Vísir - 27.08.1981, Side 28
vtsm
Fimmtudagur 27. ágúst 1981.
síminnerdóóll
*_ t
Utanbæjarstúlkurnar stóðu ráðþrota á Miklubrautinni siðdegis i gær, þegar engil bar að I vinnugalla
með húfu og akandi á VW-rúgbrauöi. Það getur nefnilega vafist fyrir sumum að skipta um sprungið
dekk og vist er, að ekki eru allir jafnheppnir og stúlkurnar frá Neskaupstað voru. En allt fór vel og
engillinn sveif á braut að lokinni dekkjaskiptingunni.
Kádilákurinn fór á
63 dúsund:
Glæsilegasti
frúarbíll
landsins
Kádilákurinn, sem við sögðum
frá í gær, hefur skipt um eiganda
og mun billinn i framtiðinni prýða
götur Reykjavikur. Hinn heppni
var Hartmann Ásgrimsson og
hann borgaði 63.000 krónur fyrir
gripinn. (með söluskatti).
„Ég er enginn sérstakur bila-
áhugamaðurheldur vildi ég fá ör-
uggan og góðan bil. Þessi bill er i
raun núna fyrst að hefja sitt lif,”
sagði Hartmann i viðtali við Visi i
morgun. „Og það eru þjóðsögur,
að hann brenni jafn miklu elds-
neyti og af er látið. Hann eyðir
um 20 litrum á hundraðið og eitt-
hvað meira i bænum.”
— Oghvernig er tilfinningin að
sitja undir stýri?
„Það er dásamleg tilfinning og
engu öðru lik. Annars er það kon-
an, sem kemur til með að vera
mest á honum,” sagði Hartmann
Asgrimsson.
TT.
ALLIRGETA
LEIKIDSER
MED
SVIFDISK
seglr
Morgunblaðið birtir mynd
af Geir Hallgrimssyni með
frétt um mann, sem handtek-
inn var á Keflavikurflugvelli.
Er þetta liður i herferð blaös-
ins fyrir endurkjöri Geirs i
formannsembætti i Sjálf-
stæðisflokknum?
veðurspá
dagsins
Um 900 km. suðvestur af
landinu er 985 mb. lægð sem
hreyfist norður, en 1031 mb.
lægð yfir pretlandseyjum.
Hlýtt verður um allt land og á
norðanverðu landinu verður
víða um eða yfir 20 stiga hiti i
dag.
Suðurland til Breiðafjarðar:
Vaxandi sunnan og suðaust-
an átt, allhvasst eða hvasst
þegarlfður á daginn, þokusúld
i fyrstu, en siðan rigning.
Vestiröir:
Vaxandi sunnan og suðaust-
an átt, allhvasst og rigning,
þegar liður á daginn.
Strandir og Norðurland
vestra:
Vaxandi sunnan og suðaust-
an átt, stinningskaldi eða all-
hvasst og dálitil rigning sið-
degis. '
Norðurland eystra til Aust-
fjarða:
Hæg, breytileg átt og skýjað
með köflum i fyrstu, en
þykknar siðan upp með v^ix-’
andi suðaustan átt. Kaldi eða
stinningskaldi og dálitil rign-
ing siödegis.
Suð-Austurland:
Suðvestan gola og þokuloft i
fyrstu, en snýst i allhvassa
suðaustan og sunnanátt þegar
kemur fram á daginn.
veðríð hér
og bar
Kl. 6 i morgun:
Akureyri alskýjað 16, Bergen
skýjað 7, Helsinki þokumóða
11, Kaupmannahöfnléttskýjað
12, Osló léttskýjað 9, Reykja-
vik þokumóða 12, Stokkhólm-
urléttskýjað 9, Þórshöfnþoka
i grennd 11.
Kl. 18 i gær:
Aþena hálfskýjað 22, Berlin
skúr á siðustu klukkustund 17,
Chicagoléttskýjað 28, Feneyj-
ar léttskýjað 22, Frankfurt
skúr á siðustu klukkustund 19,
London léttskýjað 25, Luxem-
burg léttskýjað 19, Mailorka
léttskýjað 25, Montrealskýjað
23, New York heiðskirt
22, Paris léttskýjað 24, Róm
heiöskirt 23, Malaga heiðskirt
25, Vin skýjað 18, Winnipeg
skýjað 24.
„Á ekkl von á neinum
breytingum héðan af”
- segir Elnar Halldórsson öæjarstlóri í Hafnarllrðl
„Það var skipulagsnefnd sem
upphaflega kom meö þessa hug-
mynd að hafa sameiginlegt sjón-
varps- og Utvarpsloftnet fyrir
húsin i Hvammahverfi” sagði
Einar Halldórsson bæjarstjóri i
Hafnarfirði i samtali við Visi
vegna frétta blaðsins i gær um aö
ibUar þyrftu að borga rúmar 4
þúsund krónur fyrir sjónvarps-
kapal fyrir hvert hús. Ibúar hafa
mótmælt þessu.
„Bæjarstjórn ákvað siðan aö
samþykkja þessa hugmynd þvi
hún þótti m jög eölileg l samræmi
við þá þróun sem oröið hefur i
tæknimálum og bjóöa ákveðna
möguleika i framtiðinni. Rafveit-
unni var siðan falið aö fram-
kvæma verkið en tilboða i tækja-
búnað leitað hjá erlendum fyrir-
tækjum. Sá búnaður sem valinn
varermjög góður.en einnig n<*k-
uö dýr. Ég tel aö sá verömismun-
ur sem rætt er um felist einkum i
gæðunum og er ekki tilbúinn til að
kyngja þessum tölum að hægt sé
að fd sambærilegt kerfi fyrir
þriðjung þessa verð6”, sagði Ein-
ar.
Hann taldi það mjög eölilega
framkvæmd á innheimtu sem nU
væri viðhöfð, að loftnetsgjaldið
væri innheimt um leiö og heim-
taugargjald, þvi Rafveitan hafi
ekki fengið neina fjármagnsfyrir-
greiðslu til verksins og oröið að
standa undir öllum kostnaði.
Þessa fjármuni þyrfti hUn aö
sjálfsögðu að fá til baka.
„Þessi mótmæli frá íbúunum
verða að sjálfsögðu lögð fyrir en
það getur tekið einhverjar vikur
áöur en málið fær afgreiðslu i
bæjarstjóm. Ég á þó ekki von á að
neinu veröi breytt héðan af”,
sagði Einar.
JB
ASKRIFENDA-
GETRAUN VÍSIS:
Dreglð 9.
september
Draga átti um Datsun Cherry i‘
áskrifendagetraun Visis i gær-
kvöldi. Þaökom hins vegar i ljós i
gærdag.aðáskrifendurVisis hafa
verið mjög á faraldsfæti i sumar-
frium að undanförnu, þvi að
fjölda margar óskir bárust um
frestun á drætti frá fólki, sem
mundi þá, að það átti eftir að
senda inn seðil. Yfirleitt var um
að ræða fólk utan af landi og var
þvi ákveðið að fresta þvi að draga
um Datsuninn fram til 9. septem-
ber. Nýir áskrifendur geta orðið
þátttakendur i getrauninni fram
að þeim tima.
KEA
Kauplr afgrelðslu
Hafskips ð Akurevrl
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
fest kaup á mannvirkjum Bygg-
ingavöruverslunar Tómasar
Björnssonar hf. á uppfyllingunni
við Togarabryggjuna á Akureyri.
Jafnframt yfirtekur KEA af-
greiðslu Hafskips á Akureyri,
sem BTB hefur gegnt, allt frá
stofnun Hafskips. Auk þess er
KEA með afgreiðslu fyrir Rikis-
skip og Sambandsskipin.
Upphaflega var ætlunin, að
KEA keypti allar fasteignir BTB,
en auk vörugeymslunnar á tog-
arabryggjunni á Byggingavöru-
verslunin húseignir við Glerár-
götu, við hlið byggingavörudeild-
ar KEA. Ætlaði KEA þá að láta i
skiptum húseign við Óseyri, sem
er i eigu Plasteinangrunar hf.,
dótturfyrirbekis KEA.Voru samn-
ingar vel á veg komnir, en þeir
strönduðu á siðustu stundu, að
sögn Arna Árnasonar, forstjóra
BTB. Hann sagði að húseignirnar
við Glerárgötu væru áfram i sölu,
þrátt fyrir það, jafnframt þvi sem
byggingavöruverslunin leitaði
eftir hentugri lóð fyrir starfsemi
sina. Sagði Árni, að núverandi
húsnæði hentaði ekki fyrir þá
þungavöru, sem væri i bygginga-
vöruversluninni nú til dags og
krefðist notkunar stórvirkra
flutningatækja eins og lyftara, ef
vel ætti að vera. GS/Akureyri