Vísir - 30.10.1981, Qupperneq 1
Hrafnagilshreppur stefnir bæjarstjóranum á Akureyri:
boranir eftlr heltu vatnl
„Þaö er rétt, mér og Siguröi
Jóhannessyni, forseta bæjar-
stjórnar, hefur veriö stefnt af
hreppsnefnd Hrafnagilshrepps
og eigum viö aö mæta fyrir
dómi i dag”, sagöi Heigi M.
Bergs, bæjarstjóri á Akureyri, i
samtali viö Visi.
Krafa hreppsnefndar Hrafna-
gilshrepps i umræddri stefnu er
sú, aö samningur Hitaveitu Ak-
ureyrar viö Hjalta Jósefsson um
borun eftir heitu vatni i landi
Hjalta aö Hrafnagili, og siðan
nýtingu þess vatns sem fæst,
veröi ógiltur. Telja hrepps-
nefndarmenn, aö hreppurinn
hafi átt forkaupsrétt að vatns-
réttinum, en umræddur samn-
ingur hafi hvorki verið lagður
fyrir hreppsnefnd né jarða-
nefnd. Hreppsnefndin hafi þvi
ekki átt kost á að notfæra sér
forkaupsréttinn. Stjórn Hita-
veitu Akureyrar telur sig hins
vegar hafa farið að lögum við
gerð umrædds samnings. Sé
hann samhljóða mörgum slik-
um samningum sem Hitaveitan
hafi gert við bændur i öngul-
staðahreppi, en þaðan fær veit-
an það vatn, sem nýtt er nú.
Telja hitaveitumenn, að ekki
hafi verið ástæða til að leggja
samninginn fyrir hreppsnefnd
eða jarðanefnd.
„Við ákváðum að fara þessa
leið til að þrýsta á samninga við
Hitaveitu Akureyrar,” sagði
Haraldur Hannesson. oddviti
Hrafnagilshrepps. „Undanfarin
20 ár höfum við hitað félags-
heimili okkar og barnaskóla
með vatni úr Hrafnagilslaug og
fyrir 8 árum bættist heimavist-
arskólinn að Hrafnagili við. En
eftir að Hitaveita Akureyrar
boraði eftir vatni á Grisará og
Reykjum og hóf kraftmiklar
dælingar úr borholum sinum að
Laugalandi, þá þornaði þessi
laug. Við förum þvi fram a að
Hitaveita Akureyrar láti okkur i
té nægilegt vatn til aö hita upp
þessi hús, til að bæta okkur upp
vatnstapið úr Hrafnagilslaug,
sem við viljum ætla að sé af
völdum framkvæmda Hitaveit-
unnar. A þetta hafa ráðamenn
Hitaveitunnar ekki viljað fall-
ast, en samningaleiðin er enn
opin frá okkar hálfu. Þess vegna
viljum viö fá að notfæra okkur
forkaupsrétt, sem við teljum að
hreppurinn eigi að vatnsréttind-
um að Hrafnagili, með þvi að
ganga inn i umræddan samning
i stað Hitaveitunnar”, sagöi
Haraldur.
Hitaveita Akureyrar hefur
borað tvær holur i landi Hrafna-
gils. önnur þeirra gefur um 30
sek.l.og er nú verið aö ljúka við
að tengja hana veitukerfinu.
Borun i hinni holunni fer senn aö
ljúka, en hún gefur þegar um 10
sek.l. af nær 100 gráðu heitu
vatni. Verður hún sennilega ein
besta hola veitunnar.
GS/Akureyri
Landsfundur Sjálfstæöisflokksins:
... jÆ i
W l. $ Æm l bs w Æm
mmf ■ »-
■ ■V
■ ffl m
* Wk» iHljL ^ m • ■Jr:>*í
Fulltrúará landsfundinum stóöu upp úr sætum sfnum og hylltu Geir Hallgrfmsson eftir setningarræöu hans. Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra og Vala kona hans sátu hins
vegar sem fastast. Þá sést þaö einnig á þessari mynd Gunnars V. Andréssonar, ljósmyndara VIsis, aö eiginkona Pálma Jónssonar situr kyrr f sæti sfnu.
Engin lausn að fá nýja menn
fv
99
- sagði Geir Hallgrímsson i setningarræöu sinní
Tuttugasti og fjóröi landsfund-
ur Sjálfstæöisflokksins var settur
með pompi og prakt i Háskólabiói
I gær, að viöstöddum fjölda gesta.
Þar flutti formaöur flokksins,
Geir Hallgrimsson, setningar-
ræöu, en nokkra athygii vakti, aö
sú hefö aö kalla varaformann til
aö stjórna fundinum, var brotin
og var fundurinn þvi án nokkurs
sérstaks fundarstjóra.
1 ræðu sinni rakti Geir,
Hallgrimsson þróun stjórnmála
undanfarin ár og aðdragandann
að myndun núverandi rikisstjórn-
ar. Vék hann einnig máli sinu að
þeim sáttaviöræðum, sem átt
hafa sér stað milli stjórnarsinna
og stjórnarandstæðinga i Sjálf-
stæðisflokknum. Kvað hann þá
fyrrnefndu vera reiðubúna til
sátta, en að litil viðbrögð hefðu
borist frá stuðningsmönnum
rikisstjórnarinnar.
Þá vék hann einnig að hug-
myndum um breytingar á forystu
flokksins. Geir kvað það enga
lausn að kveöja nýja menn til
stjórnunarstarfa við óbreyttar
aðstæður, þvi að þeir kæmu til
með aö standa frammi fyrir sama
vanda. „Vandi okkar nú verður
þvi aöeins leystur, að við ráðumst
aö rótum hans, þ.e. myndun nú-
verandi ríkisstjórnar, stefnu
hennar og störfum”, sagði hann.
—JB