennandi þar sem hinir þraut- reyndu ísjaxlar Sigurbjörn Bárð- arson og Markús frá Langholtsparti leiddu keppnina að lokinni for- keppni en ekki var ýkja langt í Sig- urð Sigurðarson og Oliver frá Aust- urkoti. Í úrslitum mættu Sigurður og Oli- ver tvíefldir til leiks og mátti öllum ljóst vera eftir hæga töltið í úrslit- um að á brattann yrði að sækja fyrir Sigurbjörn og Markús. Enda fór það svo að þeir urðu að lúta í lægra haldi þótt litlu munaði. Hulda Gúst- afsdóttir vann sig upp um tvö sæti á Sjarma frá Skriðuklaustri, Olil Amble hélt sínu fjórða sæti en heimsmeistarinn í tölti, sem keppti á Töfra frá Kjartansstöðum, hafði sætaskipti við Huldu. Töfri var reyndar ekki svipur hjá sjón miðað við það sem hann hefur sýnt áður og undruðu margir sig á hvers vegna þeir félagar komust í úrslit. Góður rómur að sýningunni Þulir kvöldsins voru Sigurður Sæmundsson og Eysteinn Leifsson og var á þeim fyrrnefnda að heyra að landsliðsnefnd hygðist halda áfram með mót sem þetta á laug- ardagskvöld fyrir páska, í það minnsta var veittur farandbikar fyrir efsta sætið í töltkeppninni. Góður rómur var gerður að þessari stórsýningu enda aðstaða fyrir slík- an viðburð í Egilshöll afar góð. Helst var þó fundið að því að ekki væri hægt að kaupa sér bjór á neðri hæð hússins og vakti það athygli hversu margir voru með plastpoka með sér – hvað svo sem í þeim var. Tölt 1. Sigurður Sigurðarson á Oliver frá Austurkoti. 8,33/8,84. 2. Sigurbjörn Bárðarson á Markúsi frá Langholtspari, 8,43/8,81. 3. Hulda Gústafsdóttir á Sjarma frá Skriðuklaustri, 7,97/8,49. 4. Olil Amble á Ræsi frá Feti, 8,00/8,48. 5. Jóhann Skúlason á Töfra frá Kjartansstöðum, 8,03/8,36. Stóðhestar 1. Haukur Tryggvason á Rökkva frá Hárlaugsstöðum. 2. Lena Zielensky á Sveini Hervari frá Þúfu. 3. Karly Zingsheim á Sæla frá Holtsmúla. 4. Einar Öder Magnússon á Þjarki frá Kjarri. 5. Daníel Ingi Smárason á Þjótanda frá Svignaskarði. Stórsýning landsliðsnefndar LH á skautasvellinu í Egilshöll Stillingin og fasið hjá Oliver vakti verðskuldaða aðdáun sýn- ingargesta og sigldi Sigurður honum til sigurs af öryggi í harðri keppni við Sigurbjörn og Markús. Hún virðist torsótt leiðin að fyrsta sætinu hjá Sigurbirni og Markúsi en þeir hafna nú öðru sinni í öðru sæti á rúmri viku. Góður árangur eigi að síður. Sjarmerandi par á uppleið, Hulda Gústafsdóttir á Sjarma frá Skriðuklaustri, en þau unnu sig upp um tvö sæti og lentu í þriðja sæti í tölti á svellinu í Egilshöllinni á laugardag. Oliver og Rökkvi stjörnur kvöldsins Skautahallarævin- týrum hestamanna lauk í hinni nýju skautahöll í Egilshöll- inni á laugardag með móti landsliðsnefndar LH þar sem Valdimar Kristinsson skemmti sér konunglega ásamt fjölda annarra. Morgunblaðið/Vakri Sigurreifur Sigurður á hinum faxprúða Oliver frá Austurkoti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.