Vísir - 24.08.1981, Page 8
8
Mánudagur 24. ágúst 1981
VÍSIR
urgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
’Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aöstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefansson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson
Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- Dreif ingarstjori: Sigurður R. Pétursson.
xirup, Árni Sigfússon, Friða Astvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86611, 7 linur.
Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena , Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260.
Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir.' Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Blaðamaöur á Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig- Áskrif targ jald kr. 80 á mánuði innanlands og verð i lausasölu
mundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór SÍgurðsson, Gunnar V. Andrés-
son. utlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur 5 krónur eintakið.
Jónsson. Vísir er prenta5Ur j Blaðaprenti, Siðumúla 14.
BIBLMN I NYRBI UTGAFU
Á Biblíuhátíðinni að Kjarvals-
stöðum af henti biskupinn forseta
Islands eintak hinnar nýju Biblíu
sem tákn þess, að þjóðin hefði nú
eignast nýja útgáfu af bók bók-
anna. Þrotlaust starf Hins ís-
lenska Biblíufélags F hartnær tvo
áratugi við undirbúning útgáf-
unnar vekur athygli og aðdáun og
árangurinn er lofsverður. Hin
nýja Biblíuútgáfa er þeim til
sóma,er þar lögðu hönd á plóginn.
Biblían var fyrst gefin út á ís-
lensku fyrir tæpum 400 árum og
þá kennd við Guðbrand biskup.
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
sagði í tímaritsgrein fyrir þrem-
ur áratugum, að talið væri alls-
endis óvíst, að við töluðum ís-
lensku í dag, ef Biblían hefði ekki
verið þýdd á íslensku jafn
snemma og jafn vel og raun ber
vitni. Hefði fslendingum verið
þröngvað til að nota danska
Biblíu og önnur dönsk guðrækni-
rit við upphaf prentaldar, mætti
nærri geta, hvílíkt mark danskan
hefði sett á kirkjumálið, sem
hefði síðan haft mjög mikil áhrif
á málfar almennings. Taldi
Steingrímur hættu á, að tungan
hefði þá orðið að einhvers konar
hrærigraut eða hrognamáli.
Ný útgáfa Biblíunnar nokkrum
öldum síðar skiptir ekki þeim
sköpum í varðveislu íslenskrar
tungu, sem Guðbrandsbiblía
gerði árið 1584, enda er hér um að
ræða 10. útgáf u hinnar helgu bók-
ar. En vonandi verður þessi út-
gáfa til að glæða áhuga almenn-
ingsá að lesa Biblíuna, kynna sér
boðskap hennar og breyta sam-
kvæmt honum. Nýja Biblían er
mun aðgengilegri til lestrar en
eldri útgáf ur, textinn brotinn upp
sem oftast, tíðar millifyrirsagnir
og í viðauka með Biblíunni eru
bækur Biblíunnar kynntar, þar
eru uppsláttarorð og orða-
skýringar sem og kort af þeim
löndum, sem koma við sögu í
bókinni.
*i>að mun kosta um þrjár
lilljónir króna að gefa út Biblí-
una. Stjórnvöld hafa samþykkt
að innheimta ekki söluskatt af
útgáf unni og ætti hvert eintak þá
ekki að kosta nema um 250 krón-
ur út úr bókaverslun. Má það
kallast gjafverð og því engum
fjárhagslega ofviða að festa
kaup á eintaki af hinni nýju
Biblíu.
Það er hins vegar engum til
gagns að kaupa sér Biblíu og láta
hana síðan standa óhreyfða uppi
á hillu. Biblían á brýnt erindi til
allra og kannski aldrei brýnna
erindi en einmitt nú á tímum
efnishyggju og tæknidýrkunar.
Andleg velferð mannanna hefur
gleymst, og vanrækt trúarþörf
blasir hvarvetna við. Menn deyfa
andlega vanlíðan með áfengi og
öðrum nautna- og f íkniefnum eða
leita á náðir hinna ýmsu hreyf-
inga, sem boða nýtt líf, fullt af
sælu og lífsfyllingu, en boðskap-
ur þeirra inniheldur ekkert annað
en gervitrúarbrögð, sem reynast
hismið eitt, þegar á reynir.
Afstaða ríkisvalds og meiri-
hluta þjóðarinnar til kristinnar
trúar, sem þjóðkirkjan byggist á,
einkennistaf tómlæti. Ríkiðsinn-
ir slælega þeirri skyldu að sjá til
þess, að kirkjan geti starfað af
fullum krafti. Má nefna sem
dæmi, að á þessu ári nema f jár-
veitingar hins opinbera til kirkju-
bygginga um land allt svipaðri
upphæð og söluverð þriggja her-
bergja blokkaríbúðar í Reykja-
vík. Oll opinber umræða á síðustu
árum hefur beinst að verðbólgu,
kjarasamningum og öðru því, er
snýr að veraldlegri velferð. Það
fer næsta lítið fyrir umræðu um
andleg mál, en síðan er reynt að
benda á mikla kirkjusókn á jólum
og páskum sem dæmi um öflugt
trúarlíf landsmanna. Sú siðferði-
lega upplausn, sem ríkir í þjóðfé-
laginu sýnir hins vegar, að krist-
in trú hef ur verið látin víkja fyrir
dansinum kringum gullkálfinn.
En að hvaða gagni kemur tölvu-
byltingin í sorgum, áhyggjum
eða gagnvart dauðanum? Það
þarf ekki að mata Biblíuna á
neinum gataspjöldum til þess að
hún veiti svör við þeim spurning-
um, sem sækja á um lífið og
dauðann. Boðskapur hennar
haggast ekki í sviptivindum sam-
tfmans.
Vert er aö vekja athygli á
þremur skýrslum, sem allar
greina nokkuð frá umgengni
erlends ferðafólks á Islandi en
um þau mál hefur nokkuð verið
fjallaö i Visi að undanförnu.
Þessar skýrslur eru teknar
saman af sérfróðu fólki á sinu
sviði. Sú elsta er skýrsla, sem
Jón Gauti Jónsson og Tryggvi
Jakobsson tóku saman siðla árs
1978, og fjallar um erlenda
hópa, sem ferðuðust um Island
sumarið 1978 án islenskrar leið-
sagnar.
1 henni er greint frá nokkrum
erlendum ferðaskrifstofum,
sem hafa sent hópa hingað til
lands án samráðs við islensk
yfirvöld. Miðla höfundar skýrsl-
unnar af reynslu sinni, en þeir
vorubáðir landverðir, og benda
á, að oft er umgengni hinna
erlendu ferðamanna með þeim
hætti, að óviðunandi er.
Nákvæmari upp-
lýsingaþjónusta
önnur skýrsla er gefin út
1980, og er hún eftir Sigriði
Ingólfsdóttur, fyrrverandi
formann Landvaröafélags
tslands. I skýrslunni staðfestir
hún flest það, sem kom fram i
skýrslunni frá 1978, og bendir
jafnframt á nokkur atriði til úr-
bóta: Að öxulþungatakmarkan-
ir verði settar um bila sem
koma til landsins á erlendum
númerum, að upplýsingaþjón-
usta, m.a. i islenskum land-
kynningarbæklingum verði
bætt, að betri tollskoðun og ná-
kvæmari upplýsingaþjónusta
verði bæði á Seyðisfirði og
Keflavikurflugvelli, og siðast en
«
eftirliti með brottför útlendinga
sem fara með Smyrli frá
Seyðisfirði, og ráðinn maður
þangað með sérþekkingu á
náttúrugripum.
b) Náttúruverndarráð taki
upp samvinnu við heimamenn
um eftirlit með svæðum þar
sem ágangur er mestur.
c) Kynna þarf viðhorf
islenskra náttúruverndaraðila
erlendis til söfnunar náttúru-
gripa, svo útlendingar geti ekki
boriö við þekkingarleysi þegar
þeir koma til landsins.
d) Tryggja þarf eftirlit með
sendingum útlendinga með öðr-
um flutningaleiðum en Smyrli.
Þeir sem áhuga hafa, geta
nálgast þessar skýrslur hjá
Náttúruverndarráði.
Jakob S.
Jónsson
skrifar:
Þrlár skýrslur
ekki sist, aö eigendum lang-
ferðabifreiða sé skylt að hafa
islenskan leiðsögumann, þegar
erlendir feröahópar leigja bil-
ana.
Steinasöfnun i ábata-
skyni
Þriðja skýrslan kom út i mars
á þessu ári. Einar Þórarinsson
hjá Náttúrugripasafninu i Nes-
kaupsstað hefur tekið hana
saman, en hún fjallar um
steinatöku á Austurlandi.
Niðurstöður Einars eru helstar
þær, að greinilegt sé, að steina-
söfnun útlendinga og þá gjarnan
i ábataskyni — hafi farið vax-
andi hin siðustu ár, einkum með
tilkomu Smyrils. Jafnframt
segir hann steinasöfnun Islend-
inga sjálfra hafa farið minnk-
andi. Astæðuna fyrir aukinni
steinasöfnun útlendinga segir
Einar helsta vera þá, að
erlendir ferðamenn hafa oft
skrifað itarlegar greinar um
feröir sinar hér og visað á þá
staði, þar sem sérstæða steina
er að finna. Segir i skýrslunni
frá dæmum þess, hvernig slikir
staðir hafa breytt um svip
skömmu eftir að slikar greinar
hafa birst i erlendum timarit-
um.
Tillögur til úrbóta
1 lok skýrslunnar birtir Einar
nokkrar tillögur til úrbóta og
eru þessar þeirra á meðal:
a) Komið verði á fót hertu