Vísir - 03.09.1981, Side 17

Vísir - 03.09.1981, Side 17
17 Fimmtudagur 3. september 1981 VÍSIR Poul Littlewood breskur meistari Skákþingi Bretlands er nýlok- ið, en þar tefldu 52 keppendur 11 umferðir eftir svissneska kerf- inu. Þeirra stigahæstir voru stórmeistarinn Speelman 2535, og alþjóðlegu meistararnir Chandler 2530 og Hartston 2450. Ekki féll 1. sætiö þó i hlut neins þeirra. Paul Littlewood setti strax á fulla ferð og var kominn með 5 vinninga eftir 5 fyrstu umferðirnar. Þar var ekkert gefiö eftir, og tveir þessara fimm vinninga voru fengnir eftir 96. leik. Að loknum 10 umferöum hafði Littlewood 1 vinnings forskot á Speelman, og þeir mættust einmitt i slðustu umferð. Þó stórmeistarinn hefði hvitt, komst hann ekkert áleiðis og eftir 20 leikja jafntefli var krýndur nýr skákmeistari Bret- lands. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1. P. Littlewood 9v. 2. J.Speelman 8v. 3. -7. Bellin Hall Hartston Pritchett Rumens 71/2v. 8.-9. Chandler Short 7 v. Meðal þeirra sem Littlewood bar sigurorð af voru Chandler, Bellin og Hartston. Hartston hafði ekki tapað skák á þrem siðustu skákþingum Bretlands og fékk nú loks að bergja á hin- um beiska bikar ósigursins. ‘Umsjón: Jóhann örn Sigurjónsson Undrabarnið Short olli nokkr- um vonbrigðum. Fyrir tveim árum, er hann var aðeins 14 ára gamall, varð hann i 1.-3. sæti á skákþingi Bretlands og efstur á útsláttarmóti BBC fyrr á þessu ári. En Short ógnaði aldrei efsta sæti og tapaði rétt einu sinni enn fyrir Speelman og þar standa vinningar 4:0, stórmeistaranum I vil. Paul Littlewood á ekki langt að sækja skákhæfileikann. Fað- ir hans, John Littlewood var hér áður fyrr einn allra fremsti skákmaöur Englands og nú hefur sonurinn tekið upp merkið. En litum nú á eina vinnings- skák hins 25 ára gamla meist- ara. Hvitur: P. Littlewood Svartur: K. Norman Drottningarindversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 (Það fer að heyra til undantekn- inga ef hvitur gefur kost á Nim- zoindverskri vörn.) 3.. .. b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Be7 6.0-0 0-0 7. d5! (Þessari peðsfórn hefur svartur átt mjög erfitt með að mæta, og gefið hvitum hvern sigurinn eftir annan. Frægasta dæmið er 12. einvigisskák Polugaevsky : Kortsnoj 1980.) 7.. .. exd5 8. Rh4! c6 9. cxd5 Rxd5 (I skák þeirra Beljavsky : Spassky Tngsram 1980, var leik- ið 9. .. cxd5 10. Rc3 Ra6 11. Rf5 Rc7 12. Bf4 Bc5 13. Hcl Bc6 14. Ra4 g6 15. Rxc5 bxc5 16. Bxc7 Dxc7 17. Re7+ Kg7 18. Rxd5 með jafnri stöðu, þó svartur . sigraöi um siðir.) 10. Rf5 Rf6 (1 skák Polugaevsky : Kortsnojsléksvarturafsérmeð J 10. .. Bc5? 11. e4 Re7 12. Rxg7! 1 Kxg7 13. b4! Bxb4 14. Dd4+ og ' hvitur vann.) 11. e4 He8 ■ 12. Bg5 h6 1 13. Bf4 Bf8 ■ 14. Rc3 d5 ■ 15. e5 Rf-d7 ■ 16. Hel Rc5? ■ (Trúlega gaf 16. .. Kh7 mesta | varnarmöguleika. Ef 17. Dc2 g6 ■ 18. e6Hxe6 19. Hxe6 fxe6 20. Rh4 g De8 nær svartur aö verjast j áföllum.) 17. Dg4 Kh7 18. Ha-dl Rb-a6 19. Re4 Bc8 I pi i |g 1 1 1 41 1 1 ■ 41 i ^ 1 1 - 1 t a 1 itl ■ ■ ■ ■ 2Ö.Bxh6! Bxf5 (Um annað er tæpast að ræða. Ef 21. .. gxh6 22. Rf6+ Kh8 23. Dg8 mát.) 21. Dxf5+ Kxh6 22. Dh3+ Kg6 23. g4 Hxe5 24. Rxc5 Gefið . Ef 24. .. Hxel+ 25. Hxel Dg5 26. f4Dh627.Dd3+ KÍ6 28. Df5 mát. Eða 26. .. Dxf4 27. Dh5+ Kf6 28. Rd7 mát. Jóhann örn Sigurjónsson Koupir þú sófosett, ón þess oð skoða stærsto úrvol londsins? Komdu 09 gefðu þér góðon tímo HVSGAGNA BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK HÚSGÖGN HÍLLIN SÍMAR: 91-81199 -81410 oðTeiÐm mm' ÓDÝR DILKA- SLÖG Kr. 11 pr. kg. LAUGAVEGI 78 REYKJAVlK SlMI 11636 ( 4 LÍNUR) Lausar stöður Tvær stöður yfirmatsmanna við Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða, er einkum starfi við sildarmat eru lausar til umsókn- ar. Staðgóð þekking og reynsla i sildar- verkun nauðsynleg. Matsréttindi og reynsla i sem flestum greinum fiskvinnslu æskileg. Búseta á Suðvesturlandi eða Austfjörðum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist sjávarút- vegsráðuneytinu fyrir 25. september n.k. Sjávarútvegsráðuneytið, 25. ágúst 1981. Edelmann Allt á sama stað Sendum í póstkröfu EGILL VILHJÁLMSSON HF. LAUGAVEGI 118 - PÓSTHÓLF 5350 - SÍMI 22240 - REYKJAVÍK

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.