Vísir - 30.10.1981, Síða 27
Föstudagur 30. október 1981
VÍSIR
Jóhann Hjartarson virð-
ist ðruggur sigurvegari
/ a 3 + s í ?■ e q /o /t /z viuu.
/• SVE/fJN KeiST/fiJSSOtJ m 0 ■u 1z 0 1z ‘Iz 0 'lz 1 u
S. a'OHANN HTA&TAR SON i m 1 1 0 h 1 / / 1z 7 + /6
3. ARNOZ- &7ÖK/VSS0/J ’/z 0 / 0 'lz 0 'lz / 0 3/ztUS
+ a'oN t>OKSTE/NSSOaJ U 0 0 » 0 1 1 b % 1 H'lz + IS
S. SÆVAZ aaAGNASOol i / 1 / * /z U 'lz 0 1 0 í 1z
k. RENEhi KTT Z/ÓAtASSON u 'lz 0 ’/z % u 'lz 'lz / 1 5t 12
7- ELVAR. CrLl ö/fl/JN 2) S S O aJ ‘h 0 'lz ’/z * 0 ’/z / 1 /z Hlzt/B
8. TSAN JJANSSOOJ 1 0 l ’lz 'lz 1 9 u 0 ‘Iz 'lz 5/7,
9. EJ'ÓZN j'ottANNESSON 'lz 0 ’/z 'lz 'll ’lz % 0 0 U 31/e
ID- ZJí/L/Us Eœi-ÖJÓoJSSOaJ ö 'lz 'lz 1 0 0 l 1 • 1 0 s
II- BJÓ/ZN SÍOUKJÓNSSOaJ 0 0 ’/z 0 0 0 'lz 1 0 m 'lz Z'/z
12. J0HANN '6. SÍCUZJooISSOÁ 'lz 'lz 1 0 1 'lz 'lz 'lz / ’lz 6
Taflanl A-riöli
Staöa efstu manna i öðrum
riðlum er þessi:
B-riðiii:
1. Stefán G. Þórisson, 7 1/2 v.
2. Guðmundur Halldórsson 5 1/-
2 v. + '2 biðskákir.
3. Páll Þórhallsson
C-riðill:
1.-2. Rögnvaldur Möller 6 1/2
1.-2. Jón H. Björnsson 6 1/2
3. Agúst Ingimundarson 6.
D-riðill:
1. Jóhann Ragnarsson 7 1/2
2. -3. Stefán Þ. Sigurjónsson 7
2.-3. Eggert Þorgrimsson 7
E-riðill:
1. Þröstur Þórhallsson 8.
2. Óskar Bjarnason 7.
Jóhann Hjartarson viröist
ætla að veröa hinn öruggi sigur-
vegari I A-riölinum, enda lang-
stigahæsti maður mótsins. Að-
eins Sævar hefur komiö lagi á
meistarann með snaggaralegri
vinningsskák. Þar haföi Jóhann
hvitt, en veikti peðastöðu sina
með ótimabærri framrás, og
þetta var Sævar fljótur aö nýta
sér til vinnings. Það er athyglis-
vertað Sævar hefur tapaö báð-
um sinum skákum með hvitu,
en reyndar hefur svartur komið
mun betur út i A-riðlinum. Þar
hefur hvitur unniö 12 skákir, en
svartur 20.
1 b-flokknum hefur ungur og
efnilegur skákmaöur Stefán G.
Þórisson teflt öðrum betur og
stefnir á 1. sætiö. Eftir rólega
byrjun, jafntefli I 3 fyrstu skák-
unum, hefur hann tekiö mikinn
kipp og hlotiö 6 vinninga ilr sið-
ustu 7 skákunum. Meöal þeirra
var snotur skák gegn gamal-
kunnum sóknarskákmanni,
Braga Björnssyni.
Hvitur: Bragi Björnsson
Svartur: Stefán G. Þórisson
Benkö-gambitur
1. d4 Rf6
2. c4 c5
3. d5 b5!
(Arangursrikasta peösfórn
allra tima, ef marka má orð
Benkös sjálfs en liann segir 75%
allra skáka vinnast á svart, þar
sem henni er beitt).
4. cxb5 a6
5. bxa6
(Hér hafa ýmsar leiðir verið
reyndar fyrir hvitan, en hið
sama i veröur oftast uppi á ten-
ingnum svartur fær gott spil
fyrir peðið).
5.... Bxa6
6. f3
(Hvitur velur uppbyggingu sem
þykir heldur vafasöm, og leiöir
til veikingar á peöastöðu hvits).
6. ... g6
7. e4 Bxfl
8. Kxf 1 d6
9. Re2 Bg7
10. Rb-c3 0-0
11. g4 Rb-d7
12. Bf4?
(Úr þvi sem komið var, virtist
best að leika 12. Rg3 og reyna
kóngssókn með h4 og h5).
12.. . Db6
13. Hbl c4
14. Kg2
(Ef 14. Dd4 Da6 og svartur hefur
eflt tök sin á c 4 og d3 reitunum,
auk þesssem 15... Rxg4er yfir-
vofandi).
14.. . Rc5
15. Be3 Rf-d7
16. f4?
(Eðlilegra var 16. Dd2. Eftir
peðsleikinn verður staöa hvits
alltof losaraleg.)
16.. . Db7!
17. Bd4 e5!
18. dxe6 e.p.
18.. .. Rxe4!
19. Kh3
(Ef 19. Rxe4 Dxe4+ 20. Kg3
Bxd4 21. Rxd4 fxe6 meö yfir-
burðastööu fyrir svartan).
19.. .. Rd-f6
20. exf7+ Hxf7
21. HÍ1 Ha5
22. Rxe4 Dxe4
23. Rc3 Db7
24. Df3 Dd7
25. f5?
(Afleikur i afleitri stöðu. Nauð-
synlegt var 25. Kg3 og losa
kónginn Ur leppuninni).
25.. . h5!
26. Bxf6 Hxf6
27. Rd5 hxg4+
28. Dxg4 Hxd5
29. Dxc4 Hxf5
30. Kg2 Kh7
31. Hxf 5 Hxf5
32. Hdl Db7+
33. Kh3 Df3+
og hvltur gafst upp.
Jóhann örn Sigurjónsson
Keflvikingar -
Suðurnesjamenn
athugið
Höfum ávallt fyrirlíggjandi frá
Siemens:
Þvottavélar, þurrkara, eldavélar,
uppþvottavélar, ísskápa og margt fleira.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Ra ftækja vers/unin
Hábær hf.
Hafnargötu 49 — Keflavík — Sími 3780
Sumar og vetur
• Dönsk reyrhúsgögn
• Margir notkunarmöguleikar
• Fjölbreytt úrval
• Stólar frá kr. 1225.-
• Sófar 2prs. frá kr. 2980.-
• Borð frá kr. 775.-
Húsgagnadeild
#Nýborg
Ármúla 23 Sími 86755
H
00PINBER FRM9ARHEIMS0KN NEÐANSJÁVAR
Kannski væri réttast að senda
Svium Ólaf Ragnar Grimsson til
að boða friö þegar svo er komið
að Sovétmenn hafa sent kafbáta
upp i landssteina viö sænsku
fiotastöðina i Karlscrona mitt i
þvi linnulausa friðarstarfi sem
einkennir bæði Sovétmenn og
Svia. önnur friðarheimsókn var
Svium gerö á siöastliðnu hausti,
og var þá talað um kafbát frá
baltisku löndunum eöa jafnvei
Póllandi. Um þær mundir stóö
yfir heimsókn Olafs Palme til
Sovétríkjanna, og þvi skipti
miklu að feðra þann kafbát rétt.
A hinum háifsænska rikisfjöi-
miðli Islendinga er aftur á móti
að heyra núna, að sá kafbátur
hafi iika verið sovéskur. Ekki
hefur verið skýrt hvernig hægt
er að vita nú, að hann hafi verið
sovéskur löngu eftir aö hann er
farinn, fyrst hann var talinn
einna helst vera pólskur meðan
hann lá innan skerjagarðsins
sænska.
Nú standa engar heimsóknir
sænskra hálfkomma til Sovét yfir
svo óhætt virðist fyrir rikisfjöi-
miðla á Norðurlöndum að stað-
hæfa, að kafbáturinn við Karls-
crona sé sovéskur, og jafnvel ó-
hætt fyrir Svia llka að taka af
skarið um það efni. Einn yfir-
hershöfðingi Bofors-landsins er
sagður hættur viö aö fara til So-
vétrikjanna af þessu tilefni.
Ljóst er af nýhöfnum áróðri
fyrir einhliða afvopnun Vestur-
Evrópu, sem jafnvel er rekinn i
kirkjum á Islandi og af prestum
þjóðkirkjunnar i fjölmiðlum, að
sameina á guðstrúna, kommana
og sprengjuna I eitt allsherjar
friðartákn handa óttaslegnum
heimi. Að visu þarf hvergi aö
reka friöarhreyfingu nema I
Veslur-Evrópu, og sýnir það eitt
með öðru, aö fleira en sprengjan
er á feröinni, þvi samkvæmt
þessu viröist mega átölulaust
sprengja upp hinn hlutann af
heimsbyggðinni. Hlutleysi Svla
hefur þótt eitt flnasta hlutleysiö
i heiminum, og þeir hafa talið
sig sjálfkjörna til að veita friöi
forustu. Samhljóma hefur verið
friðartali þeirra áróðurinn fyrir
friði I Vestur-Evrópu, sem Sov-
étmenn styðja af alefli. Sviar og
Sovétmenn hafa þvi verið
bandamenn i friði ef ekki guös-
friöi. En traustið nær ekki niður
fyrir sjávarborð. Undir sjávar-
borði telja Sovétmenn nauðsyn-
legt að hafa nokkurt eftirlit með
sænsku hlutleysi. Þess vegna
kemur stundum fyrir að kafbáta
þeirra setur fasta á sjávarbotni
úti fyrir flotastöð á borð við
Karlscrona.
Og það hefur komið á daginn,
að svo öruggir hafa Sviar verið
um sig fyrir Sovétmönnum, að
beri ókenniiegan kafbát að
ströndinni er hann vlsast pólsk-
ur, en sé ekki hægt að vikjast
undan þvl að hann sé sovéskur,
þá verða ibúar I skerjagarðin-
um að gera viövart um hann,
vaktir af værum blundi vegna
vélarhávaða frá kafbátnum, þvi
ekki hefur hin hiutlausa flota-
stöð I Karlscrona nokkra viö-
burði uppi til að verja innsigi-
inguna.
Þannig ieika tvær alræmdar
friðarþjóðir sér að vopnum
meðan Ólafur Ragnar Grimsson
og aörir lafmóðir friðargöngu-
menn linna ekki labbi slnu I
þágu landiukts friðar i Vestur-
Evrópu. Sviar munu halda á-
fram að hamra á friði og hlut-
leysi, þótt striðsbröltið við
strendur landsins haldi vöku
fyrir Ibúum skerjagarðsins.
Eins og málflutningi friðarfólks
erháttað, má ætla að eina slysiö
varðandi strandið við Karis-
crona sé fyrst og fremst það, að
kafbáturinn er ekki bandariskur
— fyrst hann gat ekki verið
pólskur. Alkunna er að Sovét-
menn vilja ekkert nema frið.
Þeir eru svo miklir friðarsinn-
ar, að eina friðarþjóðin á Norð-
uriöndum fær óopinbera heim-
sókn neðansjávar á sama tlma
og norrænir frændur standa i
heimsóknum á þurru og syngja
Kardimommubæinn, og er þó
betri helmingurinn i Nato.
Svarthöföi