Vísir - 30.10.1981, Síða 11
FnctuHacMir nlrt^hnr 1Q81
11
VÍSIR
Aðstandendur útgáfu úrvalsritsins og höfundur þess fyrir aftan ritflokkinn. T.f.v. Ólafur Pálmason,
Sverrir Kristinsson, Guðmundur Danfelsson og Eysteinn Sigurðsson. Vlsism. Þ.L.
.Fjölbreytni mannsins
er mitt viðfangsefni’
- sagðl Guðmundur Danlelsson I tllefnl al útkomu
úrvalsrita verka slnna
„Lykillinn að allri skáld-
sagnagerð er að höfundur grafi
sig inn i undirmeðvitund sjálfs
síns. Þar hefur hann allt sem
getur veitt sögunni hans eigið
yfirbragð”, sagði rithöfundur-
inn landskunni Guðmundur
Danielsson á blaðamannafundi
sem bókaforlagið Lögberg. hélt
i gær i tilefni af nýútkomnum
urvalsritum verka hans.
1 ritrööinni sem telur tíu bindi
er að finna flestar þær bækur
sem Guðmundur hefur látið frá
sér fara á sinum rithöfundaferli
Eysteinn Sigurðsson bók-
menntafræðingur ritar greinar-
góöa ritgerð sem fylgir safninu i
sér bindi um skáldsögur Guð-
mundar og eðli þeirra. 1 þvi
bindi er einnig að finna kafla um
útgáfurogheimildirum verk og
ævi höfundar sem ólafur
Pálmason ritar.
,,1 skáldsögum sinum fæst
Guömundur ákaflega og raunar
ma-kilega litið við samfélagið
miðaö við það hversu aörir höf-
undar á hans aldri gera raunar
mikið úr tilvist þess. Viðfangs-
efni Guömundar er miklu frem-
ur einstaklingurinn og þá sér-
staklega hinn sterki einstak-
lingur”, sagöi Eysteinn
Sigurðsson um skáldskap Guð-
mundar. ,,Hann fjallar öðru
fremur um innri átök mannsins
og fjölbreytni hans í ytri að-
stæðum. Guðmundur er frekar
klassfskur höfundur. Hans still
er ekki bundinn á klyfjar
ákveðinnar bókmenntastefnu.
Hann er utan við allar tisku-
stefnur sem rikjahverju sinni”,
sagði Eysteinn.
„Ég get ekki sagt að ég sé
sósfalrealístiskur i minum sög-
um. A minum yngri árum
gerðist ég andhverfur því trú-
boðisem þeirristefnu fylgdi.Ég
hef mest gaman af þvi að skoða
inn I manninn rétt eins og litiö
barn sem vill taka i sundur leik-
fang sitt og kanna innra eðli
þess. Það má segja að fjöl-
breytni mannsins sé mitt
viðfangsefni” sagði Guð-
mundur.
En hver er framtið bókarinn-
ar sem slikrar. Eröld tölvunnar
og videósins ekkiað bera bókina
ofurliði?
,,Ég tel svo ekki vera. Þaö
hefur sýnt sig i gegnum árin að.
þegar eitthvaö nýtt og gripandi
kemur upp á yfirborðið eins og
sjónvarpiö um árið og videóið i
dag að fólk gleypir þetta fyrst i
einum munnbitaog meltir þetta
fljótt. Ég tel bókina standast
fullkomlega timans tönn. Hún
er I rauninni sigild sem slik”,
sagöi Sverrir Kristinsson útgef-
andi úrvalsritanna.
Eins og áður greinir geyma
úrvalsritin tiu skáldsögur Guö-
mundar sem skrifaðar voru á
árunum frá 1948 til 1970. Viö val
bókanna var höfð hliðsjón af
þeim bókum sem eru og hafa
verið uppseldar tii þessa dags
og ferðasögum og smásögum
sem hafa þóttmerkilegar nú hin
siðari ár en hlutu ekki verð-
skuldaða athygli á fyrri árum.
Úrvalsritin kosta 2.717 og fást
með afborgunum.
Féiag íslenskra auglýsingalelknara:
Kynnir verk frumherja
Félag islenskra auglýsinga
teiknara hefur gefið út veglegt rit
þar sem minnst er upphafsmanna
stéttarinnar hér á landi og innsýn
gefin i stöðu hennar siðastiiðin 25
ár.
í ritinu er m.a. fjallað um
frumherja þeirrar starfsgreinar
sem i dag er kölluð grafisk hönn-
uneða auglýsingateiknun, alltfrá
Sigurði málara fram til nútim-
ans. 1 verkinu er einnig að finna
skrá yfir helstu fyrirtæki sem
þjóna auglýsingagerð og
prentiðnaði nú.
Mjög hefur verið vandaö til
þessa verks og sáu ýmsir félagar
FIT um hönnun þess. Félags-
menn er nú um 60 talsins.
Afmælisritið fæst i helstu bóka-
búðum i Reykjavik.
|f| Auglýsing
Með visun til 17. og 18. gr. skipulagslaga
nr. 19/1964 er hér með auglýst tillagan:
Aðalskipulag Reykjavikur, Austursvæði
1981-1998. Tillagan tekur til svæðis, sem
afmarkast á þessa leið:
Mynni Elliðaáa (Elliðaárós), vestarikvisl
þeirra að mótum Reykjanesbrautar og
Bústaðavegar. Siðan Reykjanesbraut og
mörk Reykjavikur og Kópavogs um Sel-
hrygg og Vatnsendahæð að Elliðaám og
þaðan áfram austur fyrir Skyggni. Þá tek-
ur við strönd Elliðavatns að mörkum
Rauðhólafólkvangs við Bugðu. Siðan
fylgja mörkin Bugðu, uns hún kemur að
Suðurlandsvegi, en þá ræður vegurinn,
þar til kemur að mörkum Mosfellshrepps
vestan við Geitháls. Eftir það ráða mörk
Reykjavikur og Mosfellshrepps allt að ós-
um Korpúlfsstaðaár (úlfarsár). Þá tekur
við strandlengjan allt að Elliðaárósum, og
er Geldinganes þar innifalið.
Uppdráttur, ásamt greinargerð, fyrirvör-
um og öðrum tilheyrandi gögnum, liggur
frammi almenningi til sýnis i skrifstofu
Borgarskipulags Reykjavikur, Þverholti
15, frá og með 30. október 1981 til og með
14. desember n.k.
Athugasemdir, sem menn óska að gera,
skulu hafa borist Borgarskipulagi eigi sið-
ar en kl. 16.15 miðvikudaginn 30. desem-
ber n.k.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan
ofangreinds frests, teljast samþykkir til-
lögunni og þeim breytingum, sem hún fel-
ur i sér. Reykjavik, 21. október 1981.
F.h. Skipulags rikisins, Borgarstjórinn i
Reykjavik,
Zophonias Pálsson. Egill Skúli
Ingibergsson.
BLAÐBURÐARFÓLK
ÓSKAST
Lækir II
Kleppsvegur frá 2-60
Selvogsgrunnur
Sporðagrunnur L,
j
Þórsgata
Baldursgata
Freyjugata
Njarðargata
Sóleyjargata
Bragagata
Fjólugata
Smáragata
Tjarnargata
Bjarkargata
Suðurgata
Lækjargata
Höfðahverfi
Hátún
Nóatún
Samtún
Stakkholti 2-4 Simi 86611
HERÐATRÉ
til styrktar fötluðum
SÖLUDAGUR 31.0KTÓBER
Vinsamleqa takió sölubörnum vel.