Morgunblaðið - 13.04.2004, Síða 35
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 35
Nafn féll niður
Í formála minningargreina um
Gerði Sigfúsdóttur á blaðsíðu 40 í
Morgunblaðinu á sunnudag, páska-
dag, féll niður nafn sambýlismanns
Gerðar til 16 ára, Sesars Sigmunds-
sonar, f. 1938.
LEIÐRÉTT
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að hörðum árekstri á
gatnamótum Miðtúns og Nóatúns
sunnudaginn 11. apríl kl. 22.54. Þar
lentu saman græn Audi fólksbifreið
og óþekkt bifreið, ljósleit, hvít eða
silfurlituð með svörtum skásettum
röndum á hliðum en hún ók burt.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar um
bifreiðina eru beðnir að snúa sér til
lögreglunnar.
Lýst eftir vitnum
TVEIR jeppamenn sem Flugbjörg-
unarsveitin á Hvolsvelli leitaði að á
laugardag, fundust samdægurs um
klukkan 15 en jeppi þeirra hafði fest í
krapapytti í Breiðaskarði, austan við
Heklu. Talið er að jeppi mannanna
hafi verið fastur frá því á föstudaginn
langa. Mennirnir voru á Willy’s
jeppa með 38 tomma dekkjum og
lýsti lögreglan á Hvolsvelli eftir hon-
um þegar ekkert spurðist til þeirra.
Jeppamenn fundust
Námskeið um hitun sumarbú-
staða. Endurmenntun Háskóla Ís-
lands stendur fyrir námskeiði um
hitun sumarbústaða. Fjallað verður
um mismunandi aðferðir við upp-
hitun sumarhúsa, þ.e.a.s. notkun á
heitu vatni, rafmagni og gasi. Einn-
ig verður fjallað um hvernig á að
leggja þessa hitagjafa. Farið verður
í kostnað við rekstur heitra potta
og ýmsa möguleika þar að lútandi
o.fl.
Námskeið er ætlað eigendum og
umsjónarmönnum sumarbústaða og
frístundahúsa. Kennari á námskeið-
inu verður Sigurgeir Þórarinsson
tæknifræðingur. Námskeiðið verður
haldið 3 kvöld, þriðjudagskvöldið
20. apríl, þriðjudagskvöldið 27. apríl
og fimmtudagskvöldið 29. apríl, kl.
20.15–22.15 öll kvöldin.
Námskeið og fyrirlestur með
Gloriu D. Karpinski. Dagana 5.–16.
maí n.k. heldur Gloria D. Karpinski,
andlegur leiðbeinandi og heilari frá
Bandaríkjunum, fyrirlestra og nám-
skeið hér á landi. Fyrirlestur verð-
ur í Menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi, miðvikudaginn 5. maí kl. 20.
Helgarnámskeið verður að Gufu-
skálum á Snæfellsnesi, 7.–9. maí og
eins og hálfs dags námskeið að
Dalsá í Mosfellsdal, 15.–16. maí.
Á NÆSTUNNI
BREYTINGAR hafa verið gerðar á
háskólaráði Háskólans í Reykjavík.
Ný eru Ásdís Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri og Svanbjörn Thoroddsen,
forstjóri Medcare Flögu hf., en þau
koma í stað Harðar Arnarsonar for-
stjóra og Bjarna Snæbjarnar Jóns-
sonar ráðgjafa. Áfram sitja í há-
skólaráði Jón Sigurðsson, forstjóri
Össurar, Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri eignastýringar
Íslandsbanka, og Sverrir Sverrisson,
framkvæmdastjóri Ráðgjafar og
efnahagsspár ehf., sem jafnframt er
formaður. Einnig situr Guðfinna S.
Bjarnadóttir, rektor HR, fundina.
Breytingar á
háskólaráði HR
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Aftari röð f.v.: Sigurður B. Stefánsson, Svanbjörn Thoroddsen, Ásdís Halla
Bragadóttir. Fremri röð f.v.: Jón Sigurðsson, Guðfinna S. Bjarnadóttir,
Sverrir Sverrisson.
STÓRMEISTARINN Hannes
Hlífar Stefánsson sigraði á Skák-
þingi Íslands eftir hörkueinvígi við
Helga Áss Grétarsson. Úrslitaein-
vígið um Íslandsmeistaratitilinn
hófst af sama krafti og einkenndi
allt mótið. Hannes sigraði Helga
Áss í fyrstu skákinni þar sem
Hannes stýrði hvítu mönnunum, en
í annarri skákinni var Helgi nálægt
því að jafna metin í mikilli baráttu-
skák. Hann varð þó að lokum að
sættast á skiptan hlut og þannig
lauk þriðju og fjórðu skákinni einn-
ig. Hannes sigraði því í einvíginu
með 2½ vinningi gegn 1½. Þröstur
Þórhallsson varð í þriðja sæti á
mótinu eftir 2-0 sigur gegn Braga
Þorfinnssyni.
Lenka Ptácniková sigraði annað
árið í röð á Íslandsmóti kvenna sem
háð var samhliða landsliðsflokki.
Önnur í röðinni, og jafnframt Ís-
landsmeistari kvenna, varð Harpa
Ingólfsdóttir. Í þriðja sæti varð
Guðlaug Þorsteinsdóttir og Sigur-
laug Friðþjófsdóttir í því fjórða.
Ingvar Þór Jóhannesson sigraði í
áskorendaflokki skákþingsins,
hlaut 7 vinninga í níu umferðum.
Þeir Heimir Ásgeirsson, Guðmund-
ur Kjartansson og Davíð Kjartans-
son deildu öðru sæti og fengu allir
6½ vinning.
Teflt var í húsnæði Orkuveitu
Reykjavíkur og voru aðstæður þar
til fyrirmyndar. Það væri eftirsókn-
arvert ef unnt væri að skapa þessu
veglega móti fastan samastað við
jafn góðar aðstæður og boðið var
upp á hjá Orkuveitunni.
Fyrsta skákin í einvígi þeirra
Hannesar og Helga Áss reyndist
úrslitaskák einvígisins. Þetta var
hörkuskák.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Pircvörn
1.e4 d6 2.d4 Rf6 3.Rc3 g6 4.Be3
c6 5.Dd2 b5 6.Bd3 Rbd7 7.Rf3 e5
8.dxe5 dxe5 9.h3 Bb7 10.0–0 De7
Nýr leikur í þessari stöðu, en
hann kemur síðar í
mörgum tilvikum.
11.a4 b4
Svartur leikur yf-
irleitt 11.—a6 í stöð-
um sem þessari, en
óvenjuleg leikjaröð
Helga veldur því, að
hvítur á skemmtilega
mannsfórn, sem erf-
itt er að verjast:
12.axb5 cxb5
13.Rxb5!? axb5
14.Hxa8+ Bxa8
15.Ha1 Dd8 16.Bxb5
Be7 17.Rxe5 Bxe4
18.Rxd7 Rxd7
19.Ha7 Bf5
20.Bxd7+ Bxd7
21.Bb6 Dc8 22.Dd4 f6 23.Hc7 Dd8
24.Hc3 Da8 25.He3 Dc6 26.Dc5 og
svartur gafst upp (Adams-Bisby,
Hastings 1995).
12.Re2 a5 13.c3 Rc5 14.Bxc5
Dxc5 15.cxb4 axb4 16.Hfc1?! –
Þessi leikur liggur hendi næst,
en er ekki sá besti. Eftir 16.Rc1!
Bg7 17.Rb3, ásamt Bc4 og De3,
hefur hvítur mun betri tök á stöð-
unni heldur en í skákinni.
16...Da5 17.De3 h5!?
Betra en 17...h6 18.Bc4 Bg7
19.Rh4 Hd8 20.Db3 Hf8 21.Rg3
o.s.frv.
18.Rg5 --
Eðlilegur leikur, sem skilar hvíti
litlu. Betra er að leika 18.Dg5 Rd7
19.Hd1 Be7 20.Dc1 o.s.frv.
18...Bh6 19.Bc4 --
19...Bxg5?
Eftir 19...0–0! er mjög erfitt að
benda á framhald, sem gefur hvíti
betra tafl, t.d. 20.h4 Had8 21.Df3
Kg7 22.Hc2 Rh7 23.Rxh7 Kxh7
24.Rc1 Bc8 25.Rb3 Da7 26.De2 f5
o.s.frv.
20.Dxg5 Rxe4 21.De3 Rd6
22.Bd3 0–0 23.Hc5 Da7 24.Dxe5
Hfe8 25.Dd4 26.Bxe4 Hxe4
27.Dxe4 Dxc5 28.Rf4! --
Síðustu leikir hafa verið meira og
minna þvingaðir og nú er komin
upp staða, sem reynist svarti erf-
iðari viðfangs heldur en hann
reiknaði með.
28...Dd6
Svartur verður að gæta sín, t.d.
28...b3 (eða 28.—Ba6) 29.Rxg6 fxg6
30.Dxg6+ Kf8 (30...Kh8 31.He1
Hf8 32.He3 Bc8 33.Hg3 Dxf2+
34.Kh2 Bg4 35.Dh6+ Kg8 36.hxg4
Hf6 (36...h4 37.Dg5+ Kh7
38.Dxh4+ Kg7 39.Dg5+ Kf7
40.Hf3+) 37.Dg5+ Kf7 38.gxh5
Dd4 39.h6) 31.He1 Hxa4 32.Df6+
Kg8 33.He8+ og hvítur vinnur.
29.Rd3 Hb8 30.Dc4 –
Ekki 30.Rxb4? c5 31.Dd3 De5
32.Rxc2 Dxb2 og svartur heldur
sínu.
30...c5?
Helgi er kominn í mikið tímahrak
og gefur peðið, að óþörfu. Eftir
30...Bc8 hefði hann getað varist
betur, þótt staða hans hefði verið
erfið áfram.
31.Rxc5 Dc6 32.f3 Bc8 33.Hc1
Bf5 34.Re4 Db6+ 35.Dc5 Da6
36.Rd6 Be6 37.a5 b3?
Hannes benti á 37...Hd8!?, eftir
skákina, t.d. 38.Hd1 De2 39.Hd4 b3
40.Dc3 Dc2 41.Re4 Hc8 42.Dd2
Dxd2 43.Rxd2 Hc1+ 44.Kh2 Ha1
45.Hb4 Hxa5 46.Rxb3 og svartur á
peði minna, en ef til vill einhverja
von um björgun.
38...Ha8 39.Ha1 Hd8 40.Re4 Hc8
41.Kh2 Hc2
Svartur reynir að ná einhverju
mótspili, en við það verður hann
varnarlaus á 8. reitaröð. Það er
reyndar ólíklegt, að hann hefði get-
að varist til lengdar, þótt hann hefði
beðið rólegur. Hann verður bæði að
verja veikleikana í kóngsstöðunni
fyrir ágangi hvítu drottningarinnar
og riddarans og verjast framrás
hvíta frípeðsins á a-línunni.
42.Hd1 Dc8
Svartur getur ekki leikið
42...Hxg2+, vegna 43.Kh1!
(43.Kxg2 De2+ 44.Kg3 Dxd1)
43...Dc8 44.Kxg2 Dc2+ 45.Hd2
o.s.frv.
43.h4 –
Enn betra er 43.Dg5 Db8+ 44.f4
Hc8 45.Dh6 með hinni banvænu
hótun 46.Rf6+ mát.
43...Bf5?
Tapar strax, en eftir 43...Dc7
44.Hd6 Hc6 45.a6 Hxd6 46.Dxd6
Da7 47.Dc6 Dd4 48.Dc7 Dxb2 49.a7
er taflið tapað fyrir hann.
44.Rf6+ Kf8 45.Rd5
og svartur gafst upp.
Hótunin er 46.Dh8+ mát, og eft-
ir 45...Kg8 (45...f6 46.De7+ Kg8
47.Rxf6+ Kh8 48.Dh7+ mát)
46.Re7+ Kh7 47.Rxc8 fellur svarta
drottningin.
Hannes Hlífar Íslands-
meistari í sjötta sinn
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
Orkuveita Reykjavíkur
SKÁKÞING ÍSLANDS
1.–12. apríl 2004
Hannes Hlífar
Stefánsson
Harpa
Ingólfsdóttir
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem
mótmælt er nýjustu gjaldskrár-
breytingu á afnotagjöldum RÚV.
Þar segir m.a.:
„Í kjölfarið hafa sparnaðarað-
gerðir verið boðaðar hjá stofnuninni
sem liður í fjárhagslegri endur-
skipulagningu. Hækkun afnota-
gjaldanna er með öllu ótæk aðgerð
til að bjarga fjárhag RÚV. Ríkis-
rekstur á fjölmiðli er að sama skapi
tímaskekkja. Aðilar á hinum frjálsa
markaði geta að öllum líkindum
sinnt öllum verkum RÚV betur og á
hagkvæmari hátt en RÚV. Öryggis-
og lýðræðishlutverk RÚV er verr
rækt af stjórnmálamönnum en ef
einkaaðilar kepptumst um að sinna
því sem best,“ segir m.a. í yfirlýsing-
unni.
Er þeim tilmælum beint til stjórn-
málamanna „að þeir láti af van-
trausti sínu á kjósendur, skattgreið-
endur og aðra notendur viðtækja í
landinu, og komi rekstri RÚV og
fjármögnun úr höndum ríkisins.“
Mótmæla
hækkun
afnotagjalda
RÚV
BJÖRGUNARSVEITIN
Strönd fékk góða heim-
sókn laugardaginn fyrir
páska. Þá komu félagar
úr sveit björgunarsveitar
Landsbjargar á Ísafirði á
björgunarbátnum Gunn-
ari Friðrikssyni til Skaga-
strandar. Var Gunnar
Friðriksson til sýnis í
höfninni á Skagaströnd
allan daginn og komu
margir um borð og fengu
leiðsögn um bátinn af
áhafnarmeðlimum hans.
Tilefni heimsóknarinn-
ar er það að í haust eða
byrjun vetrar er væntan-
legur til Skagastrandar
björgunarbátur eins og
Gunnar Friðriksson. Hann verður í
eigu Landsbjargar en rekinn af
björgunarsveitinni Strönd en stað-
settur á Skagaströnd. Með þessum
væntanlega bát er liður í áætlun-
um Landsbjargar að þétta bátanet
sitt um landið. Áætlunin gerir ráð
fyrir fleiri bátum sem verða á suð-
urhluta Vestfjarða, Vopnafirði og á
Höfn í Hornafirði. Gunnar Frið-
riksson var níu og hálfa klukku-
stund frá Ísafirði til Skagastrand-
ar í leiðindaveðri. Brot kom á
Gunnar út af Horni og skemmdist
hann lítillega við atvikið. Áhöfnin
slapp ósködduð og töldu þeir fé-
lagar sig ekki hafa verið í alvar-
legri hættu.
Bíða eftir nýjum
björgunarbáti
Skagaströnd. Morgunblaðið
Morgunblaðið/Ó.B.
Á myndinni sjást skemmdir á stefni Gunnars
Friðrikssonar eftir brotsjó út af Horni.