Vísir - 24.08.1981, Síða 22
22
vtsm
Mánudagur 24. ágúst 1981
Hér sést yfir veislusalinn og eins og sjá má var hvert sæti skipafi. Myndirnar tóku Þor-
steinn Guðlaugsson og Eyjólfur Jónsson.
Við háborðið sátu meöai annars þau (f.v.) Guðrún Hafliöadóttir, Rúnar Guðbjartsson,
núverandi formaður Freeport-klúbbsins, Anna Guðmundsdóttir, eini heiðursfélagi
klúbbsins, en hún veitti vesturförum ómetaniega aöstoð fyrstu árin, Jónas Jónasson,
veislustjóri, og Anna Þorgrimsdóttir, fyrsti formaður klúbbsins. Á bak við sjáum við i
þær önnu Guðnadóttur og Vilborgu Kristjánsddttur.
Freeport-klúbburinn 5 ára
150 félagar héldu upp á <
afmælið á Laugarvatni
ásamt fjöískyídum sínum
Það var glatt á hjalla á Laugar-
vatni miðvikudaginn 12. ágúst
þegar Freeport-klúbburinn hélt
upp á 5 ára afmæli sitt. Þarna
voru samankomnir hvorki fleiri
né færri en 150 félagar i
klúbbunum ásamt mökum og
afkomendum og eyddi hópurinn
saman kvöldstund i húsmæðra-
skólanum.
Umsjón
Tómas
Tómasson
Freeport-klúbburinn var stofn-
aður fyrir réttum 5 árum og voru
stofnendur þeir 33 Islendingar,
sem þá höfðu farið vestur til
Bandarikjanna og notið með-
ferðar á Freeport-sjúkrahúsinu á
Long Island i New York. Nú eru
félagar i klúbbnum á sjötta
hundrað.
Á Laugarvatni var margt sér til
gamans gert. Þar var étið,
drukkið, sungið og skrafað, en
það sem mesta ánægju vakti var
góð mæting hjá Freeport-
förum, enda er það ekki á
hverjum degi, sem klúbbar ná
saman 150 félögum og skella sér
út fyrir bæinn til kvöldskemmt-
unar i miðri viku.
Hér sjáum viö Hrafn Pálsson, fyrrverandi formann klúbbsins, i þeim
stellingum, sem flestir þekkja hann. En á þvi veröur efiaust breyting,
þvl að nú er Hrafn alkominn hcim með Masters-gráðu i félagsfræðum
eftir fjögurra ára háskólanám I Bandarikjunum.
Þeir Guðni Hannesson (t.v. ) fyrrverandi formaöur og Pétur Pálsson (I miðiö), einn af stofnendum
Freeport-klúbbsins, gefa Jónasi veislustjóra holl ráð. Yfir öxlina gægist Axel Ingólfsson.
Aöalræðumaöur kvöldsins Allan HerzliA, framkvæmdastjóri Free-
port-sjúkrahússins, hvlslar einhverju að önnu Guðmundsdóttur.
\