Vísir - 11.11.1981, Page 8
8
Miövikudagur 11. nóvember 1981
yísm
'ÆnaSiir
[Otgefandi: Reykjaprenth.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aöstoöarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Auglýsingastjóri: Páll Stetansson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen- Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
drup, Árni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Ritstjórn: Síðumúli 14, simi 86611, 7
Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8, simar86611 og 82260.
marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaður á Akureyri: Gísli Afgreiösla: Stakkholti 2—4, simi 86611. (
Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O, Steinarsson. Ljósmynd- Áskriftargjald kr. 8,50 mánuði innanlands
ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés^on. _ - og verð i lausasölu 6 krónur eintakið.
utlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson.
Safnvöröur: Eiríkur.Jónsson. Visir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14.
Fleiri krofugöngur
Áður fyrr bar það til meiri
háttar tíðinda, þegar kröfugöng-
ur fóru um bæinn, klyfjaðar
kröfuspjöldum um bætt kjör og
minni vinnu. Göngumenn steyttu
hnefa og stigu fast til jarðar og
fylgdu kröfum sínum eftir af
harðfylgi þeirra einna sem heyja
lífsbaráttu í sveita síns andlits.
Seinna komust annarskonar
göngur í tísku, þar sem menn
lögðu land undir fót frá Miðnes-
heiði að Lækjartorgi, báru rauða
fána í hendi til heiðurs fóstur-
jörðinni og iofsungu Sovét-island
í nafni friðar og frelsis. Þeir
voru mestir íslendingarnir, sem
lengst gengu og síðan hef ur þjóð-
ernið verið mælt í vegalengdum.
Ekki dugði minna en Hval-
fjarðarganga fyrir þá sem ekki
vildu láta ættjarðarást sína fara
milli mála.
En nú er öldin önnur. Verka-
lýður hefur lagt niður kröfu-
göngur nema til málamynda á
verkalýðsdaginn og friðargöngu-
menn hyggjast skipuleggja píla-
grímsferðir til Karlskrona, enda
fengi ættjarðarástin sjálfsagt
nýja vídd á þeirri gönguleið.
Á meðan eru hinsvegar farnar
nýstárlegri kröfugöngur í mið-
bænum. Menntskælingjar hópast
þúsundum saman niður í bæ og
heimta betri einkunnir. Laug-
vetningar fara í bæjarferð til að
halda upp á þingmennsku
Baldurs Óskarssonar og litlu
börnin í Grænuborg eru leidd til
mótmælagöngu til að lýsa andúð
sínni á rottugangi. Skiptir nú orð-
ið minna máli hvort kröfugöngu-
fólk viti hvers sé kraf ist, hvað þá
að það sé búið að læra til lestrar
eða skrifta. Aðalat-
riðið er að fara í kröfugöngu,
enda geta viðstaddir átt von á því
að þeim verði boðið í heitt kaffi
og kökur af vinsamlegum þing-
mönnum þegar búið er að sjón-
varpa uppákomunni og alvöru-
svipnum.
Þetta eru sem sagt hinar hugg j
legustu kröfugöngur og setja
svip sinn á bæinn fyrir sakir f jöl-
breytni og hugmyndaf lugs. Fleiri
mættu fylgja í fótsporin.
Næst geta leikarar mótmælt
því að þurfa að leika bæði fyrir
og eftir hlé: það þyngir vinnu-
skylduna. Knattspyrnumenn
geta heimtað aukinn útflutning á
sjálfum sér, útvegsbankinn og
Albert Guðmundsson geta mót-
mælt lánskjörum Seðlabankans
og Seðlabankinn getur mótmælt
lánum til atvinnuveganna og
síðan geta allir í kór krafist auk-
inna erlendra lána. Það gefur
börnunum i Grænuborg tækifæri
til að fara í aðra kröfugöngu til
að mótmæla af borgununum, sem
lenda vitaskuld á þeim einhvern-
tímann eftir aldamótin.
Þá gæti síðasta loðnutorfan
farið í kröfugöngu og krafist
verndar og fiskifræðingarnir
kvartað á móti undan því að
loðnan sé í feluleik um miðjan
vetur.
Guðrún Helgadóttir gæti borið
Gunnari Thoroddsen kröfuspjald
um að hann leysti danskan koll-
ega hennar úr haldi, með hótun
um að hætta að styðja ríkis-
stjórnina ella. Pálmi Jónsson
gæti mótmælt því hvað Geir f ékk
mörg atkvæði á landsf undi og svo
gæti Guðmundur J. Guðmunds-
son og verkalýðsrekendur innan
Alþýðubandalagsins farið í
myndarlega kröfugöngu til að
mótmæla þeirri frekju launþega
að heimta óhóflegar kjarabætur.
Þeir hafa jú fundið það út upp
á síðkastið að hjöðnun verðbólg-
unnar væri mesta kjarabótin og
því þurfi að stilla kaupkröfum í
hóf. Kröf uspjöldin gætu þá verið
eitthvað á þessa leið: „Stillum
kröfum í hóf” eða „Lítil kaup-
hækkun — meiri kjarabót".
Þetta yrði hin elskulegasta
kröfuganga og sjálfsagt mundi
ríkisstjórnin halda henni kaffi-
samsæti í þakklætisskyni og
verða við kröfum hennar aldrei
þessu vant.
Allt verður þetta til upp-
lyftingar og heilsubótar í
skammdeginu. Um hitt spyr eng-
inn, hvort eitthvert vit sé í kröf-
unum.
Runninn er út framboðsfrest-
ur til prófkjörs sjálfstæðis-
manna i Reykjavlk vegna borg-
arstjórnarkosninganna. Hinn
endanlegi framboöslisti er þó
ekki fullskipaður, því aö kjör-
nefnd hefur leyfi til þess að
bjóða sjálf fram menn og konur.
Þeir einir hafa kosningarétt I
prófkjöri þessu, sem eru flokks-
bundir sjálfstæðismenn. Er það
veruleg framför og ætti að
verða óflokksbundnum stuðn-
ingsmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins hvatning til þess að ganga I
flokkinn.
Prófkjör þetta er mjög mikil-
vægt fyrir stöðu flokksins i upp-
hafi kosningabaráttunnar, ekki
sist vegna þess, að þetta er i
fyrsta, og vonandi eina skiptið,
sem sjálfstæöismenn eru i
minnihluta i Reykjavik.
Davíð er borgarstjóra-
efnið
Davið Oddsson var kjörinn
talsmaður sjálfstæöismanna I
borgarstjórn vorið 1980, eftir að
Birgir ísleifur Gunnarsson haföi
ákveðið að leita ekki eftir end-
urkjöri sem borgarstjóri. Davið
var kjörinn til þessa starfa með
öllum atkvæðum aðal- og vara-
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. Kjör Davlðs var i
samræmi við fyrri leiðtoga-
skipti i borgarstjórn, en þeir dr.
Gunnar Thoroddsen, Geir Hall-
grimsson og Birgir Isleifur
Gunnarsson höfðu allir tekið við
borgarstjórastarfi á miðju kjör-
timabili, m.a. til þess að undir-
búa þá undir næstu borgar-
stjórnarkosningar og þá ekki
siöur til þess að borgarbuar
fengju að kynnast þeim I starfi
áður en þeir leiddu flokkinn I
kosningum.
Reynslan hefur sýnt, að Daviö
var þessa trausts veröur, og
hann hefur leitt flokkinn, örugg-
lega
Tryggjum Davið
góða kosningu
Landsfundi Sjálfstæðisflokks-
Mikilvægt prófkjðr
ins, er nýlokiö. A þeim fundi
lýstu forustumenn flokksins,
hvort heldur I stjórn eöa stjórn-
arandstöðu yfir einhuga vilja til
þess að flokkurinn gengi sam-
einaður til borgarstjórnarkosn-
inganna Og endurheimti
Reykjavik úr höndum vinstri
manna.
Til þess að þetta megi takast
verða sjálfstæðismenn að
tryggja borgarstjóraefni sinu
góða kosningu, sýna, að hann sé
hafinn yfir dægurkritur.
1 þessu efni er rétt að minnast
þess, að þá hefur Sjálfstæðis-
flokknum gengið best, þegar
menn hafa þjappast saman að
baki forustumönnum sinum og
gengið til kosninga einhuga.
Andstæðingar flokksins hafa
að undanförnu reynt að koma
þeim kvitt á kreik, að ekki sé
einhugur meðal sjálfstæðis-
manna um Davlð Oddsson sem
borgarstjóra,
Sjálfstæðismenn eru orönir
vanir sllkum fregnum. Þetta
hafa andstæðingar flokksins
reynt árum saman við forustu-
menn flokksins. En sá er mun-
urinn á sjálfstæðismönnum og
Alþýðuflokksmönnum, að
Alþýöuflokksmenn trúa rógs-
mönnunum, og hafa þannig fellt
hvern formann sinn á fætur öðr-
um, en sjálfstæðismenn verða
þeim mun hollari forustumönn-
um sinum sem rógurinn er
grimmari.
Og tryggja
áhrif kvenna
En jafnframt þvi að tryggja
Davið Oddssyni góða kosningu i
prófkjöri, verða sjálfstæðis-
menn að tryggja það, að konur
séú i efstu sætum listans.
Eftir siðustu borgarstjórn-
ar- og Alþingiskosningar varð
það i fyrsta skipti i sögu Sjálf-
stæðisflokksins að engin kona
var meðal fulltrúa sjálfstæðis-
manna I borgarstjórn eða á
Alþingi.
Þetta var verulegt áfall fyrir '
Sjálfstæðisflokkinn og má ekki
henda aftur.
Það er mikið talað um sjálf-
stæö kvennaframboð. Talsmenn
slikra framboða hafa fyrst og
fremst og nær eingöngu verið
konur úr öðrum stjórnmála-
flokkum og sýnir það gjörla við
hvaða hlut konar telja sig búa á
þeim bæjum.
Enn sem komið er hafa sjálf-
stæöiskonur verið andsnúnar
þessum hugmyndum og ég á
ekki von á þvi, að þær skipti um
skoðun i þvi efni.
Margar færar konur
i framboði
Margar ágætar sjálfstæðis-
konur hafa boðið sig fram til
prófkjörsins. Ég ætla ekki að
gera upp á milli þeirra i þessum
pistli. Ég vil hins vegar leggja á
þaö áherslu, að kjósendur, i
prófkjörinu geri sér grein fyrir
þvi, að heildarsvipmót fram-
boðslistans veröur að verulegu
leyti mótaö i þessu prófkjöri.
Reynslan sýnir, að menn hafa
ekki viljað hnika listanum mikið
Haraldur Blöndal lög-
fræðingur skrifar um
væntanlegt prófkjör
sjálfstæðismanna fyrir
borgarstjórnarkosningar
og leggur áherslu á mikil-
vægi þess. Um leið fer
hann lofsamlegum orðum
um Davíð Oddsson, sem
hann telur efni i góðan
borgarstjóra. Haraldur
leggur jafnframt mjög
upp úr því/ að konur séu
studdar í efstu sæti list-
ans.
til frá þvi sem hann varð i próf-
kjörinu.
Og heildarsvipmót listans
skiptir ekki siður máli en efsti
maður hans. Þvi er það mikil-
vægt, að kjósendur sjái til þess
að margar konur verði i efstu
sætum listans. Konur hafa siður
en svo reynst Sjálfstæðisflokkn-
um ódrýgri en karlar. Og nú
verður að vera valinn maður i
hverju rúmi.
Haraldur Blöndal