Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 39

Morgunblaðið - 13.04.2004, Side 39
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 39 ÍSLENDINGALIÐIN Örgryte og Hammarby gerðu markalaust jafn- tefli í Gautaborg í gær þegar þau mættust þar í sænsku úrvalsdeild- inni. Pétur Marteinsson þótti besti leikmaður Hammarby og lék allan tímann í vörn liðsins. Tryggvi Guð- mundsson og Jóhann B. Guðmunds- son voru í liði Örgryte en Atli Sveinn Þórarinsson var varamaður og kom ekki við sögu. Tryggvi var ógnandi í framlínu Örgryte og þykir ná vel saman við hinn brasilíska Paulinho.  Hjálmar Jónsson lagði upp fyrsta mark Gauta- borgar, eftir aðeins 47 sekúndur, þegar lið hans vann Elfsborg, 3:0.  Auðun Helgason var í leikmannahópi Landskrona en lék ekki með þegar liðið gerði jafntefli við Sunds- vall á útivelli, 0:0. Pétur bestur í Ís- lendingaslagnum ÍSLENDINGARNIR voru mjög áberandi hjá Lokeren þegar liðið sigraði La Louviere, 2:0, í belgísku 1. deild- inni í knattspyrnu á laugardaginn. Fyrra markið kom þegar Marel Baldvinsson reif sig lausan frá varn- armanni og gaf góða sendingu á Rúnar Kristinsson sem lyfti boltanum yfir markvörð La Louviere og í stöngina, þar sem Ilson fylgdi á eftir og skoraði, 1:0. Skömmu síð- ar var Mamouni hjá La Louviere rekinn af velli fyrir gróft brot á Rúnari, sem slapp við meiðsli. Rúnar átti síðan góða sendingu á Arnar Grétarsson sem lyfti boltanum fallega yfir markvörðinn, 2:0. Arnar lék mjög vel og var hvíldur 20 mínútum fyrir leikslok. Arnar Þór Viðarsson og Marel áttu einnig góð- an leik en Rúnar var besti maður vallarins. Sigurinn var ákaflega mikilvægur fyrir Lokeren sem komst með honum fimm stigum frá fallsæti þegar fimm umferðum er ólokið. Indriði Sigurðsson sat allan tímann á varamannabekk Genk sem sigraði Gent, 1:0. Arnar skoraði og Rúnar bestur REAL Madrid fékk háðulega út- reið á heimavelli að kvöldi páska- dags þegar stórliðið stjörnum prýdda steinlá gegn Osasuna, 3:0. Eftir útreiðina gegn Mónakó í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku var þessi ósigur sem salt í sárin, ekki síst þar sem Valencia sigraði Zaragoza, 1:0, á útivelli með marki frá Migulo Angulo og er nú með tveggja stiga forystu í spænsku 1. deildinni. Valdo, fyrrverandi leikmaður Real Madrid, skoraði strax á 2. mínútu og heimaliðið var stál- heppið að staðan var aðeins 2:0 í hálfleik fyrir Osasuna. Ekki bætti úr skák að Ronaldo haltraði af velli eftir 27 mínútna leik þar sem meiðsli í læri, sem stöðvuðu hann um skeið í síðasta mánuði, tóku sig upp að nýju og hætta er á að hann missi af næstu leikjum. David Beckham, fyrirliði Eng- lands, var eini leikmaður Real sem stóð nokkurn veginn fyrir sínu en hann fór einnig sár af velli eftir olnbogaskot í andlitið og hörð návígi við leikmenn Osasuna. Barcelona hélt hinsvegar áfram sinni sigurgöngu og hreiðraði enn betur um sig í þriðja sætinu með því að sigra Valladolid á útivelli, 3:1. Ronald- inho skoraði eitt markanna en var rekinn af velli snemma í síð- ari hálfleik. Real Madrid skotið úr toppsætinu á Spáni ÁGÚST Jóhannsson þjálfari ís- lenska liðsins var ósáttur við fjór- tán marka munar skell gegn Dön- um, 22:36, og vill margt laga. „Það er eitt að tapa leik en tapa honum svona stórt er óásættanlegt. Ég er hundóánægður með seinni hálfleik- inn í dag en við héldum í við Danina í fyrri hálfleik. Það verður bara að segja eins og er að við erum ekki í nógu góðu líkamlega formi til að spila á sama hraða og danska liðið. Það var barátta og vilji í liðinu í fyrri hálfleik en ég er ekki sáttur við hvað við gáfum mikið eftir. Fyrst og fremst eru líkamlegt ástand leikmanna ekki nógu gott og við sem hópur þurfum að taka strax okkur á. Við höfum sterkan og góð- an varnarleik, sem skilar oft hraða- upphlaupum en þurfum að fá fleiri mörk utan af velli,“ sagði Ágúst en var þó tilbúinn í næsta verkefni. „Við vissum eiginlega ekki neitt um þessi lið. Vissum reyndar að Danir eru með sterkasta liðið og að mínu mati er það slóvakíska sterkara en okkar en við spiluðum mjög vel gegn því enda fengum við mjög góðan stuðning frá áhorfendum, eins og í dag. Okkar markmið var að komast áfram og við erum ánægð með að hafa náð því, þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt kvenna- landslið kemst í lokakeppni Evr- ópumóts, en úr því sem komið var ætluðum við að vinna riðilinn svo að við erum hundsvekkt með svona stórt tap. Það er mikil tilhlökkun að taka þátt í úrslitakeppninni. Auð- vitað veit ég að þetta verður erfitt en góð reynsla. Við erum eflaust talin með eitt af slökustu liðunum en erum ekkert hrædd við það. Að komast þangað hefur góð áhrif á liðið og líka íslenskan kvenna- handbolta. Nú er okkar að vinna með liðið, koma því í betra stand og laga það sem þarf,“ sagði Ágúst Jóhannsson. Óásættanlegt að tapa svona stórt gegn Dönum Það var greinilega átak fyrir ís-lenska liðið að sýna sitt besta gegn Danmörku á sunnudaginn. Sóknarleikurinn var ekki uppá marga fiska en vörnin því betri og átti mestan þátt í að liðið náði 4:3 forystu. Þá tók danski þjálfarinn leikhlé og setti ferska leikmenn inná, sem skrúfuðu upp hraðann. Á 8 mín- útum skora Danir 7 mörk á móti einu en þegar íslenska liðið lagði allt í söl- urnar náði það að saxa forskotið nið- ur í tvö mörk. Þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik munaði einu marki, 16:15, en þá hrundi leik- ur liðsins. Ekki stóð steinn yfir steini, hvert klúðrið rak annað á meðan Danir áttu nóg inni og hrein- lega sprengdu íslensku stúlkurnar. Ánægð með áhorfendur „Við áttum að gera miklu betur og það var sorglegt að tapa svona stórt í dag,“ sagði Eva Margrét Kristins- dóttir fyrirliði landsliðsins eftir leik- inn. „Þær dönsku eru greinilega bet- ur á sig komnar en við, sem þurfum að vera duglegar að æfa í sumar og mæta síðan á Evrópumótið til að gera okkar besta. Við erum samt duglegar að æfa, erum allar á fullu í okkar félagsliðum og spilum í flest- um unglingaflokkum líka.“ Ekki var laust við að dregið væri af íslenska liðinu í lokin. „Það var erfitt að rífa sig upp eftir góðan sigur á Slóvakíu en við urðum bara að gera það fyrir leikinn við Danmörk. Við erum að vísu komnar áfram en sigur gegn Dönum hefði verið góður fyrir fram- haldið í riðlinum í úrslitum, fá þá léttari mótherja. Ég er mjög ánægð með áhorfendurna, sem komu til að styðja við bakið á okkur um helgina og þakka öllum kærlega,“ bætti Eva við. Ísland vantar fleiri leikmenn Danski þjálfarinn var ánægður enda ekki viss um sigur. „Við vorum alls ekki viss um sigur í þessum móti. Við vissum að Ísland er með gott lið eins og kom í ljós og Slóvakía ágætt,“ sagði Heine Eriksen, þjálf- ari danska landsliðsins eftir leikinn. „Það sneri leiknum við þegar það besta kom fram í danska liðinu eftir hlé, enda var þetta besti síðari hálf- leikur okkar í nokkrar vikur. Svo skipti líka máli að við höfum fleiri betri leikmenn en Íslendingarnir. Það er alltaf mikil barátta í íslensku liðunum og liðið er gott. Hraðinn var einnig ágætur en það vantar nokkra góða leikmenn til viðbótar, þó nokkr- ir séu mjög góðir.“ Sá danski ætti að hafa reynslu því í síðustu viku lék lið- ið tvo leiki við Pólland en liðið er saman 60 daga á ári og spilar um 20 leiki á ári. Morgunblaðið/Golli Stúlkurnar fagna sigrinum á Slóvakíu, sem tryggði þeim rétt til að taka þátt í lokakeppni Evrópumótsins. EM-sætinu fagnað þrátt fyrir stórtap ÞRÁTT fyrir hrikalega 36:22 útreið gegn Dönum á sunnudaginn brostu stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í handbolta í gegn- um tárin því fyrir leikinn voru þær búnar að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum Evrópukeppninnar í handknattleik eftir dramatískan 33:32 sigur á Slóvakíu þegar liðin tóku þátt í forkeppni á Seltjarn- arnesi um páskana. Áhorfendur létu sig ekki vanta svo það var fullt hús á báða leiki íslenska liðsins og mikil stemning. Stefán Stefánsson skrifar Það var spenna í lofti hjá leik-mönnum liðanna á upphafs- mínútum leiksins og mátti sjá mörg klaufaleg mistök leikmanna. Leik- menn Snæfells reyndu hvað þeir gátu til að draga úr hraða leiksins og hafði það mikið að segja að þeirra hættulegasti leikmaður Corey Dickerson lék ekki með, var í leikbanni. Hafþór Gunnarsson fékk það verðuga verkefni að stjórna leik Snæfells, en Keflvíkingurinn Sverrir Þ. Sverrisson setti mikla pressu á Hafþór og átti hann í miklum erf- iðleikum að stilla upp sókn sinna manna. Leikurinn var í járnum fyrstu mínúturnar, en þegar Keflvíkingar skoruðu átta stig í röð tóku þá gestirnir leikhlé. Keflvíkingar skiptu þá yfir í pressuvörn og áttu Snæfell engin svör við henni og glopruðu boltanum hvað eftir ann- að í hendurnar á Keflvíkingum. Vörnin hjá Keflavík var geysilega öflug og vel skipulögð, sem sást best á því að Snæfellingar skoruðu aðeins 10 stig í öðrum leikhluta og var staðan vænleg hjá Keflvíking- um í leikhléi, 43:25. Í seinni hálfleik var ekki mikið í spilunum hjá Snæfellingum. Kefl- víkingar voru hreint út sagt óstöðv- andi og áttu Snæfellingar engin svör við stórgóðum leik þeirra. Það var aðeins í fjórða leikhluta sem leikmenn Snæfells tóku sig á og skoruðu sjö stig í röð – breyttu stöðuni í 65:50. Þá tóku Keflavík- ingar leikhlé og svöruðu með átta stigum í röð og var munurinn orð- inn 23 stig 73:50 og fimm mínútur eftir. Gerði það útslagið fyrir Snæ- fell og sigruðu Keflvíkingar örugg- lega 87:67. Mikil fagnaðarlæti brutust út í leikslok – Keflvíkingar fögnuðu sín- um sjöunda Íslandsmeistaratitli. Keflavík Íslands- meistari MIKIÐ fjör var í Keflavik laug- ardaginn fyrir páska, þar sem Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur tóku á móti deildar- meisturum Snæfells í fjórða leik úrslitakeppninnar í Körfuknatt- leik. Staðan fyrir viðureignina var Keflavík í hag, 2:1, þannig að sigur gaf heimsmönnum Ís- landsmeistaratitlinn. Umgjörðin fyrir leikinn var öll hin glæsileg- asta – hljómsveitin Safn- aðarfundur eftir messu lék af miklum krafti þegar liðin hituðu upp og var stemmninginn raf- mögnuð á Sunnubrautinni í Keflavík. Heimamenn kunnu svo sannarlega að meta hið raf- magnaða andrúmsloft og fögn- uðu öruggum sigri og Íslands- meistaratitli, 87:67. Davíð Páll Viðarsson skrifar Pétur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.