Vísir - 27.08.1981, Blaðsíða 7

Vísir - 27.08.1981, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 27. ágúst 1981 7 VtSIR Ekkert komlö mér á óvart Dólt vítinu hefðl verlð sleppt sagðl flllan Slmonsen eftir landsleiklnn við ísland (gærkvðldl Frá Axel Ammendrup í Kaup- mannahöfn: „Þessi vitaspyrnudómur var vægast sagt mjög vafasamur. Mér hefur oft veriö brugöiö harkalegar en þetta, án þess aö hafa fengiö viti og þaö heföi ekki komiö mér á óvart, þótt þvi heföi veriö sleppt þarna’’ sagöi hinn frægi Allan Simonsen, þegar viö náöum tali af honum er hann var aö koma úr baöi eftir leikinn i gærkvöldi, en þá var hann strax umsetinn af blaöamönnum. ,,Viö hefðum getaö unnið stærri sigur, ef viö heföum lagt okkur alla fram”, sagði Simonsen. Um islenska liöiö sagöi hann, aö hann heföi búist viö þvi betra. ,,En þaö lék varnarleikinn taktiskt rétt, en tæknilega séö voru Islendingarnir ekki góöir. Mér fannst Atli Eövaldsson vera bestur þeirra, en ég er nokk- uð viss um, aö þetta hafi veriö langt frá þvi aö vera hans besti leikur um dagana”. ATA/— klp — Stjörnuleikmaöurinn Allan Simonsen, sem leikur meö Barcelona á Spáni sagöi, aö sér heföi oft veriö brugöiö harkalegar en I leiknum viö tsland i gær án þess aö fá vitaspyrnu á þaö. „StPi p bi i of n a v ÍPðí í i fv rip D( inui m9P n - sagðl Guðnl Kjartansson, landsllðshjálfarl. eltlr að Danlr Itölðu lagt íslendlnga að velll 3:01 gærkvðldl Frá Uunnari Salvarssyni I Kaupmannahöfn. — ,,Ég er aldrei ánægöur, þegar viö töpum iands- leik og þetta eru ekki viðunandi úrslit”, sagöi Guöni Kjartansson, landsliösþjálfari i knattspyrnu, eftir aö islendingar höföu tapað (0:3) fyrir Dönum á Idrætspark- en, þar sem 16 þús. áhorfendur voru samankomnir. „Strákarnir báru allt of mikla viröingu fyrir Dönum, sem eru sterkir. Þeir voru allt of ragir viö að fara I návigi og vinna boltann, þannig aö Danir fengu oft aö leika lausum hala um völlinn”, sagöi Guöni. Guöni sagöist hafa verið nokk- uð ánægöur meö seinni hálfleik- inn — þá héldum við knettinum betur. Vörnii'. var betri hluti liös- ins, en sóknarleikurinn aftur á móti slakur og rann leikur okkar út I sandinn i sókninni, þar sem 1-2 sóknarleikmenn okkar þurftu aö glima við 4-5 varnarleikmenn Dana, sagöi Guöni. Danir byrjuðu vel Danir byrjuöu leikinn vel — léku netta og skemmtilega knatt- spyrnu og skoruöu þeir sitt fyrsta mark á 13. min., eftir aö þeir höföu haldiö uppi stórskotahriö aö marki íslendinga. Þaö var Lars Lundqust, sem skoraöi markiö meö skoti utan úr teig og átti Þor- steinn Bjarnason ekki möguleika á aö verja, þar sem hann var kominn úr jafnvægi, enda búinn að vera mikill darraöardans inni i vitateignum. Þaö var eins og þetta mark hafi sett fslensku leikmennina út af laginu — þeir áttu erfitt meö aö hamla á móti léttleikandi Dönum. • PÉTUR ORMSLEV...besti leikmaður islenska liösins. Það var ekki fyrr en á 20. min. aö Islendingar fengu fyrsta mark- Sagt eftir telklnn: Alltaf lelðinlegt að fypir Dðnum’ Frá Gunnari Salvarssyni i Kaupmannahöfn. — Þetta var dapurlegt — sérstaklega I byrjun, þegar viö fengum mjög ódýr mörk á okkur, sem er niöur- drepandi. Viö bárum allt of mikla viröingu fyrir Dönum og varö þaö okkur aö falli, sagöi Marteinn Geirsson, fyrirliöi isienska lands- liösins, eftir leikinn á Idrætspark- en. — Danir léku eins og ég átti von á — rólega og yfirvegað. Við létum þá narra okkur of framar- lega á völlinn, þannig aö sóknir þeirra urðu hættulegri, sagði Marteinn. Marteinn sagöi, að islensku leikmennirnir hafi ekki verið nógu ákveðnir i sókninni — náðu ekki aö leika yfirvegað og þannig gátum viö ekki nýtt þau tækifæri, sem við fengum, sagöi Marteinn. „Slakur leikur" — Þaö er alltaf leiöinlegt aö tapa landsleik og þá sérstaklega gegn Dönum, sagöi Atli Eövalds- sonsem þótti leikurinn vera slak- ur. Sigurlás Þorleifsson, sóknar- leikmaðurinn knái frá Vest- mannaeyjum, tók i sama streng. — Þetta var frekar lélegur leikur. Viö náðum aldrei að byggja upp neitt spil og töpuöum knettinum. — Það var litill munur á leik okkar i fyrri hálfleik og þeim seinni. Danirnir voru bara verri i þeim seinni, sagöi Sigurlás, sem var óhress aö hafa ekki fengið aö leika meira meö, en hann kom inn á rétt fyrir leikslok. Það skipti engu máli fyrir okkur, að ég hafi verið settur inn á, þegar 7 min. voru til leiksloka — baráttan var búin, sagði Sigurlás. Sigurlás sagöi, aö það hafi illi- lega vantað reyndan leikmann á miðjuna hjá islenska liðinu. —Gsal/—SOS tækifæri sitt — Siguröur Lárusson átti þá skot aö marki og stuttu siöar átti Pétur Ormslev skot aö marki Dana. Allan Simonsen bætti ööru marki viö á 35. min., eftir mistök Þorsteins Bjarnasonar, mark- varöar, sem hætti viö aö fara út I fyrirgjöf fyrir markiö. Knöttur- inn barst til Allan Simonsen, sem lék skemmtilega á Sigurö Lárus- son og skoraöi af stuttu færi. Umdeild vítaspyrna Danir skoruöu sitt þ-iöja mark á 38. mín. — úr mjög umdeildri vftaspyrnu, sem norski dómarinn dæmdi á, ólaf Björnsson, sem kom inn á sem varamaöur á 28. min. fyrir Viöar Halldórsson, sem meiddist. Allan Simonsen fékk þá stungusendingu inn fyrir vörn Is- lendinga — knötturinn barst til Ólafs Björnssonar, sem baröist viö Simonsen um knöttinn og féll Simonsen bá við. Þaö var Allan Simonsen sjálfur.sem tók spyrn- una og skoraöi örugglega — 3:0. „Engin vítaspyrna" „Þetta var ekki vitaspyrna. Ég vissi ekki af Simonsen — var aö snúa mér viö meö knöttinn, til aö spyrna fram, þegar Simonsen hljóp aö mér og vissi ég ekki fyrr en hann féll viö. Þetta var mjög haröur dómur — þaö heföi ekki veriö dæmd aukaspyrna á þetta úti á velli og þv átti ekki aö dæma vitaspyrnu inm i vitateig, sagöi Ólafur Björnssrn. Attu í fullu tré viö Dani tslendingar áttu i fullu tré viö Dani i seinni hálfleik — þá léku þeirrólega og yfirvegað, en náöu þó aldrei aö skapa sér tækifæri. Þaö getur veriö, aö Danir hafi ekki lagt hart að sér. Tveir leikmenn Islands fengu aö sjá gula spjaldiö meö stuttu millibili — þeir Pétur Ormslev og Atli Eövaldsson. Ragnar Margeirsson kom inn á fyrir Lárus Guðmundsson i seinni hálfleik og Sigurlás Þorleifsson tók stööu Péturs Ormslev rétt fyrir leikslok. Pétur Ormslev var besti leik- maöur islenska liösins — var góö- ur meö knöftinn og skilaöi honum vel frá sér Þá varöist hann vel. Atli Eövaldsson átti þá góöa spretti og þá voru þeir Lárus og Arni Sveinsson þokkalegir. — Gsal/—- SOS Hemmi Gunn á Akranesi „Stjörnuliö” Hermanns Gunn- arssonar mætir úrvalsliöi Jóns Gunnlaugssonar á grasvellinum á Akranesi kl. 18.15 i' dag. Liö Jóns er aö mestu skipaö leikmönnum úr tslandsmeistaraliöi 1A 1970. 0 Sepp Piontek „íslenska liðið ekkert sérstakr - sagði Sepp riontek Dlállarl Dana FRA AXEL AMMENDRUP t KAUPMANNAHÖFN: „Minir menn geröu þaö sem fyrir þá var lagt i fyrri hálf- leiknum, en f þeim siöari voru þeir aöf lýta sér aö ljúka leikn- um if sem fy-st”. sagöi Sepp Pion.ek, þjálfari danska landsliösins, eftir sigurinn yfir islandi i gærkvöldi. ,,Ég var ekki ánægöur með mina menn — maður má ekki vera ánægður i svona stöðu eins og þessari. En 3:0 sigur var alveg nógu stór i þetta sinn.' tslenska liöið var ekkert sérstakt og besti maður þess þótti mér vera Þorsteinn Bjarnason, markvörður. Atli Eðvaldsson olli mér aftur á móti vonbrigðum — ég átti von á honum miklu betri en þetta”. ATA/—klp— Ekki eins miklð áfail og Vandarhðgg Þeir tslendingar sem sáu leik Dana og tslendinga i Kaupmannahöfn i gærkvöldi, sögöu aö leikurinn gegn Dön- um hafi ekki veriö neitt áfall fyrir tslendinga — ekki miöaö viö sjónvarpsleikritiö VAND- ARHÖGG eftir Hrafn Guö- laugsson, sem var sýnt f danska sjónvarpinu sl. vetur. — SOS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.