Vísir - 30.10.1981, Síða 15
Föstudagur 30. október 1981
itfsm
15
Hilda hf. með
kynningarfundi og sýningar i N-Ameriku:
kynna fsiensku ullina
,,Það er yfirleitt
aldrei kallað á blaða-
menn nema til þess að
kvarta og barma sér.
Okkur hefur hins vegar
gengið vel og við höfum
áhuga á að sýna hvað
við erum að gera”,
sagði Þráinn Þorvalds-
son hjá Hildu hf. á
blaðamannafundi, sem
fyrirtækið hélt.
A fundinum var tiskusýning,
þar sem fimm fyrrverandi
Ungfrú ísland sýndu nýjung-
arnar i framleiðslu Hildu hf.
Þaö voru þær Ragna Ragnars,
Guðlaug Guðmunds dóttir,
Unnu Steinsson, Anna Björk
Edvards og Halldóra Björk
Jónsdóttir. Sigurður Hannes-
son, sölustjóri hjá Hildu,
aðstoðaði stúlkurnar og sýndi
karlmannafatnaöinn. Hópinn
þjálfaði Kolbrún Aðalsteins-
dóttir. Tfskusýningu þessa hélt
fyrirtækiö við vörukynningar i
Bandarikjunum og Kanada i
september og vakti hún hvar-
vetna mikla athygli.
Hilda hf. hefur i fjölda ára
staðið fyrir margskonar kynn-
ingum á islenskum ullarvörum.
Þær hafa einkum fariö fram i
verslunum þeim, sem fyrir-
tækið selur til i N-Ameriku. A
þeim mörkuðum selur fyrir-
tækið beint til verslana án milli-
liða.
Liður i þessari kynningu
Hildu hf. var ferö fimm hópa
frá fyrirtækinu til Bandarikj-
anna og Kanada i haust. Komu
hóparnir við i 44 verslunum og
haldnar voru 32 tiskusýningar
auk kynningar- og fræðslu-
funda. Vöktu kynningarnar og
vörurnar mikla athygli, að sögn
talsmanna Hildu, og birtust
margar blaðagreinar viðtöl og
sjónvarpsviðtöl við
Islendingana. Margir höfðu
engu minni áhuga á Islending-
unum sjálfúm en vörunum,
þannig að segja má aö um leið
og fslenskar ullarvörur voru
kynntar hafi sýningarnar verið
ágætis landkynning.
Útflutningur á ullarvörum
hefur margfaldast á síöasta
áratug, eða átjánfaldast á
meðan iðnaðarútflutningur i
heild hefur tæplega áttfaldast.
Hlutur Hildu i heildarfatnaðar-
útflutningi er um 30%, en
útflutningsaukning fyrirtækis-
ins frá árinu 1975 hefur verið
þessi: 196% aukning árið 1976,
112% árið ’77, 17% árið ’78, 43%
árið ’79, og 28% i fyrra. í ár er
gert ráð fyrir að aukningin verði
á milli 20-30%.
Þrátt fyrir þessar ánægjulegu
staðreyndir, er útlitið núna ekki
eins bjart og verið hefur, að
sögn talsmanna Hildu. Gengis-
þróunin i ár hefur ekki verið
hvetjandi fyrir útflutning til
Evrópu, og almennir efnahags-
erfiðleikar á erlendum mörk-
uðum koma fram i minnkandi
kaupmætti, og það kemur sér-
staklega hart niður á dýrum
varningi, eins og islenskar
ullarvörur eru. Þá má siöast en
ekki sist nefna vaxandi sam-
keppni frá eftirlikingum af is-
lenskum ullarfatnaði, bæöi i
Evrópu og N-Ameriku, þá sér-
staklega frá Kanada en fram-
leiösla eftirlikinga af islenskum
ullarfatnaði i Kanada er orðin
það umfangsmikil að hún ógnar
mjög markaðsaðstöðu
fatnaðarins frá Islandi. Islensku
vörurnar eru 30-40% dýrari en
þær kanadisku og eftirlík-
ingarnar eru það nákvæmar, aö
jafnvel er likt eftir vöru-
merkjunum islensku.
Hilda hf. rekur sem sjálfstætt
fyrirtæki verksmiðjuna Hlin hf.
sem framleiðir kápur og jakka
fyrir innlendan markað og út-
flutning. Á innlenda markað-
inum er varan seld undir vöru-
merkinu Gazella. Gazellavörur
hafa verið á islenska markað-
inum um áraraðir og eru þær
vörur eina innlenda kápufram-
leiðslan á markaðinum.
Robert Landau, eigandi versl-
unar og póstlista i Princetown i
New York er afar hrifinn af
Gazella vörunum: „Gazella
Mjndirnar hér á sið-
unni eru teknar af
tiskusýningu Hildu
hf« en slikar sýningar r
voru haldnar i Banda-
rikjunumog Kanada i
haust og vöktu þær
gifurlega athygli.
Sýningarstúlkumar
fimm eru allar fyrr-
verandi Ungfrú ís-
land, en karlmaður-
inn er sölustjóri
Hildu.
Visismyndir: EÞS
vörur frá Islandi eru i hæsta
gæðaflokki. Okkur hafa veriö
boðnar kápur og jakkar frá
framleiðendum heima og er-
lendis, meðal annars frá
Evrópu, en við veljum Gazella--
vörur vegna gæöanna”.
Þar sem Gazella-vörurnar
hafa sannað, að þær geta staöiö
af sér erlenda samkeppni, segja
talsmenn fyrirtækisins að
ákveöiö hafi verið aö leggja
meiri áherslu á innlenda
markaðinn og auka hlutdeild
Gazella i kápu- og jakkasöluhér
á landi. —ATA
Flmm fegurðardrottnlngar