Vísir - 11.11.1981, Blaðsíða 3

Vísir - 11.11.1981, Blaðsíða 3
*. *, r;» Miövikudagur 11. nóvember 1981 Farskrárkerfi Flugleíöa innan- lands tðlvuvæfl Farskrárkerfi innan- landsflugs Flugleiða hefur nú verið tölvuvætt. Hefur félagiðfest kaup á tölvukerfi, sem mörg er- lend flugfélög hafa í þjónustu sinni og nefnist CPARS, en hefur á islensku fengið heitið SLEX. Með tilkomu nýrrar tölvu Flugleiða hefur verið ákveðið að frá og með næsta vori verði eigin tölva einnig nýtt til skráningar milli- landafarþega. Allar farskráningar farþega til og frá Reykjavik hafa veriö framkvæmdar meö tölvu Flug- leiða frá 1. nóvember, en tölvan er staðsett i aðalskrifstofunni á Reykjavi'kurflugvelli. Þá var skrifstofa félagsins á Akureyrar- flugvelli tengd við tölvukerfið 3. növember og er stefnt að þvi að aðrar söluskrifstofur Flugleiða innanlands komist i tölvusam- band hið allra fyrsta. Að sögn talsmanna Flugleiða er hér um gagngera breytingu að ræða f vinnubrögðum og kemur, er fram liða stundir, farþegum, starfsfólki og félaginu sjálfu til góða. Farskráningin verður fljót- ar afgreidd og auðveldara verður að fylgjast með hvort sæti er til á þeirri leið, sem farþeginn vill ferðast. Þá auðveldar tölvan betri nýtingu flugvélanna. Starfsmenn innanlandsfulgsins hafa undanfarið verið á nám- skeiðum, þar sem notkun tölv- unnar hefur verið kennd. Þrátt fyrir þetta mun það taka starfs- fólkið nokkurn tima að ná fulkim hraða og vinnuafköstum v.ið tölvuskráninguna. Með þvi' aö nota eigin tölvu við farskráningu millilandafarþega, aukast möguleikar á fljótari af- greiðslu. Til dæmis geta þá inn- lendar ferðaskrifstofur tengst kerfinu beint með eigin skráningarskermum og bókað þannig viðskiptamenn á ferðir án milliliða og simhringinga. Einnig hafa skrifstofur Flugleiða utan Reykjavikur sömu möguleika á fljótri afgreiðslu millilandabók- ana. Þá er i sjónmáli að farseðlar verði útgefnir af tölvunni sjálfri en ekki handskrifaðir eins og nú er. Möguleikar Alex bókunar- kerfisins eru miklir og meðal þess, sem afgreiöslufólk mun hafa aðgang að i þessu kerfi eru: Eigin áætlanir, framhaldsflug með öðrum flugfélögum, sjálfvirk samskipti við tölvur annarra flugfélaga, farseðlaútgáfa, far- þegalistar, fargjaldalistar og m’argt fleira. Nafnið Alex er upphafn nafns Alexanders Jóhannessonar, há- skólarektors, en eins og kunnugt er var hann einn frumkvöðla islenskra flugmála. —ATA Jakob Sigurðsson, forétöðumaður tölvudeildar, og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, fylgjast með er Edda Snæhólm vinnur við nýju Alex tölvuna. (Visismynd: GVA) Gengisiellingin sem Deðið var eftlr: Krónan lækkar um 65% - afurðalánln affur lærð i fslenskar krðnur Bankastjórn Seðlabankans ákvaö i gær aö höfðu samráði við rikisstjórnina og bankaráð ákveðið 6,5% lækkun á vegnu meðalgengi islensku krónunnar. 1 frétt frá Seðlabankanum segir að þessi akvörðun sé tekin með hliðsjón af versnandi rekstrar- stöðu atvinnuveganna að undan- förnu, þar á meðal vegna lækkandi gengis Bandarikja- dollars en megin - hluti tekna sjávarútvegs er i þeim gjald- miðli. Eftir þessa gengisbreytingú verður að þvi stefnt að halda vegnu meðalgengi krónunnar stöðugu fram á næsta ár þó þannig að kaupgengi dollars fari ekki niður úr 8,156 kr. eins og það var skráð i gær. Þá segir ifrétt Seðlabankans að i sambandi viö þessa gengis- lækkun hafi verið fjallað um hugsanlega breytingu á gengis- bundnum afurðarlánum þannig að þau verN héðan i frá i islenskum krónum með hliðstæð- um vaxtakjörum og önnur afurðalán. Endanlega ákvörðun i þessum efnum verður tekin á næstunni eftir frekari viðræður við rikis- stjómina og fulltrúa útflytjenda. Þangaðtil hefur verið ákveðið að fresta uppfærslu afurðalána til samræmis viö þá gaigisbreyt- ingu, sem nú er orðin. —KS Við erum fluttir... Nýtt heimilisfang: Skúlatún 6 Ný símanúmer: 29855 & 29840 Verð kr. 1.980 Verð kr. 1.180 Verð kr. 1.980 Verð kr. 1.480 Verð kr. 1.260 ^Verð kr. 620 Sendum í póstkröfu Gerum einnig föst verðtilboð í stærri og Verð kr. 1.280 smærri innréttingar ÞRÍGRIP HF. Skúlatúni 6. Símar: 29840 & 29855.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.