Vísir - 17.08.1981, Blaðsíða 24
24
VÍSIR
Mánudagur 17. ágúst 1981
ídag íkvdlcl
Þessa mynd tók ljósm. Visis, Gunnar V. Andrésson f Galleri Djúpinu af smámyndasýningunni, sem þar
stendur yfir.
Athyglisverö smámyndasýnlng
28 listamenn sýna i Djúplnu
Um helgina opnaði i Galleri
Djúpinusvonefnd smámyndasýn-
ing, og er það önnur sjálfstæða
sýningin sem Galleri Djúpið
stendur fyrir á þessu ári. Hin
fyrri var minningarsýning um A.
Paul Weber, og var hún haldin i
janúar sl.
Myndirnar á þessari smá-
myndasýningu eru unnar á
marga vegu og margvisleg og
mismunandi efni notað, en þær
eiga það þó sammerkt, að vera
afar smáar að vöxtum. Er ekki að
efa, að spennandi er að sjá,
hvernig listamönnunum hel'ur
tekist að vinna með svo smá form
og fleti og raun ber vitni.
Sýningin stendur til 2. septem-
ber og verður hún opin daglega
frá kl. 11.00-23.00. Aðgangur er ó-
keypis.
bátttaka i sýningunni er mjög
góð, en alls taka 28 listamenn þátt
i henni og eru það eftirtaldir:
Guðmundur Björgvinsson,
Kristbergur Pétursson, Anna
Guðjónsdóttir Ásgeir Lárusson,
Brian Pilkington, Elisa Jónsdótt-
ir. Friða Hán, Gunnar Kristins-
son, Gunnar Martin Úlfsson, Guð-
mundur W. Vilhjálmsson, Hildi-
gunnur Gunnarsdóttir, Ingiberg
Magnússon, Jens Guð., Jón
Ágústsson, Kazuya Tachtbana,
Katrin H. Agústsdóttir, Lisa K.
Guðjónsdóttir, Richard Valting-
ojer, Rúna Gisladóttir, Sigurþór
Jakobsson, Sigrún Eldjárn, Sjón.
Sigurlaug Jóhannsdóttir, Sigriður
Gyða Sigurðardóttir, Tom Einar
Ege, Valgerður Gunnarsson, Þor-
valdur Jónasson og Guðbergur
Auðunsson.
Heilsa barna á Norðuriðndum
Fyrirlestur i Norræna húsinu
Félag áhugafólks um þarfir
sjúkra barna hefur fengið hingað
til lands prófessor Lennart Köhl-
er, rektor Norræna Heilsugæslu-
háskólans i Gautaborg, og mun
hann halda fyrirlestur á vegum
félagsins i Norræna Húsinu annað
kvöld, þriðjudaginn 18. ágúst kl.
20.30. Nefnist fyrirlesturinn ,,Um
hcilsu barna á Norðurlöndum”og
er öllum opinn.
Viðfangsefni þetta hefur vakið
nokkraathyglileikra sem lærða á
undanförnum árum, og hafa m.a.
verið fluttir nokkrir þættir i Rik-
isútvarpinu um þetta efni, auk
þess sem skrifaðar hafa verið
greinar i dagblöð og timarit um
þetta mál.
-jsj-
Kvikmyndakynning III.
Mánudaginn 17. ágúst kl. 20:00-22:00 að Kjarvals-
stöðum.
„PERSÓNULEG TJÁNING / FÉLAGSLEG
UMFJÖLLUN”.
Viðfangsefni þessa kvölds er efnisinnihald grafisku kvikmyndar-
innar. Sýndar verða óhlutbundnar kvikmyndir, myndir sem eru
persónulegar táknmyndir og myndir sem innihalda þjóðfélagsá-
deilu.
MYNDALISTI:
Illuminations: Athyglisverð tilraun með samspil ljóss og skugga
sem byggir á nýstárlegri meðferð hefðbundins tækjabúnaðar til
tjáningar á afar persónulegri hugmynd.
7362: Óhlutbundin athugun á tvihliða samræmum og litameðferð,
byggðá myndmáli sem er upprunnið úrlifandi myndum.
Doubles: Ferðalag um innra hugarheim þar sem leitast er við að
myndskreyta áreynslu þá sem fylgir heilabrotum um eðli tilverunn-
ar.
Mysterians: Persónulegt myndmál sem túlkar veröldina á afar
flókinn hátt en imyndir þær sem notaðar eru falla vel að hinu graf-
iska formi.
Mother Goosc: Kaldhæðnisleg útgáfa á þremur erindum úr hinu
þekkta barnakvæði þar sem höfundur beitir raunsæi i stað róman-
tikur.
Bird: Hvöss pólitisk ádeila, sett fram með ljósmyndum i raunsæ-
um stil.
Moosepoop: Gagnrýni á stereotýpur (klisjur) ameriskra kvik-
mynda. Mynd sem stingur á mörgum kýlum.
„Glæpur Marteins” nefnist finnskt sjónvarpsleikrit
sem er á skjánum klukkan 21.15 i kvöld. Leikurinn
gerist nokkru fyrir heimstyrjöldina fyrri og lýsir lifi
finnskrar fjölskyldu. Á myndinni má sjá þá sem
fara með aðalhlutverkin, Pehr-Olaf Siren og Anja
Pohjola. Leikstjóri er Timo Bergholm.
„Sverrir Friðþjófsson sér um
iþróttaþátt sjónvarpsins sem er á
dagskrá klukkan 20.45. Visir hafði
samband við Sverri fyrir helgi en
þá var þátturinn ekki fullmótaður
en það sem Sverrir gat nefnt var
að úrslitin í 5. flokki verða tiund-
uð. Einnig sjást þeir hestar sem
fara i Evrópukeppnina i hesta-
iþróttum sem er I Noregi seinni
houta þessa mánaðar á skjánum,
en þeir eru sjö taisins. Annað gat
Sverrir ekki fullyrt nema þaö að
komið verður við i fyrstu og ann-
arri deild tslandsmótsins.
— HPH
Arni Helgason simstöðvarstjóri i
Stykkishólmi. Heilbrigðiog hollar
lifsvenjur veröur meðal efnis i
þættinum Um daginn og veginn
sem er á dagskrá klukkan 19.40 i
útvarpinu, og sér Arni um þann
þátt.
»“
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
útvarp
12.00 Dagskrá . Tónleikar .
Tilkynningar.
12.20 Fréttir . 12.45 Veður-
fregnir Tilkynningar
Mánudagssyrpa — Ólafur
Þórðarson.
15.10 Miðdegissagan: ,,A ódá-
insakri” eftir Kamaia
Markandaya Einar Bragi
les þýðingu sina (5).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá . 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar: Tón-
list eftir Ludwig van Beet-
hoven Alfred Brendel leikur
Pianókonsert nr. 2 i B-dúr
op. 19 meðhljómsveitRIkis-
óperunnar i Vin: Hans Wall-
berg stj. / Filharmóniu-
sveitin i Berlin leikur Sin-
fóniu nr. 8 i F-dúr op. 93:
Herbert von Karajan stj.
17.20 Sagan: „Litlu fiskarnir”
eftir Erik Christian Hau-
gaard Hjalti Rögnvaldsson
les þýðingu Sigriðar Thorla-
cius (10).
17.50 Tónleikar . Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir . Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir . Tilkynningar
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Ami Helgason simstöðvai
stjóri i Stykkishólmi talar.
20.00 Lög unga fólksins Hildur
Eiriksdóttir kynnir.
21.30 Útvarpssagan: „Maður
og kona” eftir Jón Thorodd-
sen Brynjólfur Jóhannesson
leikari les (18). (Aður útv.
veturinn 1967-68).
22.00 Goða-kvartettinn syngur
erlend lög
22.15 Veðurfregnir . Fréttir .
Dagskrá morgundagsins .
Orð kvöldsins
22.35 Agúst I AsiHugrún les Ur
samnefndri bók sinni.
23.00 Kvöidtónieikar: óperu-
tónlist a. „I Vespri Sicili-
ani”, forleikur eftir Giu-
seppe Verdi. Hljómsveitin
Filharmónia leikur: Tullio
Serafin stj. b. „Vissi
d’arte”, aria úr „Toscu”
eftir Giacomo Puccini og
„Leise, leise” úr „Töfra-
skyttunni” eftir Carl Maria
von Weber. Ljuba Welitsch
syngur með hljómsveitinni
Filharmóniu: Walter Suss-
kind stj. c. Aria Philipps Ur
„Don Carlos” eftir Giu-
seppe Verdi og aria Stad-
ingers Ur „Vopnasmiðni’m”
eftir Albert Lortzing. Gott-
lob Frick syngur með Sin-
fóniuhljomsveit Berlinar:
Wilhelm Schuchter stj. d.
Intermezzo úr „L’Amico
Fritz” eftir Pietro Mas-
cagni. Hljómsveitin Fil-
harmónia leikur: Tullio
Serafin stj.
23.45 Fréttír . Daeskrárlnk
sjónvarp
Mánudagurl7. ágúst
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.Ö0 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Múminálfarnir Tiundi
þáttur endursýndur. Þýö-
andi Hallveig Thorlacius.
Söðgumaöur Regnheiöur
Steindórsdóttir.
20.45 tþróttir. Umsjónarmað-
ur Sverrir Friðþjófsson.
21.15. Glæpur Marteins
Finnskt sjónvarpsleikrit
eftir Mar.iu Jotuni. Leik-
stjóri Timo Bergholm. Að-
alhlutverk Pehr-Olaf Siren
og Anja Pohjola. Leikurim
gerist nokkru fyrir fyrri
heimsstyrjöld og lýsir lifi
finnskrar fjölskyldu. Þýð-
andi Borgþór Kjærnested.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið.
22.40 Dagskráriok.