Vísir - 27.08.1981, Síða 5
Fimmtudagur 27. ágúst 1981
VÍSIR
Rúmt ár er liðiö frá þvi slitnaði upp úr samningaviðræðum tsraels-
manna og Egypta, en nú munu þeir Begin og Sadat ræða saman aftur.
Samningavið-
ræður ísraela
og Egypta
endurvaklar
bótt Menachem Begin forsætis-
ráðherra Israels og Anwar Sadat,
Egyptalandsforseti, séu ekki á
einu máli, hvort eða hvernig aðild
Palestinumanna skuli háttað i
komandi samningaviðræðum um
vandamálin fyrir botni Miðjarð-
arhafsins, hafa þeir ákveðið að
hefja samningaviðræður að nýju
hinn 23. september næstkomandi.
Frá þessu greindu þeir eftir
tveggja daga fund i Alexandriu,
þar sem sjónarmiðin voru sett
fram, og litið yfir helstu þætti,
sem frekar þyrfti að ræða.
Vist þykir að aðild Palestinu-
manna að viðræðunum verður
eitt helsta ágreiningsefnið. Sadat
hefur lýst þvi yfir, að hann telji
PLO ekki einu fulltrúa Palestinu-
manna og Begin heldur enn sem
fyrr fast við þá skoðun, að PLO-
samtökin komi hvergi nærri
samningaviðræðum. óljóst er þvi
hvernig þessu verður háttað, en
minnugir fundar Sadats og
Reagans Bandarikjaforseta fyrr i
mánuðinum, telja fréttaskýrend-
ur ekki útilokað, að Bandarikja-
menn muni virka sem nokkurs
konar milliliður i samningavið-
ræðum við PLO. Sem kunnugt er,
lýstu Bandarikjamenn yfir stuðn-
ingi við skoðun Israela, að PLO
ætti ekki að taka þátt i samninga-
viðræðum, en Sadat benti þá á, að
hæpnu samkomulagi væri hægt
að ná, ef ekki væri að minnsta
kosti rætt við annan aðilann.
Ævintýrakafar-
ar leiia dollara
Kafararsemfundiðhafa annan
af tveimur peningaskápum sem
voru um borð i itölsku skipi er
sökk fyrir 25 árum, munu gera til-
raun i dag til þess að ná skápnum
upp. Ekki er þó allt þetta mikla
verk unnið til þess aö ná tómum
skápi, þvi talið er að milljónir
dollara hafiverið i peningaskápn-
unum tveimur, þegar skipið sökk.
Skipið sökk um 48 mílur suð-aust-
ur af Nantucket eyjum i Banda-
rikjunum.
Skipiö sem hét Andria Doria
sökk hinn 26. júli 1956 eftir árekst-
ur við sænskt skip, og létust 52.
Peningaskáparnir höföu verið á
skipamiðlunarskrifstofu, i tengsl-
um við Rómarbanka, og voru
taldir innihalda á milli 1-4
milljónirdollara. Kafararnir hófu
þegar leit aö hinum skápnum,
eftir að fest hafði verið taug i
skápinn sem þegar var fundinn.
61
Kyrjuðu
Tuttugu konur voru handteknar
igær,erþærsettustágótuna utan
við Hvita húsið og töfðu umferð.
Áður höfðu konur þessar
llnnið við bilun
í Kðnnuði 2:
Blartsýn-
ir um að
viðgerð
lakisl
Myndavélakerfi Könnuöar 2,
bilaði er geimskipið var á bak við
Satúrnus, miðað við afstööu jarð-
ar. Bilunin virðist hafa orðið i
stalli eða hreyfiörmum sem
myndavélarnar eru á þannig að
hliðarhreyfingar virkuðu ekki.
Hins vegar var hægt að stýra
myndavélunum lóðrétt. Þetta
þýddi að i gær sendi Könnuður frá
sér svartar myndir, teknar eitt-
hvað út i geiminn, en visinda-
menn voru vongóðir um að tækist
að gera við myndabúnaðinn og i
morgun hafði þegar tekist að
hreyfa myndavélarstallinn um
nokkrar gráður til hliðar. Til þess
að gera viö bilunina þurfti að
senda merki til Könnuðar, sem
tók um eina og hálfa klukkustund,
en hinn fullkomni tölvubúnaður
skipsins tók á móti merkjum og
vinnur nú að viðgerð á myndavél-
unum.
Að öðru leyti mun geimskipið
vera i besta lagi, en talið er að
einhvers konar isnálar með ryk-
ögnum hafi valdið biluninni er
Könnuður fór svo nærri Satúrn-
usi.
Ljóst er að ýmsar myndir sem
visindamenn hugðust fá af
Satúmusi, verður ekki hægt að fá
að sinni, þar sem Könnuður
leggur nú af stað áleiðis til
Úranusar, en þar verður hann lik-
lega árið 1986.
Enn hóta
prentarar
Nú í sex daga
1 yfirlýsingu Samstöðu,
samtaka óháðra verkalýðs-
felaga igær,segirað þar sem
stjómvöld magni enn áróður
og ásakanir á hendur Sam-
stöðu i fjölmiðlum, komi til
greina að hefja 6 daga verkfall
prentara, til þess að leggja
enn frekar áherslu á kröfur
samtakanna.
Stanislaw Kania, foringi
kommúnista, sagði i útvarps-
viðtali, eftir yfirlýsingu Sam-
stöðu aö hann myndi ekki
leyfaþaöað rikisfjölmiölarnir
yrðu hljóðir og frekari tilraun-
ir til mótmælaaögerða á göt-
um úti gætu leitt til
„sprengingar”.
Prentarar i Olzstyn i
noröurhluta Póllands sem
hafa nú verið i vikulöngu
verkfalli hafa skorað á starfs-
bræður sina að taka þátt i að-
gerðunum. Samstaða hafði
hvatt til þess fyrr i vikunni að
prentaramir létu af verkföll-
um en þeirsvöruðu með þvi að
lýsa yfir tortryggni gagnvart
forystunni. Þeir hafa hvatt
prentara til þess aö „ganga
út” á sunnudaginn.
Weinberger telur Ijóst að sainan geti farið aukin hernaðarútgjöld og
niöurskurður rfkisútgjalda, en efnahagsráðgjafar og hernaðarráðgjaf-
ar áttu langan fund um þetta mál i gær.
• Bandarískir ráðgjafar:
Hægt að auka
hernaðarmátt
án aukinna
rikisútgjalda
Ráðgjafar Reagans banda-
rikjaforseta, bæði I hernaðarmál-
um og efnahagsmálum hittust á
fjögurra 'tima fundi i gær til þess
að ræða hvernig saman megi fara
aukin útgjöld til hernaðar og lof-
orð Reagans um niðurskurð á
rikisútgjöldum.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandarikjanna
sagði við fréttamenn eftir fund-
inn, að hann hefði reynst mjög
gagnlegur og farið heföi veriö ná-
kvamlega i flesta efnisþætti, og
ekki virtust vera nein vandkvæði
á að unnt yröi aö efna þessiloforð
Reagans. Að svo búnu hélt hann á
setur Reagans, þar sem hann
dvelst nú i sumarleyfi, til þess að
ræða ýmsa efnisþætti nánar.
Weinberger telur ljóst aö
saman geti farið aukin hernaðar-
útgjöld og niöurskurður rikisút-
gjalda, en efnahagsráðgjafar og
hernaðarráögjafar áttu langan
fund um þetta mál i gær.
Ellelu búsund bafa
velksl vegna
eitraörar matarolfu
- og ylir hundrað dáið
Eitraða matarolian, sem um
skeið var á markaði á Spáni, hef-
ur leitt um 100 manns til bana á
siðustu 4 mánuðum. Um 11 þús-
und manns hafa veikst siðan
komist var aö þvi, hvað olli sjúk-
leikaeinkennunum, sárindum i
lungum, háum hita og máttleysi.
Háværar raddir eftirlifandi
fórnarlamba hafa leitt til gaum-
gæfilegrar athugunar á markaðn-
um. Komið hefur i ljós, að yfir 25
mataroliutegundir reynast inni-
halda hið hættulega oliuefni, sem
reyndar er ætlað til annarrar
iðnaðarframleiðslu en matvæla-
framleiðslu. Um 11 erlend vöru-
merki hafa verið gerð upptæk.
En mikill hluti fórnarlambanna
telur ekki nóg að gert og krafist er
afsagnar heilbrigðisráðherrans,
og mikilla fjárhæða i bætur.
ár irá bví konur i usfl fengu kosningaréll:
slagorö viD Hvita húsiö
hlekkjað sig við girðinguna um-
hverfis Hvita húsið og kyrjað þar
slagorð varðandi réttindi kvenna,
en i gær var 61 ár liðið frá þvi
bandariskar konur fengu kosn-
ingarétt.
Reagan forseti var fjarri góðu
gamni, er þetta gerðist, en kon-
urnar voru fluttar á lögreglustöð i
nágrenninu, þar sem flestum
þeirra var sleppt eftir að hafa
greitt 10 dollara i sekt.