Vísir - 27.08.1981, Blaðsíða 3

Vísir - 27.08.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 27. ágúst 1981 VÍSIR Umbættur vlð hetta lækim I Naumóisvlk: jEDum að reyna ■ M segir Halliði Jðnsson garðyrkjustlöri. en nokkur spjðll hafa verið unnin á svæðinu „Við ætlum að gera enn eina tilraunina til þess að lagfæra um- hverfi heita lækjarins i Nauthóls- vik„ sagði Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri Reykjavikur- borgar er Visir innti hann eftir þeim framkvæmdum sem nú er unnið við i Nauthólsvik. „Eins og menn muna þá var okkur sent mótmælabréf vegna heita lækjarins fyrr i sumar, og þá var samþykkt að reyna enn frekar að gera þarna umbætur. Hins vegarhefur ekki verið i það ráðist fyrr en nú, þar sem ekki þótti þörf á að auka við manna- ráðningar sérstaklega vegna þessa verks”, sagði Hafliði. „Helsta framkvæmdin að þessu sinni, er fólgin i þvi að reyna að sporna gegn þvi að skolp úr öskjuhliðinni renni óheft i lækinn, en það gerum við með þvi að byggja ræsi, og leiða vatnið úr umhverfinu framnjá læknum. Einnig er unnið að þvi að betr- umbæta umhverfið, en strákar á skellinöðrum og fjallabilahetjur hafa ekki séð umhverfið þarna i friði. Einnig hefur þurft að endur- byggja nokkuð af steinhleðslun- um þar sem enn aðrar hetjurnar virðast hafa dundað sér við að rifa steina úr hleðslunum og kast- að i vatnið. Fleiri spjöll hafa verið unnin á svæðinu. Nefndi Hafliði sem dæmi að eftir að hitaveitan lokaði fyrir aðrennsii að heita læknum á nóttunni, hafi sex sinnum verið brotinn upp búnaður sem læsti lokunarkrananum, þar til hita- veitan gafst hreinlega upp. Þá höfðu járnkrókar sem sterkur lás var hengdur á til þess að loka að- gangi aðkrananum, verið sagaðir af, þannig að ómögulegt var aö læsa. Þar hafði sýnilega veriö unnið af natni og þolinmæöi, að sögn Hafliða. En hvað um það, lækjarunnendur fá vist betra um- hverfi, hvað svo sem tekst að halda þvi lengi i lagi. — AS. Um 720 íhúðlr borgarlnnar á frjáisan markað: Aðeins 120 haia setst „Við höfum þegar afgreitt um 110—120 ibúðir út á frjálsan markað. Þær ibúðir sem borgin byggðiá sinum tima og var heim- ilað að setja á frjálsan markað eftir ákveðinn tima, samkvæmt samþykkt frá 1978, eru alls um 725”, sagði Hjörtur Hjartarson deildarstjóri innheimtudeildar Reykjavikurborgar i samtali við Visi. Eins og Hjörtur benti á, var samþykkt árið 1978, að þær ibúðir sem Reykjavikurborg hefði byggt, og áður giltu á forkaups- réttarákvæði, skyldu frjálsar eigendum þeirra til sölu ef þeir hefðu búið i húsnæðinu 15 ár eða lengur. Ibúðir þessar hafa verið byggðar i nokkrum áföngum frá 1954 og til ársins 1965 og hafa þvi margir eigendur þeirra þegar uppfyllt áðurnefnd skilyrði. Hjörtur sagði að nú á næstunni losnuðu um 109 ibúðir, miðað við byggingartima en þorri eigenda þeirra uppfyllir skilyrði til sölu á ibúðunum á frjálsum markaði. Aðeins um 110—1£0 hafa hins vegar notfært sér rettindin og selt á frjálsum markaði, það sem af er. Hjörtur benti á að i raun væri ekki mikill munur á þvi hvort ibúðin væri seld til borgarinnar eða á frjálsan markað. Borgin býður ekki betri kjör i endursölu, en gengur og gerist, en greiðir hins vegar seljanda ibúðina upp á 6 mánuðum. Verð er þar miðað við byggingavisitölu, sem ekki er mikið óhagstæðara verði á frjálsum markaði, og kemur þá til álita hvort greiðsla á svo skömmum tima vegi ekki upp á móti lægra verði. — AS. JŒZBaLLöCCSkÓLI BÓPU N Suöurveri Stigahlíð 45, sími 83730. Bolholti 6, sími 36645. Dömur athugið! Haustnámskeið hefst 31. ágúst. ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. ★ Tímar tvisvar eöa fjórum sinnum í viku. ★ Morgun-, dag- og kvöldtímar. ★ Lausir timar fyrir vaktavinnufólk. ★ Sérstakur matarkúr fyrir þær, sem eru í megrun. ★ Sturtur — sauna — tæki — liós. Ath. ★ Nýju Ijósabekkirnir eru í Bolholti 6. ★ Kennsla fer fram á báöum stöðum. ★ Hjá okkur skín sólin allan daginn alla daga. ★ Upplýsingar og innritun í síma 83730 og 36645. njpa iiQ>i8Qq9inDazzDr Skellinöðru- fjallabila- og kraftahetjur hafa átt stærstan þátt I að gera umhverfi heita lækjarins sem ó- vistlegast. Unniö er að lagfæringum á þessu, auk þess sem reynt er að byggja ræsi fyrir vatn úr öskju- hlið, þannig að aurinn renni framhjá læknum. — (Visism: Emil Þór) Fimmtudagskvöld í í öllum deildum til kl. 22 Byggingavörur — Teppi — Raftœki — Rafljós — Húsgögn Matvörur — Fatnaður Við bjóðum einstœð gréiðslukjör, allt niður i 20% útborgun og eftirstöðvar lónuð við i allt að 9 mónuði Flestir þekkja okkar lóga verð ó matvörum og nú bjóðum við ýmsar gerðir fatnaðar ó sérstöku morkaðsverði Athugið: Eigum enn reiðhjól við allra hœfi á greiðsluskilmólum — sem flestir róða við Útborgun kr. 500 og siðan kr. 500 ó mónuði í Opið: Fimmtudaga: i öllum deildum til kl. 22 Föstudaga: Matvörumarkaöur/ rafdeild og fatadeild til kl. 22, aðrar deilir til kl. 19. Lokað laugardaga. A A A A. A A Jón Loftsson hf. ' LI U i = _ zjuuoBjin^ UHinUUUilMMllllln Hringbraut 121 Sími lOfinn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.